Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.1986, Blaðsíða 16
16rrB MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 Lið V-Þýskalands FYRIR heimsmeistarakeppnina átti enginn von á að Vestur- Þjóðverjar kæmust í úrslitaleik- inn í þessari keppni. En Franz Beckenbauer hefur augljóslega ekki glatað hæfiieikanum tii að sigra ennþá, og nú þegar í úr- sirtaleikinn er komið getur allt gerst. Eftirtaldir leikmenn koma Kklega við sögu í úrslitaleiknum í dag: Nr. 1 Schumacher. Umdeildur markvöröur — þekktur fyrir ruddaskap — en einnig óumdeil- anlega fremstur markvarða í Þýskalandi um árabil, og einn besti markvörður heims. Er 33 ára og hefur leikið um 80 lands- leiki — þann fyrsta hér á Laugar- dalsvellinum þegar hann kom inná fyrir Sepp Maier i leikhléi. Nr. 2 Briegel. Kraftakarl og leiknari með knöttinn en hann lítur út fyrir að vera. Briegel er þrítugur og hefur leikið um 70 landsleiki. Lék með Preben El- kjær í Verona á Ítalíu, en var seldur í vor til Sampdoria. Virðist svolítið farinn að þyngjast. Nr. 3 Brehme. Baráttuglaður bakvörður, sem leikið hefur með Saarbriicken en var seldur til Bayern Munchen í vor. Er frægur fyrir aukaspyrnur sínar og grimmd í návígi. Er 25 ára og hefur leikið milli 20 og 30 lands- leiki. Nr. 4 Förster. Miðvörður. Var fyrir nokkrum árum talinn besti miðvörður heims og hefur verið fastamaður í þýska landsliðinu í ein átta ár. Hefur leikið með Ásgeiri í Stuttgart en var seldur til Monaco í vor. Lék frábærlega í leiknum gegn Frökkum. A að baki um 80 landsleiki þótt hann sé aðeins 27 ára. Nr. 17 Jakobs.Miðvörður. Kom inn í liðið fyrir Augenthaler og hefur ekki gefið stöðu sína aftur. Gamalreyndur jaxl. Hefur leikið með Hamburg SV árum saman og er traustur og þóttur miðvörður sem lætur ekkert koma sér úr jafnvægi. Nr. 6 Eder. Bakvörður sem spilaði sig inn í liðið með glæsi- legri frammistöðu í undirbún- ingsleik gegn Sviss, þegar Beck- enbauer gaf honum óvænt tæki- færi. Er 26 ára og einn af traust- ustu leikmönnum Bayern Múnchen. Nr. 8 Mattháus. Miðvallarleik- maður sem vinnur fyrst og fremst á dugnaði og líkamsstyrk. Er stundum notaður til að taka hættulega andstæðinga úr um- ferð, og líklega kemur það í hans hlut að eiga við Diego Maradona í úrslitaleiknum. Mattháus er 25 ára gamall og hefur leikið rúm- lega 40 landsleiki. Nr. 10 Magath. Gömul kempa, sem næsta haust tekur við stöðu framkvæmdastjóra hjá félagi sínu lengst af, Hamburg SV. Er af spönskum ættum, en lands- leikir hans fyrir V.-Þýskaland hafa verið færri en efni hafa staðið til vegna ósamkomulags við Jupp Derwall, fyrrum landsliðsþjálfara. Er 33 ára og með um 40 lands- leiki að baki. Nr. 14 Berthold. Tuttugu og eins árs, geysilega vel byggöur og sterkur líkamlega — og einn besti leikmaður V.