Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Að óttast sjálfan sig
Opið bréf til Þorsteins Pálssonar
- frá Ásmundi
Stefánssyni
í könnun félagsvísindastofnunar
fyrir Morgunblaðið sem kynnt var
í síðustu viku kemur fram að fylgi
Sjálfstæðisflokksins hefur verulega
hrakað. Samkvæmt könnuninni
njóta stjómarflokkamir sameigin-
lega aðeins fylgis 51% kjósenda og
stjórnarandstaðan 48%. Atkvæða-
sókn fellur samkvæmt könnuninni
í skaut Alþýðuflokks og Kvenna-
lista.
Stjórn stjórnarand-
stöðuflokkanna
í setningarræðu þinni á flokks-
ráðsfundi sl. laugardag sem birt var
í Morgunblaðinu á sunnudag dróst
þú eftirfarandi ályktun: „Engum
vafa er undirorpið að kosningaúr-
slit í samræmi við niðurstöðu
síðustu könnunar myndu opna dyr
fyrir nýja vinstri stjóm. Ef Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar atkvæðum
yfír miðjuna til vinstri, verður ekki
séð hvemig vinstri flokkamir eiga
að komast hjá því að mynda nýja
stjóm, jafnvel þó þeir sjálfír hræð-
ist ekkert meira en að taka þannig
höndum saman, hræðist ekkert
meira en sjálfa sig."
Ný stjórn: A-flokkarnir
og Kvennalisti
Mér þykir líklegt að margir telji
það rétta ályktun af atkvæðasókn
stjómarandstöðunnar að hún freisti
stjómarmyndunar og skoðanakönn-
unin sýnir að hún þarf ekki að vinna
nema fá prósent í viðbót til að ná
meirihluta.
í ræðu minni á þingi Alþýðu-
flokksins fyrir stuttu hvatti ég
eindregið til aukins samstarfs Al-
þýðubandalags og Alþýðuflokks.
Þeir flokkar báðir hafa djúpar ræt-
ur í verkalýðshreyfingunni og hafa
haft forystu um félagslegar umbæt-
ur á liðnum árum. Ég minnti í ræðu
minni á að þessir tveir flokkar nytu
samkvæmt skoðanakönnun fylgis
30—40% kjósenda og með sam-
ræmdri sókn ættu þeir tvímælalaust
að geta náð hreinum meirihluta ein-
ir og sér. stjóm A-flokkanna sé því
raunhæft markmið.
í stjómmálaályktun miðstjómar-
fundar Alþýðubandalagsins um
fyrri helgi er tekið undir þessi við-
horf og hvatt til stjómar A-flokk-
anna og Kvennalista en félagsleg
viðhorf Kvennalistans skipa honum
eðlilega á bekk með A-flokkunum.
48% fylgi þessara flokka í skoð-
anakönnuninni sýnir að kosturinn
er raunhæfur. Skoðanakönnunin
sýnir að lq'ósendur vilja nýja stjóm.
Um það emm við greinilega sam-
mála.
Óttinn við sjálfan sig
Ég er þér sammála um að kjós-
endur vilja nýja stjóm. Þeirri
skoðun vex fylgi að rétt sé að ryðja
stjómarflokkunum úr sessi.
Þú ert greinilega ragur við
áframhaldandi setu Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjóm og reynir að
breiða yflr óttann með því að slá
því fram, án rökstuðnings, að
stjómarandstaðan hræðist stjómar-
myndun. Hver er hræddur við
sjálfan sig?
Að vísu er um margt ófýsilegt
að taka við reytum þinnar ríkis-
stjómar. En það em einmitt hin
mörgu óleystu vandamál sem kalla
á nýja stjóm. Ég trúi því að stjóm-
arandstaðan hafi kjark til að taka
við og þann jákvæða samstarfsvilja
em þarf til að fínna raunhæfar
lausnir. Áframhaldandi sókn stjóm-
arandstöðuflokkanna mundi þá
gera hvort tveggja í senn, að létta
af þér óttanum við úrræðaleysi og
gefa þjóðinni allri þá stjóm sem hún
þarf á að halda til að tryggja sókn
í atvinnumálum, bætt kjör, kjara-
jöfnun og aukið öryggi.
Góðærið og taxtaþjóðin
Þú talar um góðærið í setningar-
ræðu þinni og segir ráðstöfunar-
tekjur aldrei hafa verið hærri en
nú. Ekki er öllu logið í þessu efni
en það er nauðsynlegt að gera sér
grein fyrir því að tölumar sem vísað
er til fela óhugnanlegan raunvem-
leika.
Ráðstöfunartekjur heimilanna er
hugtak sem samsett er úr ýmsum
þáttum. Þannig hafa eignatekjur
vaxið vegna hærri vaxta og bókast
sú breyting sem tekjuaukning án
þess að tillit sé tekið til þess út-
gjaldaauka sem samhliða skellur
yfír. Tilfærslur hafa aukist vegna
fjölgunar lífeyrisþega og aukinna
greiðslna sem auðvitað er mikil-
vægt, en þær greiðslur koma ekki
í alla vasa.
