Morgunblaðið - 21.11.1986, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1986
B 11
Rœtt við Ragnheiði Gestsdóttur um bók hennar
Ekki á morgun, heldur hinn...
„Ekki bara
gaman heldur
gagnlegt líka“
Það sem ég er
kannski fyrst og
fremst að reyna að ýta
undir með þessari bók
er að fjölskyldan setjist
niðursamanoggeri
eitthvað skemmtilegt.
Þegar maður hefur átt
svona stundir þar sem
allir sitja og gera
eitthvað í sameiningu þá
finnst manni endilega að
fleiri eigi að fá að njóta
þess. Þetta eru
yndislegar stundir og
gefa jafnt börnum sem
foreldrum og jafnvel
ömmum og öfum
ótrúlega mikið," segir
Ragnheiður Gestsdóttir.
Nú er nýkomin út bók
hennar Ekki á morgun,
heldur hinn... sem gefin
erút af Máliog
menningu. Bókin er
þannig uppbyggð, að í
henni eru 24 opnur með
jólaföndri og leikjum.
Lesendurfylgjast með
systkinunum Ingu og
Atla síðustu vikurnar
fyrirjólin og læra að búa
tilallskonarhluti með
þeim, jólakort,
jólaskraut, smákökur,
sælgæti og fleira.
Ragnheiðurteiknaði allar
myndirnar í bókina og
samdi textann.
„Ég vann bókina að
mestu leyti úti í Svíþjóð
síðastliðinn vetur, en þar
var maðurinn minn við
framhaldsnám í
skurðlækningum. Mig
hafði langað að gera
þetta í mörg ár, mér
hefur alveg fundist vanta
svona bækur á íslensku.
Mig langaði að gefa út
bók með föndri og
leikjum þar sem sýnt er
hvað hægt er að gera
og leyfa börnunum svo
að láta hugmyndaflugið
njóta sín. Ekki segja fyrst
á að gera þetta og svo
þetta, heldur láta börnin
um sköpunina," segir
Ragnheiður. Sjálf á hún
þrjú börn, þau Kolbrúnu,
Kára og Kjartan sem eru
tólf ára, átta ára og
tveggja og hálfs árs.
- Fékkstu hugmyndir
frá börnunum við gerð
bókarinnar?
„Já, það erekki hægt
aðneita því, þau hafa
tekið mikinn þátt í þessu
með mér. Við erum búin
að haldajól út affyrir
okkur í það mörg ár,
fjölskyldan, að hjá okkur
hafa mótast alveg fastar
jólahefðir eins og hjá
öðrum. Þetta föndur er
mikið af því sem við
gerum alltaf saman fyrir
jólin og sumt hef ég gert
frá því ég var barn. Þegar
Morgunblaðið/RAX
„Það hefur oft,
sérstaklega i seinni tfð,
verið talað með
einhverjum niðrandi
tóni um föndur, en að
búa til eitthvað fallegt
úrsvotil engu er
skemmtilegt og styrkir
krakka og sjálfsvitund
þeirra,“ segir
Ragnheiður
Gestsdóttir.
mitt framlag til að fá
fjölskylduna til að setjast
niður, ræða saman og
leika sér.“
- Erbókin þannig
uppbyggð að hún sé
aðgengileg fyrir börn á
öllum aldri?
„í bókinniernokkuð
um hluti sem lítil börn
geta gert, en þau Inga
og Atli sem fylgst er með
eru sex og níu ára gömul.
í raun geta börn frá fimm
ára og upp úr haft gaman
af þessu. Þau geta lært
einföld vinnubrögð af
bókinni og leikið sér svo
að því að spinna í
kringum hverja
hugmynd. Þegar um
minnstu börnin er að
ræða er það athöfnin
sjálf, að gera hlutinn sem
er aðalatriðið. Það skiptir
minna máli hvernig
útkoman verður, þau eru
alltaf jafn stolt og glöð.
Smátt og smátt verða
þau svo fær um vandaðri
vinnu. Það hefuroft,
sérstaklega í seinni tíð,
verið talað með
einhverjum niðrandi tóni
um föndur, en að búa til
eitthvað fallegt úr svo til
engu er skemmtilegt og
styrkir krakka og
sjálfsvitund þeirra. Svo
segir það sig sjálft að
krakkar sem teikna og
klippa mikið heima eru
fljótari til í mörgu sem
tengist skólanum. Þau
læra líka að einbeita sér
á þennan hátt, þannig
að þetta er ekki bara
gaman heldur gagnlegt
líka," segir Ragnheiður
að lokum.
