Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 9

Morgunblaðið - 14.09.1986, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. SEPTEMBER 1986 C 9 „Hann þorði að vera kenninga- smiður** Sigurður Nordal hafði mikinn áhuga á því að. fylgjast með yngri mönnum og einn þeirra sem varð aðnjótandi kunningsskapar hans var Hannes Pétursson skáld. Þrátt fyrir mikinn aldursmun þá segir Hannes, að hann hafi aldrei fundið til þess að aldursmunurinn bagaði samtöl þeirra. „Sigurður var haldinn því sem mætti kalla heilaga forvitni, og hann vildi hafa samband við yngri menn. Hann sótti svonefndar rannsóknar- æfingar í íslenskudeild Háskólans, kaus að einangrast ekki í elli sinni." Þegar Hannes hittir Sigurð Nordal í fyrsta sinn er hann stúdent á leið á rannsóknaræfingu. Þetta var um 1957, þegar Sigurður var kominn heim eftir að hafa verið sendiherra í Höfn. „Við heilsuðumst fyrst í anddyri Háskólans á undan rannsóknaræf- ingu. Hann átti víst upphaflega frumkvæði að þeim og mig minnir að þær hafi legið niðri að mestu leyti meðan hann var sendiherra, en það færðist aftur líf í þær þegar hann kemur heim. Þegar við hittumst hafði ég sent frá mér Kvæðabók, 1955, og frétt eftir Kristni Andréssyni, sem gaf bókina út, að Sigurði hefði líkað hún allvel, og hann tók mér ágætlega þegar í upphafi. Síðan var rannsókn- aræfing, erindi flutt og síðan samdrykkja. Sigurður var dæmalaust skemmtilegur á slíkum samveru- stundum, svo ftjálsmannlegur, fyndinn og frásagnarglaður við staup að það var unun að sitja nálægt hon- um.“ „Þú hefur ekki kynnst honum sem kennara?" „Nei, því ég byija í Háskólanum árið 1954. Þá er Sigurður úti í Höfn, og hann var auk þess prófessor án kennsluskyldu frá árinu 1945, minnir mig, og ég hlustaði því aldrei á hann tala úr kennarastóli, því miður. En hann fylgdist samt með því sem fór fram í deildinni eftir að hann kom heim. Snemma árs 1959 lauk ég kandídatsprófi og tók — eins og venja var — munnlegt próf í öllum greinum, málfræði, bókmenntum og sögu, hvert á fætur öðru í voðalegri lotu sama daginn. Þegar ég er sestur við borð fyrir framan kennara og próf- dómara í málfræði, þá er Sigurður allt í einu kominn þar líka gegnt mér, við hliðina á kennaranum. Ég hrökk við. Hann fylgdi mér síðan stofu úr stofu, en það fór svo að mér þótt róandi fremur en hitt að hafa hann nálægan meðan ég var að skrönglast í gegnum þetta. Sama ár fór ég að starfa hjá Bóka- útgáfu Menningarsjóðs. Ég ritstýrði smábókum Menningarsjóðs og ein fyrsta útgáfuhugmyndin sem ég fæ er að gefa út ritdeilu Sigurðar Nor- dal og Einars H. Kvaran. Ég sneri mér þá til Nordals, sem tók strax vel í það að hún yrði gefin út, og erfingj- ar Einars höfðu ekki heldur neitt á móti því. Ég þurfti mikið að leita til Sigurðar vegna formálans og hann hafði ánægju af því að sjá þessar greinar á einum stað milli tveggja spjalda. Hann lét reyndar á sér skilj- ast að honum þótti meira gaman af ritdeilu sinni við Jónas Jónsson frá Hriflu. Hún virtist standa honum nær af einhveijum ástæðum. Síðan unnum við saman þegar hann gaf út ritsafn Theodoru Thor- oddsen árið 1960. Við lásum saman fyrstu próförk, breiddum úr okkur heima í stofum hjá honum. Hann lét mig þylja frumtextann, en fyigdist sjálfur með spöltunum. Mér þykir reglulega gaman að hafa unnið með honum þá. Honum þótti vænt um