Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JUNI1986
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JUNI1986
B 5
„Erfitt að sitja
undir þessu“
- sagði Henri Michel eftir að Frakkar unnu Kanada
KANADAMENN komu verulega á
óvart á sunnudaginn með því að
standa vel í Frökkum lengst af
leiks þjóðanna í Heimsmeistara-
keppninni. Jean-Pierre Papin
skoraði eina markið í ieiknum
með skalia þegar aðeins 11 mín-
útur voru eftir af leiktímanum.
Þjálfari Frakkanna, Henri Mich-
el, sgði eftir leikinn að hann hefði
verið smeykur um úrslitin allan
leiktímann. „Það var erfitt að sitja
og horfa á þetta, en síðari hálfleik-
urinn var betri en sá fyrri og þegar
upp var staðiö fengum við bæði
stigin og ég get verið þokkalega
ánægður. Við hefðum átt að vinna
með meiri mun.“
Brasilíumenn geta
þakkað dómaranum
MARK frá hinum fræga brasilíska
bamaiækni, Socrates, reyndist
sigurmark Brasilíumanna gegn
Spánverjum í D-riðli HM i Mexíkó
á sunnudaginn. Sigurinn var þó
f tæpara lagi þar sem Spánverjar
skoruðu mark sem var mjög
umdeitt en fengu það ekki gilt og
geta Brasilíumenn þakkað ástr-
alska dómaranum, Bambirdge,
sigurinn í leiknum þar sem komið
hefur i Ijós eftir að þetta atvik
hefur verið skoðað á myndbandi
virðist það vera algjörlega lög-
legt.
Fyrri hálfleikurinn var frekar tíð-
indalítill, Brasilíumenn mun betri
en sköpuðu sér þó ekki umtalsverð
marktækifæri. í seinni hálfleik fóru
svo hlutirnir að ganga. Brasilíu-
menn sóttu en Spánverjar áttu
hættulegar skyndisóknir. Á 54.
mínútu kom svo að atvikinu um-
deilda. Antonio Maceda átti þá
þrumuskot af 25 metra færi sem
fór rakleiðis í þverslána og þaðan
niður í markið og yfir marklínuha
eins og sést greinilega á forsíðu-
mynd íþróttablaðsins í dag. Dóm-
arinn sá ekki að knötturinn fór
innfyrir og lét leikinn halda áfram
við mikil mótmæli Spánverja, en
það þýðir ekki að deila við dómar-
ann.
Tíu mínútum síðar skoraði svo
Socrates með skaila eftir að skot
frá Careca hafði farið í þverslána
og út. Þar biðu Socrates og félagi
hans, Elzo, einir, varnarmenn
Spánverja voru víðsfjarri. Eftir
markið reyndu Brasilíumenn að
hanga á boltanum og léku af skyn-
semi og unnu enn einu sinni á
þessum velli. Þeir þekkja sig vel á
Jalisco-leikvanginum í Guadalajara
því þeir unnu alla sína leiki nema
úrslitaleikinn þar í heimsmeistara-
keppninni 1970.
Miguel Munoz, þjálfari Spán-
verja, sagði, að hann hafi ekki verið
í aðstöðu til að sjá hvort knötturinn
hafi verið inni. „Allir eru að segja
mér að þetta hafi verið mark en
það er ekki aftur snúið. Við eigum
enn möguleika á að komast
áfram," sagði Munoz.
Kanadamenn vörðust vel, unnu
flest návígi og skallaeinvígi í leikun-
um og gáfu gjarnan háa bolta fram
völlinn á framlínumennina. „Frakk-
ar eiga bestu miðvallarleikmenn í
heimi, svo það var okkur að sjálf-
sögðu kappsmál að halda boltan-
um sem mest frá þeim,“ sagði
Tony Waiters, þjálfari Kanada.
Kanadamenn byrjuðu leikinn
vel. Þeir hleyptu Frökkum ekki
nálægt sínu marki og þeir áttu tvö
fyrstu marktækifærin í leiknum. í
seinna tilvikinu náði Maxime Boss-
is naumlega að bjarga á marklín-
unni.
