Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 3
o
ttttt n» Wir>^m.TTwrvrrar wrzh jqimrianyr
MORGUNBLAÐIÐ, VTDSKDPTI/KIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
g
B 3
Kynningar
Útflutningsmiðstöðin með
stórátnk íÞýskalandi
Útflutningsmiðstöð iðnaðarins
stendur fyrir þriggja ára kynn-
ingarátaki í Þýskalandi sem
hefst með haustinu og stendur
til ársins 1989. Meginmarkmið
þess er að vekja athygli á landi
og þjóð að ógleymdri þeirri vöru
og þjónustu sem íslenskir út-
flutningsaðilar geta boðið
þýskum neytendum.
Að sögn Hafsteins Vilhelmssonar
markaðsstjóra Utflutningsmið-
stöðvarinnar hefst átakið í lok
október með þremur kynningar-
kvöldum í Frankfurt, Stuttgart og
Hamborg. Þangað verður boðið
aðilum úr viðskiptalífínu, innkaupa-
stjórum stórverslana og sölufólki í
ferðamannaiðnaði að ógleymdum
blaðamönnum. Lögð verður áhersla
á hreinleika landsins á láði og legi
og boðið verður upp á íslenskt físk:
og kjötmeti. Meðal annarra atriða
verður fluttur pistill um ísland í
nútíð og framtíð auk þess sem
ferðaþjónusta og samgöngur skipa-
og flugfélaganna innanlands og
milli landa verður kynnt. Síðast en
ekki síst mun Jón Laxdal, sem er
Þjóðveijum að góðu kunnur, lesa
upp úr íslenskum ritverkum.
„1987 er ætlunin að víkka út
starfið og nýta þá kynningu sem
við fáum með haustinu", sagði
Fólk og fyrirtæki
ISLAND
Morgunblaðið/Júlíus
KYNNING ■—Útflutningsmiðstöð iðnaðarins stendur fyrir kynning-
arátaki í Þýskalandi sem nær til þriggja ára. Markaðsstjóri ÚI er Hafsteinn
Vilhelmsson.
Hafsteinn enn fremur. „í stórversl-
unum verður efnt til sérstakra vöru-
og ferðakynninga og við tökum
þátt í vörusýningum víðs vegar um
Þýskaland.
Verkefni áranna 1988 og 1989
sagði Hafsteinn ekki fastmótuð en
að þau yrðu með svipuðu sniði.
Reynt yrði að auka vægi menningar
í kynningunum með fulltingi
íslenskra listamanna.
Þess má einnig geta að f sept-
ember verður þýskum blaðamönn-
um boðið hingað til að kynnast landi
og þjóð og undirbúa jarðveginn fyr-
ir átakið.
Hafsteinn sagði að í fyrra hefði
útflutningsmiðstöðin staðið fyrir
svipuðu átaki í Hollandi og hefði
það tekist mjög vel. Reyndar væri
erfítt að mæla árangurinn í bein-
hörðum peningum en sem dæmi
mætti nefna að enn væri verið að
fjalla um ísland í hollenskum fjöl-
Eimskip opnar skrif-
stofu í Svíþjóð
KJARTAN Jónsson rekstrarhag-
fræðingur, hefur verið ráðinn til
þess að gegna starfi forstöðumanns
nýrrar skrifstofu Eimskips í
Svíþjóð, er verður staðsett í Gauta-
borg. Gert er ráð fyrir að skrifstof-
an taki formlega til starfa 1.
október 1986.
Kjartan hefur starfað hjá Eim-
skip frá árinu 1979, er hann lauk
framhaldsnámi á sviði stjómunar
og markaðsmála frá Verzlunar-
háskólanum í Kaupmannahöfn.
Kjartan hefur gegnt starfí for-
stöðumanns Norðurlandadeildar
Eimskips frá miðju ári 1982.
Með opnun eigin skrifstofu í
Svíþjóð ætlar Eimskip að auka þjón-
ustu sína við viðskiptavini félagsins
og reyna að tryggja sem mesta
hagkvæmni í flutningum.
Guðmundur Halldórsson við-
skiptafræðingur hefur verið ráðinn
Guðmundur Halldórsson
forstöðumaður Norðurlandadeildar
Eimskips frá 1. ágúst 1986. Guð-
mundur réðst fyrst til starfa hjá
Eimskip 1969.
Guðmundur hefur starfað fyrir
í* jám
Kjartan Jónsson
Eimskip í Rotterdam frá ársbyjjun
1983, fyrstu tvö árin sem fulltrúi
félagsins hjá fyrri umboðsmönnum,
en frá 1. janúar 1985 sem forstöðu-
maður Eimskips í Rotterdam.
