Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, VTÐSKffTI AÍVINNUlÍF FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 B 7 brattann að sækja. Sölu flugfélags- ins British Airways hefur marg- sinnis verið frestað, fyrst vegna málaferla á hendur BA í sambandi við gjaldþrot flugfélagsins Laker Airways, og síðan vegna þess að yfirvöld hafa viljað ljúka fyrst samningum við yfirvöld í Banda- ríkjunum um bætta aðstöðu félags- ins í farþegaflutningum yfir Norður-Atlantshafið. Sumir eru tor- tryggnir á þessar skýringar og segja að rétta ástæðan fyrir öllum frestununum sé sú að með núver- andi fækkun farþega, aukinni samkeppni á flugleiðunum yfir Norður-Atlantshafið og vegna fyr- irsjáanlegrar þarfar fyrir miklar fjárfestingar óttist yfirvöld að veru- lega geti. dregið úr hagnaði flug- félagsins og það hljóti að valda nýjum kaupendum hlutabréfa von- brigðum. Sölu á Land Rover og Leyland Trucks var fyrirvaralaust frestað eftir að þrýstingur frá nokkrum þingmönnum íhaldsflokksins neyddi ríkisstjórnina til að hætta samningaviðræðum við General Motors Corp. fyrr á þessu ári. Ósk- að hafði verið eftir tilboðum frá fjórum innlendum aðilum, en ekkert þeirra reyndist aðgengilegt. Reiknað hafði verið með að salan á Royal Ordnance færði ríkinu 200 milljón punda (um 12,7 milljarða króna) tekjur. Þótt sölunni hafi nú verið frestað ætti það ekki að hafa mikil áhrif fjárhagslega, en er þó pólitískt áfall fyrir stjórnina. Það var aðeins nokkrum vikum áður en hefja átti sölu hlutabréfa í vopna- smiðjunum að ríkisstjórnin komst að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið væri ekki nægilega vel undirbúið til að geta staðið á eigin fótum. En Royal Ordnance var stofnað fyrir hálfu öðru ári með sameiningu aldagamalla vopnasmiðja og skot- færagerða í Bretlandi. Einokun mótmælt Einn megin tilgangurinn með sölu ríkisfyrirtækja til einaaðila hefur verið sá að auka samkeppni á markaðnum. Sem dæmi má taka að National Bus verður breytt úr ríkisreknu einkaleyfisfélagi í 71 flutningafélag í samkeppni hvert við annað þegar félaginu verður skipt og það selt síðar á þessu ári. Áður stundaði National Bus far- þegaflutninga samkeppnislaust á einkaleyfisleiðum víða um Bretland, en framvegis munu smærri fyrir- tæki á borð við National Welsh og Midland Red keppa hvert við annað á þessum leiðum um farþegana með því að lækka fargjöld og bjóða betri þjónustu. En í vaxandi mæli er farið að líta á National Bus sem undantekn- inguna frá reglunni. „Frumástæðan var að auka framleiðni ríkisfyrir- tækja með því að auka samkeppn- ina,“ segir David Thompson, sem stendur fyrir könnunum á afleiðing- um af sölu ríkisfyrirtækja til einkaaðila hjá Institute for Friscal Studies í London. „Ríkisstjórnin hefur misst sjónar af því mark- miði, og nú er stefnan aðeins sú að selja ríkiseignir, oft án þess að nokkuð sé gert til að auka sam- keppnina." Ríkisstjórninni er mikið í mun að auka sem mest tekjur sínar, og vegna andstöðu stjómenda við að fyrirtækjum þeirra verði skipt upp í smærri einingar er ríkisstjómin nú að selja einkaaðilum ríkiseinka- sölur sem ekki eiga eftir að skila betri árangri né veita betri þjónustu í einkaeign en þær gerðu í ríkis- eign, að sögn gagnrýnenda. Takmörkuð samkeppni Þegar fyrst kom til tals að selja British Gas, datt ríkisstjórninni í hug að skipta gasfélaginu upp í smærri héraðabundnar einingar sem síðan miðluðu gasi til neytenda frá einum höfuðstöðvum fyrir Norð- ursjávargas. Þótt neytendur fengju ekki að velja hvaðan þeir keyptu gasið, mátti þó búast við innbyrðis samkeppni milli gasfélaganna varð- andi innkaup á gasi og sölu til stærri iðnfyrirtækja. En harðsnúnir Finnland Skipasmiðjur sameinast skipulagningu rekstrarins