EJ
smábarnalegar."
Ragnheiðursegist
hafa verið að teikna
alveg frá því hún man
eftir sér. „Enda er ekki
annað hægt í fjölskyldu
minni," segir Ragnheiður
hlæjandi, en foreldrar
hennareru
myndlistarmennirnir
Gestur Þorgrímsson og
Sigrún Guðjónsdóttir.
„Ég sagði í upphafi að
það sem ég væri að
reyna að gera með
þessari bók væri að fá
alla fjölskylduna til að
setjast niður og eiga
saman góða stund.
Þetta er nokkuð sem ég
var alin upp við. Ég verð
vör við það í kennslunni
að mikið er um að ekki
sé talað við börn og þau
vantar athygli. Ef
börnum er ekki gefinn
sá tími sem þau þurfa
og á þau er ekki hlustað
nægilega kemur það
niður á málþroska þeirra
sem og öllum almennum
þroska. Þessi bók er því
krakkarnir mínir sáu
bókina sögðu þau:
„Mamma, þetta erum
við! Manstu þegarvið
vorum að þessu?"
Ragnheiður er kennari
að mennt og hefur auk
þess lesið
bókmenntafræði og
listasögu í háskólum.
Hún kennir nú sex ára
gömlum börnum við
Æfinga- og tilraunaskóla
KHÍ. Undanfarin árhefur
hún unnið mikið við
myndskreytingar. Meðal
annarshefurhún
myndskreytt
endurútgáfu af
Dóru-bókunum eftir
ömmu sína, Ragnheiði
Jónsdóttur. Á síðastliðnu
ári tók hún þátt í
samkeppni sem haldin
var á vegum
Námsgagnastofnunar
og var meðal þeirra sem
þar unnu. í framhaldi af
því kom út bók hennar
Ljósin lifna fyrir jólin
1985. „Þetta var ífyrsta
skipti sem ég vann bæði
texta og myndir.
Hugsunin að baki
þessari samkeppni var
að fá texta fyrir börn sem
eru nýbyrjuð að lesa og
einnig þau sem eru
treglæs. Það hefur
vantað tilfinnanlega
bækur fyrir börn sem
þurfa einfaldan texta, þá
er ég að tala um bækur
sem höfða til þeirra. Það
er mikið atriði ef halda á
athygli barnanna að
bækurnar henti þeim, að
þær séu ekki of
í bókinni eru 24 opnur,
ein fyrir hvern dag
desembermánaðar.
Efni: Þunnur karton, gömul myndablöð, skæri, lím Nál og band eða heftari til að festa
saman í kjölinn.
12. desember
I dag eiga systkmin aö vera hjá ömmu rreðan mamma verslar i bænum Það er gaman
að vera hjá ömmu, henni dettur svo margt skemmtilegt i hug Núna dregur hún fram
xassa fullan af gömlum myndablöðum. auglýsingabæklingum og verðlistum. - Langar
ykkur að búa til myndabækur? segir hún - Þið gætuð notað þær sem jólagjafir handa
litlu frændsystkinunum Krakkarmr hefjast strax handa Siðumar I bókunum eiga að vera
úr kartonpappa. þá rifna þær siður Inga gerir bók handa Ósk litlu, frænku smni Hún
klippir út bæði myndi' og stafi, þvi ósk er að byrja að læra stafina A fyrstu siðu limir hún
stórt A og svo finnur hún mynd af appelsínu og sætum apa. sem hún limir líka á síðuna
Atli gerir bók handa Orra, sem er bara tveggja ára Hann hefur slðurnar í bókinni alla
vega litar og klippir út myndir af dýrum. fólki. bílum og leikföngum. Framan á bækurnar
skrifa þau svo nöfn krakkanna með bóxstöfum klipptum út úr blöðunum - Þetta verða
flottar bækur, segir Atli. Amma er lika ánasgð með árangurinn og hjálpar krökkunum að
sauma bækurnar saman i kjölinn