Morgunblaðið - 22.11.1986, Síða 5
Ranns óknar st ofnun
fiskiðnaðarins:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER '1986
5
Grímur
sótti um
forstjóra-
stöðuna
EIN umsókn barst um stöðu for-
stjóra Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins, sem laus er frá
og með 1. desember.
Dr. Grímur Valdimarsson sótti
um stöðuna, en hann hefur verið
settur forstjóri þar undanfarin tvö
ár í stað Bjöms Dagbjartssonar,
alþingismanns. Bjöm hefur nú
fengið lausn frá störfum vegna
starfa sinna á Alþingi.
Gjafir til
Krabba-
meinsfé-
lagsins
Krabbameinsfélagi íslands hafa
borist peningagjafir í minningu
hjónanna Sigríðar Guðmunds-
dóttur og Guðmundar Eggerts-
sonar, sem bjuggu á Nýp á
Skarðsströnd í Dalasýslu.
Gjafimar em frá sonum þeirra
hjóna og teingdadætmm þeim Guð-
laugi Guðmundssyni og Jónu
Guðrúnu Stefánsdóttur, Gesti Guð-
mundssyni og Kristínu Katarínus-
dóttur. Með gjöfunum er þess
minnst að 100 ár em liðin frá fæð-
ingu Sigríðar Guðmundsdóttur og
95 ár frá fæðingu Guðmundar Eg-
gertssonar. Krabbameinsfélagið
færir hlutaðeigandi innilegar þakkir
fyrir þessar góðu gjafir.
Nýlega hlaut Krabbameinsfélag-
ið í arf eftir Oktavíu Sólborgu
Sigursteinsdóttur íbúð sem hún átti
á Hringbraut 111 hér í borg. Sól-
borg lést í júlí 1986, en erfða-
skránna gerði hún 1975. Hún átti
enga skylduerfingja á lífi.
(Úr fréttatilkynningu)
Vesturland:
Framsóknar-
menn leggja
fram lista
- Alþingismenn
skipa efstu sætin
FRAMBOÐSLISTI Framsóknar-
flokksins á Vesturlandi fyrir
alþingiskosningarnar vorið 1987
var samþykktur einróma á auka-
kjördæmisþingi í Borgarnesi
laugardaginn 15. nóvember.
Þetta er fyrsti framboðslistinn
sem lagður er fram í kjördæm-
inu.
Listinn verður þannig skipaður:
1. Alexander Stefánsson félags-
málaráðherra, Ólafsvík; 2. Davíð
Aðalsteinsson alþingismaður, Arin-
bjamarlæk; 3. Steinunn Sigurðar-
dóttir hjúkmnarfræðingur,
Akranesi; 4. Sigurður Þórólfsson
bóndi, Innri-Fagradal; 5. Jón
Sveinsson hdl. Akranesi; 6. Margrét
Magnúsdóttir húsmóðir, Hvítanesi;
Egill Ólafsson háskólanemi, Hunda-
stapa; ína Jónasdóttir húsmóðir,
Stykkishólmi; Kristján Jóhannsson
bifreiðarstjóri, Búðardal; 10. Guð-
rún Jóhannsdóttir húsmóðir,
Akranesi.
Komdu og ræddu málið, við náum saman. Tímabundið
tilboð til skóla, kennara og nemenda.
ENN EIGUM
VIÐ TÖLVUR
FYRIR ALLA
Hugbúnaður, prentarar, tölvuborð, diskettur o.fl. o.fl.
sem sagt allt sem þarf.
Staðgreiðsla — afborgunarskilmálar — kaupleiga
Hyggur þú á tölvukaup?
Veldu þá traustan samstarfsaðila
með reynslu á sínu sviði
GÍSLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16. Sími 641222.
Glerárgötu 20 Akureyri. Sími