og sameiningu við Valmet. „Ástandið er mjög erfitt á vest- stjórnendur British Gas neituðu að láta skipta félaginu. Þessi andstaða olli því að breytingarnar hefðu orð- ið tímafrekar og dregið það á langinn að einkaaðilar gætu tekið við rekstrinum. Ríkisstjórnin hefur án efa einnig haft væntanlegt sölu- verð í huga: Hærra verð fengist fyrir félag með einokunaraðstöðu en fyrir mörg smærri félög í inn- byrðis samkeppni. Ríkisstjórnin neitaði einnig að skipta British Airpoits Authority niður í sérstök félög fyrir hvern flugvallanna, Heathrow, Gatwick og Standstead, sem síðan kepptu sín á milli um farþega og flugfélög. Ríkisstjórnin taldi að skiptingin væri ósanngjörn þar sem Heathrow fengi þá yfirburða aðstöðu. „Þótt erfitt sé að sjá fyrir sér algjörlega ftjálsa samkeppni, var það engin afsökun fyrir því að útiloka þá möguleika sem fyrir hendi voru,“ sagði Alan Haseíhurst þingmaður íhaldsflokksins. Nokkur samkeppni var tryggð við sölu British Telecommunicat- ions: símtækjaviðskiptin voru gefin fijáls, og Mercury Communications Ltd. deildin úr Cable & Wireless var gerð að sjálfstæðu fyrirtæki til að veita nokkra samkeppni í langlínu- símtölum. En stjórnvöld lögðust gegn algjörri uppskiptingu félags- ins eins og gert var við bandaríska símafyrirtækið AT&T og margir talsmenn aukinnar samkeppni mæltu með. Hækkun orkuverðs takmörkuð Ríkisstjórnin heldur því fram að þrátt fyrir allt eigi British Gas í samkeppni við orku frá öðrum orku- gjöfum, eins og kolum og olíu. Og hún segir að það sé framleiðnihvetj- andi fyrir bæði British Gas og British Telecommunications að sett- ar hafa verið reglugerðir er takmarki kostnað neytenda vegna þjónustu þessara fyrirtækja þannig að hækkanir haldist minni en hækk- un verðbólgu hveiju sinni. Segja stjórnvöld að þetta eigi að tryggja að félögin misnoti ekki sérstöðu sína. En margir hagfræðingar benda á að þessi aukna framleiðni gæti einnig náðst þótt fyrirtæki á borð við British Gas yrðu áfram í ríkis- eign. Ef opinberir embættismenn hættu afskiptum af ríkisreknum fyrirtækjum — leyfðu þeim vel reknu að blómstra en hættu fjár- stuðningi við þau illa stöddu — þyrfti ekki að afhenda einkaaðilum fyrirtækin, segja þeir. „Þegar fyrirtækið er vel rekið, skiptir ekki máli hveijir eigendumir eru,“ segir Ralp H. Robins fram- kvæmdastjóri hjá Rolls-Royce. Fyrirtæki gætu einnig bætt afkomu sína í ríkisrekstri ef þau losnuðu undan opinberri skriffinnsku sem tefur ákvarðanatöku og drepur nið- ur starfsandann. John Egan hjá Jaguar segir að velgengni fyrirtæk- isins sé því að þakka að það endurheimti sjálfstæði sitt ekki síður en hinu að skipt var um eig- endur. Starfsandinn komst niður í lágmark, segir hann, þegar Jagu- ar-merkið fyrir framan bílasmiðj- umar var tekið niður og í staðinn kom skilti sem á stóð: „Leyland bflar — Samsetningarsmiðja nr. 2 fyrir stærri bíla.“ En ríkisstjómin segir þessar byrðar fylgja ríkisrekstri. Meðan ríkið á fyrirtækin er óhjákvæmilegt annað en að farið verði frekar að pólitískum en viðskiptalegum kröf- um. Þau fyrirtæki í ríkiseign sem ganga vel verða neydd til að standa undir rekstri illa stæðra ríkisfyrir- tækja, eða til að styrkja önnur pólitísk markmið. Hafi fyrirtækjum á borð við Jaguar tekizt að bæta reksturinn, er það vegna þess að yfirvofandi sala til einkaaðila hefur neytt þau til að auka framleiðnina. „Það er ekki hvetjandi fyrir stjóm- endur þegar sérhver aukning í framleiðni leiðir eingöngu af sér minni fjárveitingar af almannafé,“ segir William Harper framkvæmda- stjóri Thames Walter Authority. (Heimild: Wall Street Journal.) Finnskar skipasmíðastöðvar hafa til þessa verið að mestu lausar við þá rekstarörðugleika, sem hrjáð hafa skipasnriðastöðv- ar í flestum