Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Rekinn fyrir að
spyrja Reagan
Washing^ton, AP.
FRÉTTAMAÐUR ríkisútvarps-
ins Radio Marti hefur verið vikið
úr starfi fyrir að beina spurning-
um til Ronalds Reagan, Banda-
ríkjaforseta, á blaðamannafundi
hans í Hvíta húsinu á miðviku-
dag.
Annette Lopez-Munos, braut
gamla hefð um að fréttamenn ríkis-
rekinna stöðva varpi ekki fram
spumingum á formlegum blaða-
mannafundum forsetans.
Á fundi forsetans á miðvikudags-
kvöld lagði ungfrú Lopez-Munos
tvær spumingar fyrir forsetans.
Daginn eftir ákváðu yfirmenn henn-
ar að víkja henni úr starfí. Hún
starfaði á Radio Marti, sem er deild
útvarpsstöðvarinnar VoiceofAmer-
ica. Radio Marti sendir út á
spænsku og er útsendingum stöðv-
arinnar einkum beint til Kúbu.
*
Norður-Irland:
Skæruliðar halda
vopnasýningu
Belfast, AP.
HINN útlægi Þjóðfrelsisher ír-
lands (INLA) hélt í gær leynisýn-
ingu á vopnum sínum. Skærulið-
arnir sýndu þarna vélbyssur, sem
nota má til að skjóta niður flug-
vélar, og tölvukanna til að hlera
leynileg skeyti, sem breskar og
írskar öryggissveitir senda á
milli sín.
INLA sýndi blaðamönnum vopna-
búnað sinn í suðurhluta Armagh,
skammt norður af landamærum
Norður-írlands að írska lýðveldinu.
Viðstaddir blaðamenn sögðu að
skæruliðamir hefðu bandarískar
vélbyssur af M16 gerð undir hönd-
um. Þessar byssur em búnar
miðunartækjum með leysigeisla og
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
GENGI Bandaríkjadollara hækk-
aði í gær gagnvart öllum helstu
gjaldmiðlum heims.
í gær kostaði dollarinn 163,25
japönsk jen (162,65) þegar gjald-
eyrisviðskiptum lauk í Tókýó.
Breska sterlingspundið hækkaði
lítillega gagnvart dollara og kostaði
1,4150 dollara (1,4110) síðdegis í
gær í London.
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var á þann veg að dollarinn kost-
aði: 2,0175 vestur-þýsk mörk
(2,0070), 1,6835 svissneska franka
(1,6688), 6,6055 franska franka
(6,5675), 2,2885 hollensk gyllini
(2,2655), 1.397,20 ítalskar límr
(1.394,00) og 1,3868 kanadiska
dollara (1,3848).
Trójuúnsa af gulli kostaði 379,50
dollara (389,30) í London í gær.
má nota þær til að skjóta niður
þyrlur og flugvélar í lágiflugi.
INLA er flokkur skæmliða, sem
stendur lengst til vinstri og klofn-
aði frá Irska lýðveldishemum.
INLA vakti fyrst athygli og óhug
1979 þegar félagar samtakanna
myrtu Airey Neave, stjómmála-
mann úr flokki íhaldsmanna, með
bílsprengju við neðri málstofuna í
London. Þetta var skömmu áður
en útnefna átti Neave írlandsmála-
ráðherra bresku stjómarinnar.
Patrick McArdle var einn blaða-
mannanna, sem fóm á vopnasýn-
inguna. Hann sagði að bundið hefði
verið fyrir augu blaðamannanna
áður en farið var með þá á fundar-
staðinn.
Blaðamennimir sáu einnig
skæmliða æfa sig á götu. Höfðu
þeir riffla af nýjustu gerð, þ.á m.
sovéska AK47 riffla, Kmger riffla,
og Heckler og Kock riffla. Einnig
höfðu þeir Uzi-vélbyssur frá ísrael.
Voyager, sem smíðaður hefur verið sérstaklega fyrir hnattflug í einum áfanga. Reynsluflug tókst með
ágætum á fimmtudag og verður lagt upp í hnattflugið nk. föstudag frá Kaliforníu.
