Morgunblaðið - 05.09.1986, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
B 7
að ráða sem gefa veikan rafstraum. Sjúkl-
ingarnir geta fengið þau lánuð og haldið
meðferöinni áfram sjálfir eða með hjálp
aðstandenda sinna heima hjá sér.“
Auðveldast að ráða niður-
lögum verkja sem eiga sér
uppruna í taugakerfinu
Er hægt að ráða niðurlögum allra verkja
með þessari aðferð?
„Nei, reyndar ekki. Meðferðin er áhrifarík-
ust þegar átt er við verki sem eiga uppruna
sinn í taugakerfinu. Kvalir sem fólk líður
vegna meiðsla eða eftir aðgerð má í mörg-
um tilfellum vinna bug á. Séu meiðslin mikil
og verkirnir sárir og útbreiddir er tæpast
nægilegt að beita meðferðinni.
Langvinna verki sem stafa til dæmis af
vöðvabólgu eða slæmum stöðuvenjum fólks
má lækna með þessum hætti. Algengasti
verkurinn sem mínir sjúklingar þjást af er
verkur í neðri hluta baksins, sem oft stafar
af vöðvabólgu. Verki sem stafa af skemmd-
um á innyflum eða sálrænum orsökum
ræður meðferðin ekki við.
Sársauki er mjög dularfullt og illskiljanlegt
fyrirbæri og enn vantar mikið á að við gerum
okkur fulla grein fyrir eðli hans, þótt margt
hafi skýrst á síöustu árum.
Læknar geta yfirleitt byggt ályktanir sínar
á skýrum niöurstöðum rannsókna og mæl-
inga, sem gerðar hafa veriö á líkama sjúkl-
ingsins og líkamsvessum. Þessu er ólikt
farið um sársaukann. Læknirinn hefur engin
tök á að mæla hann og verður að reyna að
gera sér grein fyrir honum eftir frásögnum
sjúklingsins sjálfs.
Hann getur auðveldað sór að átta sig á
hvernig verkjum sjúklingsins er háttað meö
því til dæmis að gera kort af líkama hans
Til þess að eyða sársaukanum aö mestu
eða öllu leyti er gott að gefa sjúklingunum
veikan straum yfir dreift svæði í nokkurn
tima eftir að hann hefur verið
staðdeyfður. Hér er straumnum beint að
taugum sem liggja út úr mænunni og þær
deyfðar þannig áður en þærtaka að
dreifast verulega.
og merkja inná þá staði þar sem sjúklingur-
inn finnur til. Það hefur verið útbúið staðlað
spurningablað sem ég hef notað. Þá þarf
sjúklingurinn ekki að gefa heildarlýsingu á
verkjunum en merkir einfaldlega við þau
atriði sem honum finnst eiga við sig.
Þannig getur læknirinn komist að því
hverjar upphafsorsakirnar hafi verið og
gengið úr skugga um hvort þær séu horfnar
eða enn til staðar. Útfrá því má ráðleggja
áframhaldandi meðferð.
Að sjálfsögðu á sársaukinn sér ákveöna
orsök til að byrja með og hana veröur að
lækna til að hægt sé að berjast gegn honum
af einhverju viti. Með því að kortleggja sárs-
aukasvæðin getum við oft getið okkur til
um hver hún sé.
Þetta á einkum við um það sem nefnt
hefur veriö yfirfærður verkur. Vegna þess
hvernig taugarnar dreifast um líkamann
gerist það oft að skemmdir eða meiðsl á
einum stað valda sársauka á öðrum. Þessir
verkir haga sér nákvæmlega eins og allur
annar sársauki, og valda sömu skemmd-
um".
Einföld aðferð og hættu-
laus með öllu
„Sem fyrr segir er taliö að erting punkt-
anna örvi myndun ýmissa deyfandi efna í
líkamanum. Það eru ákveðnar tegundir af
taugum sem ertingin örvar, svo þær senda
boð áfram um framleiðslu þessara efna. Það
er einnig lega þessara tauga sem stjórnar
þvi hvernig skemmdir eða meiðsl á einum
stað koma fram sem verkir á öörum.
