Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 2

Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14: SEPTEMBER 1986 SIGURÐUR NORDAL ALDARMINNING Aldar minning Sjá, tíminn það er fugl sem Oýgur hratt! Þessi orð koma í hugann á þeim tímamótum þegar Sigurðar Nordals er minnst á aldarafmæli hans. Að vásu eru aðeins tólf ár frá láti hans, og honum auðnaðist að starfa að hugðarefnum sínum alla sína lífstíð, en samt fækkar þeim óðum er þekktu hann eða kynntust honum á miðjum aldri, þegar hann var i broddi lífsins, fullþroska í fræðum sinum og var að ljúka við sín stærstu og merkustu verk. EFTIR ANDRÉS BJÖRNSSON Sigurður Nordal fæddist á Eyjólfs- stöðum í Vatnsdal af húnvetnsku og skagfirsku bergi brotinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Guðmundsson Nordal síðar íshússtjóri í Reykjavík og Björg Jósefína Sigurðardóttir. Sig- urður Nordal var alinn upp af Eyjólfs- staðahjónum, Jónasi föðurbróður sínum og konu hans Steinunni Steins- dóttur og naut frá bemsku mikils ástríkis fósturforeldra sinna. Var hann settur til náms þegar aldur leyfði og ias undir skóla hjá sóknar- prestinum, séra Hjörleifi Einarssyni á Undirfelli, sem hann minntist síðar þakklátlega fyrir frábæra uppfræðslu og snjallar kennsluaðferðir. Tvítugur að aldri lauk Sigurður Nordal stúdentsprófí frá Lærða skól- anum og sigldi til náms í Kaup- mannahöfn árið 1906. Dvaldist hann erlendis í tólf ár samfleytt, og var svo heppinn að þurfa ekki að búa við verulegar fjárhagsáhyggjur á útivist- arámm sínum, sem annars varð hlutskipti alit of margra íslenskra námsmanna fyrr og síðar. Lagði hann stund á norræn fræði við Hafnar- háskóla og lauk meistaraprófí í þeirri grein árið 1912. Síðan stundaði hann framhaldsrannsóknir við Amastofn- un í Kaupmannahöfn og varði þar doktorsrit sitt um sögu Ólafs helga 1914. Finnur Jónsson var aðalkenn- ari hans, og meginviðfangsefni Sigurðar Nordals í fræðunum vom verk Snorra Sturlusonar. Efni rit- gerða hans til meistaraprófs og doktorsprófs íjölluðu báðar um ákveðna þætti í verkum þessa höfuð- skömngs í sagnaritun á þjóðveldisöld. — Þeirri spurningu má varpa fram hvort það varð ekki í raun réttri -Snorri sjálfur fremur en háskóla- kennaramir sem gerðist lærimeistari Sigurðar Nordals. Svo oft sýnist hann hafa orðið leiðarljós hans yfir hinn mikla hafsjó fræðanna. Að prófum loknum og ágætum árangri við Hafnarháskóla virtist braut Sigurðar liggja bein og greið til háskólaembættis, en hann lagði lykkju á leið sína sem átti eftir að marka djúp spor í lífí hans og þróun- arferli síðar á ævi. Árin 1915—18 hlaut hann styrk úr sjóði Hannesar Ámasonar til heim- spekináms. Dvaldist hann fyrst í Berlín, en þar sat þá einn fremsti kunnáttu- og fræðimaður í íslenskum fombókmenntum, Andreas Heusler. Brátt lá leið Sigurðar til Oxford, þar sem hann dvaldist næstu tvö árin. Vistar sinnar í Oxford minntist Sig- urður jafnan með bros á vör og blik í augum. Það vom bestu ár ævi hans. Á þeim fomfræga stað naut hann frelsis sem aldrei fyrr. Hann kom þangað lærður maður og þroskaður, og allar aðstæður vom svo hagfelldar sem hugsast gat. Hann las og ritaði og batt vináttubönd við ágætismenn af þeirri þjóð sem hann mat alltaf mikils. Hann lagði þar gmndvöllinn að sumum merkustu ritum sínum síðar á ævinni og viðaði um leið að sérefninu í heimspekifyrirlestra sína. Haustið 1918 var Sigurður Nordal kallaður heim til að setjast í kennslu- stól Bjöms M. Ólsens við Háskóla Islands. Var það gert að beiðni Bjöms. Háskólinn hafði þá ekki enn slitið bamsskónum og allra síst nor- Það sem Sigurður Nordal birti fyrst á bók eftir að heim kom var reyndar ekki vísindalegs efnis, heldur skáldskapur í lausu máli. Á Hafnarár- unum hafði hann birt í tímaritum nokkrar smásögur og ljóð sem at- hygli vöktu, og nú sendi hann frá sér Fomar ástir 1919, og tók sér þar með sæti á skáldabekk. Bók þessi var eins konar kveðja til hinna æsku- glöðu stúdentsára, og kannski þótti