Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 7

Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 B 7 í mars fór bandaríska forsetanefndin, sem fjallar um skipulagða glæpastarfsemi, fram á það við öll fyrirtæki að þau skylduðu starfsmenn sína til að gangast undir lyfjapróf. ^ SJÁ: SIÐIR OG VENJUR: Menn gerast þreyttir á þungbúnu þulunum Gorbachev, leiðtogi Sovétríkj- anna, hefur tamið sér öðruvísi framkomu í sjónvarpi en forverar hans. Hann lætur þó ekki þar við sitja, heldur hefur hann nú látið að því liggja að breytinga sé þörf á sjónvarpsfréttaflutningi þar eystra og að hann verði ekki lengur í sama rígskorðaða forminu og verið hefur hingað til. Slysið í Chemobyl virðist hafa varpað ljósi á hina snöggu bletti í fréttaflutningi sjónvarps, en þeir hafa verið vaxandi áhyggjuefni sovéskra stjómvalda um nokkurt skeið. Sjónvarpið skýrði ekki frá slysinu fyrr en þremur dögum eftir að það átti sér stað og enn liðu nokkrir dagar þar til sæmilega ítar- Iegar fréttir af vettvangi atburð- anna tóku að berast. Oft var „fréttaflutningurinn" einungis í því formi að lesnar vom tilkynningar frá stjómvöldum og vestrænir fjöl- miðlar gagnrýndir fyrir frásagnir þeirra af slysinu. Pravda, málgagn sovéska komm- únistaflokksins, hefur nú gengið feti framar en venja er til og kvart- að yfír því að innlendar sjónvarps- BANDARÍKIN Þrenginga- tíð í þjóð- görðunum Þjóðgarðamir í Bandaríkjun- um em á meðal dýmstu djásna heims. Bandaríkin urðu fyrst til að stofna garða af þessu tagi og hvergi í heiminum em þeir stór- fenglegri. Nú um stundir em þó ýmsir erfiðleikar á starfsemi þeirra. Þjóðgarðamir, þar á meðal Grand Ganyon, Painted Desert og Petrified Forest, em að vonum vinsælir ferðamannastaðir. Þangað komu um 260 milljónir á síðasta ári og búizt er við 10—20% aukning á þessu ári því að Bandaríkjamenn ætla að ferðast meira innanlands í sumar en venjan er, það sem þeir óttast hryðjuverk í Evrópu eins og þráfaldlega hefur verið lýst í fjöl- miðlum. En ýmsir erfíðleikar steðja þó að. Til dæmis er umferð svo mikil um suma þjóðgarðana að fólk getur lent í margra klukkutíma fréttir séu leiðinlegar og lífvana, enda þótt nokkrar endurbætur hafi átt sér stað að undanfömu. Oft er það allur fréttaflutningurinn að þungbúinn þulur situr við skrifborð og les fréttatilkynningar. Einkum á það við um flutning erlendra frétta og af íþróttaviðburðum. Pravda segir ekki, að þessi gagn- rýni sé sett fram að undirlagi Gorb- achevs þótt hún gæti vel verið mnnin undan rifjum hans. Bæði hann og kona hans em myndarfólk sem taka sig vel út í sjónvarpi og þau hafa kynnst vinnubrögðum vestrænna sjónvarpsfréttamanna, og jafnvel náð nokkuð góðu sam- bandi við þá. Þá em fjölmiðlar á Vesturlöndum ekki eins áfjáðir og stjómvöld í Washington í að líta óhým auga til alls þess sem frá Sovétríkjunum kemur. Af greininni í Pravda má draga þá ályktun að Gorbachev vilji láta sovéska sjón- varpið taka upp jákvæðari afstöðu í garð Vesturlanda, en í blaðinu segir eftirfarandi: „Upplýsingar frá ríkjum auðvaldsskipulagsins em tilbreytingarlausar. Uljaskaðar tuggur er nánast það eina sem út- umferðarteppu. Fimm ára biðlisti er eftir bátsferð niður flúðir Grand Canyon, og í Yellowstone em að jafnaði ekki færri en þúsund manns saman komin til þess að horfa á gos úr hvemum Old Faithful, sem gýs á klukkutíma fresti. Þegar hefur komið til tals að takmarka fjölda gesta í vinsælustu þjóðgörð- unum, en það yrði illa séð hjá mörgum, sem hafa aðeins aðstöðu til að ferðast um þessi landsvæði einu sinni á ævinni. Og