Það merkilega við þessa meöferð er
4
VERKUR
4
VARNAR- VÖÐVASAM- k STARFRÆNAR
SVÖRUN r DRÁTTUR V TRUFLANIR
kannski það hvað hún er hlægilega einföld.
Enda þekkjast svipaðar aðferðir við lækning-
ar frá fornu fari. Það eru til heimildir um
notkun rafmagns til að deyfa sársauka frá
Grikklandi forna. Torpedo-fiskurinn gefur frá
sér straum ef trjónan á honum er snert og
þetta notfærðu Grikkirnir sér til að lækna
höfuðverki og liðbólgu.
í öllum samfélögum manna hafa veriö
þekktar og viðurkenndar einhverjar lækn-
ingaaðferðir. Hversu fráleitar sem okkur
finnst margar þeirra vera nú, hefðu þær
tæplega viðhaldist teldi fólk sig ekki hafa
séð einhvern árangur af þeim. Menn virðast
til dæmis hafa þekkt þá reglu gegnum tíðina
að sársauki yrði helst læknaður með því að
beita sársauka. Og nú er búið að finna full-
gildar skýringar á því hvernig það má vera.
Þannig eru til aðferðir eins og sú sem
nefnd var „cupping" og heimildir eru meðal
annars um að hafi verið beitt hér á íslandi.
Bolla eða lítilli skál var hvolft yfir húö sjúkl-
ingsins, þar sem hann fann til. Bollinn var
þvínæst hitaður sem olli því að þrýstingur
jókst. Þá bólgnaði húðin undir bollanum
upp, sem er nokkuð sárt. Þetta gerði oft
að verkum að sársaukinn sem verið hafði
minnkaði nokkuð. Þetta er skýranlegt núna
þegar við gerum okkur grein fyrir hvaða
áhrif erting af þessu tagi getur haft.
Það er Ijóst að gamlar aðferðir og kenn-
ingar geta haft margt til síns máls. Þær eru
byggðar á reynslu og hún er ólygin. Sumar
eru náttúrlega vita gagnslausar, til dæmis
blóðtökur, enda voru þær byggðar á mjög
vafasömum hugmyndum um mannslík-
amann. En þaö er þess virði að kanna gömlu
aðferðirnar einsog raunin hefur orðið í sam-
bandi við að létta af fólki sársauka".
Hugarfarsbreyting
meðal lækna
„Það má segja aö á síðustu árum hafi
orðið nokkur hugarfarsbreyting meðal
lækna. í staö þess að treysta blint á hávís-
indalegar aðferðir og niðurstöður og hafna
þvi sem ekki var hægt að útskýra í smáatrið-
um eru þeir nú að verða opnari fyrir mörgu
því sem skottulæknar einir hefðu litið við
fyrir örfáum árum.
Þaö færist nú mjög í vöxt að þeir prófi
ýmsar aðferðir svo framarlega sem þeir eru
vissir um að valda ekki skaða með þeim.
Og rannsóknir á allskyns alþýðulækningum,
hjátrú og hindurvitnum eru mikið stundaðar
víða um heim um þessar mundir.
Þetta lýsir kannski best þeirri kreppu sem
nútíma læknavísindi eru komin i. Þau geta
ekki lengur staðið við það fyrirheit að einn
daginn megi með handarviki lækna hvaða
sjúkdóm sem er. Öllum er nú Ijóst að sá
dagur rennur aldrei upp.
Fólk treystir ekki læknunum eftir að því
finnst þeir hafa brugðist sér. Ófaglært fólk,
misjafnlega fært, sem gefur mönnum nýja
von um að ná bata eftir að það hefur gefist
upp á læknunum, blómstrar viða um lönd.
En fólk verður líka að gera sér grein fyrir
því að lækning kvilla þess og hvaða bót það
fær meina sinna er í mörgum tilfellum ekki
síður undir því sjálfu komið en lækninum.
Menn mega hvorki hafa oftrú á læknum né
gefast upp þótt þeir hafi ekki alltaf á valdi
sínu einu réttu lækningaaðferðina.
