Morgunblaðið - 03.06.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 1986
B 7
íslandsmótið 3. deild:
íslandsmótið 4. deild:
Sigurður gerði fjögur
í stórsigri Bolvíkinga
— Enn vinnur Skotfélag Reykjavíkur í A-riðli
A-riðill:
Augnablik — Snœfell 2—1 (3—2):
Augnabliksmenn voru betri aðil-
inn í fyrri hálfleik í þessari viðureign
og náðu að skora tvö mörk gegn
einu marki Snæfells sem gert var
úr vítaspyrnu. í sfðari hálfleik sner-
ist þetta við og nú voru það
Snæfellsmenn sem höfðu undir-
tökin. Augnablik nær samt að auka
muninn í 3—1 áður en Snæfeil
skorar verðskuldað mark.
Mörk Augnabliks gerðu: Jón
Einarsson, Sigurður Halldórson og
Vilmar Pétursson. Mörk Snæfells
gerðu: Peter O. Wite og Sigurður
Sigþórsson.
Skotfélag Reykjavfkur — Þór
Þorlákshöfn 2-0 (1-0):
Þeir í Skotfélaginu hafa byrjað
þátttöku sína í isiandsmótinu með
miklum glæsibrag og eru nú í efsta
sæti í A-riöli. Sigur þeirra á Þór
var verðskuldaður og eru þeir
greinilega til alls líklegir í sumar.
Mörk þeirra í þessum leik komu
hvort í sínum hálfleiknum, það
fyrra gerði Knútur Bjarnason en
hiö seinna Einar Þorvaldsson, þaö
gerði hann úr sinni fyrstu spyrnu
í leiknum en hann kom inná sem
varamaöur.
Einar hefur nokkrum sinnum
leikið þennan leik áður og er ekki
ónýtt að eiga slíkt leynivopn.
B-nðill:
Stokkseyri — Hveragerði 1—3
(1-1:
Þrátt fyrir sigur voru Hvergerð-
ingar ekki ánægðir með þennan
leik. Hvergerðingar, sem hafa
komið á óvart með mjög góðri
frammistöðu undanfarið, voru
lengi framan af ekki með hugann
við þennan leik. Jafnt var í hálfleik
en í síðari hálfleik hrista Hvergerð-
ingar af sér slenið og ná að skora
tvö mörk og gera út um leikinn.
Mörk Hveragerðis gerðu: Sól-
mundur Kristjánsson 1, Páll Heiðar
Jónsson 1 og Ólafur Jhannesson
1. Mark Stokkseyrar gerði Steinar
Valdimarsson.
C-riöill:
Leiknir R. — Árvakur 3—3 (1 —3:
Leikur þessara liöa var mjög
skemmtilegur á að horfa, hann
bauð uppá vel útfærðar sóknarlot-
ur og falleg mörk. ( fyrri hálfleik
sóttu Leiknismenn heldur meira
en sókn þeirra var ómarkviss á
meðan aö Árvakursmenn upp-
skáru 3 mörk úr skyndisóknum.
Um miðjan seinni hálfleik fá Ár-
vakursmenn vítaspyrnu en ná ekki
aö nýta hana því skotiö fer yfir. Á
síðustu 10 mínútunum ná síðan
Leiknismenn að skora 2 mörk og
jafna leikinn.
Mörk Leiknis gerðu: Konráð
Árnason 1, Baldur Baldursson 1
og Ragnar Baldursson. Mörk Ár-
vakurs gerðu: Árni Guðmundsson
1, Haukur Arason 1 og Skúli
Magnússon1.
Hafnir — Eyfeltingur B—1 (2—0)
Æfingalitlir Eyfellingar voru ekki
mikil fyrirstaða fyrir Kð Hafna sem
vann stórsigur í opnum og all-
skemmtifegum leik. Guðjón Guö-
jónsson lék á als oddi í liði Hafna
og skoraði 3 mörk en hin mörk
iiösins gerði Hermann Jónasson.
Mark Eyfellinga gerði Magnús
Pálsson.
D-riðill:
Badmintonfélag ísafjarðar —
Höfrungur 3—0 (2—0):
Badmintonfélag (safjaröar vann
Höfrung frá Þingeyri í fyrsta leik
þessara félaga í keppni á íslands-
móti í knattspyrnu. Lokatölurnar
urðu 3—0 en staðan í hálfleik var
2-0.
Mörk Badmintonfélagsins
gerðu: Þorlákur Baxter, Pétur
Baxterog Halldór Antonsson.
Bolungarvík — Reynir
Hnífsdal 10—2 (5—0):
Bolvíkingar heimsóttu Reyni í
Hnífsdal 28. maí og unnu stórsig-
ur, 10—2, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 5—0. Úrslit þessa leiks
sýna að mikill munur var á liðunum
í leiknum.
Mörk Bolungarvíkur gerðu: Sig-
urður Guðfinnsson 4, Jóhann
Ævarsson 3, Jóhann Kristjánsson
1, Jóhann Hákonarson 1 og Guð-
mundur Sigurðsson 1.
Mörk Reynis gerðu: Þorgeir
Jónsson og Salmar Jóhannsson.
Stefnir — Hörður:
Hörður gaf.
E-riðill:
Vaskur — Höfðstrendingur 1—0
(0—):
Vaskur var nær því að auka
forystu sína en Höföstrendingur
að jafna í þessum leik. Tvö hörku-
skot Vasks höfnuöu í slá andstæö-
ingamarksins auk annarra færa.
Miklu munar fyrir Höfðstrendinga
að Árni Stefánsson markvörður
þeirra og þjáifari gat ekki leikið
með vegna meiösla.
