Morgunblaðið - 29.08.1986, Blaðsíða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. ÁGÚST 1986
HVAD
ERAÐ
GERAST
UM
Sjóminjasafnið:
Sjóminjasafn íslands verður opið
í sumar þriðjudaga til sunnudaga frá
kl. 14 tiM 8. Safniö er til húsa á
Vesturgötu 8 í Hafnarfirði.
Árbæjarsafn:
Helga leikur á lág-
fiðlu
Árbæjarsafn er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13.30 til kl.
18.
Helga Þórarinsdóttirleikurá lág-
fiölu í Dillonshúsi á sunnudaginn frá
kl. 15 til 17.
Ásgrímssafn:
Reykjavíkurmyndir
Ásgríms
ÍÁsgrímssafni, Bergstaðastræti
74, stendur nú yfir sýning á verkum
Ásgríms Jónssonar. Á neðri hæð
hússins eru einkum sýndar vatns-
litamyndir, en stór olíumálverk eru
til sýnis í gömlu vinnustofu málar-
ans. Safnið er opið alla daga nema
laugardaga milli kl. 13.30 og 16.
Sýningin stendur út ágúst.
Sædýrasafnið:
Dýrin mín
stórogsmá
Sædýrasafnið verður opið um
helgina eins og aðra daga frá kl.
10 til 19. Meöalþess semertil
sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn,
apar, kindurog fjöldi annarra dýra,
stórra og smárra.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safn og garður
Listasafn Einars Jónssonarer
opið alla daga nema mánudaga kl.
13.30 til 16. Höggmyndagarðurinn
er opinn daglega frá kl. 11 til 17.
MYNDLIST
Norræna húsið:
Utf Trotzig sýnir
Á sunnudaginn kl. 15:00, opnar
sænski myndlistarmaðurinn Ulf
Trotzig sýningu á verkum sýnum í
Norræna húsinu. Á sýningunni eru
olíumálverk og grafik. Dr.Sven
Sandström listfræðingur mun tala
um Ulf og list hans í fyrirlestrarsal
Norræna hússins kl. 16:00 og sýna
litskyggnur til skýringar.
Seltjarnarnes:
Sýning ítilefni nor-
ræns vinabæjamóts
Nú um helgina lýkurí Listaveri,
Austurströnd 6, Seltjarnarnesi
myndlistarsýningu í tilefni af norr-
ænu vinabæjamóti.
Það er Myndlistarklúbbur
Seltjarnarness sem stendurfyrir
sýningunni og eru á henni verk eft-
ir 10 Seltirninga.
Sýningin er opin frá kl. 14 til 22.
Aðgangur er ókeypis.
Henni lýkur nú á sunnudaginn,
31.ágúst.
Bólvirkið:
Saga og ættfræði
Á annarri hæð i húsi verslunar-
innarGeysis, Vesturgötu 1, stendur
nú yfir sýning á vegum Bólvirkisins
á gömlum Ijósmyndum úr Grófinni.
Þá er sýnt líkan sem 10 ára nemend-
ur í Melaskólanum gerðu i vor i
tilefni 40 ára afmælis skólans og
200 ára afmælis Reykjavíkur.
Einnig er þar kynning á bókum
um sögu og ættfræði Reykjavíkur
sem væntanlegar eru á næstunni.
Sýningin eropin frá kl. 14 til 18
virka daga.
Haukur Morthens og félag-ar skemmta gestum í Skiðaskálanum
í Hveradölum um helgar i september.
leika á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldum út september-
mánuð.
Austurland:
Stuðmenn ítón-
leikaferð
Nú er farið að síga á seinni hluta
sumarferðalags Stuðmanna.
í kvöld ætla þeirað leika í Nes-
kaupsstað, á morgun í Höfn á
Hornafirði og á sunnudaginn, 31.
ágúst, kl. 15.30 halda þeirtónleika
til styrktar Sólheirnum í Grímsnesi.
Þeir tónleikar verða að Sólheimum.
Vestmannaeyjar:
Eyjakvöld
Á haustmánuðum ársins í fyrra
byrjaði Hótel Gestgjafinn með hin
svokölluðu Eyjakvöld, skemmtanir
þar sem snæddur var matur frá
Vestmannaeyjum og sungin eyja-
lög.
í ár verður þessu haldið áfram.
Um skemmtiatriði sjá Runólfur Dag-
bjartsson leikari, Helgi Hermanns-
son söngvari, Jónas Þ. Dagbjarts-
son fiðluleikari, Ásta Ólafsdóttir,
Ásdís Þórarinsdóttir og Jónas Þórir
hljómborðsleikari.
Gestir eru beðnir að mæta tíman-
lega því að borðhald hefst kl. 20.30
og skemmtiatriðin kl. 21.30.
FÉLAGSLÍF
Félagsmiðstöðin
Fellahelli:
Trimmaðstaða
á laugardögum
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp
í starfi félagsmiðstöðvarinnar Fella-
hellis að nú í sumar verður íbúum
Breiðholtshverfis boðið upp á
trimmaðstöðu á laugardögum.
Verður húsið opið frá kl. 10 til kl.
16. Meöal annars verður boöiö upp
á aðstöðu til þrekæfinga, borð-
tennis, góða baðaðstöðu fyrir
hlaupara og síðan verður kaffitería
opin fyrir gesti.
Listasafn Háskólans:
Listasafn Háskóla íslands í Odda
(gengiö beint upp af Norræna hús-
inu) er opið daglega þangað til
kennsla hefst í haust frá kl. 13.30
til 17.
Aögangur er ókeypis.
Nýlistasafnið:
Samsýning
Tolla og Bong-Kyou Im
í gær, 28. ágúst, opnuðu þeir Þorlákur Kristinsson og Kóreumaðurinn
Bong-Kyou Im, samsýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstíg í Reykjavík.
Þeir félagar sýndu saman í Berlín í fyrra og munu aftur eiga stefnumót
í Seoul að ári.
Bong-Kyou Im fæddist í Suður-Kóreu árið 1947 og stundaði nám í högg-
myndalist í Seoul. Hann fluttist til Berlínar 1979 og hefur dvalist þar við
nám og starf síðan.
Þorlákur Kristinsson fæddist árið 1953 í Reykjavík og hefur stundað nám
við Myndlista- og handíðaskóla íslands og við Hochschule der Kunster í
Berlín.
Sýningin í Nýlistasafninu er opin frá kl. 16-22 virka daga en 14-22 um
helgar. Henni Iýkur7. september.
Öld goðsagna eftir Bong-Kyou Im t.v. og Til móts viö sjóndeildarhringinn eftir Tolla t.h.