En Frakkar náðu smám saman
tökum á leiknum, voru mjög mikið
í sókn, en sem fyrr voru sóknar-
mennirnir ekki á skotskónum.
Papin og Rocheteau voru mátt-
leysislegir og þau færi sem þeir
fengu gátu þeir ekki notað. Það
var ekki fyrr en Michel skipti
Yannick Stopyra inná fyrir Roc-
heteau að líf færðist í sóknina. Og
það var einmitt Stopyra sem var
maðurinn á bak við mark Frakka.
Hann gaf háa sendingu fyrir mark
Kanada og Papin skoraði auðveld-
lega úr dauðafæri. Hann hafði
skömmu áður átt sláarskot og rétt
eftir markið skaut Fernandez í
stöng kanadíska marksins.
Leikur Kanada vakti þó mesta
athygli, því fyrir keppnina voru
þeir taldir með lakasta liöið. Það
vakti einkum furðu að þeir náðu
að skapa sér ágæt marktækifæri
og það þrátt fyrir að þeirra fremsti
sóknarmaður, Branko Segota, hafi
ekki verið með fyrr en undir lok
leiksins. Hann kom ekki til Mexíkó
fyrr en á fimmtudaginn.
Símamynd/AP
Fyrsta mark Sovótmanna kom strax á upphafsmfnútum leiksins í gærkvöldi. Peter Diosztl, markvörður Ungverja, á enga möguleika á að verja.
Ungverjar áttu aldrei
möguleika gegn Sovétmönnum
„AÐ fá á sig tvö mörk á fyrstu
fjórum mínútunum í fyrsta leik í
heimsmeistarakeppni er eins og
að fá högg á höfuðið. Það tekur
góða stund af jafna sig eftir slíkt,
og þann tfma gáfu þessir frábæru
leikmenn Sovétmanna okkur
aldrei. Því fór sem fór,“ sagði
Mezey, þjálfari Ungverja, á blaða-
mannafundi eftir leik Ungverja
og Sovétmanna á HM í gærkvöldi.
Miklar öryggisráðstafanir
Frá Andrási Páturuynl, fréttaritara Morgunblaðsins (Maxikó.
ÞÁ ER Heimsmeistarakeppnin
hár í Mexfkó hafin, keppnin sem
flestir knattspyrnuáhugamenn
hafa beðið eftir frá þvf útslitaleik-
urinn í Madrid milli Vestur-Þjóð-
verja og ítala var flautaður af fyrir
um fjórum árum. Næsta mánuð-
inn munu 24 landslið reyna með
sér og þegar upp verður staðið
kemur í Ijós hvaða land á bestu
knattspymumennina.
Blöðin hér í Mexíkó telja öll aö
Brasilíumenn hafi verið heppnir að
vinna Spánverja á sunnudaginn.
Sjónvarpið er búið að sýna markið,
sem dæmt var af Spánverjum,
margoft og þar kemur í Ijós að
þetta var löglega skorað mark,
boltinn fór inn fyrir marklínuna, og
blöðin tala um rán í þessu sam-
bandi.
Mjög miklar varúöarráðstafanir
eru gerðar hér á knattspyrnuvöll-
unum. Þegar ég fór á opnunar-
hátíðina á laugardaginn var fjórum
sinnum leitaö á mér og tvívegis
þurfa menn að ganga í gengum
málmleitartæki. Það er greinilegt
að Mexíkanar ætla að gera allt sem
þeir geta til að koma í veg fyrir
hryðjuverk á þessu heimsmeist-
aramóti.
Þegar opnunarhátíöin hófst
settust flestallir Mexíkanar við
sjónvarpstæki sín og fylgdust
með. Einnig safnaðist saman mikill
fjöldi á útivistarsvæöum borgar-
innar þar sem búið er að koma
fyrir stórum sjónvarpsskjám þann-
ig að fólk getur fylgst með því sem
fram fer á knattspyrnuvellinum.
Útivistarsvæði þessi eru mjög
vinsæl því frekar dýrt er á leikina
ef miðað er við kaupgetu hér í
Mexíkó.
