Morgunblaðið - 29.06.1986, Page 12

Morgunblaðið - 29.06.1986, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 Keri Hulme og skáldsaga hennar um frumbyggja Nýja-Sjálands Keri Hulme er nýtt nafn á sviði bókmennta, nafn hennar vakti mesta athygli árið 1985. Hulme, sem er tæplega fertug, hefur gengið með rit- höfundinn í sér síðan hún var lítil stúlka, en aðeins skrifað eina bók, The Bone People, bók- ina sem hreppti hin virtu Booker McConnell-bókmenntaverðlaun fyrir árið 1985. En sagan á bak við höfundinn og verkið er ekki síður merkileg. Hulme lauk við handritið snemma árs 1983 og hafði hún þá unnið að því í sautján ár, eða frá því um tvítugt. Hún bauð handritið til útgáfu en engum leist á það. Það sem gerði Hulme erfíð- ara fyrir var að hún neitaði að breyta einum einasta bókstaf; sagan skyldi gefin út eins og höfundurinn vildi hafa hana, annars yrði hún eldinum að bráð. Það var ekki fyrr en í febrúar 1984 að Hulme komst í samband við útgáfu kvenréttindasinna sem hafa aðsetur í Wellington á Nýja- Sjálandi. Útgáfufyrirtækið hafði áhuga á að varðveita menningu maóra, frumbyggja Nýja- Sjálands, og gaf verkið út í 2.000 eintökum. Bókin var ekki auglýst en seldist engu að síður upp á nokkrum vikum; einnig önnur út- gafa. Þessi óvænta sala ýtti við útgáfurisanum Hodder & Stough- ton, sem gaf The Bone People út í stærra upplagi. Hulme reit í formála annarrar útgáfu: „Þessi bók getur komið þeim, sem hafa ákveðinn bók- menntasmekk, sérkennilega fyrir sjónir, rétt eins og þegar fólk þarf tíma til að venjast nýrri mataruppskrift. En óttist eigi. Það sem þið þekkið ekki í dag getur verið ykkar besti vinur á morgun." Sérfræðingar sem spá í met- sölubækur og vinsældalista árið um kring voru ekki lítið hlessa þegar hin óvenjulega skáldsaga Keri Hulme birtist dag einn á vinsældalista bókabúðanna í Nýja-Sjálandi og Ástralíu. Sér- fræðingamar voru því ekki vanir að bók, sem úthýsti tveimur al- gengustu þáttum metsölubók- anna, kynlífi og ofbeldi, gæti selst í svo mörgum eintökum. Þar fyrir utan þykir stíll Hulme óárennileg- ur, hún skrifar nefnilega í anda James Joyce og WiHjams Faulkn- er. Tuttugu og fimm þúsund ein- tök seldust á Nýja-Sjálandi og þar með hafði The Bone People slegið nærri tíu ára gamlt sölumet Þymi- fuglanna eftir þekkasta rithöfund Ástralíu, Colleen McCullough. Bókin var svo gefm út á Eng- landi í júlí 1985, hreppti Booker- bókmenntaverðlaunin í október og þar með skaut Hulme virtum rithöfundum eins og Iris Murdoch og Doris Lessing ref fyrir rass. „Getur ekki verið, þið eruð að grínast," sagði Keri Hulme þegar vinir tilkynntu henni úrslitin; ein- stæðingurinn sem hafði vart átt til hnífs og skeiðar þurfti nú loks engar áhyggjur að hafa af morg- undeginum. Óvenjuleg' bók Sagan er óvenjuleg og hrífandi. Aðalpersónumar em þijár og tengja þær menningu hvíta fólks- ins annars vegar og hins vegar menningu maóranna, fmmbyggja Nýja-Sjálands. Sögumaðurinn er Kerewin Holmes, listamaður, sem glatað hefur sköpunargáfunni og yfirgefið fjölskyldu sína til að halda sambandi við Símon, sjö ára, einmana og fámæltan snáða. Hólmes tekur drenginn nánast að sér, þótt hann eigi fósturföður, Joe Gillaylev, sem er ekkill og vinnur í verksmiðju eftir að hafa fallið á prófum í háskóla. Holmes dregst að Joe, en áður en þessar þrjár persónur kynnast nánar ræðst Joe að drengnum í mikilli ölvímu og lemur hann næstum til óbóta. Þessi verknaður myndar hvörf- in í sögunni og sögumaðurinn, Holmes, leitar á á náðir inn- fæddra, „beinafólksins", og goð- sagna þeirra. Keri Hulme hreppti Booker- bókmenntaverðlaunin 1985 fyrir fyrstu skáldsögu sína, The Bone People. Joe getur ekki horft framan í nokkum