Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 5
I
■
r
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
B 5
Valgerður og Ólafur Friðriksson fróttamaður. Allar innróttíngar á Stöð 2, skrifborð, hillur, skápar og
annað er hannað af henni.
Þessi mynd er tekin á deild Hrafns Gunnlaugssonar hjá ríkissjónvarpinu. Það vildi svo undarlega til að
um það leyti sem Vatgerður hóf störf hjá Stöð 2 var hún að Ijúka við að hanna skritstofuhúsgögn fyrir Hrafn.
hverfi og innan þessarar listgreinar
rúmast fleiri en ein deild, til dæm-
is skúlptúr, iðnhönnun, myndlist,
litafræði og lýsing sem allt er sam-
tvinnað arkitektúr. Námið tel ég
því góðan undirbúning og hafa
komið mér að notum í þessu starfi
á Stöð 2, enda arkitektadeildin
sem ég var í hluti af listaaka-
demíunni í Kaupmannahöfn.
Auk myndlistar hef ég alltaf
haft brennandi áhuga á leiklist, en
myndlistin varð yfirsterkari þegar
kom að því að ég þurfti að gera
upp á milli. Kosturinn við þetta
starf mitt hérna á Stöð 2 er að
það sameinar hvorutveggja."
— Ætlarðu að staldra eitthvað
við í sjónvarpinu eða fara ut í arki-
tektúrinn aftur?
„Það er ómögulegt að segja til
um það. Þetta sem ég er að gera
núna er stórkostlega spennandi
og eitt stórt ævintýri í mínum aug-
um. Ég á mér draum sem er að
komast einhverntíma í að teikna
hús en ég er alveg róleg hvað það
snertir og get hlakkað til að glíma
við það í framtíðinni. Ég lærði arki-
tektúr en ekki innanhússarkitektúr
og þó ég hafi mest teiknað hús í
skólanum þá hafði ég alltaf mikinn
áhuga á hönnun innanhúss þannig
að húsið og innviöirtengdust sam-
an og væru í samræmi."
— Þúhefurfengistviðaðhanna
húsgögn?
„Já síðan ég kom heim að utan
og mér finnst það mjög skemmti-
legt. Ég byrjaöi á því að hanna
_ fyrir Listahátíð skrifstofuhúsgögn
B____________________________________
og það er nú svo skrítin tilviljun
að um það leyti sem ég hóf störf
á Stöð 2 var ég að Ijúka við að
hanna húsgögn á deild Hrafns
Gunnlaugssonar hjá ríkissjónvarp-
inu. Að sjálfsögðu hef ég svo
hannað allt sem viðkemur hús-
gögnum hér á Stöð 2 auk innrétt-
inganna."
Þegar farið er að spjalla um
starfið nánar og það kemst til tals
hvort hún hafi kynnt sér starfsemi
erlendra sjónvarpsstöðva undan-
farið eða aflað sér þekkingar á
slíkum rekstri á annan hátt, segist
hún alltaf hafa haft brennandi
áhuga á sjónvarpi. „Þegar ég var
búsett erlendis þá var ég iðulega
með hugann við uppsetningu
þátta, manneskjur sem fram
komu, leikmynd, tökur og velti
þessum hlutum mikið fyrir mér án
þess að vera þá að vinna við það.“
Þegar að því er vikið hvort hún
ætli að birtast áhorfendum á
skjánum í framtíðinni færist kíminn
svipur yfir andlitið og svarið er
stutt og laggott -„Hver veit.“ Það
reynist ekki möguleiki að fiska
neitt nánar upp úr henni með það
en eftir svipnum að dæma er ekki
ólíklegt að eitthvað ráðabrugg sé
í gangi.
Innt eftir því hvort hún ætli að
taka að sér hönnunarverkefni sam-
hliða starfinu á Stöð tvö segist hún
hún aldrei hafa fengið eins mikið
af tilboðum og núna. „Sum þess-
ara tilboða hafa verið mjög
spennandi og í rauninni sárgræti-
legt að þurfa að neita þeim. Það
eru bara ekki nógu margar stundir
í sólarhringnum og hingað til hefur
vinnan verið sieitulaus við sjón-
varpið." Hún verður hálf skömm-
ustuleg á svip þegar hún minnist
á vinnutímann og segist varla geta
talist til fyrirmyndar þegar hann
sé annarsvegar. „Þetta er mitt líf
þessa stundina frá morgni til
kvölds. Það er ekkert sem heitir
frí eða slökum. Þó ég ætli að taka
mér frí þá er alveg sama hvað ég
tek mér fyrir hendur ég finn mér
alltaf eitthvað til að tengja það því
sem ég er að fást við uppi í sjón-
varpi. A meðan ég tala við fólk sé
ég það fyrir mér á skerminum, í
tökum, hugsa hvaða bakgrunnur
myndi hæfa því best og ég fæ
hugmyndir allsstaðar úr umhverf-
inu. Svo er ég óþolandi ef ég fer
í kvikmyndahús. Ég þarf að deila
því með öðrum sem ég sé og upp-
hrópanir algengar á borð við sérðu
þetta skot, þessa töku, lýsinguna
og litina .
Það eina sem ég sakna þegar
ég sökkvi mér svona í vinnu er að
ég er hætt að lesa eins mikið og
ég gerði. Það hefur þó ekki háð
mér mjög ennþá því það sem ég
fæ út úr starfinu fullnægir mér al-
veg. Þetta er það fjölbreytilegt
starf, lifandi og ótrúlega skapandi.
Bara að sólarhringurinn væri að-
eins lengri!"
Texti/Guðbjörg R.
Guðmundsdóttir
Myndir/Árni Sæberg
MargeftirspurÖu frönsku jassballettbúningarnir eru
komnir. MikiÖ úrval. Gott verÖ. Póstsendum.
Opiö laugardag frá kl. 10—13.
Heildsala — smásala.
KROMHILLU-
SAMSTÆÐURNAR
Einnig í hvítu og svörtu. Stakar hillur eða
samstæður með hillum, skápum og skúffum.
Opið:
Föstudag til kl. 7, laugardag til kl. 4.
BÚSTOFN
Smiðiuvegi 6, Kópavoqi simar 45470 — 44544.