Þú mundir efalaust ítreka að þó
tillit sé tekið til þessa sýni tölur að
kaupmáttur atvinnutekna sé svip-
aður og var árið 1980. Það hafa
flestir heyrt þig segja fyrr. Ég
vænti þess að fæstir hafl trúað
tölunum fyrir sig og sína.
Staðreyndin er sú að kaupmáttur
kauptaxta er enn nærri fjórðungi
lægri en var árið 1980. Hagdeild
ASÍ áætlar að um helming þess sem
á milli ber, um 12%, megi rekja til
aukinna yfírborgana sem hafa
gengið æði misjafnlega yflr. Um
6% telur hagdeildin að megi skrifa
á fjölgun fólks í starfl umfram
fólksQölgun, fyrst og fremst vegna
aukinnar atvinnuþátttöku giftra
kvenna. Um 3% megi skýra með
fjölgun fólks í ýmsum sérhæfðum
tekjuháum störfum og 3% með auk-
inni yfirvinnu.
Um tölumar má deila en þegar
málið er skoðað blasir kjaraskerð-
ingin ótvírætt við. Ymsir hafa hins
vegar bætt sér tekjutapið með auk-
inni vinnu, aðrir með auknum
yfirborgunum og jafnvel sumir með
hvoru tveggja. Fólkið á kauptöxtun-
um berum situr enn eftir. Taxta-
þjóðin þekkir lítið til góðærisins
nema af afspum. Þegar Sjálfstæð-
Ásmundur Stefánsson
isflokkurinn svarar kröfum þessa
fólks um aukinn kaupmátt með tilví-
sun til góðærisins er eðlilegt að það
ákveði að kjósa aðra flokka.
Ójöfnuður eða jöfnuður
Misgengi síðustu missera hefur
aukið illilega á ójöfnuðinn í þjóð-
félaginu. Brýnasta verkefnið í
íslenskum þjóðmálum er að bæta
þar úr. í kjarasamningum verða
lægstu launin að fá forgang. Það
verður að stokka upp launakerfin,
færa taxtana að greiddu kaupi og
hækka fastahlutann í bónuskerfun-
um. Skattkerflð verður að endur-
skoða, láta fyrirtækin borga meira,
koma á einföldum staðgreiðslu-
skatti og herða skatteftirlit. Bæta
þarf réttindi í veikindum, aðbúnað
aldraðra og svo mætti lengi telja.
Sérstaklega þarf að styrkja uppeld-
iskerfið því það fer ekki á milli
mála að aukið vinnuálag foreldr-
anna kemur niður á bömunum.
Góðæri aukinnar vinnu bitnar á
bömunum. Umhirðuleysi í þeim
efnum getur gefíð stundarhagnað
á kostnað framtíðar. Þjónusta þjóð-
félagsins verður að laga sig að
breyttum þjóðféiagsháttum. Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn lítur á ójöfn-
uðinn sem sjálfsagt mál og að einu
viðfangsefnin á félagslega sviðinu
sé að flnna hvar skuli skera er eðli-
legt að fólk halli sér að öðmm
flokkum.
Minni verðbólga
Þú þakkar ríkisstjóminni minnk-
un verðbólgu á þessu ári. Víst er
sanngjamt að þakka ríkisstjóm
þinni að hún skyldi ekki standa í
vegi þess að frumkvæði verkalýðs-
hreyfingarinnar við samningsgerð
næði fram að ganga og að batn-
andi ytri aðstæður nýttust til að
draga úr verðbólgu. Um frumkvæði
stjómvalda eða frumkvæðisleysi er
rétt að segja sem minnst, enda verð-
bólgan nú síðustu mánuði að sigla
upp. Þegar þessi árangur er það
eina sem Sjálfstæðisflokkurinn get-
ur hælt sér af er eðlilegt að fólk
horfí annað.
Atvinnuuppbygging
Við samfögnum góðu atvinnu-
ástandi víðast um landið. En er
staðan trygg. Með kvótasölu munu
margir bændur bregða búi og leita
til þéttbýlisins í önnur störf. Skipu-
lagslaus þróun af því tagi getur
valdið handahófskenndri eyðingu
byggðar. Á þéttbýlisstöðum lands-
byggðarinnar er framtíðin óviss.
Er líklegt að Reykjavík axli ein
atvinnuuppbyggingu komandi ára?
Þið í ríkisstjóminni teljið mark-
aðskerflð einfært um að leysa allan
vanda. Fmmkvæði hins opinbera
skal vera í lágmarki. Talsmaður
stjómvalda í Singapore, sem marg-
ir telja háborg markaðskerfísins,
var spurður að því hvort þeir tryðu
ekki á markaðskerfið, af hverju
stjómvöld byggðu iðngarða, rækju
víðtæka þjónustu við atvinnulífíð
og beinlínis stýrðu því í hvaða grein-
um atvinnuuppbygging yrði. Hann
sagði: „Við teljum markaðskerfíð
ágætt, en það væri of lengi að fínna
réttar lausnir ef það væri látið af-
skiptalaust. Ef við viljum ná ömm
hagvexti og tryggja velmegun í
framtíð verðum við að nýta öll
stjómtæki hins opinbera." Þegar
Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn
kaþólskari en páflnn er ekki að
undra að fylgið færi sig frá.
