Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 3
B 3 MORGUNBLAÐDÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 Nýir eigendur hafa tekið við rekstri Lóukjörs í Vallagerði, Kópavogi. Þær heita Ólavia Jensdóttir, t.v. og Elísabet Ásta Magnúsdóttir. Eitt verka Lauri Dammert. Páll Sólnes og Lauri Damm- ert sýna í Jónshúsi Jónshúsi. NÝLEGA var opnuð sýning á verkum tveggja ungra lista- manna hér í Jónshúsi, Islendings- ins Páls Sólnes og Finnans Lauri Dammert. Sýnir sá fyrrnefndi 15 litkrítarmyndir, en hinn síðar- nefndi 15 Ijósmyndir og 13 myndir unnar með Ijósmynda- tækni. Þeir félgarnir hafa starf- að saman í vetur á sameiginlegri vinnustofu í Christianshavn. Páll Sólnes stundaði nám hér í Kaupmannahöfn í Skolen for brugskunst og útskrifaðist þaðan fyrir nokkrum árum. Vann hann síðan við auglýsingatækni heima. Páll hélt sýningu á Akureyri í fyrra- vetur og hefur áður tekið þátt í sýningum hér í Kaupmannahöfn. Lauri Dammert hefur aðallega starfað sem blaðamaður og ljós- myndari í Svíþjóð. Hann hefur hald- ið sýningu í Helsingfors og tvisvar áður sýnt hér í Höfn. Lauri notar sérstaka gamaldags tækni, gúmmídíkrómat, þ.e. án silfurs, við sumar mynda sinna og nær m.a. á þann hátt sérkennilegum blæbrigð- um. Sýningin verður opin H1 nr> Lúðrasveit Stykkishólms heim- sótti þijá vinabæi Stykkishólms, fyrst Drammen í Noregi, þá Örebro í Svíþjóð og loks Kolding í Dan- mörku. Einnig lék hljómsveitin í Gautaborg og Árósum og loks hér í Kaupmannahöfn, þar sem lúðra- sveitimar hittust loks og léku saman. Rúmlega 50 manns voru með í förinni. Skólahljómsveit Mosfellssveitar lék einnig í vinabæjum sveitarfé- lagsins, Skien í Noregi, Uddavalla í Svíþjóð, en þar var þá mikil hátíð, og Thisted í Danmörku á vinabæja- móti. Á fleiri stöðum hlaut sveitin góðar móttökur svo sem í Ribe, þar sem biskupinn sýndi hina frægu dómkirkju, Esbjerg, Odense og í Legolandi, þar sem meðlimum hljómsveitarinnar var boðið upp á ailar veitingar og aðra fyrirgreiðslu, enda umboðsmaður Lego, Bjöm Ásmundsson með í förinni. Kom það sér sérstaklega vel, þar sem mjög kalt var þann dag. Gott er til þess að vita að ungir íslendingar em landinu til sóma á erlendri gmnd. G.L.Ásg. 17. júní í Kaupmannahöfn: Góðir gestir settu svip á hátíðina Jónshúsi: Margir ungir tónlistarmenn frá íslandi juku á hátíðarblæinn í Austurgarði á þjóðhátíðardag- inn er íslendingafélagið gekkst fyrir þjóðhátíðarsamkomu þar. Voru það lúðrasveitir úr Stykkis- hólmi og Mosfellssveit, sem voru báðar að Ijúka hljómleikaför um Norðurlöndin og halda heim á leið í dag. Það var aftur komið sumarveður eftir kuldatíð undanfamar vikur og flölmenni naut sólar og blíðu í garðinum við Ríkislistasafnið. For- maður íslendingafélagsins, Berg- þóra Kristjánsdóttir, setti samkom- una kl. 14.00 og bauð gesti vel- komna. Þá léku lúðrasveitimar „ís- land ögmm skorið", séra Ágúst Sigurðsson predikaði, en á eftir var þjóðsöngurinn leikinn. Ávarp fjail- konunnar flutti Inga Gísladóttir, en hátíðarræðu Erla Sigurðardóttir. Hörður Torfason annaðist skemmti- atriði og lúðrasveitimar léku ýmis lög, bæði íslensk og erlend. Að samkomunni lokinni gengu margir til Jónshúss, til kaffídiykkju í fé- lagsheimilinu og ti) safns Jóns Sigurðssonar, sem margir hafa skoðað á þessu vori. Félagar í Lúðrasveit Stykkis- hólms og Skólahljómsveit Mosfells- sveitar hafa aflað fyár til fararinnar með margvíslegum hætti, með því að leika fyrir félög og á samkomum, selja blóm og kökur og láta laun vegna vinnu sinnar renna í sameig- inlega sjóði. Hljómsveitimar koma saman á hveijum vetri og vom utanlandsferðir beggja skipulagðar sameiginlega, en stjómandi Lúðra- sveitar Stykkishólms, Daði Þór Einarsson, var nemandi hins stjóm- andans, Birgis Sveinssonar í Mos- fellssveit. Hlutu hljómsveitimar hvarvetna hinar bestu móttökur á ferðum sínum og tóku borgarstjórar víða á móti þeim með viðhöfn. Áatula símkerfið hefur leyst öll símavandamál okkar, innan fyrirtækisins sem utan og þó hefur viðskiptavinum okk- ar fjölgað stórlega síðan við fengum það. En ánægjan með Kanda-sím- kerfið er jafnvel enn meiri innan fyrirtækisins. Það er alveg sama hvar ég er stödd, þegar hringt er í mig, ég get svarað símtalinu í næsta síma, í stað þess að hlaupa lang- ar leiðir eins og ég þurfti áður. Eða þegar ég þarf að ná í ein- hvern, og veit ekki hvar hann er staddur, get ég kallað í mörg sím- tæki í einu og hann síðan svarað þar sem hann er staddur, og þetta er bara lítið brot af öllu því sem hægt er að gera með þessu símkerfi frá Kanda.“ Með Kanda EK-516B getur þú: 1. Geymt samtöl. 2. Hringt handfrjálst á bæjarlínu. 3. Haldið símafundi. 4. Kallað í mörg símtæki í einu á innanhússlínu. 5. Lokað fyrir allar hringingar, ef þú vilt ekki láta trufla þig. 6. Flutt skiptiborð milli símtækja. 7. Flutt símtöl milli símtækja á einfaldan hátt. 8. Sett hindrun á langlínusímtöl á einstök símtæki. 9. Tengt rafhlöðu við kerfið, þannig að það vinnur þó rafmagn fari kf. 10. Valið sjálfur biðtónlistina á símanum. Kanda EK-516B símkerfið er fyrir allt að 5 línur og 16 símtæki. Verð kr. Símkerfi með 5 línum og 8 símtækjum 144.745,- _ 5 — 12 — 184.095,- _ 5 — 16 — 214.379,- Við komum á staði og veitum ráðgjöf um hentug sím- kerfi. •Verð iniðað við gengi 10.02. 1986. m 1ÖKUM VEL i Mðn ÞÉR SKIPHOLTI 19 SÍMI 29800

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.