öðrum löndum Vestur-Evrópu. Engu að síður hafa nú margar finnsku stöðv- anna gripið til endurskipulagn- ingar á rekstrinum til að aðlaga sig breyttum markaðsaðstæðum. Oy Wartsila AB, ein arðsamasta skipasmíðastöð Evrópu í einka- rekstri og ein sú stærsta, hefur nýlega sameinast Valmet Corp., sem er ríkisfyrirtæki og rekur skipasmíðastöðvar og þungaiðnað. Þessar tvær skipasmiðjur renna saman í eitt nýtt fyrirtæki um næstu áramót. Wartsila eignast 70% hlut í nýja fyrirtækinu, en Valmet 30%. Wartsila rekur skipasmíðastöðv- ar í Helsinki og Turku, og skipavið- gerðir í Turku og Kotka, en Valmet á skipasmíðastöðvar í Helsinki og Kotka. Samtals starfa nú um 10.000 manns hjá báðum fyrirtækj- unum, en reiknað er með að eftir sameininguna verði starfsmönnum smám saman fækkað niður i 6.000 á næstu árum. Sven Bertlin, einn framkvæmda- stjóra Wartsila, sagði að áhrif verðlækkunar á olíu á þýðingarmik- il viðskipti skipasmíðastöðvarinnar við Sovétríkin hafi flýtt fyrir endur- rænum mörkuðum, og ný viðhorf eru ríkjandi á sovéska markaðn- um,“ sagði Bertlin. „Nú gefst okkur tækifæri til að aðlaga okkur að eig- in mörkuðum í stað þess að bíða eftir að breyttar aðstæður neyði okkur til skipulagsbreytinga." Sam- kvæmt viðskiptasamningi Finn- lands og Sovétríkjanna verður að ríkja jöfnuður í vöruskiptum land- anna á hveiju fimm ára tímabili. Þar sem um helmingur alls útflutn- ings Sovétríkjanna til Finnlands er olía og olíuvörur, neyðast Rússar til að minnka innflutninginn þegar olíuverð lækkar til að jöfnuður hald- ist. Talsmaður verslunarfélagsins, Oy Benwow AB, Timo Syijala, seg- ir að vonir Finna hafi glæðst við þau ummæli fulltrúa í viðskipta- nefnd frá Sovétríkjunum að yfirvöld í Moskvu ætluðu sér ekki að draga úr innflutningi á finnskum iðnaðar- vörum. En Syijala bætti því við að áberandi væri hvað sovésku kaup- endumir væru nú harðari í samn- ingum um verð. „Það verður ekki aftur eins og í gamla daga þegar gengið var frá málunum með vodkaglýju í augum milli þess sem skroppið var út í búð til að kaupa myndbandstæki," segir fínnskur sérfræðingur í milliríkja- viðskiptum. Hann bætir því við að sovésku samningamennirnir hafi fyrirmæli frá leiðtoga sínum, Mik- hail S. Gorbachev, um að leggja harðar að sér við að fá verðlag nið- ur á þeim vörum sem keyptar eru erlendis. Á undanfomum ámm hefur um fjórðungur heildsölu Wartsila- samsteypunnar verið til Sovétríkj- anna. Hlutdeild Sovétríkjanna í skipakaupum frá Wartsila er enn meiri. Heildsala Wartsila-samsteyp- unnar á árinu 1985 nam 5.546 milljónum fínnskra marka (um 45 milljörðum króna), og hafði minnk- að um 11,2%, úr 6.242 milljónum marka árið 1984. Sala á nýsmíð- uðum skipum er nokkuð sveiflu- kennd ár frá ári og fer eftir afhendingartima skipanna, en nam í fyrra 2.885 milljónum marka (um 23,4 milljörðum króna). Var það 24,4% lækkun frá árinu áður þegar skipasalan nam 3.816 milljónum marka. Heildarsala Valmet-samsteyp- unnar á árinu 19,85 nam 6.088 milljónum marka (um 49,3 milljörð- um króna), þar af skip fyrir 1.050 milljónir marka (um 8,5 milljarða króna). (Heimild: International Herald Tribune.) ÚR HRINGNUM Aukin gjaldeyrisöflun skiptir höfuðmáli: Meiri viðskipti við útlönd og erlenda gesti í landinu — með vörur og þjónustu. Með mark- vissu átaki í áratug hefur News From lceland haslað sér völl á sviði viðskipta við útlönd. Þúsundir manna víða um heim lesa News From lceland mánaðarlega. Náðu til nýrra viðskiptavina, auglýstu í News From lceland. Ný leið út úr gamla hringnum. FROMICEim NewsFromlœlandermánaðarlegtfréttablað HÖfðabakka 9, Reykjavík með alþjóðlega dreifingu í útgáfu lcelandReview. Auglýsingasími er 84966

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.