Morgunblaðið - 29.06.1986, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 29.06.1986, Qupperneq 34
34 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 1986 LC HEIMI f\VII\MyNDANNA Steve Guttenberg og Ally Sheedy leika í Short Circuit, gamanmynd sem nýtur talsverðra vinsælda (Bandaríkjunum þessar vikurnar. Sumarvertíðin vestanhafs Fyrir það fyrsta er nýja myndin hans Stallones, Cobra, sem allir bjuggust við að myndi mala gull eins og myndir kappans um Rocky og Rambo, neðarlega á listanum og er ástæðan sögð vera alltof mikið ofbeldi i myndinni. Nýja myndin hans Schwarzeneggers, Raw Deal, hefur líka valdið von- brigðum hvað aðsókn varðar og gamanmynd Alans Alda, Sweet Liberty, stendur höllum fæti. Sú sem hefur komið mest á óvart er Top Gun eftir Tony Scott (bróðir Ridleys) með Tom Cruise. Hún verður vafalaust vinsælasta mynd sumarsins, en margar aðrar veita henni harða samkeppni. Þeirra á meðal er Poltergeist 2, Short Circuit með þeim Steve Guttenberg og Ally Sheedy, og svo eru nokkrar ókomnar þegar þetta er ritað. Morgunblaðið mun skýra frá gengi þeirra strax og fréttir berast. Nú er sumarvertíðin í Banda- ríkjunum vel á veg komin og menn farnir að sjá hvaða myndir ganga í lýðinn og hverjar ekki. Að þessu sinni hefur margt skrýt- ið og merkilegt komið upp. ÍRSKI LEIKARINN: UAM NEESON Liam Neeson er nafn sem vert er að leggja á minnið. Hér er um að ræða hálffer- tugan íra, sem mikið er taiað um í Evrópu, að minnsta kosti á Englandi, en nýlega var þar frumsýnd myndin „Lamb“ með téðum Neeson ítitilhlutverki. Neeson rær hér fýrir aftan Robert De Niro (Trúboðs- stöðinni. Neeson leikur ungan, ófram- færinn prest sem kennir í af- skekktu þorpi á írlandi. Presturinn kynnist Owen, tíu ára snáöa, sem er að bugast á stríðsástandinu. Þeir félagar láta sig hverfa úr þorpinu og ferðast alla leið til Englands; milli þeirra myndast órjúfanlegt traust. En kaþólski kennari drengsins, Benedikt, sakar Lamb um að ræna drengnum, og lögreglan byrjar að leita þeirra. Vinirnir snúa heim og saga þeirra fær sorglegan endi. Höfundur sögunnar er Bernard MacLaverty, sá hinn sami sem samdi söguna um Cal og sýnd var hér á landi fyrir rúmu ári. Liam Neeson er írskur, en hefur búið í Lundúnum síðustu tíu árin, eða síðan hann afréð að leggja leiklistina fyrir sig. Neeson fékk fljótt hlutverk, en flest voru lítil og hann vakti enga eftirtekt og þakkar Neeson sínum sæla fyrir það. Hann segist nefnilega hafa þurft á þessum tíma aö halda og þeirri reynslu sem baráttan upp á við gaf honum. Hann gat státað af hlutverkum í þrem frægum, en misjöfnum myndum þegar hann fékk hlutverkið i „Larnb", en það var í Excalibur, Krull og The Bo- unty. Hann komst meira að segja í tæri við Mel Gibson og Anthony Hopkins í þeirri síðastnefndu. Nýlega lék hann með Robert De Niro og Jeremy Irons íTrúboðs- stöðinni (The Mission) sem hlaut Gullpálmann í Cannes í maí síðast- liðnum. En það er írland sem á hug hans allan og hann er ekki bjartsýnn á framtíðina. Hann segir að ástandið í heimalandi sínu sé skeifilegt, svo skelfilegt að þótt mótmælendur og kaþólikkar (Nee- son er kaþólskur) lifðu í sátt frá og með þessum degi þá tæki það allt að fimm kynslóðir að græða sárin, því flest fólkið lifir í geigvæn- legum ótta og þekkir ekki annað en hatur. Liam Neeson leikur ungan mann sem vingast við tíu ára dreng og ferðast með honum til Englands, en hann er sakaður um mannrán. Sean Penn og Madonna lelka saman (fyrsta skipti (kvikmynd. Sean Penn og Madonna saman í mynd Leikarinn Sean Penn og söng- konan Madonna (Veronica Louise Ciccione) vinna saman að kvik- mynd um þessar mundir. Þau leituðu logandi Ijósi að sögu sem hæfði þeim báðum og loks f undu þau handrit hjá umboðsmanni gamla brtilsins George Harrison, sem rekur fyrirtækið Handmade Films. Myndin heitir Shanghai Susrprise og er sögð vera eins konar ævin- týramynd eins og þær sem gerðar voru í Hollywood í árdaga kvik- myndarinnar. Leikstjóri er Jim Goddard, sem íslendingar ættu að þekkja, því hann gerði sjónvarps- þættina um Reilley. Madonna leikur spæjara á vegum CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna, en hún er stödd í Shanghai og nágrenni til að koma upp um eitur- lyfjasmyglara. Sean Penn leikur vafasaman náunga sem bíður Madonnu þjónustu sína í leitinni að smyglurunum. Rollie (Bryan Brown) býr hér mafíuforingjann undir morðlð, sem dregur dilk á eftir sér. HÁSKÓLABÍÓ: Hverjum er hægt að treysta? Ástralinn Bryan Brown leikur tæknibrellusér- fræðinginn Rollie í myndinni F/X sem Háskóla- bíó tekur til sýninga á næstunni. Rollie þykir einkar fær (að hanna mannslíkama, laga þá til eða afmynda eftir þörfum. Alríkislögreglunni bandarfsku finnst hann þv( kjörinn til að setja á svið morð á mafíubófa, sem er á mála hjá lögreglunni og ætlar að gefa mikilvægar upplýs- ingar. En Rollie kemst að þv( dýrkeyptu að meira að segja réttlætinu er ekki treystandi, því svo vel býr hann um hnútana að ekki er alltaf hægt að greina á milli þeirra sem á að drepa og þeirra sem ekki á að drepa. Bryan Brown hefur ekki leikið í bandarískri kvikmynd áður, en hann hefur engu að siður leikið í um það bil tíu myndum og nokkrum sjónvarps- þáttum (Þyrnifuglunum til að mynda). Hann er þekktasti ástralski leikarinn á Vesturlöndum, ef Mel Gibson er undanskilinn. F/X er þriðja myndin sem leikstjórinn Robert Mandel gerir, fyrsta myndin hans, „Independence Day", var sýnd í Tónabíó síðastliðinn vetur. Mandel er ungur að árum og hefur unnið sjálf- stætt hingað til, það er að segja hann hefur ekki starfað fyrir stóru kvikmyndaverin, en það gæti breyst núna, því F/X vakti feikna athygli í Banda- ríkjunum er hún var sýnd þar síðla vetrar. Brían Dennehy ógnar Bryan Brown með byssu eftlr „morðið" á maffuforíngjanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.