mann eftir að hafa lúskr- að á syni sínum. Hann hyggst stytta sér aldur, en maórískur einsetumaður telur hann af því og skipar hann vörð yfir maór- ískum fomminjum. Hann hefur kynnst sögumanninum Holmes, sem dregur úr sársauka maga- krabbameins með dópi og eitruð- um sveppum. Drengurinn Símon leita enn föðurástar, en tíminn líður og hugur hans beinist burt frá forfeðmm sínum. Svo kann að vera að Keri Hulme sé einnar bókar höfundur, það er að The Bone People sé lífs- starf hennar á sviði bókmennt- anna, enda segist hún hafa lagt allt sem átti í þetta verk. Hún skrifaði um allt það sem hún vissi um menningu maóra, hjarta þeirra bein, hug og anda. „Allt það sem kom yfir mig,“ segir skáldkonan og kímir. Keri Hulme er elst sex systkina. Föður sinn, skoskættaðan húsa- málara sem bjó í Christchurch á Nýja-Sjálandi, missti hún ellefu ára gömul. Móðir hennar var maóri, og segist Hulme geta rakið ættir sípar aftur í nítján kynslóðir. Hulme fór að hugsa um skáld- skap strax í æsku og byrjaði á The Bone People áður en hún náði tvítugsaldri. En lífið lék ekki við hana, hún þvældist milli vinnu- staða, festi hvergi rætur, vann á tóbaksakri eitt árið, bar út póst annað árið, byrjaði meira að segja í háskóla, en varð að gefa námi á bátinn þegar harðnaði í ári. En dag einn sagði hún: Hingað og ekki lengra! Og þar með var hún orðin rithöfundur í eigin augum. Hún vann að sögu sinni sleitu- laust, lifði á því að selja gosflöskur og flöskur undan mjólk sem fólk hirti ekki um. Hún fékk einu sinni styrk frá Bókmenntasjóði Nýja- Sjálands og var sá styrkur einu tekjur hennar þau tíu ár sem það tók hana að ljúka við söguna miklu. En nú þarf hún ekki að hafa áhyggjur af morgundeginum. Booker-bókmenntaverðlaununum fylgdu 15.000 sterlingspund (sem er nærri ein milljón króna), og nú segist Hulme hafa næga pen- inga til að borða og drekka, mála og skrifa á býlinu sínu í Okarito sem hún hefur byggt. Hún vinnur að nýrri skáldsögu um þessar mundir en vill ekki ræða hana nánar, segir þó að hún fjalli um margvísleg andlit dauðans. (HJÓ tók saman úrTime Majfazine.) . Fiskibátur af þessari gerð verður sýndur íslenskum sjómönnum og útgerðarmönnum í júlí. Sýningarbátur frá SIMRAD Sýningarbátur frá SIMRAD- verksmiðjunum í Noregi kemur til Iandsins í júlí. Bátur þessi er búinn öllum nýj- ustu fiskileitartækjum og gefst skipstjómarmönnum færi á að sjá hvemig tækin vinna úti á sjó, segir í fréttatilkynningu frá umboðs- manni SIMRAD á íslandi, Friðrik A. Jónssyni hf. Báturinn mun heimsækja eftir- farandi staði hér á landi: Neskaup- stað 6.-8., Húsavík 10.-11., Akur- eyri 12.-13., ísafjörð 15.-16., Pat- reksfjörð 17., Ólafsvík 18., Reykja- vík 20.-23., Vestmannaeyjar 25.- 27. og Höfn 29.-30. júlí. Sjómenn og útgerðarmenn eru boðnir velkomnir að skoða bátinn og verður farið í smá siglingu með þá sem þess óska. Sumar- næturá Hótel Borg SÉRSTÖK tónlistarkvöld verða haldin á Hótel Borg í sumar í tilefni 200 ára afmælis Reykja- víkurborgar. „Sumamætur á Borginni", eins og tónlistarkvöldin eru nefnd, verða á virkum dögum og mun Hálft í hvoru hefja leikinn þann 30. júní og spila frá klukkan 22 til eitt eftir miðnætti út vikuna. Frá 7. júlí til 10. júli mun jasshljómsveit Krist- jáns Magnússonar leika og þamæst kvartett Bjöms Thoroddsen. AUCLÝSINCASTOFA MYNDAMÓTA HF OTRULEGA LÁGT VERD kr. 17.800 staðgreiðsia Afborgunarskilmálar KÆLI- OG FRYSTISKAPAR Samt. stærð: 275 I. Frystihólf: 45 1. Hæð: 145 sm. Breidd 57 sm. Dýpt: 60 sm. Vinstri eða hægri opnun Fullkomin viögerða- og varahlutaþjónusta. V7Sd ffl Heimilis- og raftækjadeild. HEKLAHF LAUGAVEGI 170- 172 SÍML695560

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.