Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
3
h:
Kópavogur:
Fyrsta skóflustungan að lista-
safni Grerðar Helgadóttur
Teikningar af fyrirhuguðu
listasafni Kópavogs. Benj-
amín Magnússon arkitekt
teiknaði húsið.
SNORRI Helgason, bróðir
Gerðar Helgadóttur myndlist-
arkonu tók í gær fyrstu skóflu-
stunguna fyrir Listasafni
Kópavogs, sem bera mun nafn
Gerðar. Tíu ár eru frá því erf-
ingjar listakonunar gáfu
Kópavogskaupstað öll listaverk
sem í dánarbúinu voru með þvi
skilyrði að byggt yrði listasafn
er geymdi verk hennar og
sýndi.
„Sú ákvörðun erfíngjanna að
gefa Kópavogskaupstað öll lista-
verkin sýndi mikla viðsýni og ást
til látinnar systur," sagði Jón Guð-
laugur Magnússon í gær, en hann
gegndi lengst af formannsembætti
í lista- og menningamefnd og á
sæti í stjóm listasafnsins. Hann
gerði grein fyrir undirbúningi
framkvæmda og gat þess að bygg-
ingamefnd hefði fyrst komið
saman árið 1978. Náin samvinna
hefði verið höfð við ættingjana frá
upphafí og víða leitað ráða.
Væntanlegt listasafn mun rísa
á hæðinni gengt Félagsheimilinu,
skammt frá kirkjunni. Safnið verð-
ur á tveimur hæðum með tveimur
sýningarsölum á efri jarðhæð og
er áhersl lögð á jafna dreifíngu
ofanljóss yfír allt sýningarsvæðið.
A neðri jarðhæð verða málverka
og höggmyndageymslur, skrifstof-
ur og fleira. í fyrsta áfanga sem
boðinn hefur verið út er gert ráð
fyrir að ljúka jarðvinnu og steypa
sökkla. Byggingaráfangamir em
átta og er áætlað að safnið verði
fullbúið árið 1997. Kostnaðaráætl-
un listasafnsins samkvæmt verð-
lagi í nóvember 1986 er 77
milljónir króna. Áætlunin gerir ráð
fyrir að húsið verði fokhelt árið
1988 og verða listaverk Gerðar
Helgadóttur þá afhent Kópavogs-
bæ.
„Ég er mjög ánægður með að
það skuli vera byrjað á fram-
kvæmdum eftir öll þessi ár,“ sagði
Snorri Helgason, einn eftirlifandi
erfíngja Gerðar. „Þama em dug-
legir menn að verki en það gerist
ekki allt á einum degi og vil ég
færa Kristjáni Guðmundssyni bæj-
arstjóra serstakar þakkir fyrir
þann áhuga sem hann hefur ævin-
íega sýnt þessari byggingu."
Mn
skrauti og blómavörum.
Aðve%ytiiyamar
Aðventan hefst
30. nóvember. Gero
aðvenluskreytingaergoöur
siöur á mörgum heimilum
við upphat
jólaundirbúningsins.
|memKr"aðvenUiSkrey<Wa.
f^Ssunnudag
kl. 14-18.
X8QT
280T180.-
jt8u145.-
Jólastjaman
Hún er ómissandi á þessum árstrma.
Ótrúlega mikið úrval.
A tilboðsvetðimna
Blómstrandi Ástareldur
Nóvemberkaktus
Nóvemberkaktus
Jólaarænt-Cypris
Kertamarkaöur \
KertH þúsundatali, - hvergi meira urval. :
aólin byrja i Blómavali.
Pasr leiðbeina við gerð
aðventuskreytinga