Til þess að hægt sé að vinna bug á kvöl-
um sjúklings með þeirri meðferö sem hér
hefur verið lýst verður hann að vera sér
meðvitaður um sjúkleika sinn og ákveðinn
í að læknast. Ef hann fylgir aðgerðum lækn-
isins ekki eftir sjálfur verður lækningin ekki
varanleg.
Það veröur að breyta þeim hugsunar-
hætti fólks að likamsástand þess sé undir
einhverjum öðrum komið en því sjálfu. Mjög
margir þeirra kvilla sem menn þjást af nú
á tímum stafa af slæmum lífsháttum. Lækn-
ir getur auðvitað hjálpað manni við aö losna
við þessa kvilla, en oft verður hann að
breyta lifsháttum sínum varanlega til þess
að lækningin sé fuilkomin. Maður ræður því
í rauninni sjálfur hvort hann er of feitur,
hvort hann reykir eða drekkur og svo má
lengi telja. Þetta gildir og um margar tilraun-
ir manna til að losna við mein sín, kvilla og
sjúkdóma, og ekki síst þann líkamlega skaða
sem menn hafa beðið af sársauka. Þótt
læknar séu nauðsynlegir verður að hafa það
í huga að þeir eru hjálparmenn fólks, ekki
töframenn.
Svona Irturvrta-
hríngur sárs-
aukans út. Sú
meðferð sem
hér er lýst rýfur
hringinn með
því að eyða
sársaukanum.
Það er þó ekki
eina leiðin.
Hrínginn má
rjúfa á fleiri
stöðum, til
dæmis með því
að reyna að
koma starfsemi
vöðvans og
efnaskiptum í
eðlilegt horf og
flæma þannig
burt sársauk-
ann. Ef sjúkling-
urinn er ekki
langt leiddur
má einnig rjúfa
hann með því
að ráðast gegn
vöðvasam-
drættinum með
nuddi til dæmis.
Texti/Jón
Ólafsson
Myndir/Emilía B.
Björnsdóttir
Aukabúnaður:
vökvastýrl — 5 gíra — rafmagn í rúðum — velti-
stýrl — lituð gler — sportfelgur — toppgrind —
allæsingar — útvarp/segulband — Delux innrétting-
ar — dráttarkrókur.
Ný innfluttur frá Ameríku.
árg. 1981 með öllu er til sýnis
og sölu.
Ath.: getum útvegað vel með
farna bíla á góðu verði frá Þýska-
landi.
CHEROKEE JEEP
Intercooler Turbo Diesel 1985
Ekinn 33 þús. km
ÞESSI GLÆSILEGI
AUDI100 GT5TS
AÆTLANAGERÐAFORRITIÐ
PIANNING SYSTEM
....' ........'' .." ....:........v ......:"
IFPS er öflugt áætlanageröaforrit sem lengi hefur
veriö ( notkun á stórum tölvum s. s. Vax/780. Nú hefur
veriö gerö útgáfa sem nota má á IBM PC.
IFPS er notað viö alla venjulega áætlanagerö og
tölulega únrinnslu upplýsinga. Þó er grundvallar-
munur á IFPS og t. a. m. Lotus 1-2-3. Uppsetning lik-
ana er gerö á hefðbundinn hátt meö uppsetningu Ifk-
inga eöa jafna, og kerfið nýtur sin best þegar unniö er
úr miklu magni upplýsinga svo sem gagnagrunnum
fyrirtækja.
Efni:
• Kyrwing á IFPS. • Skýrslugerð.
• Uppbygging • Samkeyrsla upplýsinga.
reiknillkana. • Tenging við staerri tölvur.
• Fjárhagslegar
reikniaðgerðir.
• Hiálparaögerðir.
• Birting myndrænna
upplýsinga.
Leiðbeinandi: Bjarni Júlíusson, deildarstjóri Fjárlaga-
og hagsýslustofnunar.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað framkvæmda-
stjórum stærri og meðalstórra fyrirtækja og starfs-
mönnum áætlanadeilda stærri fyrirtækja og stofn-
ana.
Timi: 15.—18. september, kl. 13.30—17.30.
Stjórnunarfélag
islands
Ánanaustum 15 ■ 091-621063