Morgunblaðið - 05.09.1986, Síða 15
MORGUNBLÁÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1986
B 15
Nú um helgina lýkur samsýnlngu
Tolla og Bong-Kyou Im í Nýlista-
safninu viA Vatnsstíg.
Nýlistasafnið:
Samsýning Tolla og
Bong-Kyou Im
Nú á sunnudaginn lýkur samsýn-
ingu Þorláks Kristinssonar og
Bong-Kyou Im í Nýlistasafninu við
Vatnsstíg. Þeirfélagarsýndu saman
í Berlín i fyrra og munu aftur eiga
stefnumót í Seoul að ári. Sýningin
eropinfrákl. 16.00-22.00 virka
daga en kl. 14.00-22.00 um helg-
ina.
Norræna húsið:
UlfTrotzig sýnir
Sænski myndlistarmaðurinn Ulf
Trotzig sýnir nú málverk og grafík-
verk í sýningarsölum og anddyri
Norræna hússins. Sýningineropin
daglega kl. 14.00-19.00 ísýningar-
sölum og 9.00-19.00 í anddyri,
nema sunnudaga frá 12.00-19.00.
a Sýningunni lýkur 21 .september.
Edvard Hoem les úr
verkum sínum
Sunnudaginn 7. september kl.
17.00 les norski rithöfundurinn,
Ijóðskáldið og leikritahöfundurinn
Djass á Hótel Borg
Laugardaginn 6. septemberverða haldnirnokkuðsérstæðir
djasstónleikar á Hótel Börg og hefjast þeir kl. 16.00. Þar leika
saman þrír þekktustu djassgítarleikarar landsins, þeir Jón Páll
Bjarnason, Friðrik Karlsson og Björn Thoroddsen.
Þeim til aðstoðar verða Pétur Grétarsson trommuleikari og
Tómas R. Einarsson á kontrabassa.
Þeirfélagar munu spila bæði frumsamin lög sem og þekkt
erlend djasslög.
Þetta er síðasta tækifærið til að heyra í Jóni Páli Bjarnasym
áður en hann heldur til Los Angeles þar sem hann er búsettur.
GaileríGangskör:
Edvard Hoem úr nýjustu bók sinni,
„Heimlandet Barndom", sem byggir
áæskuminningum höfundar. Einnig
les Hoem upp nokkur ný Ijóð.
Hoem hefur starfað við Det
Norske Teatret í Osló frá 1980, og
er nú formaður norsku rithöfunda-
miðstöðvarinnar.
Bólvirkið:
Saga og ættfræði
Á annarri hæð í húsi verslunar-
innarGeysis, Vesturgötu 1, stendur
nú yfirsýning á vegum Bólvirkisins
á gömlum Ijósmyndum úr Grófinni.
Þá er sýnt líkan sem 10 ára nemend-
ur í Melaskólanum gerðu í vor í
tilefni 40 ára afmælis skólans og
200 ára afmælis Reykjavíkur.
Einnig er þar kynning á bókum
um sögu og ættfræði Reykjavíkur
sem væntanlegar eru á næstunni.
Sýningineropinfrákl. 14.00.til
18.00 virka daga.
Qlafsvík:
Kjartan Guðjónsson
sýnir
Nú á sunnudaginn, 7. septem-
ber, lýkur sýningu á verkum Kjartans
Guðjónssonar að Kaldalæk í Ól-
afsvík.
Kjartan var lengi í stjórn Norræna
listbandalagsins og hefur sýnt á
vegum þess í öllum höfuðborgum
Norðurlanda og víöar.
Myndirnar sem Kjartan sýnir að
Kaldalæk eru grafík og vatnslita-
myndir.
Sýningin er opin frá kl. 15.00 til
23.00, fimmtudaga til sunnudaga.
ísafjörður:
Daði Guðbjörnsson
sýnir
Um síöustu helgi opnaði Daði
Guðbjörnsson sýningu i Slunkariki
á Isafirði.