Bandarískum ferðamönnum
sem hér eru á ferð leist ekkert á
Leikmenn Dana með magakveisu:
Sundlaugin sökudólgurinn
Frá Gunnari Gunnarssyni, fróttamanni
Morgunblaösins í Danmörku.
ÞRÁTT fyrir aö danski hópurinn
í Mexíkó hafi tekið með sér
6.000 Iftra af dönsku vatni og
allan matinn sam leikmennirnir
láta ofan f sig, þá hefur hin
skæða magakveisa, sem Mexfk-
anar kalla að gamni sínu „tour-
ista“, ekki iátið stjörnur liðsins
ffriði.
Kveisan er skæö, en varir yfir-
leitt aðeins í um einn sólarhring.
Nokkrir dönsku leikmannanna
hafa fengið i magann, og þurfti
Michael Laudrup að eyða nánast
öllum sunnudeginum í rúminu —
og á salerninu. Nokkrir hinna
leikmannanna hafa einnig þurft
• Michael Laudrup átti bágt á
sunnudaginn.
að vera rúmliggjandi vegna
þessa.
Læknar Dananna og aðstoðar-
menn hafa reynt að finna skýr-
ingar á þessu, en þær liggja enn
ekki fyrir. Langlíklegast telja þeir
þó að það sé sundlauginni við
hótel það sem danski hópurinn
dvelur á að kenna hvernig komið
er. í hitanum og sólskininu í
Mexíkó sækja leikmennirnir eðli-
lega mjög í laugina, og sam-
kvæmt rannsóknum hefur vatnið
t lauginni ekki verið upp á þaö
allra heilsusamlegasta. Því hefur
leikmönnunum nú verið bannað
að fara meö höfuðið í kaf í sund-
lauginni!
blikuna þegar þeir ætluðu að
kaupa í matinn á laugardeginum.
Allar búðir og veitingastaöir voru
að vísu opnir en ... það mátti
bara enginn vera að því að afgreiöa
því allir voru límdir við sjónvarps-
tækin. Eins og fiestum er eflaust
kunnugt er áhuginn á knattspyrnu
mjög lítill t Bandaríkjunum og þeir
ferðalangar sem ég hef rætt viö
vissu varla að Heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu væri að
hefjast hér og sögðu að þeim hefði
aldrei dottið í hug að koma til
Mexíkó ef þeir hefðu vitað af
þessu.
Háskólanum hér í Mexíkóborg
hefur verið lokað til 18. júní vegna
leikanna. Leikið er á háskólaleik-
vanginum og yfirvöld háskólans
töldu viturlegast að loka bara öllu
saman á meðan á keppninni stæöi.
Bæði var það að þeir töldu að til
illinda gæti komið milli stúdenta
og þeirra, sem væru á leiðinni á
völlinn, og einnig bjuggust þeir við
að stúdentar hefðu meiri áhuga á
knattspyrnu en skólabókum.
Opnunarhátíðin fór vel fram og
allt hefur tekist eins vel og frekast
er kosið það sem af er keppninni.
Margir höfðu búist við að meira
yrði um óspektir og þjófnaöi en
venjulega, því þaö vill oft verða
þegar mikill fjöldi ferðamanna
kemur saman á mót sem þetta. í
Mexíkóborg voru 11 morð framin
frá því á föstudagskvöldið fram á
laugardagskvöld og er það svipuð
tala og venjulega hér í borg. Sömu
sögu er að segja af ránum og lík-
amsárásum.
Sovétmenn sýndu stórkostlega
knattspyrnu í leiknum og skoruðu
sex mörk gegn engu, þrátt fyrir
að í lið þeirra vantaði þrjá
stjörnuleikmenn - varnarmanninn
Alexander Chivadze og sóknar-
mennina Oleg Blokhin og Oleg
Protasov sem allir eru meiddir.
Valery Lobanovsky, þjálfari
landsliðsins, er jafnframt þjálfari
Dynamo Kiev, og hann var með
átta leikmenn af ellefu úr liði Kiev
i landsliðinu í gærkvöldi. Allt liðið
átti stórkostlegan leik, og réð öllu
á leikvellinum með hraða og ná-
kvæmni í sendingum.
