Morgunblaðið - 10.08.1986, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
45
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Flugbjörgunar-
sveitin í Reykjavík
sem er stærsta einstaka björgunarsveit
landsins vill ráða erindreka/framkvæmda-
stjóra. Hér er um nýtt starf að ræða er felst
aðalega í þátttöku í daglegum rekstri sveitar-
innar, að vinna að sérstökum fjáröflunarverk-
efnum og samskiptum við félagasamtök,
stofnanir og opinbera aðila.
Þeir er áhuga hafa á starfinu leggi inn nöfn
sín á augldeild Mbl. í umslagi merktu: „FBSR.
— 5847". Trúnaði er heitið.
Rafvirki
Heildverslun í Reykjavík óskar að ráða raf-
virkja til að annast viðgerðir á litlum heimilis-
tækjum. Viðkomandi þarf einnig að sinna
afgreiðslu.
Umsóknir sendist augldeild Morgunblaðsins
fyrir 15. ágúst merktar: „Raftæki — 2637".
Byko
Okkur vantar fólk til framtíðarstarfa í timbur-
sölu okkar að Skemmuvegi 2, Kópavogi, við
afgreiðslu- og lagerstörf. Einnig í verslun
okkar að Nýbýlavegi 6, Kópavogi við af-
greiðslustörf.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á ofan-
greindum stöðum.
BVKO BYGGINGAVORUVERSLUN
R O KÓPAVOGS SF.
síivii 41000
Tónlistarkennarar
Tónlistarskóli Dalvíkur óskar eftir að ráða
skólastjóra og 2 kennara við skólann frá 1.
sept. nk. Æskilegar kennslugreinar eru
píanó, flauta og gítar, en aðrar kennslugrein-
ar koma til greina. Gott húsnæði í boði og
flutningskostnaður greiddur.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk. Nánari
upplýsingar veitir Anna B. Jóhannesdóttir í
síma 96-61316 og 61382.
Kennara vantar
að Stóru-Vogaskóla Vogum Vatnsleysu-
strandarhreppi. Meðal kennslugreina: eðlis-
fræði, líffræði og tungumálakennsla (enska,
þýska). í sveitarfélaginu eru um 650 íbúar.
Þaðan er um 35 km. til Reykjavíkur. Nánari
upplýsingarveita Hreiðar Guðmundsson sími
92-6520 og María Jónsdóttir sími 92-6505.
Rafmagnstækni-
fræðingur
37 ára gamall rafmagnstæknifræðingur
(sterkstraums) með afar fjölþætta reynslu
sem deildarstjóri hjá innflutnings- og þjón-
ustufyrirtæki óskar eftir vel launuðu starfi.
Tilboð sendist augld. Mbl. fyrir 15. þ.m.
merkt: „M — 391".
Líffræðingur
— efnafræðingur
óskast í sjálfstætt rannsóknarverkefni tengt
lífefnavinnslu. Upplýsingar veita Bergþóra
Jónsdóttir s. 84166 milli kl. 9 og 12 og Kristín
Magnúsdóttir s. 685766 milli kl. 14. og 17.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf skal skilað til G. Ólafsson hf.,
Grensásvegi 8, fyrir 20. ágúst.
Skólastjóri
— kennarar
Skólastjóra og kennara vantar við Tónlistar-
skóla Þingeyrarhrepps í Vestur-ísafjarðar-
sýslu sem stofnaður verður í haust.
Uppl. hjá Sigrúnu Guðmundsdóttur í síma
94-8250, Bjarna Einarssyni í síma 94-8200/
94-8225 og hjá menntamálaráðuneyti.
Atvinna — húsnæði
Kona óskast til að sjá um eldri konu eftir kl.
15.00 á daginn og um helgar eftir nánara
samkomulagi gegn fæði, húsnæði og ein-
hverri gneiðslu. Upplýsingar um aðstæður
viðkomandi, nafn og símanúmer leggist inn
á augld. Mbl. fyrir nk. fimmtudag merkt:
„Létt vinna — 0284".
