Morgunblaðið - 22.11.1986, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÖVEMBER 1986
13
Myndræn atök
Myndlist
Valtýr Pétursson
í Vestursal Kjarvalsstaða er
Sigurður Örlygsson á ferð með
málverk, sem hann hefur unnið á
þessu ári. Þama eru 15 verk
máluð með olíulitum, og ýmislegt
annað er haft til að hressa upp á
myndbygginguna. Myndfletimir
em að vísu af nokkuð verklegri
stærðargráðu, en nægja auðsjá-
anlega ekki fyrir þau miklu
umsvif, er búa með listamannin-
um, sem sagt Sigurður sprengir
rammann og plastísk form ganga
út fyrir myndflötinn, eða réttara
sagt, sveifla sjálfs verksins er
ekki hamin innan hins venjulega
ramma.
Sigurður hefur sannarlega hog-
ið stómm á þessu ári, og afköst
hans em eftir því. Hann málar
af mikilli tilfínningu, þykkt og
safamikið, og litimir em látnir
leika eftir því lögmáli, sem á
vondu máli er nefnt malerískt.
Þessi stóm málverk Sigurðar
spegla ágætlega hæfileika, sem
þama em á ferð og gætu hæglega
þróazt enn sterkara í þá mynd-
bænu spennu, sem svo auðsæ er
í litameðferð Sigurðar í dag. Það
fer ekki milli mála, að hér er ung-
ur listamaður á ferð, sem tæki-
færin blasa við. Það mætti
auðvitað fínna eitthvað að mynd-
gerð Sigurðar, ef vel er leitað, en
mig langar aðeins til að varpa
þeirri spumingu fram, hvort þessi
málverk væm ekki sterkari, ef
öllu væri haldið innan rammans?
í heild em þessi málverk Sigurðar
þó svo vel unnin, að ég ætla mér
ekki að eltast við smámuni, sem
ég er ekki sammála Sigurði um.
Það er stórkostlega rúmt um þessi
15 málverk í Vestursalnum á
Kjarvalsstöðum, og hvert og ejtt
fær að njóta sín ágætlega. Ég
man ekki eftir að hafa séð mál-
verk fara öllu betur í þessum sal,
og það er hrein unun að valsa
þama um á milli málverka Sigurð-
ar. Að mínum dómi hefur Sigurð-
ur ekki komið jafn sterkur fram
sem málari áður, og ég get ekki
að því gert, að mér finnst það,
sem eftir Sigurð liggur frá þessu
ári, miklu fremra sem málverk
en það er hann hefur sýnt áður.
Sem sagt — það hafa orðið mikil
umskipti hjá Sigurði og það til
hins betra, svo mikil umskipti, að
þau komu mér skemmtilega á
óvart.
Þessi sýning Sigurðar Örlygs-
sonar hlýtur að skipa honum í
fremstu víglínu hjá hinum yngri,
og sýningin ætti að herða hann
sjálfan í sókn til meiri afreka.
Hann getur litið á verk sín í sam-
anburði við finnska liðið, sem er
með farandsýningu í Austursaln-
um, og verið alls óhræddur. Það
er mér mikil ánægja að geta skrif-
að eins og ég hér geri um Sigurð
Örlygsson, því að mér er kunnugt
um þann feikna áhuga, sem hann
hafði á myndlist hér áður fyrr,
er hann var enn yngri að árum
og ekki búinn að fara í gegnum
listaskóla hér heima né heldur í
Danmörku og Ameríku.
Sannarlega ánægjulegt að sjá
þessi nýju verk Sigurðar Örlygs-
sonar, og ég hvet alla þá, er áhuga
hafa á myndlist, til að sjá hinar
einstæðu sýningar Sigurðar og
Helga Gíslasonar, sem saman
fylla vesturhluta Kjarvalsstaða.
Sigurður Orlygsson
Opið til kl. 16 á
laugardögum
Vegna fjölda
áskorana höfum
við formlega haf-
ið söluáglugga-
tjöldum og
áklæðum frá
hinum heims-
þekktu og viður-
kenndu
vefnaðarverk-
smiðjum
Creation Baumann
SEM ER 100 ÁRA GAMALGRÓIÐ FYRIRTÆKI EN ÁVALLT Á UNDAN TÍSKUNNI
HJA
Baumann er í fararbroddi í hönnun, gæðum og framleiðslu gluggatjalda og ofinna áklæða
og veggefna. Úrvalið skiptir hundruðum lita. Um nokkurt skeið höfum við boðið
sérpantanaþjónustu fyrir arkitekta, hönnuði og einstaklinga, sem hafa haft
spurnir af Creation Baumann. Okkur finnst sjálfsagt að allir geti skoð-
að og keypt sér Baumann-gluggatjöld. Við tökum því áskorun
fjölmargra ánægðra viðskiptavina og bjóðum Baumann-
OKKUR NÁ GÆÐIN I GEGN! gluggatjöld i Teppalandi. Sýnishorn liggja frammi
til skoðunar. Guðrún Sigurðardóttir og aðrir
sölumenn Teppalands aðstoða við
valið. Veljið saman glugga-
tjöld og gólfteppi
Teppaland
GRENSÁSVEG113.108 R.. SÍMAR 83577 OG 83430
HRINGDU
in skuldfærð á
greiðslukortareikning
SÍMINN ER
691140 691141
T ækifæristékkareikningur
...með allt í einu hefti!
Stighækkandi
dagvextir
Mun betri ávöxtun á veltufé.
Á TT-reikningi Verzlunarbankans Af innstæðu að kr. 10.000.- reiknast
eru vextir reiknaðir af daglegri stöðu 3% dagvextir.
reikningsins í stað lægstu stöðu hvers Af innstæðu umfram kr. 10.000.-
tíu daga tímabils. reiknast 8,5% dagvextir.
Þú færð einnig stighækkandi vexti Af umsaminni lágmarksinnstæðu
með hækkandi innstæðu og auk þess reiknast 10,0% dagvextir.
geturðu ákveðið að hafa mánaðarlega
lágmarksinnstæðu á reikningi þínum
og fengið þannig enn hærri vexti.
VŒZlUNflRBflNKINN
-uúutwnMe&ftén!