þótt þjóðgarðamir séu friðlýst svæði verða þeir fyrir ýmsum áhrif- um af því sem gerist í kringum þá. Námugröftur, iðnaður og annað sem á sér stað við jaðra þeirra, hefur valdið skemmdum innan garðanna sjálfra. Á sama hátt hefur röskun á náttúm og dýralífi utan þeirra ýmis áhrif á þá, því þeir em algerlega einangraðir frá umheim- inum. Ýmsar hættur steðja til dæmis að Yellowstone í Wyoming, sem er elzti þjóðgarður heims. Þar í grennd á meðal annars að reisa tvö raforkuver, bora eftir jarðhita og skipuleggja skíðalönd. Enn- sig en ekki með venjulegum lækn- isaðgerðum. Sagt er að Páfagarð- ur hafi meiri áhuga á slíkum full- yrðingum en sögusögum um kraftaverkin sem til hans em rakin eftir dauða hans. En þótt hann verði tekinn í dýrlingatölu er ólíklegt að hjátrúin sem hefur vaxið upp í tengslum við minningu hans fjari út. Fá- tæklingar hafa lengi haft það fyrir sið að setja vatnsglas með rauðri rós við sjúkrabeð fólks í þeirri trú að það dragi að anda dr. Hemandesar og leiði til bata. Þar fyrir utan hafa óprúttnir menn reynt að auðgast á „Heilög- um Hemandes". Reist hafa verið musteri sem bera nafn hans og þar starfa miðlar sem falla í leiðslu til að ná sambandi við lækninn heilaga og em áhorfend- ur krafnir um 250 krónur í að- gangseyri. Ma'rgir læknar em og lítt hrifnir af fréttum um að miðlar, sem telja sig haldna anda „dýrlingsins", hafi skorið fólk upp í mustemnum og stundum með þeim afleiðingum að sjúklingamir hafi látizt. - GEOFFREY MATTHEWS. varpið og sjónvarpið flytja okkur þaðan." Um fréttir frá Vesturlönd- um segir þar ennfremun „Þær skýra einkum frá fundum og mót- mælaaðgerðum. Sjaldan er greint frá afrekum á sviði tækni og vísinda og þeim áhrifum sem þær hafa á verkafólk í ríkjum auðvaldsins." Höfundur þessarar greinar í Pravda er Dmitri Lyubosvetov og þau mál sem hann tekur til um- fjöllunar hafa oft verið ásteytingar- steinn milli austúrs og vesturs. Til dæmis hafa ýmsir utanríkisráð- herrar á Vesturlöndum haft sitt- hivað við fréttaflutning sovéskra fjölmiðla að athuga. Meðal annars hefur breska utanríkisráðuneytið oft haldið því fram að fréttir Sovét- manna af átökunum á Norður- írlandi og atvinnuleysinu í Bretlandi bæru vott um meinfýsni og hlut- drægni. Samskonar sjónarmið hafa löng- um komið fram af hálfu sovéskra borgara. Þeir hafa gagmýnt frétta- flutning sovézkra fjölmiðla í blöðum og þar á meðal í bréfadálkum Pravda og krafíst þess að aukinnar hlutlægni verði gætt. Þó er alls óvíst að Gorbachev og Pravda fái einhveiju ágengt í þess- um efnum. Pravda er raunar oft sama marki brennt og aðrir sovéskir fjölmiðlar. Þar er lítil fjölbreytni í fréttaskrifum og umfjöllun í föstum skorðum. Þótt blaðið sé gefið út í feykistóru upplagi er það ekki sér- lega vinsælt lesefni, en skýringin á útbreiðslu þess er sú, að það er allt að því skylda flokksmanna að kynna sér efni þess, en flokkurinn telur 17 milljónir félaga. MICHAEL SIMMONS fremur eru þar í grenndinni gull- náma og olíulind. Mikill skógur hefur verið höggvinn fyrir utan þjóðgarðinn og það ógnar lífi dýr- anna sem eru ekki nægilega kæn til að halda sig fyrir innan mörkin ósýnilegu. En hætta steðjar ekki einungis að dýrunum heldur virðast Banda- ríkjamenn, sem óttast hryðjuverk í Evrópu, einnig vera í háska staddir í sínum heimahögum og jafnvel í þjóðgerðum. Glæpum hefur sem kunnugt er fjölgað mjög í Banda- ríkjunum síðustu tvo áratugi, eink- um í grennd við stórborgir. Nokkuð hefur borið á kókaín- neyzlu í Yosemite og eiga þar bæði starfsmenn og gestir í hlut. Á hóteli einu í