Verkfræðistofur
— Verktakar
Byggingatæknifræðingur óskar eftir vinnu í
Reykjavík eða úti á landi. 1-2 ára starfs-
reynsla. Upplýsingar veittar á kvöldin og um
helgar í síma 91-12511.
Afgreiðsla
Rótgróna sérverslun í miðbænum vantar
ábyrgan og laghentan mann til afgreiðslu-
starfa frá og með 1. september nk.
Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Tilboð sendist augldeild Mbl. merkt:
„Ábyrgur — 1050“ fyrir 16. ágúst nk.
Afgreiðslustúlka
óskast
Söluturninn Pólís, Skipholti 50c, vantar röska
stúlku strax. Ekki yngri en 20 ára. Tvískiptar
vaktir. Uppl. á staðnum sunnudag frá kl.
11.30-13.30.
Skrifstofustarf
Óskum eftir að ráða skrifstofumann sem fyrst.
Verksvið: Símavarsla, vélritun og sendiferðir.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir, er greini aldur og fyrri störf,
sendist okkur fyrir 15. ágúst nk.
Skrífstofa Rannsóknastofnunar atvinnuveganna
Nóatúni 17, 105 Reykjavík.
Rekstrartækni-
fræðingur
Rekstrartæknifræðingur óskar eftir starfi.
Áhugasvið: skipulagning framleiðslunotkun
örtölvutækni. Upplýsingar í síma 22880.
Bókari —
skrifstofumaður
óskast til starfa hjá heildverslun á Ártúns-
höfða. Fyrirtækið er að flytjast í nýtt eigið
húsnæði og aðstaða öll hin besta.
Vinnutími 9-17.
Viðkomandi mun sjá um bókhald svo og al-
menn skrifstofustörf.
Starfsmaðurinn þar að hafa reynslu af tölvu-
unnu bókhaldi ásamt almennum skrifstofu-
störfum, geta unnið sjálfstætt og skipulega.
Fyrirtækið býður góða vinnuaðstöðu, sjálf-
stætt og krefjandi starf, starfsþjálfun og laun
í samræmi við frammistöðu.
Nánari uppl. veitir Holger Torp. Umsóknir
skilist fyrir 18. ágúst nk.
FRiam Starf smannast jórnun - Ráðningaþjónusta
Sundaborg 1 - 104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Okkur vantar pössun
sem fyrst 3-4 daga í viku. Við erum 1 árs og
3 ára og búum í Hlíðunum og viljum helst
fá einhvern sem vill koma heim til okkar.
Má hafa barn með sér. Uppl. í síma 687751.
Vélamaður —
verkamenn
Vanur vélamaður óskast strax og einnig
verkamenn í gatnagerð. Uppl. í síma 50877.
Loftorka Reykjavik hf.
Verslunarstörf
Starfsfólk á aldrinum 20-40 ára óskast til
ýmissa starfa, bæði í hlutastörf og heil störf.
Verslunin Garðakaup,
Garðabæ.
Meinatæknar
Óskum eftir meinatækni eða starfsmanni
með hliðstæða menntun til starfa á rann-
sóknarstofu. Tilboð merkt: „R — 5846“
sendist augldeild Mbl. fyrir 15. ágúst nk.
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa strax, hálfan eða allan
daginn eftir samkomulagi. Tilboð leggist inn
á augldeild Mbl. merkt: „Strax — 5845".
Bókbindari
Prentsmiðja á Reykjavíkursvæðinu óskar eft-
ir röskum bókbindara. Þarf að vera vanur
bókbandi og alhliða bókbandsvinnu. Um
framtíðarstarf er að ræða. Með umsóknir
verður farið sem túnaðarmál. Tilboð sendist
augld. Mbl. merkt: „Bókbindari — 5686".
Rekstrartækni-
fræðingur
Rekstrartæknifræðingur óskar eftir starfi.
Áhugasvið: skipulagning, framleiðslunotkun
örtölvutækni. Upplýsingar í síma 22880.