Mark Vasks gerði Valdimar Júl-
íus.
G-riðill:
Sindrí — Huginn 3—1 (2—1):
Sindri var sterkara liðið í þessari
viðureign og sigur þeirra sann-
gjarn. Mikil harka var í leiknum og
kom það niður á gæðum knatt-
spyrnunnar.
Mörk Sindra gerðu: Elvar Grét-
arsson 2 og Hermann Stefánsson
1. Mark Hugins gerði Þórir Ólafs-
son.
Hrafnkell - Neisti 1-1 (1-1):
Hrafnkelsmenn skora snemma
í fyrri hálfleik en fyrir lok hálfleiks-
ins jafnar Neisti og þar við sat.
Leikurinn var jafn og var nokkuð
um færi á báöa bóga, stangar- og
sláarskot. Mark Hrafnkels gerði
Sveinn Guðjónsson en mark
Neista Gunnlaugur Guðjónsson.
A-riðill:
ÍK — ÍR 0:2 (0:2):
ÍR-ingar hafa hafið 3. deildar-
þátttöku sína mjög vel og eru nú
efstir í A-riðli eftir góðan útisigur
á ÍK. Bæði mörk ÍR komu fljótlega
í fyrri hálfleik, það fyrra úr víti strax
á 5. mín. og hitt skömmu síðar.
Þessi ieikur var í heildina ekki
mjög góðru en þó sköpuðu bæði
liðin sér ágæt marktækifæri.
Mörk ÍR gerðu: Karl Þorgilsson
(víti) og Heimir Karlsson, þjálfari.
Reynir S. — Grindavík 1:0 (1:0):
Reynismenn voru sterkari aðil-
inn í þessum leik og hefði sigur
þeirra getað orðið stærri, en bæði
komu Ögmundur Kristinsson,
markvörður Grindvíkinga, og ein-
beitingarleysi Reynismanna á
markfærum í veg fyrir það.
Sigurmark þessa leik kom um
miðjan fyrri hálfleik og það gerði
Ómar Björnsson með fallegum
skalla.
Morgunblaðið/Einar Falur
• Hann er skotviss hann Snorrí Már Skúlason, Skotfélagi Reykjavfkur, þegar hann sendir knöttinn milli
fóta andstæðingsins.
HV — Fylkir 0:1 (0:1):
Þessi leikur var í járnum allan
tímann og var barátta leikmanna
mikil. Ef eitthvað var áttu Fylkis-
menn meira af færum en þó hefðu
HV-menn allt eins getað jafnað.
Mark Fylkismanna kom um miðjan
fyrri hálfleik og það gerði Ólafur
Theodórsson eftir skemmtilegan
undirbúning félaga sinna.
B-riðill:
Leiknir — Magni 1:2 (0:1):
Lánið lék ekki við Leiknismenn
i þessum leik sem þeir áttu ívið
meira í. í heildina var þetta opinn
og skemmtilegur leikur og færin
voru mýmörg á báða bóga. Heima-
menn náðu aðeins að nýta eitt
þeirra en Magnamenn gerðu tvö
mörk.
Mörk Magna gerðu: Hringur
Hreinsson og Sverrir Heimisson.
Mark Leiknis gerði þjálfari þeirra,
Einar Björnsson.
Tindastóll — Reynir Ás. 2:2 (0:1):
Heimamenn töldu að Magnús
Jónatansson hefði dæmt af þeim
löglegt mark á seinustu sekúndu
þessa leiks en aðeins 3 mín. fyrir
þann umdeilda dóm höfðu þeir náð
að jafna, 2:2, þannig að lokamínút-
ur þessa leiks voru mjög fjörugar
og reyndar leikurinn allur.
Reynismenn komast yfir á 15.
mín. fyrri hálfleiks eftir að Svan-
laugur Þorsteinsson komst inní
sendingu sem ætluð var mark-
manni Tindastóls og renndi boltan-
um í netið og þannig var staðan í
hálfleik.
Seinni hálfleikur bar í skauti sér
3 mörk og gerðu Reynismenn
annað en Tindastóll hitt, þannig
að liðin deildu með sér stigunum
úr þessari viðureign.
Mörk Tindastóís geröu: Eyjólfur
Sverrisson og Guðbrandur Guð-
brandsson, en mörk Reynis gerðu
Svanlaugur Þorsteinsson og Tóm-
as Karlsson.
Leiftur — Valur 4:0 (1:0):
Fyrstu 20. mín. þessa leiks voru
mjög þófkenndar en eftir það tók
Leiftur leikinn í sínar hendur og
unnu stórsigur. Valsarar fengu þó
gultið tækifæri þegar dæmd var
vítaspyrna ó Leiftur en þeir brenna
af úr henni.
Mörk Leifturs gerðu: Óskar
Ingimundarson 2, Hafsteinn Jak-
obsson 1 og Sigurbjörn Jakobsson
1.
Staðan
A-riðill:
ÍR
Reynir
Stjaman
Fylkir
ÍK
Ármann
UMFG
HV
B-riðill:
Leiftur
Þróttur
Valur
Magni
Tindast.
Austri
Reynir
Leiknir
Markahæstir:
Jónas Skúlason, Stjörnunni, 4
Guðbjartur Magnússon, Þrótti, 2
MagnúsTeitsson, Stjörnunni, 2
Marteinn Guðgeirsson, Þrótti, 2
Óskar Ingimundarson, Val, 2
Sigurbjörn Jakobsson, Leiftri, 2
iirrBTiiifU
Nýliðarnir í
A-riðli efstir