Utboð SKYRR á
tölvupappírsnotkun
Oddi með lægsta tilboðið
SKÝRSLUVÉLAR ríkisins buðu
nýlega út tölvupappirsnotkun
sina og bárust fjögur tilboð, tvö
frá dönskum aðilum og tvö frá
íslenskum fyrirtækjum. Þau voru
opnuð síðastliðinn þriðjudag og
reyndist tilboð prentsmiðjunnar
Odda lægst. Það hljóðar upp á
6,7 milljónir og er til 14 mánaða.
Munur á hæsta og lægsta tilboði
er um 13%.
Það er mjög sjaldgjæft að
ríkisfyrirtæki hér á landi bjóði út
ákveðna kostnaðarþætti í starfsemi
sinni og er þetta í fyrsta skipti sem
SKÝRR býður út pappírsnotkun
sína. Tvisvar hefur verið um smærri
útboð að ræða, í segulbönd og
miðlum. „Þýskaland er stór
markaður sem hefur verið van-
ræktur hingað til. Síðari árin hefur
verið litið mjög til Bandaríkjanna
en með fallandi gengi dollarans
hafa útflutningsaðilar horft sér nær
og er þessi kynning einn liður í að
efla markaðstengsl í Þýskalandi."
Nákvæm kostnaðaráætlun liggur
enn ekki fyrir en miðað við kynning-
arátakið í Hollandi taldi Hafsteinn
að á þessu ári yrði varið um 1,5
milljón króna til þessa verkefnis.
Framleiðsla
minni en
sala meiri
hjáíSAL
FRAMLEIÐSLA íslenska ál-
félagsins fyrstu sex mánuði
þessa árs var 36,342 tonn á
móti 38,036 tonnum á sama
tíma 1985. Sala hefur hins
vegar aukist, var 35,200 tonn
á þessu ári, en 34,003 tonn á
síðasta ári.
Sæmundur Stefánsson hjá
ÍSAL sagði að verð nú væri um
1.150 dollarar og hefði lítið
breyst undanfama mánuði og
er ekki búist við miklum sveifl'
um í ár. Áætlað er að heims-
framleiðslan á þessu ári verði
um 17 milljónir tonna en 1985
var hún 12,2 milljónir tonna.
Erlent
Verðbólga í
Evrópu helst
áfram lág
Frá Eggert H. Kjartanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Hollandi.
VERÐBÓLGAN í Efnahags-
bandalagsríkjunum 12 er ekki
nema um 0,2% um þessar mund-
ir. í apríl hækkaði neytendaverð
aðeins sem nemur 0,4% og i
mars var hækkunin 0,2%. Síðan
í maí á síðasta ári hefur ekki
verið um nema 3,5% verðhækkun
að ræða.
í síðasta mánuði lækkaði vöru-
verð í Belgíu um 0,3% og í Portúgal
um 0,5%. I Vestur-Þýskalandi, Hol-
landi og Lúxemborg stóð verðið í
stað. Hér í Hollandi er verðbólgan
á ársgrundvelli ekki nema 0,5% á
sama tíma og í Vestur-Þýskalandi
og Lúxemborg er ekki um neina
verðbólgu að ræða á ársgrundvelli.
Einu löndin innan Efnahagsbanda-
lagsins þar sem hægt er að tala
um einhveijar verulegar verð-
hækkanir síðustu mánuðina eru
Danmörk og Grikkland, þar sem
verðhækkanir voru að meðaltali um
0,5%.
í Hollandi hefur þessi litla verð-
bólga og stöðugt vöruverð endur-
speglast í lágum vöxtum og
tiltölulega miklum stöðugleika í
efnahagslífinu. Hollendingar, sem
njóta þess ef um raunverulegan
hagvöxt er að ræða í Vestur-Þýska-
landi, vegna mikilvægis þess lands
fyrir útflutningsiðnað þeirra, hafa
einnig orðið varir við að atvinnu-
leysi væri jafnvel orðið enn minna
en skrár segja til um, þar sem
ýmsir hafa ekki tilkynnt sig eftir
að þeir hafa fundið verkefni við sitt
hæfí. Samkvæmt síðustu spám
reiknistofnunar ríkisstjómarinnar
hér er þess vænst að um svipaða
þróun verði að ræða út þetta ár.
prentborða, sem hvort um sig hljóð-
aði upp á um 1 milljón króna,
þannig að samningur SKÝRR við
Odda er sá stærsti til þessa. Með
framlengingu fyrri samnings, sem
var reyndar einnig við Odda, hefði
SKÝRR greitt 13% hærra verð fyr-
ir tölvupappírinn en kveðið er á um
í tilboði Odda.
T0Y0TA 2FBE 15 3 HJÓLA RAFMAGNSLYFTARI
Lyftigeta 1,5 tonn, lyftihœð 4,3 metrar
Rafgeymir 48V-400 ah.
TOYOTA
NÝBÝLAVEGI 8 200 KÓPAVOGI