Ungverska liðið, sem fyrir HM
var álitið líklegt til afreka, sýndi
hinsvegar lítið, og komst aldrei
almennilega inn í leikinn. Ungverjar
áttu nokkur þokkaleg marktæki-
færi, en voru samt aldrei náiægt
þvíaöjafna leikinn.
Pavel Yakovnenko gerði fyrsta
markið strax á annarri mínútu með
góðu skoti af stuttu færi eftir að
ungversku vörninni hafði mistekist
aö hreinsa eftir aukaspyrnu. Og
áöur en Ungverjar náöu að jafna
sig á áfallinu kom mark númer tvö.
Sergei Aleinikov átti þá fast skot
af 20 metra færi sem rataði rétta
ieið í netiö.
I stað þess að slaka á héldu
Sovétmenn áfram að sækja af
krafti, og ungverska vörnin var í
tætlum. Strax á 13. mínútu reyndi
Mezey þjáifari að bæta úr með
því að taka Antal Roth af leikvelli
og setja Burscha inn á í staðinn,
enallt komfyrirekki.
Á 24. mínútu kom þriðja markið.
Belanov var þá felldur inn í vítateig
og hann skoraði sjálfur úr því af
öryggi. Staðan í hálfleik var 3:0.
(síðari hálfleik, þegar flestir áttu
von á því að Sovétmenn myndu
slaka á og leggja aðaláhersluna á
að halda knettinum, „drepa ieik-
inn" eins og það er kallað, héldu
þeir uppteknum hætti. Ivan Yar-
emchuck skoraði tvö mörk í fyrri
hluta háklfleiksins og Sergei Rod-
inov bætti svo sjötta markinu við
þegar 9 mínútur voru eftir. Sovét-
menn veittu sér meira aö segja
þann munað að brenna af víta-
spyrnu um miðjan hálfleikinn.
„Sovétmenn eiga mjög gott
landslið um þessar mundir og í
því eru nokkrir af bestu knatt-
spyrnumönnum heimsins," sagði
György Mezey eftir leikinn og bar
sig vel þrátt fyrir ósigurinn. Hann
sagði leikmenn sína hafa verið
grátlega óheppna í upphafi, og
lagði áherslu á að engin ástæða
væri til að afskrifa Ungverja þrátt
fyrir úrslitin. Leikirnir við Frakka
og Kanadamenn væru eftir.
Diego Maradona
var stórkostlegur
ARGENTÍNSKI knattspyrnusnill-
ingurinn Diego Maradona reynd-
ist leikmönnum Suður-Kóreu erf-
iður viðfangs í landsleik þjóðanna
í gærkvöldi. Argentínumenn unnu
öruggan 3:1-sigur, og Maradona
lagði öll mörkin upp. Kóreumenn-
irnir náðu sér ekkí á strik fyrr en
undir lok leiksins þegar Argent-
ínumenn gátu leyft sér að slaka
á, komnir með 3:0-forystu. Jorge
Valdano (2) og Oscar Ruggeri
gerðu mörk Argentínu, en Park
Chang-Sun skoraði fyrir Suður-
Kóreu.
Kóreumenn virtust taugaveikl-
aðir framan af leiknum og virtust
ekki hafa önnur svör við sóknarleik
Argentínumanna en að sparka í
Maradona. Það kom þeim í koll
því Maradona er enginn aukvisi í
aukaspyrnum og tvö fyrstu mörkin
í leiknum komu eftir að hann var
sparkaður niður.
Á sjöttu mínútu tók Maradona
aukaspyrnu skammt fyrir utan víta-
teig, en þrumuskot hans fór í varn-
arvegginn. Knötturinn barst aftur
til Maradona, sem var snöggur að
átta sig og renndi honum til hliðar
á Valdano. Valdano skoraði með
góðu skoti úr þröngu færi.