Sigurði ástæða að taka til á skrif- borði sínu, áður en hann sneri sér að alvarlegri og meira krefjandi við- fangsefnum. Bókinni var vel tekið, en mesta nýmæli hennar reyndist vera Hel, ljóðaflokkur í lausu máli, sem ortur hafði verið á löngum tíma og ekki lokið fyrr en í Oxford skömmu fyrir heimkomu skáldsins. í þessu rænudeildin, aðeins sjö vetra gömul. Rannsóknir á íslenskum fombók- menntum (um aðrar var tæpast að tala) vom fyrst og fremst unnar í Kaupmannahöfn, að vísu í höndum íslensks háskólakennara, en einnig annars staðar á Norðurlöndum og Þýskalandi þar sem fræðimenn höfðu gert sér títt um fornritin, ekki síst þau sem kölluð vom samgermönsk, svo sem hetjukvæði Eddu. Við háskólann kom Sigurður Nor- dal að lítt numdu landi í íslenskum fræðum, og vafalaust var honum mikið í hug. Margt átti hann í fómm sínum eftir lærdómsiðkanir og fræðslu erlendis, en hugðarefni hans urðu alltaf mörg og að ýmsu ólík. Hann var orðinn heimsborgari og hafði „fjöld of farið“ á mælikvarða þess tíma. Hann hafði kynnst því menningarsvæði veraldarinnar sem hæst bar á þeim tíma. Sigurður Nordal bar ríkan metnað í brjósti fyrir hönd þjóðar sinnar. Honum var mikið í mun að hún tæki sér sjálf í hendur andlegt forræði sitt og þyrfti ekki einlægt að hlusta eftir erlendum skoðunum um íslensk efni. í þá stefnu hnigu störf hans á langri ævi. Haustið 1918 hóf Sigurður Nordal menningar- og kennslustörf sín hér í Reyjavík. Þá flutti hann almenningi fyrirlestra þá um heimspekileg efni sem kenndir vom við Hannes Árna- son. Nefndi hann þá Einlyndi og marglyndi. Við háskólann kenndi hann Snorra-Eddu þann vetur og hélt þar með áfram rannsóknum sínum á ritum þessa marglynda höfð- ingja þar sem frá var horfíð í Kaupmannahöfn. Þrjár kynslóðir. Jóhannes Nordal ishússtjóri faðir Sigurðar, Jóhannes nýfæddur, sonur Sigurðar og Sigurður Nordal. Sigurður Nordal lausamálskvæði var beitt skáldskap- araðferð sem var lítt kunn hérlendis, en niðurlagsorð skáldsins um hana í eftirmála hafa orðið mikil spásögn, enda oft til þeirra vitnað í seinni tíð. Hann segir: „Ljóðunum hættir við að missa lífsandann í skefjum kveðandinnar, verða hugmyndafá og efnislítil, hljómandi málmur og hvellandi bjalla. Óstuðluðu ljóðin ættu að eiga óbundnar hendur og víðan leikvöll sundurlausa málsins og vera gagn- orð, hálfkveðin og draumgjöful eins og Ijóðin. Þau eiga sér krappa leið milli skers og bám. En takist þeim að þræða hana verður það glæsileg sigling." Rit Sigurðar Nordals um Snorra Sturluson kom út 1920. Bókin var auðvitað að miklu leyti ávöxtur af rannsóknum hans við háskólann í Kaupmannahöfn, enda tileinkuð Finni Jónssyni kennara hans þar. I merkilegum formála fyrir Snorra Sturlusyni kemst Sigurður meðal annars svo að orði: „— ég hef — reynt að skrifa þessa bók um lifandi rit fyrir lifandi menn. Þetta býst ég við að sumum fræði- mönnum muni þykja ærin ástæða til að telja hana óvísindalega og einskis virði —“ Og enn segir hann: „Norræn ritskýring siglir nú með lík í lestinni, af því að hún hefur gleymt að spyija sífellt, hvað væri rannsóknar virði, og hvemig hún ætti að gera rannsóknina lifandi þátt í menningu og þjóðlífí." Hér var imprað á því sem varð svo sterkur þáttur í öllu ævistarfi Sigurð- ar Nordals. Upphaflega var starfs- heiti hans við Háskóla íslands: Prófessor í málfræði og menningar- sögu. Málfræðikennslu gegndi hann skamma hríð, en uppsprettur og þró- unarsaga íslenskrar menningar urðu honum ævilangt viðfangsefni. Rit- skýring og textavísindi var allt of þröngt svið fyrir hann, þó að hann væri fyrst og fremst lærður í þeim fræðum. Orðið menningarsaga túlk- aði hann áreiðanlega ekki þröngri merkingu. Það gat vísað í ýmsar átt- ir. Skáldskapur og heimspeki mátti ekki verða utangátta. Hann vildi ekki aðeins vera kennari innan veggja háskólans, heldur láta alla þjóðina njóta góðs af lærdómi sínum og veita til hennar menningu með læsilegum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.