-Þjóðverja í keppninni til þessa. Getur leikii bæði sem bakvörður og miðju maður. Ein bjartasta von þýskrar knattspyrnu um þessar mundir. Var í leikbanni í síðasta leik. Nr. 18 Allofs. Hefur öllum á óvart verið besti sóknarmaður liðsins í keppninni hingað til. Vakti fyrst athygli þegar hann skoraöi þrjú mörk í undanúrslita- leik gegn Hollandi í Evrópukeppni landsliða 1980. Er þrítugur að aldri og leikur með Köln. Nr. 11 Rummenigge. Fyrirlið- inn hefur valdið nokkrum von- brigðum í keppninni til þessa, enda var hann að stíga upp úr meiðslum. Viröist hafður í liðinu til að veita því andlegan styrk, en Rummenigge er frægur fyrir að hafa góð áhrif á félaga sína í stórleikjum. Rummenigge er þrí- tugur og hefur leikið milli 90 og 100 landsleiki. Hann og Passa- rella fyrrum fyrirliði Argentínu leika saman í liði Inter Mílanó á Ítalíu. Nr. 9 Völler. Völler var fyrir keppnina bjartasta von V.-Þjóð- verja, en hefur valdið vonbrigð- um. Var settur úr liðinu á tíma- bili. Hann er hins vegar ávallt hættulegur, eins og markaskrá hans sýnir, en honum hefur mjög hætt við meiðslum. Leikur með Werder Bremen. Nr. 21 Rolff. Varnartengiliður sem hélt Platini algjörlega niðri í undanúrslitaleiknum. Leikur með Hamburg SV, og kom þang- að frá Fortuna Köln, þar sem hann var samtímis Janusi Guö- laugssyni. Hann er 26 ára, þind- arlaus dugnaðarforkur. • Lothar Mattháus fær væntanlega það erfiða verkefni í úrslitaleikn- um að reyna að stöðva Maradona. Vestur-Þýskaland er eina liðið í sögunni sem kemst í úrslit á HM með þvi að skora aðeins eitt mark að meðaltali í leikjum sínum á mótinu. Vörnin hefur því verið geysi- lega sterk. En tekst Mattháus að halda aftur af Maradona? • Diego Maradona er óumdeild stjarna heimsmeistarakeppninnar og sá maður sem Vestur-Þjóðverjar munu leggja allt kapp á að stöðva i úrslitaleiknum. Bilardo, þjálfari Argentinu, telur að nú geti enginn stöðvað hann — honum nægi að losna tvisvar til þrisvar í leik til að gera út um leikinn. Það kemur i ijós í dag. Lið Argentínu LIÐ Argentínu sem leikur úr- slitaleikinn í dag er skipað ungum og lítt reyndum leik- mönnum í bland við nokkrar kempur. Fram að heimsmeist- arakeppninni prófaði Carlos Bilardo ótal leikmenn, en virðist hafa fundið réttu formúluna á sfðustu stundu. Þeir leikmenn sem líklega koma við sögu f úrslitaleiknum eru eftirfarandi: Nr. 18 Pumpido. Markvöröur. Kom inn í liðið rétt fyrir keppnina í stað gömlu kempunnar Fillol. Tók við markvarðarstöðunni af Fillol hjá River Plate, argentísku meisturunum, og er líklegur arf- taki hans í landsliðinu. Hefur leik- ið tæplega 20 landsleiki og er 28 ára. Nr. 19 Ruggeri. Miðvörður. Ódrepandi baráttujaxl sem er lykilmaður í hinni sterku vörn liösins. Líkamlega mjög kraft- mikill. Hann er aöeins 23 ára og hafði leikið 18 landsleiki fyrir HM. Nr. 5 Brown. Miðvörður. Þjálf- arinn Bilardo þekkir þennan leik- mann vel — hann þjálfaöi hann í Estudiantes-félagsliðinu fyrir nokkrum árum. Brown er 28 ára, og Bilardo segir hann ávallt vita upp á hár hvað hann eigi aö gera. Nr. 9 Cuciuffo. Bakvörður. Þessi 25 ára nýliði kom inn í liðiö sem varamaöur fyrir Oscar Garre, og hefur leikið svo vel að hann mun örugglega fá að spreyta sig í úrslitaleiknum. Harður í návígi, og eldfljótur. Nr. 13 Garre. Bakvörður. Hefur leikið yfir 30 landsleiki, og