Á átjándu mínútu fékk Mara-
dona aukaspyrnu úti á kanti og
sendi hnitmiðaða sendingu á
Oscar Ruggeri, miðvörð Argent-
ínumanna, sem stökk hátt yfir
heldur slaka vörn Kóreumanna og
skallaði í netið.
Það sem eftir var fyrri hálfleiks-
ins réöu Argentínumenn alveg
gangi leiksins og fengu nokkur
tækifæri til að auka muninn, m.a.
stangarskot, en staðan í hálfleik
var 2:0.
Strax á fyrstu mínútu síðari hálf-
leiks fékk Maradona knöttinn á
hægri kanti, og hann gerði sér lítið
fyrir og stakk sér framhjá tveimur
varnarmönnum Kóreu og gaf síðan
• Suður-Kóreumenn réðu ekkert við Diego Maradona f gærkvöldi.
hárnákvæmt fyrir markið — yfir
vörn Kóreu og til Valdano sem
þurfti ekki annað en ýta knettinum
yfir marklínuna.
Eftir þriðja markið slökuðu Arg-
entínumenn augljóslæega mjög á
og leyfðu Kóreumönnum að koma
nær vörn sinni með knöttinn. Þetta
er varasöm leikaðferð og á síðustu
20 mínútunum áttu Kóreumenn
nokkur ágæt marktækifæri. Þeim
tókst þó aðeins að skora úr einu,
og það var fallegasta mark leiksins
— firnafast skot af 20 metra færi,
sem Neri Pumpido í markinu átti
enga möguleika á að verja.
Eftir leikinn sagði Maradona:
„Ég átti ekki von á Kóreumönnun-
um svona grófum. En við unnum
leikinn og það er fyrir mestu."
Þjálfari Kóreumanna, Kim Jung-
Nam, var spurður eftir leikinn um
hin endurteknu brot leikmanna
hans á Maradona. „Ég skipa aldrei
leikmönnum mínum að brjóta af
sér eða taka einstaka leikmenn
fyrir með fautabrögðum. En það
er leyfilegt að leika fast, og það
reyndum við að gera í leiknum",
sagði hann.
Gleymum þessum leik
- sagði þjálfari Ítalíu um opnunarleikinn
Pólverjar
heppnir gegn
Marokkómönnum
PÓLVERJAR og Marokkómenn
gerðu markalaust jafntefli í
fyrsta leik F-riðilsins í Mexíkó
í gærkvöldi.
Marokkómenn komu mjög á
óvart í leiknum og höfðu í fullu
tré við Pólverjana í fyrri hálfleik.
Þeir vörðust vel og áttu hættu-
legar sóknir. Meðal annars
þurfti hinn frábæri markvörður
Póllands, Mlynarczyk, tvisvar að
taka á honum stóra sínum eftir
skot frá Krimau og Bouderbala,
hættulegustu sóknarmönnum
Marokkó.
Þegar líða tók á leikinn og
Marokkómenn fóru að gera sér
grein fyrir að þeir áttu góða
möguleika á að ná stigi í leiknum
drógu þeir sig til baka og síðustu
20 mínúturnar voru Pólverja. En
Badou Zaki, markvörður Mar-
okkó sýndi þá að hann gaf kol-
lega sínum í pólska markinu lítið
eftirog varði vel.
Báðir aðilar geta vel við úrslit-
in unað — Pólverjar áttu slæman
dag og mega þakka fyrir að
sleppa með jafntefli, og Mar-
okkómenn áttu fyrirfram ekki að
eiga möguleika á stigi íleiknum.
um. Italir trúðu greinilega sjálfir
að þeir væru búnir að vinna leikinn
„PAÐ er nú markmið okkar að gleyma þessum leik sem fyrst,“ sagöi
Enzo Bearzot, þjálfari ítalska landsliðsins í knattspyrnu, eftir aö hans
menn höföu gert 1:1-jafntefli í opnunarleik heimsmeistarakeppninnar
f knattspyrnu f Mexlkó 6 laugardaginn. Flestir höfðu búist við sigri
ítala og ef til vill ekki sfst þeir sjálfir eftir að þeir skoruðu fyrsta
mark leiksins. Búlgarir gáfust þó ekki upp og þeir skoruðu jöfnunar-
markiö þegar aöeins fimm mfnútur voru til leiksloka og „stélu“ þar
með öðru stiginu.