garðinum reyndist vera mið- stöð víðtækrar vændisstarfsemi. Stöðugt verður og meira um þjófn- aði, skemmdarverk, nauðganir og morð. Til dæmis voru tvær ungar konur, sem voru á ferð eftir göngu- stíg, myrtar á þessu ári. Hins vegar er rétt að taka fram að fæstir gestanna verða fyrir alvarlegri áreitni. Fyrir skömmu gaf Alston Chase, sem er sérfræðingur í umhverfis- málum, út bók um ástandið í þjóð- görðunum og nefnist hún „Að leika guð í Yellowstone". Hún hefur þegar vakið miklar deilur. í bókinni hellir Chase úr skálum reiði sinnar yfir þjónustustofnun þjóðgarðanna svo og yfir þjóðgarðsverðina sjálfa. Hann fullyrðir að því fari fjarri að þessir aðilar sjái sómasamlega um gæzlu í görðunum og að þeir vinni þvert á móti. Chase staðhæfír að þjónustustofnun þjóðgarðanna hafi ekki áhuga á vísindalegum rann- sóknum og haldi fast við eigin kreddur. Hann sakar meðal annars þjóðgarðsverði í Yellowston um að hafa flutt inn í hann úlfa frá Kanada til þess að auka eigin hróður, og síðan halda því blákalt fram að dýrin hefðu verið í garðinum alla tíð. — SIMON HOGGART. Gæsla efld íbandarískum sendíráðum Washington, AP. ÖLDUNGADEILD Bandaríkja- þings samþykkti á miðvikudag lög, sem kveða á um að 1,7 milij- örðum dollara verði varið til öryggisgæslu við bandarísk sendiráð víðs vegar um heim til að koma í veg fyrir hermdar- verk. Samkvæmt lögunum verður heimilt að gera endurbætur á sendi- ráðsbyggingum eða reisa nýjar. Einnig verður sérstök sveit þjálfuð í sendiráðunum, sem ætlað er það hlutverk að fara með öryggisgæslu. Þá verður ijármunum varið til stuðnings rfkisstjómum í barát- tunni við hermdarverkastarfsemi. Fara fram á ísraelsk gögn vegna njósnamáls Tel Aviv, AP. BANDARÍKJAMENN hafa farið fram á við stjóm ísraels að þeim verði veittur aðgangur að niður- stöðum sérstaks dómstóls um yfirheyrslu yfir ísraelskum sam- verkamönnum Bandaríkja- mannsins Jonathan Jay Pollard, en hann hefur verið ákærður fyrir njósnir. Þetta kom fram í ísraelsku dagblaði í gær. Yitzak Moday, dómsmálaráð- herra ísraels, sem nýlega var í Bandarikjunum, sagði, að allir þeir ísraelar sem viðriðnir væru málið hefðu verið yfirheyrðir um það. Samkvæmt frétt blaðsins á ísra- elska stjómin í vandræðum vegna þessa máls því líklega voru menn- imir ekki yfírheyrðir. Á hinn bógin gæti stjómin ekki viðurkennt að dómsmálaráðherrann hafi logið vís- vitandi. Pollard og kona hans, Ann Hend- erson Pollard, hafa verið ákærð fyrir njósnir í þágu ísraels, en hann vann á vegum bandaríska sjóhers- ins. Kína: Menningar- málaráð- herra eftir 20 ár í ónáð Peking, AP. VEL ÞEKKTUR rithöfundur, sem um tuttugu ára skeið var i ónáð vegna hægri sinnaðra skoð- ana, var sl. miðvikudag gerður að menningarmálaráðherra Kína. Wang Meng er 51 árs og varafor- maður kínverska rithöfundasam- bandsins. Hann hefur verið meðlim- ur í kfnverska kommúnistaflokkn- um síðan hann var 14 ára gamall, en féll í ónáð, er hann skrifaði gagnrýna smásögu um áhugalausa flokksleiðtoga árið 1957 og var þá sendur í útlegð til afskekkts héraðs í Norð-vestur-Kína. 1979 hlaut hann uppreisn æm og hefur síðan verið mikill stuðningsmaður stefnu stjómvalda varðandi listir. Meng á sæti í miðstjóm kínverska komm- únistaflokksins og segir það hlut- verk sitt, að vera tengiliður milli nefndarinnar og rithöfunda, sem hann hvetur til að sýna þjóðfélags- lega ábyrgð, þar sem þeir hafi aldrei fýrr haft slfkt svigrúm til skapandi skrifa. # % SACHS Högg deyfar V-þýsk gæðavara SUÐURLANDSBRAUT 8 .j^^SÍMI 84670

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.