Morgunblaðið - 29.06.1986, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1986
B 17
HEIMSMEISTARAKEPPNINIMEXIKO:
Úrslit ráð-
ast í dag
Leikur Argentínu og V-Þýskalands hefst kl. 18.00
ÚRSLITALEIKUR heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu er
stærsti einstaki íþróttaviðburður veraldar. Á síðasta úrslitaleik,
sem leikinn var á Spáni fyrir fjórum árum, horfðu um 2 milljarðar
manna og búist er við þvf að áhorfendur verði enn fleiri nú. Með
öðrum orðum: heimurinn mun í stórum dráttum leggja niður störf
í þá tvo ti'ma sem leikurinn tekur og horfa á knattspyrnu.
Flestra augu munu beinast að Diego Maradona, 25 ára gömlum
og aðeins 164 sentimetra háum Argentínumanni, sem þykir bera
af öðrum knattspyrnumönnum í heiminum í dag. Leikurinn í dag
snýst ekki aðeins um það hvort liðið vinnur — stóra spurningin
er: Tekst Þjóðverjum að stöðva Maradona?
í þessari samantekt er gerð grein fyrir þjálfurum liðanna, öllum
leikmönnum sem koma við sögu í leiknum og fleiru.
Franz Beckenbauer
• Beckenbauer
CARLOS Bilardo, þjálfari Argent-
ínu, hlýtur að njóta lífsins núna
þegar lið hans er komið í úrslit á
HM. í þrjú ár — síðan hann tók
við — hefur hann mátt þola
gegndarlausa gagnrýni heima
fyrir. Honum hefur gengið illa í
þessi þrjú ár — liðið tapaði mörg-
um leikjum, og komst með naum-
indum til Mexfkó. En nú er það
allt gleymt og hann er þjóðhetja
heima fyrir.
Bilardo er reyndar ekki óvanur
velgengni. Hann var fyrirliði og
leikstjórnandi eins sigursælasta
félagsliðs álfunnar, Estudiantes de
la Plata, og varð með því marg-
faldur argentískur meistari, þre-
faldur Suður-Ameríkumeistari og
VART þarf að kynna Franz Beck-
enbauer fýrir áhugafólki um
knattspyrnu. Hann er einn fræg-
asti einstaklingur í heimi íþrótt-
anna — þökk sé ferli sem spann-
aði um 20 ár og ótrúlega vel-
gengni. Hann varð heimsmeistari
og Evrópumeistari með landsliði
V.-Þýskalands, og vann Evrópu-
bikar meistaraliða, Evrópubikar
bikarhafa, Heimsmeistaratitil fé-
lagsliða auk margra meistara- og
bikarmeistaratitla i heimalandi
sínu og í Bandaríkjunum þar sem
hann lék á tímabili. Hann var
kjörinn knattspyrnumaður
V.-Þýskalands fjórum sinnum,
knattspyrnumaður Evrópu tvisv-
ar og fleira og fleira.
heimsmeistari félagsliða á árunum
1965 til 1970. Þetta lið var frægt
að eindæmum fyrir grófan og leið-
inlegan — en árangursríkan — leik.
Bilardo var höfuðpaurinn, sífellt að
rífast í dómurum og að hvekkja
leikmenn andstæðinganna með
lúmskum fantabrögðum. En liðið
lék afskaplega „skynsamlega" og
leikskipulagið var frábært. Það var
ekki síst þessi fortíð sem gerði
Bilardo erfitt fyrir í landsliðsþjálf-
arastöðunni. Einnig sú staðreynd
að á þessu þriggja ára tímabili
voru 17 af bestu leikmönnum
landsins seldir úr landi. En Bilardo
á það sameiginlegt með Becken-
bauer, að hafa náð lengra en
nokkur heima fyrir átti von á.
Sem þjálfari hafði Beckenbauer
ekki sýnt mikið fyrir HM. Hann
hafði verið harðlega gagnrýndur
fyrir að ná ekki saman þokkalegu
liði — og á seinni hluta síöasta árs
náði vestur-þýska landsiiðið ekki
að sigra í sex leikjum í röð — sem
er versti árangur þýsks landsliðs
frá stríðslokum. En hann hefur náð
að yfirvinna innbyrðis átök meðal
leikmanna og aðstandenda liðsins
og komið liðinu í úrslit. Becken-
bauer lék sjálfur tvisvar í úrslitum
HM og einu sinni í undanúrslitum,
svo hann veit um hvað hlutirnir
snúast á þessu stigi keppninnar.
Það gæti reynst honum og liði
hans dýrmætt.
• Bilardo
Carlos Bilardo
Síðustu úrslitaleikir
Spánn 1982: Ítalía 3 Vestur-
Þýskaland 1: Lið Ítalíu hafði yfir-
burði í síðari hálfleik og skoraði
þá þrjú mörk áður en V-Þjóöverjar
náðu að svara. Rossi, Tardelli og
Altobelli skoruðu fyrir Ítalíu og
Breitner fyrir V.-Þjóðverja.
Argentína 1978: Argentína 3
Holland 1: Heimaliðið hatði áhorf-
endur með sér og vann i hörðum
en á köflum frábærum leik. Kem-
pes kom Argentínu yfir en Naninga
jafnaði. Á síðustu mínútu áttu
Hollendingar stangarskot, en
Kempes og Bertoni tryggðu Arg-
entínu titilinn i framlengingu.
Múnchen 1974: Vestur-Þýska-
land 2 Holland 1: Neeskens kom
Hollandi yfir með marki úr víta-
spyrnu á fyrstu mínútu, en Breitner
jafnaði. Gerd Muller skoraði svo
sigurmarkið í seinni hálfleik.