Öflug atvinnuuppbygging kallar
á opinbera stefnumörkun og mark-
vissa eftirfylgni. Við verðum að
leita uppi öll tækifæri og beita öllum
tiltækum ráðum til þess að nýta
þau til atvinnuuppbyggingar.
Fmmkvæði stjómvalda skiptir
sköpum. Fólkið leitar til flokka sem
það telur líklega til raunhæfs fmm-
kvæðis. Fólk óttast ekki að stjómar-
andstöðuflokkamir kæfí einka-
reksturinn heldur trúir þvert á
móti að þeir muni búa honum eðli-
leg vaxtarskilyrði.
Að lifa í sátt við
þjóð sína
Það er eðlilegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn missi atkvæði til vinstri.
í augum almennings er Sjálfstæðis-
flokkurinn að fá skýrt yfirbragð
þess frjálshyggjuboðskapar að
hvergi megi verja þá einstaklinga
sem verða fyrir áföllum í hringrás
markaðskerfísins. Fólk sættir sig
ekki við kjörorðið „hver skal hugsa
um sig og gefa skít í hina“.
Almenningur hefur þá tilflnningu
að Sjálfstæðisflokkurinn vilji láta
sjúklinga borga fyrir sig sjálfa,
skólanema greiða skólakostnað
o.s.frv. o.s.frv. Almenningur hefur
þá tilfinningu að í samskiptum á
vinnumarkaði standi Sjálfstæðis-
flokkurinn með atvinnurekendum
gegn kröfum verkafólks. Almenn-
ingur hefur þá tilfinningu að Sjálf-
stæðisflokkurinn vilji ekki opinber
afskipti til eflingar atvinnulífs og
þegar að utanríkismálum kemur sé
hvergi hugsað heldur aðeins spurt:
„Hvað segir Reagan?" Hver ríkis-
stjóm verður að lifa í sátt við þjóð
sína og það gerir ríkisstjóm Sjálf-
stæðisflokksins ekki í augum
almennings. Því þarf enginn að
vera hissa á því að fólk segi: „Ég
vil nýja stjóm. Ég vil að stjómar-
andstaðan taki við, því hún er
líklegri til að stjóma í samræmi við
minn vilja. Það þarf nýja stjóm til
þess að tryggja okkur öllum það
þjóðfélag framfara, jafnaðar og
öryggis sem við viljum búa í.“
Þó atkvæðin hafí enn sem komið
er fyrst og fremst færst til Al-
þýðuflokksins trúi ég því að þau
séu á traustri leið lengra til vinstri
því hveijum og einum er augljóst,
þegar hann hugsar í ró og næði,
að án sterks Alþýðubandalags verð-
ur ekki kraftur í nýrri stjóm og
óvíst að hún verði að raunveruleika.
Með ósk um náðuga daga.
Höfundur er forseti Alþýðusam-
bands íslands.
Atvinnuhúsnæði hækkar
meira en íbúðarhúsnæði
SÖLUVERÐ atvinnuhúsnæðis á
höfðuborgarsvæðinu á fyrri
hiuta þessa árs hefur hækkað
meira en byggingarvísitala frá
árinu 1985. A sama tima hækk-
aði íbúðaverð mun minna. Frá
siðasta ársfjórðungi 1985 fram í
annan ársfjórðung 1986 hækkaði
söiuverð atvinnuhúsnæðis i
Reykjavík um 23%. Undanfama
mánuði hefur verðið hins vegar
lítið breyst.
Ofangreindar upplýsingar koma
fram í grein í Fréttabréfl Fasteigna-
mats ríkisins og þar segir ennfrem-
ur að undanfarin ár hafí sveiflur á
söluverði íbúða annars vegar og
atvinnuhúsnæðis hins vegar ekki
haldist í hendur og að margt bendi
til að atvinnuhúsnæði lúti að ein-
hveiju leiti öðmm lögmálum en
íbúðarhúsnæði.
í áðumefndri grein kemur fram,
að söluverð atvinnuhúsnæðis sé
afar breytilegt. Fari það til dæmis
eftir gerð húsnæðis, staðsetningu
og hvemig það henti kaupendum.
Hækkanir á söluverði atvinnuhús-
næðis haldist ekki endilega í hendur
við við verðhækkanir íbúðarhúsa.
Þá vom greiðslukjör einnig fjöl-
breytt og ekki hægt að tala um að
fastar venjur hafl ríkt í þeim efnum.
Meðalútborgun var 40% af sölu-
verði og hefur hún farið lækkandi
undanfarin ár þegar á heildina er
litið, að því er segir í Fréttabréfl
Fasteignamatsins.
Mikið úrval
af giafavöram
og vína ii
til ættingja
og utan...
Sendum um allan
Opið í dag
frá kí. 9-16
Við göngum frá og sendum
jólapakkana um allan heim.
Allar sendíngar.
eru fulltryggðar
yður að kostnaðarlausu.
RAMMAGERÐ1N
HAFNARSTRÆT119