Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986 % HVAD ERAÐ GERAST UM FÉLAGSLÍF Laugardalshöll: Hjólastólarall Núásunnudaginn, 14. septem- ber, kl. 14, verður haldið hjólastólar- all í Laugardalshöllinni. Það er Sjálfsbjörg — landssamband fatl- aðra, sem stendurfyrirþessu ralli og vill með því vekja athygli á mál- efnum hreyfihamlaðra. í rallinu taka þátt arkitektar, sveitarstjórnarmenn af höfuðborgarsvæðinu, skemmti- kraftar og hreyfihamlaðir. Rallið er í formi firmakeppni og felst í því að komast yfir ýmsar hindranir í hjóla- stój. Ýmis skemmtiatriði verða í hlé- um; hljómsveitin Þokkabót leikur, Diddú syngur, hópur frá Karatefé- lagi Reykjavíkur sýnir og Bjössi bolla kemur í heimsókn. Einnig veröur sérstakur leynigestur. Aðgangur og mótsskrá eru ókeypis. munu Haukur Mortens og félagar leika á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum út september- mánuð. Vestmannaeyjar: Eyjakvöld Á haustmánuðum í fyrra byrjaði Hótel Gestgjafinn með hin svoköll- uðu Eyjakvöld, skemmtanir þar sem snæddur var matur frá Vestmanna- eyjum og sungin Eyjalög. í ár verður þessu haldið áfram. Um skemmtiatriði sjá Runólfur Dag- bjartsson leikari, Helgi Hermanns- son söngvari, Jónas Þ. Dagbjarts- son fiðluleikari, Ásta Ólafsdóttir, Ásdís Þórarinsdóttir og Jónas Þórir hljómborðsleikari. Gestir eru beönir að mæta tíman- lega því að borðhald hefst kl. 20:30 og skemmtiatriðin kl. 21:30. „Die Xylophoniker*1 Nýlistasafnið við Vatnsstíg: Þýsk samsýning Á SUNNUDAGINN klukkan 20.00 verður opnuð í Nýlistasafninu við Vatnsstíg sýning á verkum tveggja þýskra málara. Listamennirnir heita Volker Nikel og Wolfgang Prel- owski. Báðir eru þeir búsettir í Vestur-Berlín. TÓNLIST Skíðaskálinn í Hveradölum: Haukur Mortens og félagar í Skíðaskálanum í Hveradölum Fimm manna hópur hljóðfæra- leikara frá Munchen er nú staddur hér á landi. Þeir leika á ýmsar gerð- ir tréspila og á gítar og er efnisskráin fjölbreytt; italskirog suður-amerískir dansar, „ragtime"-lög og verk eftir J.S. Bach og Franz Scubert, sérstak- lega útsett fyrir þessi hljóðfæri. Laugardaginn 13. september, kl. 17, verða þeir með tónleika í Lang- holtskirkju í Reykjavík og sunnudag- inn 14. september, kl. 17, í Safnaðarheimili Akraneskirkju. Listasafn ASÍ: Píanótónleikar Nú á sunnudaginn, 14. septem- ber, kl. 16, heldur Halldór Haralds- son píanóleikari tónleika á sýningunni „World Press Photo '86" sem nú stendur yfir í safninu. Á efnisskránni eru fimm verk eftir Franz Liszt, en í ár eru liðin 175 ár frá fæðingu tónskáldsins og 100 ár frá dauöa hans. Af þvi tilefni voru, i Ijósmyndasamkeppninni, veitt sér- stök verðlaun fyrir þá Ijósmynd sem best túlkaði þýðingu tónlistar í menningarsamfélagi og áhrif henn- ará daglegt lif. íslenska óperan: IITrovatore íslenska óperan hefur vetrarstarf- ið með sýningu á óperunni II T rovatore eftir Verdi, sem f rumsýnd var í apríl sl. Voru þá 18 sýningar fyrir fullu húsi og 19. sýningin verð- urá laugardagskvöld kl. 20. í aðalhlutverkum eru: Kristinn Sig- mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Garðar Cortes, Viðar Gunnarsson og Elísa- bet Waage. Ananda Marga: Indversk Ijóð og dansar Félagar í Ananda Marga standa fyrir kynningu á indverskum Ijóðum og dönsum á sunnudaginn, 14. september, kl. 15. Kynnt verða Ijóð úr bálkinum Söngvum dögunar (Prabhat Samgiit) eftir P.R. Sarkar. Leikin verður tónlist við Ijóðin og sýndurdans. Kynninginferfram í húsnæði Hugræktarskólans í Að- alstæti 16 í Reykjavík. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Léttarveitingar verða bornar fram að dagskránni lokinni. SÖFN Sjóminjasafnið: Sjóminjasafn íslands verður opið i sumar, þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14 til 18. Safniö er til húsa á Vesturgötu 8 í Hafnarfirði. Árbæjarsafn: Opið um helgina Árbæjarsafn er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:30 til kl. 18. Sædýrasafnið: Dýrin mín stór ogsmá Sædýrasafnið verður opiö um helgina eins og aðra daga frá kl. 10 til 19. Meðal þess sem er til sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn, apar, kindur og fjöldi annarra dýra, stórra og smárra. Listasafn Einars Jónssonar: Safn og garður Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13:30 til 16. Höggmyndagarður- inn er opinn daglega frá kl. 11 til 17. MYNDLIST Listasafn ASÍ: „World Press Photo »86“ í Listasafni ASÍ á Grensásvegi 16, efstu hæð, stendur nú yfir frétta- Ijósmyndasýningin „World Press Photo ’86". Á sýningunni eru um 180 Ijósmyndir sem hlutu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni blaðaljós- myndara. Sýningin er opin frá kl. 16 til 20 virka daga og 14 til 22 um helgar. Kaffiveitingar kl. 14 til 18 um helgar. Hallgerður: Hallgrímur sýnir Hallgrímur Helgason sýnir um þessar mundir i sýningarsalnum Hallgerði, Gallerí Langbrók á Bók- hlöðustig 2 í Reykjavík. Hallgrimur fæddist 1959 en hóf ekki að mála fyrr en á miðju árinu 1983, eftir skamma viðdvöl í skól- um, hér heima og erlendis. Þetta er níunda einkasýning Hallgríms en einnig hefur hann tek- ið þátt i nokkrum samsýningum, m.a. í New York. Síöastliöinn vetur dvaldi hann í Bandaríkjunum, en nú í sumar hefur hann stundað list sína hér heima og er afrakstur sumarsins nú til sýnis, um 30 málverk. Sýningin er opin frá kl. 12 til 18 virka daga og 14 til 22 um helgar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.