Morgunblaðið - 29.06.1986, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986
B 25
Blöðruselurinn
ræðst á fisk í netum
o g á línu og stór-
spillir honum
„Nú á nýliðnu vori var óvenju
mikið vart við ishafssel, einkum
blöðrusel og einnig- vöðusel, á
miðum Húsvíkinga, Eyfirðinga
og Skagfirðinga. Kvað svo
rammt að ásókn blöðrusels í fisk
í veiðarfærum sjómanna, að fyrir
kom að meira en helmingur af
dagafla báta væri selbitinn. Selir
þessir réðust bæði á fisk á linu
og þó einkum á netum“, segir i
fréttatilkynningu frá Landssam-
bandi smábátaeigenda.
Þar segir ennfremur: „Svo virðist
sem þessum sel fari nú verulega
Úölgandi fyrir utan að eyðileggja
fisk í veiðarfærum þá fælist fískur
burt af þeim svæðum sem selurinn
leggur undir sig.
Ungir vöðuselir fengust nú, þó
nokkrir, í grásleppunet, en undan-
farin ár hafa þeir naumast sést. í
því sambandi er rétt að minnast
þess að fyrir 1930 var oft óhemju
mikið af vöðusel á ferðinni á vorin
og sáust þeir jafnvel þúsundum
saman. A þessum áium hvarf fískur
algjörlega af grunnmiðum á meðan
selagengd stóð yfír.
Misvitrir menn úti í löndum virð-
ast telja sig guði fremri við stjóm
sjávarlífríkis íshafsins, en gæta
þess ekki að þeir sporðreisa því
jafnvægi sem fyrir var. Þeim væri
nær að snúa sér að því að taka til
á „eigin lóð“ því frá þeirra eigin
löndum berast milljónir tonna af
eiturúrgangi út í andrúmsloftið og
í hafíð. Haldi svo áfram þurfa af-
komendur þeirra ekki að hafa fyrir
því að vemda eitt eða neitt síðar
meir, því bæði hvalir og selir verða
þá allir.
Það voru mikil mistök þegar
nokkrir háttvirtir þingmenn komu
í veg fyrir afgreiðslu á seiafrum-
varpi sjávarútvegsráðherra. Því
stærra sem hringormavandamálið
verður því lægri laun í þessu landi.
Fyrir því eru engin rök að selorm-
ur klekist í öðrum dýrum en sel,
og klak á sér alls ekki stað í fugli.
Aðeins er vitað um eitt dæmi þar
sem hugsanlega var fyrir hendi klak
í hval.
Hin síðari ár virðist útsel hafa
fjölgað vemlega og nokkur ný sela-
látur verið fundin til dæmis fyrir
Norðurlandi. Að fróðra manna áliti
telur stofninn nú um 10 þúsund
fullorðin dýr.
Stjómvöld verða nú að taka þessi
mál föstum tökum, ekki með því
hugarfari að hefja einhvers konar
útrýmingarherferð gegn selastofn-
unum, heldur með það markmið í
huga að halda þeim innan hæfílegra
marka.
Þá álítur Landssamband smá-
bátaeigenda að notkun dragnótar
sé komin út í öfgar og að fyrir
því séu engin vísindaleg rök að
óhætt sé að leyfa dragnótaveiðar á
hrygningartíma nytjafíska.
Ennfremur að notkun 135 mm
möskva í dragnót sé með öllu óþol-
andi og gera Landssamtökin kröfu
til þess að möskvinn verði þegar í
stað stækkaður í fyrra horf þ.e. 155
mm. Jafnframt að friða beri fyrir
TJöfðar til
11 fólks í öllum
starfsgreinum!
lltaflgitiiiÞfofeffe
RÚSÍNAN í P Y SLUEND ANUM: BREIÐ OG GÓÐ BAÐSTRÖNDIN.
Beint dagflug með ARNARFLUGI til HAMBORGAR alla sunnudaga.
Verðdæmi: kr.
13.900,-
á mann, miðað við 4ra manna fjölsk. í eina viku.
Sumarhús á strdnd
Nyjung scm hrittir ri marh
WEISSENHAUSER STRAND, glæsilegur sumardvalarstaður um 100 km norður af Ham-
borg. Frábær aðstaða fyrir alla aldurshópa, góður vettvangur leikja og útiveru.
WEISSENHAUSER STRAND er frábærlega vel í sveit sett, stutt til ótal forvitnilegra staða.
Má þar nefna glæsilega tívoligarðinn HANSALAND, dýragarðinn í Hamborg, sem er frægur
um víða veröld, og vilji menn skreppa til Kaupmannahafnar er aðeins um 3ja klst. akstur til
borgarinnar við sundið.
ðtcfkvm
FERÐASKRIFSTOFA, HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388
Landssamband smábátaeigenda:
Halda verður
fjölda sels innan
hæfilegra marka
Garðabær:
Efnalaug opnuð
við Garðatorg
NÝ EFNALAUG hefur verið
opnuð við Garðatorg í Garðabæ.
Það eru hjónin Bryngeir Vattnes
og Ragna Gisladóttir sem reka
efnalaugina.
Efnalaug Garðabæjar býður upp
á kemiska hreinsun og eins er hægt
að fá svokallaða kílóhreinsun (hrað-
hreinsun). Afgreiðslutími Efnalaugar
Garðabæjar er frá kl. 8 á morgnana
til kl. 19, virka daga og á laugardög-
um M kl. 9—16.
Bryngeir Vattnes og kona hans, Ragna Gísladóttir, hafa opnað efnalaug
íGarðabæ.
-A'-
•Umboó a Islandi fyrir
DINERS CLUB
INTERNATIONAL
- 28580
botnvörpuveiðum 4 mílur frá
grunnlínupunktum við Vestmanna-
eyjar.
Þá mótmælir Landssamband
smábátaeigenda þeirri ályktun
Alþingis frá sl. þingi að opna fyrir
frekari dragnótaveiðiheimildir í
Faxaflóa og krefst þess að aftur
verði umrætt svæði þegar í stað
friðað."