Voyager í hnatt-
fhig í nóvemberlok
Mojave, AP.
REYNSLUFLUG fisléttrar flug-
vélar, sem ætlað er að fljúga í
einum áfanga umhverfis jörðina,
gekk að óskum í gær. Akveðið
var að reyna hnattflugið 28. nóv-
ember.
í reynslufluginu var reynd ný
skrúfa og er nýting eldsneytis 13%
betri með tilkomu hennar. Það sam-
svarar 13% meira flugþoli, sem
komið getur sér vel ef flugmennim-
ir lenda í mótvind í hnattfluginu.
Áður vom tréskrúfur á flugvélinni
en spmnga kom í aðra þeirra í
reynsluflugi 30. september.
Flugvélin, sem nefnd hefur verið
Voyager, var sérstaklega hönnuð
til hnattflugsins. Er hún nánast
einn eldsneytistankur. Vegur hún
tóm 1.180 kíló en fullhlaðin 4.355
kíló. Tveir flugmenn, Dick Rutan
og Jeana Yeager, munu skiptast á
að fljúga henni í hnattfluginu.
Ætlunin er að það taki 10-12 daga.
Hvergi verður höfð viðkoma á leið-
inni. Lagt verður af stað frá Kali-
forníu og flogið réttsælis umhverfís
jörðina.
Thatcher
hættir við
skatta-
lækkun
London, Reuter.
NIGEL Lawson, fjármálaráð-
herra, sagði í gær að ekki yrði
hægt að efna loforð um skatta-
lækkanir vegna aukningar á
ríkisútgjöldum.
Lawson tilkynnti fyrr í mánuðin-
um að ríkisútgjöld myndu hækka á
næsta ári. Stjómarandstaðan segir
að þar sé um kosningafjárlög að
ræða. Stjómin hafði lofað kjósend-
um 25% lækkun á tekjuskattinum,
sem er 29%, en nú hefur Lawason
tekið af öll tvímæli. Skattalækkunin
kemur ekki til greina vegna hækk-
unar ríkisútgjalda.
Bretland:
Herferð gegri alnæmi
„Deyið ekki ur þekkingarleysiu
Chrís Buckland, The Observer.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að senda öllum heimilum í Bretlandi bækl-
ing um hættuna af alnæmi Þá eru yfirvöld að íhuga að dreifa
einnig verjum án endurgjalds — og sprautum fyrir eiturlyfjaneyt-
endur — til að reyna að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins.
Þessar fyrirætlanir vom kynnt-
ar í London 11. nóvember sl. að
loknum fyrsta fundi sérstakrar
stjómskipaðrar nefndar sem ætl-
að er að takast á við sjúkdóminn.
Að fundinum loknum skýrði
Norman Fowler félagsmálaráð-
herra frá því hvemig hann teldi
bezt að forðast veimna, sem þeg-
ar hefur valdið dauða 278 manns
í Bretlandi og sýkt að minnsta
kosti 30 þúsund aðra.
Ráðleggingar Fowlers vom
þessar:
Stundið ekki lauslæti.
Haldið ykkur við einn maka, en
notið veijur ef ykkur reynist það
ofviða.
Sprautið ykkur ekki með eiturlyfj-
um, en ef þið getið ekki hætt
þá. . .
Deilið ekki sprautum með öðmm.
Tuttugu og þremur milljónum
eintaka af bæklingi er ber heitið
„AIDS: Don’t die of ignorance"
(Alnæmi: Deyið ekki úr þekking-
arleysi) veður dreift til heimila
um allt land auk þess sem efnt
verður til mikillar auglýsingaher-
ferðar í sjónvarpi.
„Ég vona að þetta verði nógu
greinargott," segir Fowler ráð-
herra. „Við viljum gera öllum ljóst
að karlar og konur geta gripið til
aðgerða sem hefta útbreiðslu al-
næmis hér á landi.
Við munum gera allt sem í
okkar valdi stendur til að koma
upplýsingunum á framfæri, en
ljóst er að það er almenningur sem
verður að grípa til gagnaðgerða."