er hættulegur sóknarbakvörður. Garre er 28 ára, en hefur ekki náð að vinna sæti sitt í liðinu aftur af Cuciuffo. Nr. 2 Batista. Miðvallarleik- maður. Síðhæröur og skeggjaður og óþreytandi á miðvellinum. Batista er aðeins 23 ára, og hafði aöeins leikið örfáa landsleiki fyrir HM. Hann er einn aðalmaðurinn í liði Argentinos Juniors, sem lék um titilinn heimsmeistari félags- liöa í vetur en tapaöi fyrir Juvent- us. Nr. 12 Enrique. Enn einn ný- liði, sem var lítt þekktur, jafnvel í sínu heimalandi, fyrir HM. Er góður varnartengiliður, en hefur komið á óvart fyrir það hve skap- andi hann hefur veriö í leik sínum. Nr. 11 Valdano. Þritugurfram- herji, en hefur ekki leikið mjög marga landsleiki vegna þess að hann hefur verið fjarri heimalandi sínu iengi. Leikur nú við góðan orðstír með Real Madrid — við hlið Hugo Sanchez. Hann er einn fárra leikmanna liðsins sem lék á Spáni 1982. Skapar ávallt hættu með leik sínum. Nr. 16 Olarticoechea. Varnar- maður/miðvallarleikamaöur. Bil- ardo hefur verið óhræddur við að prófa nýja leikmenn í þessari keppni og þetta er enn einn. Hefur verið varamaður og jafnan staðið sig mjög vel. Nr. 17 Pasculli. Fljótur og leik- inn framherji, sem skoraði úr- slitamarkið í leiknum gegn Uru- guay í 16 liða úrslitunum, en hefur ekki komist í liðið síöan. Er 25 ára og var seldur fyrir háa upphæð frá Argentinos Juniors til Lecce á Ítalíu fyrir ári. Nr. 7 Burruchaga. Tuttugu og tveggja ára miðvallar- og fram- línumaður. Talinn besti maöur liðsins á eftir Maradona. Hefur leikið um 40 landsleiki, þrátt fyrir ungan aldur, og var seldur í fyrra frá Independiente til Nantes í Frakklandi. Lék hér á Laugardals- vellinum í fyrrahaust þegar Valur vann Nantes í Evrópukeppni. Nr. 14 Giusti. Oþreytandi miðjumaður, 28 ára gamali. Fyrr- um félagi Burruchaga í Inde- pendiente og vel leikreyndur í stórleikjum. Nr. 10 Maradona. Óumdeildur konungur knattspyrnunnar um þessar mundir og ásamt Pelé mestur knattspyrnumanna frá upphafi. Vakti fyrst verulega athygli árið 1977, þá 15 ára gamall. Hann segir sjálfur það hafa verið mestu vonbrigði lífs síns að vera ekki valinn í landslið Argentínu fyrir HM 1978. Þá var hann 16 ára, og haföi þegar leikið nokkra leiki meö landsliðinu. Frá 16 ára til tvítugs var hann ávallt langmarkahæsti leikmaður arg- entísku deildarinnar. Fyrst lék hann með Argentino6 Juniors, en var seldur fyrir metupphæð til Boca Juniors og varö meistari á eina keppnistímabili sínu meö þeim. Var þá seldur fyrir enn hærri upphæð til Barcelona. Meiðsli settu strik í reikninginn þar, og eftir tvö keppnistímabil var hann seldur í hitteðfyrra til Napoli fyrir hæstu upphæð sem nokkru sinni hefur verið greidd fyrir knattspyrnumann. Meðal- áhorfendafjöldi á leikjum Napoli jókst samstundis um 20 þúsund, og liðið komst í Evrópukeppni eftir síðasta keppnistímabil í fyrsta skipti í langan tíma. Mara- dona hefur aldrei verið betri en nú. Úrslitaleikurinn snýst algjör- lega í kringum þennan lágvaxna (1,64 m) snilling.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.