að skrifa formála þessa ritsafns, enda þekkti hann Theodoru vel og hún var honum mjög kær. Árið eftir kom út Ijóðaúrval Huldu. Erfingjar hennar báðu Sigurð að skrifa formála, en honum var ekki meira en svo um það gefið, heyrðist mér, lét þó tilleiðast. Hann lagði áherslu á að ritgerð sín kæmi að bókarlokum, því hún væri alls ekki hugsuð sem formáli. Erfingjamir voru ekki ánægðir með það og tilmæli Sigurðar voru snið- gengin af útgefanda. Þegar hann komst að raun um þetta sá ég honum renna í skap í eina skiptið þann tíma sem við þekktumst. Hann var skap- mikill undir niðri, og nú varð hann þungur á brún, sagði þó ekki margt. Honum fannst sér misboðið. „Svo kynnist þú honum vel?“ Já, ég kom oft á Baldursgötuna næstu árin og hlakkaði alltaf til. Mér fannst það hátíð. Við sátum langoft- ast tveir einir saman. Þetta voru síðdegisfundir, sem stundum tognaði þó úr fram á kvöld. Hann sat jafnan á sama stað í stofunni, í sama stóln- um, sneri baki við glugga. Við höfðum yfirleitt guðaveigar á skálum til hressingar. Hann var reyndar mik- ill kakómaður og lét stundum bera okkur kakó og setti þá gjaman koní- ak út í. Einu sinni kom hann með formúlu: „Hannes minn, reglan er sú að drekka brennivín út í kaffi, viskí út í te og koníak út í kakó!“ Svo ; gekk neftóbaksílát á milli okkar. Það er ógleymanlegt að hafa setið með honum heima í stofu í kyrrð og ró. Ég sé mjög greinilega fyrir mér hvernig rökkvar hægt og hægt á glugga bak við hann, en gegnt honum á vegg er græna, gamla máiverkið af Þingvöllum eftir Ásgrím, sem er dýrðleg mynd. Við Sigurður ræddum um ýmsa hluti, lífið og tilveruna, bækur og menn, eins og það er kallað. Hann sagði mér af skáldum sem hann hafði þekkt, kenndi mér vísur og fór með sögur sem ég veit að hann ætlaðist ekki til að færu lengra í bráð. Þegar hann frétti að ég væri að vinna að ævisögu Steingríms Thorsteinssonar þá sat ég geysilengi hjá honum. Ég fann á honum að hann var ekkert sérstaklega ánægður með að ég færi að skrifa um Steingrím. Hann var ekki hans maður. Ég leyfði mér oft bæði þá og síðar, að andmæla Sig- urði og ég býst við að hann hafi SIGURÐUR NORDAL ALDARMINNING' kunnað að meta það og haft gaman af. Nú, svo kom bókin út árið eftir. Hann sagði álit sitt á hanni — og brosti um leið elskulega á sinn hátt: „Þar er vel haldið á slæmum mál- stað.“ — Hann sagði mér dálítið frá Jóhanni Siguijónssyni og hafði á orði að hinar heitu ástaijátningar Jóhanns til Ib í bréfum væru að verulegu leyti uppgerð að sinni hyggju. Sigurður talaði vel um Jóhann vin sinn, en sagði hann hafa verið býsna ófróðan um marga hluti." „Svo fer hann að vinna að Þjóð- sagnabókinni?" „Já, og þá stakk hann upp á því að ég ynni með sér við að velja sög- urnar. Við byijuðum að þinga um það heima hjá honum. Við völdum sögur hvor í sínu lagi og hittumst svo og ræddum saman. Eg var að stússast í mörgu um það leyti og fór að skrópa. Hann skildi það mjög vel og leysti mig undan frekari skyldustörfum. Einu sinni þegar ég kom í heim- sókn var hann að skrifa forspjall bókarinnar. Hann var nokkuð þreytu- legur í andliti — og aldrei þessu vant snöggklæddur, virtist nýkominn ofan af lofti frá skriftum. Við tókum tal saman, og þá sagðist hann vera alveg viss um að Þjóðsagan „Selið" væri eftir Jón Þórðarson Thoroddsen, en ekki Jón Þórðarson, seinna jirest á