Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986 Eittstórt ævintýri „Þaðþyrftu að vera aðeins fleiri stundir í sólarhringnum, “ segir Valgerður Matthíasdóttir listráðunautur á Stöð tvö. Við höfðum mælt okkur mót snemma morguns á einu kaffihúsanna í miðbænum til að spjalla um nýja starfið hennar, en Valgeröur Matthías- dóttir arkitekt byrjaði fyrir nokkru að vinna sem listráðunautur á Stöð tvö. Eftir að hafa fengið rjúkandi kaffi og kertaljós á borðið til að ná burt kuldahrollinum og hafa spjallað um daginn og veginn beindist talið að kaffihúsamenn- ingu bæjarins. Eins og lesendum er kannski kunnugt sá Valgerður um þá andlitslyftingu sem Hress- ingarskálinn fékk á dögunum. Og það er ekki að undra þó að sumum þyki staðurinn anda af frönskum blæ, því það mun einmitt hafa verið ætlun Valgerðar sem segir: „Ég saknaöi kaffihúsastemningar- innar frá París og Kaupmannahöfn, - er nefnilega algjör kaffihúsasjúkl- ingur," bætir hún svo við og brosir. „þegar ég var að Ijúka námi var það því eins og ævintýri að fá að reyna að vekja þá stemningu í Austurstræti með því að hanna breytingar á Skálanum." Valgerður er ein af þeim sem hefur látið undan útþrá og aflað sér þekkingar og reynslu erlendis. Hún dvaldi um sex ára skeið viö nám í arkitektúr við Kunstakademí- una í Kaupmannahöfn og vann síðan bæði þar og í París. Þegar hún lauk námi ytra, þá er ekki ólíklegt að það hafi verið hlýjan og gleðin í viðmóti Valgerð- ar sem varð til þess meðfram árangri í störfum að henni stóðu til boða störf bæði í Danmörku og París. En eins og hún segir sjálf, þá kom ekki annað til greina en koma heim aftur. Síðan hefur hún starfað á teiknistofu Guðna Páls- sonar og Dagnýjar Helgadóttur og haft í mörgu að snúast. Þar kveðst hún hafa lært mikið og fengist við fjölbreytileg verkefni, allt frá skipu- lagi gamla miðbæjarins niður í smæstu hönnunarverkefni. Það sem varð til þess að for- vitni vaknaði hjá blaöamanni um hagi hennar núna, var eins og áður kom fram, sú frétt að Valgerð- ur hefði nú söðlaö um og snúið sér að störfum á Stöð tvo og nefndist þar listráðunautur. Þetta er nýtt starfsheiti hérlendis þegar sjónvarp er annarsvegar og marg- ir sem hafa velt því fyrir sér hvað það orð táknar í verkum á Stöð- inni? „Þetta orð hljómar líklega mun hátíðlegar en skyldi. Mörg fyrir- tæki erlendis hafa svokallaðan „art director" og þetta er eiginlega þýðing á því orði. Ég vinn hér við sjónvarpið sem deildarstjóri lista og hönnunardeildar. Listráðunaut- ur er ég einnig, þar sem ég hef frá upphafi verið ráðgjafi varðandi allt sem heitir útlit og hönnun bæði á því sem að okkur snýr hér innan- dyra og eins því sem við komum til með að senda frá okkur. ( því sambandi má nefna til dæmis umgjörð fréttanna og þeirra þátta sem við erum að vinna aö. Ég er að móta hér deild sem stækkar ört og hleöur utan á sig. Það má segja aö val á starfsfólki í hana hafi úrslitaáhrif á það hvaða svip stöðin fær. Við viljum leggja áherslu á og reyna að hafa hér heildarsvip og leggja metnað í allt útlit stöðvarinnar. Sem deildarstjóri er ég í stjórn stöðvarinnar og tek því þátt í heild- arrekstri hennar. Við erum fá ennþá og vinnum hver óg einn á við tíu manns. Stærsta verkefnið mitt hingað til hefur þó verið hönnun hús- næðisins og innréttingar. Það hefur verið mikið verk að koma þessu öllu haganlega fyrir og gera umhverfið gefandi. Það skiptir máli að fólki líöi vel í því umhverfi sem það vinnur í og að það sé um leið hvetjandi. Umhverfið allt hefur áhrif á okkur og gegnum aldirnar hefur maðurinn haft þörf fyrir listir í einhverju formi í kringum sig. Ég stend mig að því aö raða í kringum mig allskyns hlutum sem örva mig í starfi, skærum litum, fallegum formum og núna hef ég meira að segja sjónvarpsþætti rúll- andi á skerminum hjá mér allan daginn. Þannig fæ ég iðulega hug- myndir af því sem óg sé á skjánum. um. Ég finn mig mjög vel í þessu," segir Valgerður spurð hvernig henni líki í starfinu. „Mér finnst eins og ég hafi aldrei gert annað eða réttara sagt að allt sem ég hef verið aö gera til þessa hafi verið einskonar undirbúningur að þessu starfi." — Á þetta starf eitthvað sam- eiginlegt með arkitektúrnum? „Tvímælalaust. Þetta er einn þáttur í arkitektúr sem er sam- bland af myndlist og skúlptúr. Arkitektúrinn er líklega sú listgrein sem hvað mest mótar okkar um- Stúdíó Hallgerður. Eitt sfðasta verkefni Valgerðar á teiknistofu Guðna og Dagnýjar var að hanna ásamt Guðna Pálssyni innréttingar fyrir Stúdíó Hallgerði. Ifi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.