Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.09.1986, Blaðsíða 4
4 B MORGUNgLAÐIjD, FQSTUDAGUR 19, SEPTEJMBER 1,986 AR A TT^kT A /llVil X Ikjlv/i í TILEFNI AFMÆLIS REYKJAVÍKURBORGAR GUÐLAUG SVEINBJORNSDOTTIR Þetta er eins og skemmtilegt leikfang Mig langaði alltaf í garöhús, sérstaklega þar sem garð- urinn með húsinu er frekar lítill," sagði Guðlaug Sveinbjörnsdóttir en það eru þrjú ár síðan þau hjón- in Guðlaug og Höskuldur Jóns- son létu reisa garðskála hjá sér. „í garðinum var horn sem var frekar erfitt viðfangs svo við fundum út þá lausn að nýta plássið með þessu. Það stendur til að fá hita í skálann með tíman- um svo hægt sé að byrja aðeins fyrr á raektuninni og hætta þá seinna. Þó vil ég gjarnan hvíla plönturnar í nokkurn tíma og mig sjálfa því þá er alltaf svo spenn- andi að byrja á ný. Fyrir mér er þetta eins og skemmtilegt leik- fang." Spurð hvað hún ræktaði í hús- inu segist hún hafa verið að fikta við rósir og aðeins verið með dahlfur en kveðst annars alltaf vera að prófa sig áfram. „Hitinn verður aldrei óbærileg- ur í húsinu því sólin er farin upp úr hádeginu og hægt að opna vel út ef hitnar." Innt eftir því hvort hún hafi sloppið við alla óboðna gesti svo sem torkenni- leg skorkvikindi í húsinu segir hún svo vera. „Kosturinn við að vera í skugga svona mikið held ég að sé sá að við sleppum við slíka gesti að minnsta kosti hef ég verið heppin hingað til.“ Guðlaug segir að fjölskyldan eyði ekki miklum tíma í húsinu því allir séu að heiman á daginn. „Hinsvegar er ég spennt þegar heim er komið að fara og fylgjast með vextinum, hvort rós hafi sprungið út og svo framvegis. En af því að gróðurhúsið er ekki samfast húsinu okkar þá eyðir maður líklega ekki eins mörgum kvöldstundum þar og ella. Við setjumst þó oft út á kvöld- in með kaffibollana okkar og virðum fyrir okkur blómin og njót- um gtóðursins," segir Guðlaug að lokum. Morgunblaðið/Árni Sœberg 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.