Auðkúlu, eins og álitið væri. Eg gerði hvorki að játa þesu né neita, hafði „Það hefur tengt ykkur saman að þið voruð báðir að norðan?" „Já, honum þótti betra að ég þekkti vel til fyrir norðan og við gát- um talað um margt norðlenskt. Honum þótti gott til þess að vita að vera af Djúpdælaætt, út af síra Jóni Eiríkssyni, síðast á Undirfelli. Hann hélt upp á þann frændgarð, hafði t.d. ágætt samband við Stefán Vagnsson á Sauðárkróki, sem sendi honum efni í Gráskinnu. Um Vatnsdal og æsku sína þar talaði Sigurður hins vegar lítið í mín eyru, þó að hann hefði oft hugann við það sem liðið var.“ „Minntist hann aldrei á skáld- skap sinn?“ „Nei, aldrei svo ég muni, heldur ræddum við skáldskap almennt. Og mér virtist að hann hefði meiri áhuga á ljóðagerð sem er hugsunarleg en hinni sem er einberar stcmmningar. Hann leitaði líka ævinlega að því, hvaða mann þetta eða hitt skáldið hefði að geyma. Það var honum ríkt umhugsunarefni eins og glögglega kemur fram í ritum hans.“ „En á dauðann?" „Mér heyrðist ekki betur en Sig- urður treysti því að hann yrði eldri en hann var, næði jafnvel svipuðum aldri og faðir hans sem varð níutíu og fimm ára. Einu sinni þegar við vorum að rabba saman heima hjá honum lagði hann hendurnar fram á borðið og sagði hvað faðir sinn hefði ekkert kynnt mér málið. Ég held að þetta muni vera síðasta kenning sem Sigurður setti fram í bókmenntum. Hann þorði að vera kenningasmiður. Margir aðrir tvístíga endalaust, eru eins og á glóðum, taka aftur í einu orðinu það sem þeir segja í hinu svo að lesandinn geti ekki sagt að þeim hafí missést. Hann bjó ótrauður til kenningar og svo má deila um þær. Þetta er höfuðnauðsyn, ýtir allri bók- menntalegri umræðu áfram, býr þar til spennu. I kverinu um Magnús Grímsson, 1971, segir Sigurður sfðan fullum fetum að Jón Thoroddsen hafi ritað „Selið" og færir að því ýmis rök á sína fimlegu vísu. Hann heldur svo vel á spilunum að maður eiginlega sannfærist í fyrstu. Núna eftir á er ég þó ekki viss um réttmæti kenning- arinnar, mér sýnast veigamikii rök hníga að því að sagan sé eftir séra Jón Þórðarson á Auðkúlu, því hann átti um tíma heima að Klausturhólum í Grímsnesi og því nákunnugur sögu- sviðinu." haft mjúkar og lífí gæddar hendur fram á efstu ár eins og þær eltust ekki. Þá var hann að bera þær sam- an við sínar eigin. Við töluðum alloft um trúmál og þar vorum við ósammála. Ég var vantrúarskepna. Hann trúði á annað líf og vildi ekki heldur mótmæla viss- um þjóðsagnalegum fyrirbrigðum. Það kom aldrei fyrir að við færum í hár saman út af slíkum hlutum, en við ræddum þetta fram og aftur. Hann hafði ákaflega mikla ánægju af því að tala við menn. Hann var samræðusnillingur. Samræða var fyrir honum nokkurs konar listform út af fyrir sig. Þess vegna er mikils um vert að hafa kynnst samræðulist hans. Hún var góð f nestið, ef svo má til orða taka. Það eru raunar viss forréttindi núna að hafa fengið að sitja hið næsta Sigurði Nordal og heyra hvemig hann sagði frá, og hvernig hann mótaði málið á tungu sér og hafa um leið fyrir augum svip- brigði hans og fas. Þetta var veisla." sést Sigurður Nordal handleika Konungsbók Eddukvæða, þeg- araðhúnvar komin heim til is- lands. Myndina tók Ólafur Hall- dórsson þegar Sigurður heim- sótti Stofnun Árna Magnússon- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.