Morgunblaðið - 29.06.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29.JÚNÍ 1986
B 27
bjartsýnismaður, en flestar gerðir
hans stjómast þó af tilflnningum.
„Reyndar sé ég það strax," sagði
einn vísindamaðurinn, „að þegar
þetta er skrifað hefur hann átt í
baráttu við sjálfan sig, því hugur
hans og hjarta hafa ekki verið
sammála". Hin þráðbeinu f benda
til þess að hann hafí þó alltaf báða
fætur á jörðinni.
Laurence Olivier AUir sem einn
fullyrtu rannsóknarmennimir að
þessi maður væri þijóskari en allt
sem þvert væri. Hann ber mikla
virðingu fyrir sjálfum sér og hefur
því ágætan sjálfsaga. þessi skiýtna
lína í enda nafnsins táknar bókstaf-
lega mikinn leiklistaráhuga. Þá má
einnig lesa út úr „o-um“ hans að
kímnigáfu hafí hann góða.
Greta Garbo: Þegar sérfræðing-
amir komust að því að þessi skrift
heyrði Gretu Garbo til, brá þeim
illilega við. „Hér er á ferð alger
andstæða," sögðu þeir. Greta Garbo
hefur neftiilega farið huldu höfði í
mörg ár og forðast fjölmenni eins
og heitan eldinn. Skrift hennar
upplýsir hinsvegar að hún er bráð-
greind og ótrúlega forvitin um allt
sem að lífínu snýr. Hún er vingjam-
leg og samvinnuþýð og traustari
en Gíbraltar í vináttu sinni. Jafnar
línur skriftarinnar segja að hún
ljóstri aldrei upp neinum þeim
leyndarmálum sem henni hefur
verið trúað fyrir.
Brigitte Bardot: Skrift Bardots
er afskaplega sérstök og segir mikið
um persónuna á bak við pennann.
Hún er einlæg í öllu því, sem hún
tekur sér fyrir hendur og er mikil
baráttukona í eðli sínu. Hana svíður
sárt að horfa upp á óréttlæti þó svo
helst vildi hún fá að vera í friði og
ró. Línan skringilega undir nafni
hennar táknar að hún hafí segul-
mögnuð áhrif á menn og geti auð-
veldlega stjómað þeim að eigin vild.
Ronald Reagan: Þeir, sem fylgst
hafa með þróun skriftar Banda-
ríkjaforsetans, fullyrða að hún hafí
breyst mikið frá því hann tók við
embætti sínu. Hún fór t.a.m. að
halla meira til vinstri. Það er líka
helsta einkenni á fæddum „dipló-
mötum“ sem og þeim, sem flana
ekki að neinu í ákvarðanatökum.
Sá, sem réði í þessar rúnir sló því
föstu, án þess að hika, að hér væri
á ferðinni máður, sem lumaði á
mörgum leyndarmálum.
Tatum O’Neal: Víðsýn og vin-
gjarnlegheit eru megineinkenni
skriftar leikkonunnar Tatum
O’Neal. „Kmllumar" í rithönd
hennar bera vott um ríka kímni-
gáfu. Hún er opin og ófeimin,
daðrari í húð og hár og fyrst og
fremst mikil tiifínningamanneskja.
Hún er líka fagurkeri og kann vel
að meta fagra tónlist og söng. Það
eina, sem hugsanlega gæti ruglað
hana í ríminu, er hversu veik hún
er fyrir öllum veraldlegum gæðum.
Þar höfum við það!
i
Yousuf Islam á skemmtigöngu (
Istanbul.
minna. Á myndinni sjáum við hann
á göngu í Istanbul í Tfyrklandi, með
bömum sínum þremur — og óneit-
anlega virðist hann hafa breyst
töluvert í útliti líka.
COSPER
— Með armbandsúr? Já, ég hef verið með það við allar upptökurnar.
VOLVO
ULJTIR
5 DÝrE
l^yMNA
FÓLKSBÍLAR KRÓNUR
Kerti 372,-
Platínur 140,-
í 240
Olíusía 341,-
Spindilkúlur0 1.142,-
240 framan Dempari 2.611,-
| SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200
GOODYEAR
á hagstœðu verði
Hvort sem er í þurru færi eða blautu
í lausamöl eða á malbiki
á hálku eða í snjó eru:
MÝKT, GRIPFESTA OG GÓÐ ENDING
aðalsmerki Goodyear-hjólbarðans
LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNNAR HJÓLBARÐA
G OODfÝEAR
m
HEKLAHF
170-172 Sím. 21240