Sérstökum upplýsingum verður
beint til unglinga, eiturlyfjaneyt-
enda og annarra áhættuhópa.
Fowler benti á að: „vandamálið
hverfur ekki af sjálfu sér.“ Hann
sagði að sjúkdómurinn gæti hetj-
að í Bretlandi næstu tíu til
fimmtán árin, eða það sem eftir
væri aldarinnar, en Bretar hefðu
bolmagn til að fást við hann.
I stjómskipuðu nefndinni —
sem er undir forsæti Whitelaw
lávaðar og aðstoðar-forsætisráð-
herra — eiga sæti innanríkisráð-
herrann, utanríkisráðherrann,
vamarmálaráðherrann og
menntamálaráðherrann auk Fow-
lers.
Samkvæmt upplýsingum Al-
þjóða heilbrigðismálastofnunar-
innar, WHO, er Bretland í 11.
sæti á lista yfir þau ríki heims
þar sem útbreiðsla alnæmis er
mest á hveija 100.000 íbúa. í
efstu sætunum eru Kanada,
Bandaríkin og Sviss. (ísland er
einnig á þessum lista í 8. sæti
innsk.) Heilbrigðis- og félags-
málaráðuneytið hefur einnig birt
skýrslu þar sem fram kemur að
sjúkdómurinn er fjórum sinnum
útbreiddari í London og nærliggj-
andi sveitum en í öðrum héruðum
landsins. Utan höfuðborgarinnar
eru sjúkdómstilfellin flest í Yorks-
hire, Liverpool og nágrenni, og í
norð-vesturhéruðunum, 45 á
hveiju svæði. í þessari skýrslu
ráðuneytisins er því spáð að innan
sex ára muni hver einasta fjöl-
skylda í Bretlandi þekkja til
einhvers sem haldinn er eyðni.
Fjöldi alnæmis-sjúklinga tvö-
faldast í Bretlandi á hveiju tíu
mánaða tímabili eins og er, og
sjúkdómurinn er nú álíka út-
breiddur þar og hann var í
Bandaríkjunum fyrir aðeins fimm
árum.
En þessi herferð ríkisstjomar-
innar nægir ekki til að hefta
útbreiðsluna, segir Michael Meac-
her, talsmaður stjómarandstöð-
unnar í heilbrigðismálum.
Hann segir að að þær 6,5 millj-
ónir punda (um 380 milljónir
króna) sem veittar voru í desem-
ber í fyrra séu „smáræði". Og
hann bætti því við að framlag
ríkisins til baráttunnar gegn al-
næmi væri út í hött. „Dráttur eða
fjársvelti í sambandi við fyrir-
byggjandi aðgerðir, ráðgjöf og
rannsóknaraðstöðu væri spamað-
ur á gróflega röngum forsend-
um,“ sagði hann.
Meacher hefur sent Thatcher
forsætisráðherra bréf þar sem
hann krefst þess að á næsta ári
verði 50 til 100 milljónum punda
(um 3 til 6 milljörðum króna)
varið í þessu skyni. Skoraði hann
á stjómina að gefa skýrslu um
málið og að efnt yrði til sérstakr-
ar umræðu um það í Neðri
málstofu þingsins.
Hann sagði að veijur væm
bezta vömin gegn því að alnæm-
is-veiran bærist manna á milli og
hvatti til þess að læknar og heilsu-
gæzlustöðvar dreifðu þeim
ókeypis. Þá sagði hann einnig að
veita ætti þeim sem þyrftu aðgang
að lyfjasprautum þær án endur-
gjalds.
Og hann krafðist þess að kom-
ið yrði á fót víðtæku læknisskoð-
unarkerfl þar sem nafnleynd væri
tryggð, og bætti við: „Sérstaka
áherzlu verður að leggja nú þegar
á upplýsingaherferð sem beint
verði að skólanemendum og þeim
sem eru að hætta námi til að
tryggja að öllum á þessum aldurs-
skeiðum séu ljósar hættumar."