Á sýningunni eru bæði málverk
og grafíkmyndir, allar unnar á
síöustu tveimurárum.
Daði sýndi áðurá ísafiröi árið
1983 og hefur auk þess tekið þátt
í ýmsum samsýningum og haldið
einkasýningar í Reykjavík og víðar.
Akureyri:
Þorvaldur Þor-
steinsson sýnir
í afgreiðslusal verkalýðsfélagsins
Einingar á Skipagötu 14 á Akureyri
stendur nú yfir kynning á myndverk-
um eftir Þorvald Þorsteinsson
myndlistarmann. Á sýningunni eru
27 olíumálverk.
Þetta erfjórða sýningin í röð list-
kynninga sem fram fara á þessum
stað og mun hún standa fram í
miðjan september.
Þorvaldurer Akureyringurog hóf
listnám á námskeiðum í Myndlistar-
skólanum á Akureyri á árunum
1977 til 1981. Hann hefur stundað
nám í Myndlista- og handíðaskóla
íslands frá árinu 1983 og mun út-
skrifast þaöan næsta vor.
Hann hefur haldið tvær einkasýn-
ingaráðurá Akureyri og tekið þátt
-í fjölda samsýninga.
Eyjafjörður:
Vápni sýnir íVín
Um þessar mundir sýnir Helgi
Jósefs Vápni 36 olíu og vatnslita-
myndir í Vin í Eyjafirði. Einnig sýnir
hann snertilist sem sjóndaprir og
blindir geta notið jafnt og sjáandi.
Sýningin er opin frá kl. 9.00-23.30.
Henni lýkurá sunnudag.
Mokkakaffi:
Sólveig sýnir
Um síðustu helgi var opnuð sýn-
ing á vatnslitamyndum eftir Sólveigu
Eggerz Pétursdóttur á Mokkakaffi
við Skólavörðustíg.
Hér er um að ræða myndir af
Reykjavík og eru þær málaðar í til-
efni af 200 ára afmæli borgarinnar.
Reykjavikurmyndir Sólveigar hafa
í sumar verið til sýnis í veitingahús-
inu Gullna hananum á Laugavegi
en þær hafa ekki verið til sölu fyrr
ennú.
Sumarsýning
Um þessar mundir stendur yfir
sumarsýning Gangskörunga við
Amtmannsstíg 1. Galleríið er opið
allavirka dagafrákl. 12.00-18.00
og um helgarfrá kl. 14.00-18.00.
Ingólfsbrunnur:
Alda Sveins-
dóttir sýnir
í Ingólfsbrunni, Aðalstræti 9,
stendur nú yfir sýning á vatnslita-
og akrylmyndum eftir Öldu Sveins-
dóttur.
Þetta er önnur einkasýning Öldu
en hún hefur einnig tékið þátt í
fjölda samsýninga.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 9 til 18 og lýkur 12. september.
Gallerí íslensk list:
Sumarsýning list-
málarafélagsins
Um þessar mundir stendur yfir í
Gallerí íslensk list, Vesturgötu 17,
málverkasýning þar sem 15 félagar
Listmálarafélagsins sýna 30 mál-
verk. Eftirtaldir málarar eiga verk á
sýningunni: Björn Birnir, Bragi Ás-
geirsson, EinarG. Baldvinsson,
Einar Hákonarson, Einar Þorláks-
son, Guðmunda Andrésdóttir,
GunnlaugurSt. Gíslason, Hafsteinn
Austmann, Hrólfur Sigurðsson, Jó-
hannes Geir, Jóhannes Jóhannes-
son, SigurðurSigurðsson, Steinþór
Sigurðsson, Valtýr Pétursson og
Pétur Már. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 9 til 17, en lokuð um
helgar.
LEIKLIST
Kjarvalsstaðir
Flensað í Malakoff
Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir
sýning á gömlum Ijósmyndum, og
fleiru sem tengist sögu Reykjavíkur,
í tilefni af 200 ára afmæli borgarinn-
ar.
