Morgunblaðið - 19.09.1986, Page 12
Þeir eru til sem halda því fram að í dag lifi Danir á fornri frægð í
hönnun sinni á húsbúnaði og er þá skírskotað til áranna milli 1950
og 1960 og jafnvel fyrr. Þá varð dönsk hönnun þekkt í heiminum
og margt af því sem hannað var þá er orðið klassískt. Það má
nefna marga til sögunnar, en án efa voru það arkitektarnir Poul
Henningsen, Kaare Klint og Borge Mogensen sem höfðu mest áhrif
á almenning strax milli 1930 og 1940. En það eru líka margir góð-
að er Eyjólfur Pálsson,
innanhússarkitekt,
sem hefur orðið í við-
tali við föstudagsblaðið
um hönnun á norræn-
um húsbúnaði og ýmislegt sem
henni tengist. Hann lærði á sínum
tíma í Danmörku, en rekur nú
verslunina Epal og hefur meðal
annars einbeitt sér að því að kynna
vörur frá Danmörku sem og
íslenska hönnun. Þess má til gam-
ans geta, að þegar Margrét
Danadrottning og Hinrik prins voru
hér á ferð í sumar var Eyjólfi af-
hent heiðursskjal og orða, „Lands-
foreningens dansk arbejders
diplom og prins Henriks æresmed-
alje", fyrir kynningarstarf sitt á
dönskum listiðnaði hér á landi.
Átak í
markaðsmálum
í Danmörku
„Danir hafa lagt sig mikið fram
við að kynna húsbúnað sinn á er-
lendum mörkuðum og þeir hafa
uppskorið eins og þeir hafa sáð.
Helstu viðskiptavinir þeirra eru
Bandaríkjamenn, Vestur-Þjóðverj-
ar, Hollendingar, Svíar og Japanir,
sem hafa í æ ríkara mæli keypt
danskan húsbúnað. Þá er verið að
tala um húsbúnað þar sem mikiö
hefur verið lagt í hönnun, en ekki
tekkhúsgögn sem framleidd hafa
verið og seld í stórum stíl, þá sér-
staklega til Bandaríkjanna. Ég
nefndi áðan fjóra hönnuði sem ég
ir danskir hönnuðir starfandi í dag. í því sambandi má nefna Rud
Thygesen og Johnny Sorensen sem sýndu á Kjarvalsstöðum 1982.
Þeir byrjuðu að vinna saman fyrir tuttugu árum og hafa sótt í sig
veðrið æ síðan. Þeir vinna mest með formspennt húsgögn. Það
má líka nefna Niels Gammelgárd, sem hefur ásamt Lars Mathiesen ;
hannað húsgögn undir nafninu Pelikan Design. Þeir hafa bæði •
unnið fyrir gömul dönsk fyrirtæki og IKEA."
tel skara fram úr í Danmörku um
þessar mundir, en það má lengi
telja því Danir hafa lagt mikla
áherslu á hönnun og það eru því
nokkuð margir sem hafa farið inn
á þessa braut og eru góðir,“ segir
Eyjólfur og bætir við: „I þessu sam-
bandi má nefna Poul Kjærholm,
sem bar mikið á, og einnig þá
Verner Panton og Hvidt og Mel-
gaard.
Það er mikið atriði að rétt sé
fjallað um hönnun, jafnt á hús-
búnaði sem öðru. Það má ekki láta
líta svo út sem hönnuðir vinni ein-
göngu að einhverju sem ekki.er í
neinum tengslum við raunveruleik-
ann og þarfir fólks. Erlendis hafa
mörg fyrirtæki hagað málum þann-
ig á sýningum og kynningum ýmiss
konar að stilla út einum hlut sem
þótt hefur mjög nýstárlegur til að
draga að athygli fólks og fá það
til að hinkra og skoða aðra fram-
leiðslu þeirra. Þessi ákveðni hlutur
hefur að sjálísögðu verið hannaður
af einhverjum hönnuði á vegum
fyrirtækisins, en það má segja
sömu sögu um annað sem sýnt
er. Að kynna einungis það sem er
fjarri raunveruleika fólks og er jafn-
vel án nokkurs nytjagildis hefur
einungis neikvæð áhrif," segir Eyj-
ólfur. Hann kveðst oft hafa látið
sér detta í hug að skrifa grein til
að fá fólk til að opna augun fyrir
starfi hönnuða og skamma um leið
fjölmiðla sem hann telur eiga sinn
þátt í því viðhorfi til stéttarinnar
að hún sé að fást við eitthvað
óraunhæft.