Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 24

Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 24
% 98ei Iwúi es »TjoAain«ru8 .aia/uauuoHOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 Á siglingu Að þessu sinni birtist hér frásögn manns- ins míns af siglingum um Sundin við Reykja- vík á unglingsárum hans. Aðeins eru fáar uppskriftir en nauðsynlegt er að hafa eitt- hvað til að narta í á slíkum ferðum. „Eins og hvítir mávar svífa skútumar þönd- um seglum út við hafsbrún og fyrir stafni aðeins hafoghiminn. Sjón sem þessa má nú sjá alla daga sumars hér á Reykjavíkursvæðinu og víða út um land. Þegar ég var á táningaaldrinum fyrir 35 árum að sjósetja Sæblómið, voru aðeins tveir aðrir siglarar hér í Reykjavík. Lorelei hét sá stærri, glæsiskúta, mikil um mjaðm- imar og fær í flestan sjó. Þegar hún var með öll segl uppi, sló hjartað hraðar. Ekki man ég nafn hins siglarans, en það rifjast upp fyrir mér, að þegar hann stóð uppi í slippnum í Bátanausti var listamaðurinn Tryggvi Magnússon (yfírlitssýning á verk- um hans var fyrir skömmu í Listasafni ASÍ) að mála myndir af höfrungum á kinn- unga hans, og fallegar voru þær myndir. Fugl getur ekki flogið fyrr en vængir hans eru fullvaxnir, og enginn verður góður siglingamaður fyrr en hann þekkir á bátinn sinn og aflið, sem knýr hann. Oft lifði maður það í bytjun, að hin kalda krumla óttans læstist um hjartað og að það væri einhveiju öðm að þakka en manni sjálf- um að vera ekki í sjónum að krafsa sig á kjöl. Þessar fyrstu sjóferðir rifjast upp, þegar horft er á þrastarungann reyna að bera fyrir sig vængina á fyrstu fiugferðinni ofan úr reynitrénu — okkur gæti verið eins innanbijóst. Þeir að sneiða framhjá greinum trésins og óvaningurinn að læra að venda, og svo þakka allir sínum sæla að vera lentir — bæði fuglar og menn. Byr var oft liðugur, þegar farið var út um sexleytið, en upp úr klukkan níu datt kannski á dúnalogn og þá var Sæblómið komið út á milli eyja og ekki annað að gera en fella segl og leggja út árar, og þá hefði maður þegið að hafa eitthvað matarkyns meðferðis til að hressa sig á, eða koma við í fjöru og hita sér súpu. Það er dijúgur spölur eftir að róa að Gelgjutanga þótt komið sé fyrir Klepp, en maður var ungur á þeim árum og vildi þetta. Svo kom að því að Sæblómið var sett úr sjó í síðasta sinn á Gelgjutanga og þama á tanganum, steinsnar frá, hafði annað skip lokið sjóferð sinni. Það skip hét Frekjan. Því skipi höfðu nokkrir ungir menn siglt yfír til Atlantsála í heimsstyijöldinni, þeir höfðu ekki viljað una því að láta villimennsk- una stía sér frá ættjörðinni. Fjöldi ára eru liðin frá bálför Frekjunnar, en stutt er í tíma frá bálför Sæblómsins. Þá hafði það um árabil verið ungum mönn- um til nota á vatni hér í nærsveit. Það er skrítinn tími þetta gelgjuskeið — þá lá maður yfír útlendum siglingablöðum. Þar voru myndir af ungu fólki, sem sveif léttklætt seglum þöndum á bátum sínum í blíðviðrinu. Þetta flutti maður í huganum heim til Islands, en veruleikinn var lopa- peysa og úlpa. Þegar litið er til baka, þá sé ég ekki eftir þessu — Sæblómið hjálpaði mér til þess að hemja óróleikann í blóðinu, eins og krómfelgur undir bflnum gera öðrum sama gagn. Á mínum aldri er oft sagt, að hann eða hún séu komin til vits og ára, og rétt er það að maður er kominn til ára sinna, en oft er grynnra á rótum vitsins og þær haldminni, en maður hélt. Gelgjuskeiði mannsævinnar lýkur kannski aldrei — á ákveðnu æviskeiði er það eins og ísjakinn, mestan part undir yfirborðinu." Eins og bóndi minn segir í þessu spjalli, hefði hann þegið að hafa eitthvað matar- kyns, þegar hann var að sigla