Leikurinn var mjög ■ svipuðum
dúr og menn höfðu gert sér hug-
myndir um. Rólegur framan af og
ítalir höfðu undirtökin. Flestir leikir
í fyrstu umferðinni í heimsmeist-
arakeppninni verða líklegast svona
varfærnislega leikir. Það er of
mikilvægt að tapa stigi til þess að
liðið tefli á tvær hættur til að ná
tveimur stigum í fyrstu leikjunum.
Fyrsta markið gerði Altobelli
fyrir ítali og var það fallegt mark.
Ítalía fékk aukaspyrnu sem Di
Gennaro tók. Varnarmenn Búlgar-
íu gleymdu Altobelli sem beið við
fjærstöngina og þegar knötturinn
kom til hans skoraði hann af ör-
yggi. Þetta gerðist skömmu fyrir
leikhlé.
í seinni hálfleiknum tókst síðan
Búlgörum að jafna og var þar á
ferðinni besti maður liðsins, Sir-
akov, sem hafði farið úr vörninni
fram á miðjuna skömmu áður. Það
var varamaðurinn Kostadinov sem
sendi á Sirakov sem skoraði lag-
lega með skalla.
Búlgarir mega vel við una að
ná jafntefli í opnunarleiknum og
það gegn heimsmeisturunum sjálf-
eftir að þeir gerðu markið en
„mörkin ákveða hvernig leikurinn
fer, ekki spiiið úti á vellinum né
fjöldi tækifæra," eins og Sepp
Piontek þjálfari Dana sagði eftir
leikinn. „ítalir ollu mér vonbrigð-
um,“ sagði Billy Bingham þjálfari
Norður-lra eftir leikinn og bætti
svo við, „í sannleika sagt þá minnir
þessi leikur þeirra mig á heims-
meistarakeppnina árið 1982 þegar
þeir urðu heimsmeistarar."
Þjálfari Búlgaríu sagði eftir ieik-
inn að þeir hefðu átt skilið að fá
annaö stigið. „Leikurinn var alls
ekki góður en hverjir hefðu leikið
vel í opnunarleik gegn heimsmeist-
urunum sjálfum," sagði hann og
var hinn ánægðasti.
Altobelli gerði
fyrsta markið
ÞAÐ var ítalski framherjinn
Alessandro Altobelli sam skor-
aöi fyrsta mark heimsmeistara-
keppninnar f knattspymu ériö
1986. Hann gerði eina mark ít-
ala þegar þeir gerðu 1:1-jafn-
tefli viö Búlgaríu f fyrsta leik
mótsins é laugardaginn var.
Markið skoraði Altobelli á 43.
mínútu leiksins.
Altobelli þessi gerði þriðja og
síðasta mark ítaia þegar þeir
unnu Vestur-Þjóðverja í úrslita-
leiknum í Madrid með þremur
mörkum gegn einu árið 1982.
Hann gerði því síðasta mark
þeirra í síðustu keppni og það
fyrsta í þessari keppni. Þetta eru
einu mörkin sem þessi þrítugi
sóknarmaður hefur gert í heims-
meistarakeppni tii þessa en vel
getur farið að hann eigi eftir að
bæta úr því.
í síðustu keppni komust ítalir
með naumindum áfram úr riðlin-
um sem þeir iéku í. Gerðu þrjú
jafntefli við Polland, Peru og
Cameroon og þessi byrjun hjá
þeim núna minnir að vissu marki
á hvernig síðasta keppni hófst
hjá þeim.
Þess má að lokum geta að
1:1 -jafntefli í þessum fyrsta leik
mótsins er það mesta sem skor-
að hefur verið t opnunarleik allt
frá árinu 1962. Fjórum sinnum,
á árunum 1966-1978, hefurfyrsti
leikurinn endað með markalausu
jafntefli en árið 1982 vann Arg-
entína lið Belgíu í fyrsta leiknum
með einu marki gegn engu.