Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 2
2 B
MORGljINBIiAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986
4
GARÐSTOFUR
P A D nííVCT
uAKurl x ol
ess hefur verið getið í fréttum að undanförnu að sumarbústaðaeign
landsmanna hafi aukist verulega á síðustu árum. Svo er grunnt á
sveitamanninum í borgarbúanum að hann virðist með aukinni velsæld
pg bættum hag leggja allt kapp á að komast í snertingu við náttúruna.
í fjölbýlinu hefur það ágerst að fólk leggi krafta sína og alúð í að
rækta og fegra þá garða sem það hefur við hús sín. Og til þess að
lengja svolítið þennan unaðstíma sem unnt er að eiga í bústaðnum
eða i garðskotinu þá hefur fólk fundið upp á því snjalla ráði að leika
svolítið á veðurfarið og norðangustinn og farið að byggja garðhýsi
og gróðurvinjar við húsin sín, þar sem hægt er að sóla sig og njóta
blómailms og baðstrandaveðurs árið um kring.
Blómaskálar af ýmsum gerðum, sambyggðir húsum eða ekki, eru
orðnirfjölmargir, enda býsna notalegt að sitja í suðrænu umhverfi
með oft á tíðum heitan pott til að lauga sig í við hliðina, á meðan
garrinn gnauðar úti. Ber mörgum eigendum slíkra húsa saman um
að þetta sé orðinn vinsælasti íverustaður fjölskyldunnar og jafnvel
jólatréð og sjónvarpið eigi þar sinn fasta stað.
Nú er svo komið að ásókn í að fá að reisa slík sæluhýsi er það
mikil, að hjá byggingarfulltrúa borgarinnar liggja iðulega bunkar
umsókna um leyfi til þesskonarframkvæmda.
„Umsóknum um byggingarleyfi fyrir garðskála fjölgar stöðugt og
að meðaltali má segja að við fáum 10 til 12 umsóknir á mánuði,"
sagði Gunnar Sigurðsson byggingarfulltrúi Reykjavíkurborgar. „það
er einnig orðið mjög algengt að fólk geri ráð fyrir slíkum blómaskála
strax í byrjun þegar það byggir húsið sjálft. Það er mjög hentugt að
leysa þetta mál þannig og þurfa ekki að standa í því seinna, því þá
er oft erfiðara að finna gott rými fyrir skálann. Núorðið þekkist það
að gert sé ráð fyrir slíkum skálum í raðhúsum og jafnvel í stórum
fjölbýlishúsum.“
Gunnar sagðist gjarnan vilja brýna það fyrir fólki að nauðsynlegt
væri að sækja um byggingarleyfi. Það vill koma fyrir að fólk ræðst í
framkvæmdir án þess að hafa samráð við byggingarfulltrúa og það
er alveg óleyfilegt. „Það er nefnilega ýmislegt sem þarf að hafa í
huga þegar leggja á í svona framkvæmdir, skálinn má ekki skyggja
á svefnherbergisglugga, varna góðri loftræstingu og svo framvegis.
Það hefur komið fyrir að þegar fólk sækir um byggingarleyfi yfir svalir
á þriðju eða fjórðu hæð höfum við orðið að hafna beiðninni þar sem
svalirnar eru í mörgum tilfellum nokkurskonar neyðarútgangur."
Að sögn Gunnars er miklu minna um það en áður var að fólk byggi
sjálfstæð gróðurhús i görðum sínum, nú sé algengast að þau séu
viðbyggð.
En hvað er skemmtilegast og jafnframt hentugast að hafa í þessum
vistarverum, að því er gróður varðar og hvað ber að athuga í upphafi
þegar byggt er, sem hefur áhrif á plöntuval og gróður í téðum skálum?
Og ennfremur má spyrja hverju þurfi að sinna við árstíðaskipti þegar
húsið er orðið gróðri prýtt. Þór Sævarsson garðyrkjufræðingur svarar
slíkum vangaveltum:
„Staðsetning hússins skiptir miklu máli, í hvaða átt það snýr,“
Þór Sævarsson garðyrkjufræðingur Morgunbiaðið/Þorkeii
Byggingafulltrúi
fœr að meðaltali
10 til 12 beiðnir
á mánuði um leyfi
tilslíkrabygginga
SVAVAR LARUSSON OG ELSA CHRISTENSEN
Lengir sumarið
um prjá mánuði
Svavar Lárusson og Elsa
Christensen búa á níundu
hæð í Espigerði fjögur. íbúðinni
fylgja 60 fermetra svalir og fyrir
um það bil þremur árum létu þau
reisa þar yfir 40 fermetra garð-
skála.
„Upphaflega stungu arkitekt-
ar hússins upp á þessu við okkur
og þegar við sáum fram á að
hægt væri að byggja skála sem
væri hægt að nota árið um kring
ákváðum við að láta til skarar
skríða," segja þau hjón. „Hér
getur verið ákaflega veðrasamt
þannig að húsið er traustlega
byggt, en það voru arkitektar
hússins, þeir Ormar Þór og Örn-
ólfur Hall, sem teiknuðu garð-
hýsið."
Þau Svavar og Elsa segja að
þetta lengi sumarið að minnsta
kosti um þrjá mánuði, sólstofan
sé komin í gagnið í byrjun mars
og hægt sé að njóta sólar fram
í nóvember. „Annars erum við
hér meira og minna allt árið um
kring og það er óhætt að segja
að þetta sé aðal íverustaður
okkar. Við kveikjum upp í arnin-
um á köldum vetrarkvöldum og
höfum jafnvel borðað í stofunni
á aðfangadagskvöld. Svo er sól-
Morgunblaðið/Þorkell