Mexíkó 1970: Brasilía 4 Ítalía
1: Pelé fór á kostum, skoraði fyrsa
markið og brasilíska liðið í heild lék
stórkostlega knattspyrnu. Gerson,
Jairzinho og Alberto bættu við
mörkum, en Boninsegna skoraði
eina mark ítala.
Aztekaleik-
vangnrinn
AZTEKA-leikvangurinn í Mexíkó,
þar sem úrslitaleikurinn fer fram,
er einn glæsilegasti knattspyrnu-
leikvangur veraldar. Hann var
byggður árið 1966 og kostaði á
sínum tíma 7 milljónir dollara.
Völlurinn tekur rúmlega 114 þús-
und manns í sæti, og við hann eru
70 þúsund bílastæði. Á meðan á
úrslitaleiknum í dag stendur verða
25 þúsund lögreglu- og hermenn
við leikvanginn til aö sjá um að
allt fari fallega fram. En ef eitthvað
alvarlegt fer úrskeiðis er hægt að
rýma leikvanginn á aðeins 15 mín-
útum. Mikill viðbúnaður verður á
vellinum vegna sjónvarpssend-
inga. Hingað til hafa mexíkönsku
sjónvarpsupptökumennirnir not-
ast við 6 myndavélar til að taka
upp leikina, en í dag verða teknar
sjónvarpsmyndir af leiknum frá 12
sjónarhornum.
HM-MOLAR
Mesta skor í úrslitaleik í heims-
meistarakeppni til þessa var í
leik Brasilíu og Svíþjóðar 1958
þegar Brasilía vann með fimm
mörkum gegn tveimur.
Hurst með þrennu
Englendingurinn Geoff Hurst er
eini leikmaðurinn sem skorað
hefur „hat trick" eða þrjú mörk
í úrslitaleik. Hurst skoraði
þrennu er Englendingar unnu
Vestur-Þjóðverja eftir fram-
lengdan leik, 4—2, 1966 á
Wembley.
Cabrini brenndi
af víti
Antonio Cabrini frá ítalfu er elni
leikmaðurinn sem hefúr brennt
af vrtaspyrnu í úrslitalelk. Hon-
um mistókst að skora úr víta-
spymu sem ítalir fengu
snemma f leiknum gegn Vest-
ur-Þjóðverjum á Spáni 1982, en
ítalir unnu þann leik með þrem-
ur mörkum gegn einu.
Þýskir í úrslitaleik í
fimmta sinn
Vestur-Þjóðverjar eru þeir einu
sem tekist hefur að leika til úr-
slita f HM fimm sinnum. Þeir
gsetu Ifka komist í hóp Brasilíu
og italfu, sem hafa þrisvar orðið
heimsmeistarar, með þvf að
vinna Argentfnu f dag.
Flestir sjónvarps-
áhorfendur 1982
Flestir sjónvarpsáhorfendur á
úrslitaleik voru 1982 er ftalía
og Vestur-Þýskaland léku tll
úrslita. Þá sáu tveir milljarðar
manna leikinn f belnni útsend-
Ingu.
Uruguay fyrstu
heimsmeistarar
Fyrsta heimsmeistaramótið f
knattspyrnu var haldið 1930 og
þá sfgruðu Uruguay-menn.
Sigruðu Argentfnu, 4—2, f úr-
slitaleik.
Passarella heims-
meistari 1978
Fyrrum fyrlrliðl Argentfnu, Dani-
el Passareiia, er eini leikmaður-
inn f landsliðshópunum tveim-
ur, sem getur orðið heims-
meistari f annað sinn. Hann var
í argentfska liðinu sem vann
heimsmeistaratitílinn 1978. Það
er þó ekki víst að hann geti
leikið með vegna meiðsla.
Azteca-leikvangur-
inn
Azteca-leikvangurinn í Mexfkó
er fyrsti leikvangurinn sem leik-
ið er til úrslita f tveimur heims-
meistarakeppnum. í heims-
meistarakeppninni 1970 sem
fram fór f Mexfkó var úrslitaleik-
ur Brasilíu og italíu einmitt þar.
Þá vann Brasilfa með fjórum
mörkum gegn einu.
Einvígi Evrópu og
Ameríku
Úrslitaleikurinn f dag er einvígi
heímsálfanna, Evrópu og Amer-
íku. Hvor heimsálfa hefur sex
sinnum unnið heimsmeistara-
titllinn.
Flestir áhorfendur
í Brasilíu
Flestir áhorfendur á úrslitaleik
komu á leik Uruguay og Brasllfu
f Rio 1950. Þá voru 199.850
manns samankomnir á leik-
vanginum. Azteca-leikvangur-
inn er f öðru sæti hvað þetta
varðar. 107.412 áhorfendur sáu
úrslitaleikinn 1970.
Brasilía notaði fæsta
leikmenn
Brasilía á heimsmetið hvað
varðar að nota sem fæsta leik-
menn f heimsmelstarakeppni.
Brasilfumenn notuðu aðeins 12
leikmenn f sex leikjum er þeir
urðu heimsmeistarar 1962.
Þrír leikmenn hafa
unnið heimsmeist-
aratitilinn
Það eru aðeins þrfr leikmenn
sem hafa tvfvegis unnið helms-
meistaratitilinn. Þeir eru: Glo-
vanni Ferrarí frá kalíu (1934 og
1938), Giuseppi Meazza frá ítal-
fu (1934 og 1938) og Pelé frá
Brasilfu (1958 og 1970).