Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 14
14 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1986
%
HVAD
ERAÐ
GERAST
UM
FÉLAGSLÍF
Laugardalshöll:
Hjólastólarall
Núásunnudaginn, 14. septem-
ber, kl. 14, verður haldið hjólastólar-
all í Laugardalshöllinni. Það er
Sjálfsbjörg — landssamband fatl-
aðra, sem stendurfyrirþessu ralli
og vill með því vekja athygli á mál-
efnum hreyfihamlaðra. í rallinu taka
þátt arkitektar, sveitarstjórnarmenn
af höfuðborgarsvæðinu, skemmti-
kraftar og hreyfihamlaðir. Rallið er
í formi firmakeppni og felst í því að
komast yfir ýmsar hindranir í hjóla-
stój.
Ýmis skemmtiatriði verða í hlé-
um; hljómsveitin Þokkabót leikur,
Diddú syngur, hópur frá Karatefé-
lagi Reykjavíkur sýnir og Bjössi bolla
kemur í heimsókn. Einnig veröur
sérstakur leynigestur.
Aðgangur og mótsskrá eru
ókeypis.
munu Haukur Mortens og félagar
leika á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldum út september-
mánuð.
Vestmannaeyjar:
Eyjakvöld
Á haustmánuðum í fyrra byrjaði
Hótel Gestgjafinn með hin svoköll-
uðu Eyjakvöld, skemmtanir þar sem
snæddur var matur frá Vestmanna-
eyjum og sungin Eyjalög.
í ár verður þessu haldið áfram.
Um skemmtiatriði sjá Runólfur Dag-
bjartsson leikari, Helgi Hermanns-
son söngvari, Jónas Þ. Dagbjarts-
son fiðluleikari, Ásta Ólafsdóttir,
Ásdís Þórarinsdóttir og Jónas Þórir
hljómborðsleikari.
Gestir eru beönir að mæta tíman-
lega því að borðhald hefst kl. 20:30
og skemmtiatriðin kl. 21:30.
„Die Xylophoniker*1
Nýlistasafnið við Vatnsstíg:
Þýsk samsýning
Á SUNNUDAGINN klukkan 20.00 verður opnuð í Nýlistasafninu við Vatnsstíg sýning á
verkum tveggja þýskra málara. Listamennirnir heita Volker Nikel og Wolfgang Prel-
owski. Báðir eru þeir búsettir í Vestur-Berlín.
TÓNLIST
Skíðaskálinn í
Hveradölum:
Haukur Mortens
og félagar
í Skíðaskálanum í Hveradölum
Fimm manna hópur hljóðfæra-
leikara frá Munchen er nú staddur
hér á landi. Þeir leika á ýmsar gerð-
ir tréspila og á gítar og er efnisskráin
fjölbreytt; italskirog suður-amerískir
dansar, „ragtime"-lög og verk eftir
J.S. Bach og Franz Scubert, sérstak-
lega útsett fyrir þessi hljóðfæri.
Laugardaginn 13. september, kl.
17, verða þeir með tónleika í Lang-
holtskirkju í Reykjavík og sunnudag-
inn 14. september, kl. 17, í
Safnaðarheimili Akraneskirkju.
Listasafn ASÍ:
Píanótónleikar
Nú á sunnudaginn, 14. septem-
ber, kl. 16, heldur Halldór Haralds-
son píanóleikari tónleika á
sýningunni „World Press Photo '86"
sem nú stendur yfir í safninu. Á
efnisskránni eru fimm verk eftir
Franz Liszt, en í ár eru liðin 175 ár
frá fæðingu tónskáldsins og 100
ár frá dauöa hans. Af þvi tilefni voru,
i Ijósmyndasamkeppninni, veitt sér-
stök verðlaun fyrir þá Ijósmynd sem
best túlkaði þýðingu tónlistar í
menningarsamfélagi og áhrif henn-
ará daglegt lif.
íslenska óperan:
IITrovatore
íslenska óperan hefur vetrarstarf-
ið með sýningu á óperunni II
T rovatore eftir Verdi, sem f rumsýnd
var í apríl sl. Voru þá 18 sýningar
fyrir fullu húsi og 19. sýningin verð-
urá laugardagskvöld kl. 20. í
aðalhlutverkum eru: Kristinn Sig-
mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Garðar
Cortes, Viðar Gunnarsson og Elísa-
bet Waage.
Ananda Marga:
Indversk Ijóð
og dansar
Félagar í Ananda Marga standa
fyrir kynningu á indverskum Ijóðum
og dönsum á sunnudaginn, 14.
september, kl. 15. Kynnt verða Ijóð
úr bálkinum Söngvum dögunar
(Prabhat Samgiit) eftir P.R. Sarkar.
Leikin verður tónlist við Ijóðin og
sýndurdans. Kynninginferfram í
húsnæði Hugræktarskólans í Að-
alstæti 16 í Reykjavík. Öllum er
heimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir. Léttarveitingar verða bornar
fram að dagskránni lokinni.
SÖFN
Sjóminjasafnið:
Sjóminjasafn íslands verður opið i
sumar, þriðjudaga til sunnudaga frá
kl. 14 til 18. Safniö er til húsa á
Vesturgötu 8 í Hafnarfirði.
Árbæjarsafn:
Opið um helgina
Árbæjarsafn er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 13:30 til kl.
18.
Sædýrasafnið:
Dýrin mín stór
ogsmá
Sædýrasafnið verður opiö um
helgina eins og aðra daga frá kl.
10 til 19. Meðal þess sem er til
sýnis eru háhyrningar, Ijón, ísbjörn,
apar, kindur og fjöldi annarra dýra,
stórra og smárra.
Listasafn Einars
Jónssonar:
Safn og garður
Listasafn Einars Jónssonar er
opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 13:30 til 16. Höggmyndagarður-
inn er opinn daglega frá kl. 11 til 17.
MYNDLIST
Listasafn ASÍ:
„World Press
Photo »86“
í Listasafni ASÍ á Grensásvegi
16, efstu hæð, stendur nú yfir frétta-
Ijósmyndasýningin „World Press
Photo ’86". Á sýningunni eru um
180 Ijósmyndir sem hlutu verðlaun
í alþjóðlegri samkeppni blaðaljós-
myndara. Sýningin er opin frá kl.
16 til 20 virka daga og 14 til 22 um
helgar.
Kaffiveitingar kl. 14 til 18 um
helgar.
Hallgerður:
Hallgrímur sýnir
Hallgrímur Helgason sýnir um
þessar mundir i sýningarsalnum
Hallgerði, Gallerí Langbrók á Bók-
hlöðustig 2 í Reykjavík.
Hallgrimur fæddist 1959 en hóf
ekki að mála fyrr en á miðju árinu
1983, eftir skamma viðdvöl í skól-
um, hér heima og erlendis.
Þetta er níunda einkasýning
Hallgríms en einnig hefur hann tek-
ið þátt i nokkrum samsýningum,
m.a. í New York.
Síöastliöinn vetur dvaldi hann í
Bandaríkjunum, en nú í sumar hefur
hann stundað list sína hér heima
og er afrakstur sumarsins nú til
sýnis, um 30 málverk.
Sýningin er opin frá kl. 12 til 18
virka daga og 14 til 22 um helgar.