Sæblóminu og svo mun um fleiri sem sigla fleyi sínu, og þá þarf það að vera eitthvað, sem fljót- legt er að grípa til. Mjög gott er að hafa heita súpu á hitabrúsa svo og samlokur. Fersk blaut blaðsalatblöð í plastpoka er gott að bíta í um leið og samlokumar, sem geta verið með ýmsu áleggi. Flestir íslend- ingar meta flatbrauð og hangikjöt mikils, en mjög auðvelt er að búa til flatbrauð sjálf- ur og er fyrsta uppskriftin af slíku brauði. Flatbrauð er bakað beint á hellunni, nema ef þið eruð með gormahellu, þá þarf að hafa pönnu ofan á. Flatbrauðsbakstur fer svolítið ilia með hellumar, en hann fer líka illa með pönnuna. Hráefni í flatbrauð er ekki margbreytilegt — aðeins mjöl, lyftiduft, salt og sjóðandi vatn. Þegar flatbrauð er tekið af hellunni, er best að setja það ofan í pott og lok yfír, þá heldur gufan sem myndastþvíröku. Þegar samlokur em smurðar, er best að vefja hveija fyrir sig inn i plastfilmu, en látið ekki plastfílmuna liggja að feitu áleggi. Mýkingarefni í plastfilmum leysa upp plastið þegar það kemst í snertingu við fitu, og það er ekkert æskilegt til neyslu. Að visu er þetta breytilegt eftir því hver tegund plast- fílmunnarer. Notið gróft brauð og ferkantaðar sneiðar, þegar þið smyijið samlokur. Betra er að sneiðamar séu ekki mjög þykkar. Flatbrauð 200grúgmjöl 200 g heilhveiti 200ghveiti UAtsk. Iyftiduft 1 tsk. salt 7 dl sjóðandi vatn. 1. Blandið saman rúgmjöli, heilhveiti, hveiti, salti og lyftidufti. 2. Sjóðið vatnið og hellið út í. 3. Hnoðið saman. Mótið þykka rúllu. 4. Skerið bita af rúllunni og fletjið út í u.þ.b. V2 sm þykka plötu. Leggið disk ofan á og skerið í hring. 5. Hitið eldavélarhellu (pönnu, ef þið notið gormavél). Hafið fullan straum. 6. Leggið hveija flatköku á helluna, snúið við eftir smástund, þegar þið sjáið að kakan er farin að bakast. Gott er að þrýsta ofan á kökuna með pönnuspaða. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON 7. Setjið bakaðar flatkökumar í pott, setjið hlemm yfir. 8. Bakið kökumar þannig hveija af annarri. Athugið: Hægt er að frysta flatkökur. Rúgbrauð með lifrarkæfu og gúrku 4 sneiðar rúgbrauð, seytt eða óseytt 15 g smjörvi eða sólblómasmjörlíki 100 g lifrarkæfa smábiti fersk gúrka 1. Smyijið brauðsneiðamar með smjörv- anum eða sólblómasmjörlíkinu. 2. Smyijið lyfrarkæfu þykkt á sneiðamar. 3. Skerið gúrkuna í þunnar sneiðar og raðið ofan á. 4. Hvolfið brauðsneiðunum saman, vefjið í plastfilmu, hvorri samloku fyrir sig. Gróft brauð með smurosti og skinku 4 sneiðar gróft brauð 50 g smurostur, t.d. sveppaostur 4 sneiðar skinka 1. Smyrjið brauðsneiðamar með smurost- inum. 2. Leggið skinkusneið ofan á hveija brauðsneið. Ef þær standa út af, skerið þið það af og leggið ofan á. 3. Hvolfið brauðsneiðunum saman, vefjið í plastfilmu, hvorri samloku fyrir sig. Gróft brauð með osti og papriku 4 sneiðar gróft brauð 15 g smörvi eða sólblómasmjörlíki 4 stórar sneiðar ostur 1 meðalstór paprika 1. Smyijið brauðsneiðamar með smjörv- anum eða sólblómasmjörlíkinu. 2. Setjið ost á hveija brauðsneið. 3. Skerið paprikuna í sneiðar, takið úr henni steinana. Leggið nokkrar papriku- sneiðar ofan á hveija ostsneið. 4. Hvolfið brauðsneiðunum saman, vefjið í plastfilmu, hvorri samloku fyrir sig. Flatbrauð með hangikjöti 2 flatbrauðskökur (4 helmingar) 20 g smjörvi eða sólblómasmjörlíki 8 þykkar sneiðar hangikjöt 1. Smyijið hvem flatbrauðshelming með smjörva eða sólblómasmjörlíki. 2. Leggið hangikjöt ofan á, skerið utan með svo að það passi á flatkökumar. 3. Leggið tvo helminga saman, skerið síðan í tvennt. 4. Vefjið hvem flatkökubita í plastfilmu. DUKKULISUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.