Leikþátturinn Flensaö í Malakoff,
sem Brynja Benediktsdóttirog Erl-
ingur Gíslason hafa tekið saman
fyrir þessa sýningu verður sýndur i
tjaldinu á Kjarvalsstöðum föstu-
dagskvöld kl. 9.00, laugardag og
sunnudag kl. 4.00 og fimmtudag í
næstuviku kl. 9.00.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir.
Kvikmyndaklúbbur
Hispania:
„El Crack“ í
Regnboganum
Laugardaginn 6. september, kl.
15.15, sýnir Kvikmyndaklúbbur Hi-
spania kvikmyndina „El Crack" í
F-sal Regnbogans.
„El Crack" ereftirJosé Luis
Garci, sem hlaut Óskarsverðlaun
fyrirmyndina „Volvera Empezar".
„El Crack" hlaut verðlaun fyrir hand-
rit og bestan leik 1981 og sama
áreinnig Luis Bunuel-verðlaunin og
sérstaka viðurkenningu spænska
menningarmálaráðuneytisins.
Myndin er með spænsku tali.
Aðgangur er ókeypis.
FERÐALÖG
Hana nú:
Laugardagsganga
Vikuleg laugardagsganga
frístundahópsins Hana nú i Kópa-
vogi verðurá morgun, laugardaginn
6. september. Lagt verður af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Nú hall-
arsumri. Búið ykkur eftir veðri. Allir
aldurshóparvelkomnir. Nýlagað
molakaffi.
Útivist:
Haustferð og
kræklingatínsla
Tvær helgarferðir eru á dagskrá
Útivistarum helgina. Kl. 20.00 á
föstudagskvöldiö verður fariö í Þórs-
mörk og Goðaland. Dvalið er í
skálum Útivistar í Básum og farið í
gönguferðir. Fararstjóri er Bjarki
Harðarson.
Á sama tíma hefst „Haustferö til
fjalla". Gist verður í húsi í Jökul-
heimum og ferðast um nágrennið
svo sem að Hraunvötnum, Veiði-
vötnum og Heljargjá.
Sunnudaginn 7. september verð-
ur lagt af stað kl. 8.00 í Þórsmörk
og stansaö f Mörkinni í 3-4 klst.
Léttar skoðunar- og gönguferöir.
Sama dag kl. 9.00 verðurfariö í
ferð um Línuveginn svokallaða.
Þetta er öku- og skoðunarferö um
Uxahryggi, Hlööuvelli og Gullfoss.
Fararstjóri er Gunnar Hauksson.
Kl. 13.00 á sunnudaginn verður
svo farið í fjöruferð og kræklinga-
tínslu i Hvalfirði. Það er stórstraums-
fjara og því bestu aöstæður til
kræklingaferðar.
í Hlaðvarpanum verður nú um helgina opnuð sýnlng á verkum
kínverska málarans Wu Shan Zhuan. Einnig verður sýnd mynd um
listamanninn gerð af Kára Schram.
Hlaðvarpinn:
Wu Shan Zhuan
sýnir
I dag, föstudaginn 5. september,
opnar ungur kínverskur málari sýn-
ingu á verkum sinum í Hlaðvarpan-
um. Hann sýnir þar 25 myndir sem
hann hefur teiknað og málað á
hrísgrjónapappír. Viðfangsefni sín
sækir hann í hafiö og málar i Ijóð-
rænum abstraktstíl, óikt raunsæis-
myndum eldri landa sinna.
Wu Shan er 26 ára gamall og
hefur stundað nám við listaháskól-
ann íZehjang. Þetta erfyrsta
einkasýning hans utan Kína.
Meðan á sýningunni stendur
verðursýnt myndband um lista-
manninn með ívafi úr kínversku
mannlífi, sem Kári Schram gerði í
Kína nú í vor.
Sýningin stendurtil 15.septem-
ber.