Morgunblaðið - 22.11.1986, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
43
Stjörnu-
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Um karl og konu
í dag ætla ég að fjalla um
merkin útfrá kynjaskiptingu.
Þegar fjallað er um eðli
stjömumerkja er yfirleitt ein-
ungis gefin ein iýsing á
hveiju merki, burtséð frá því
hvort viðkomandi aðili sé
karl eða kona. Þó það sé rétt
að hvert merki hafi ákveðna
grunneiginleika og skiptir þá
kynjaskipting engu, sýnir
reynsla okkar að karlmenn
og kvenmenn þroska mis-
munandi eiginleika í fari
sínu.
Tilfinningar
ogkapp
Við skulum taka Sporðdreka
sem dæmi og skoða tvo ein-
staklinga í merkinu, karl og
konu. Við vitum að Sporð-
drekinn er tilfinningamerki
og jafnframt að stjómandi
hans er athafna- og keppnis-
plánetan Mars. Hvemig
skyldi þetta birtast hjá karl-
manni og kvenmanni?
Uppeldi
Stjömuspekingar segja að
stjömukortið sýni upplag
mannsins og að síðan þurfum
við að skoða uppeldi og um-
hverfisáhrif. í þessu tilviki
þurfum við að skoða það
hvemig þjóðfélagsviðhorf
móta uppeldi karla og
kvenna.
Kaldur karl
Við getum sagt í grófum
dráttum að uppeldi karla
miði að því að efla styrk
þeirra, ákveðni, dugnað og
getu til að takast á við ytri
vemleika Kfsins. Þeir eiga að
vera fyrirvinna heimila og
þurfa að vera hæfir til að
draga björg í bú. Þeir þurfa
því m.a. að beijast um góða
stöðu í Iffinu. Allir eiginleikar
sem ganga þvert gegn þessu
geta því verið ósækilegir.
Mjúk kona
Hins vegar er ætlast til þess
af konunni að hún ali upp
böm og sjái um heimili. Hin
dæmigerða kona á að vera
tilfinningarík, mjúk og gef-
andi o.s.frv.
Ólík framhliÖ
Við sjáum af framantöldu
hvað getur gerst þegar við
höfum tvo Sporðdreka af sitt
hvora kyni. Karlinn þroskar
Mars hlið merkisins, þann
ákafa, karft og einbeitingu
sem býr f merkinu, en neitar
að viðurkenna tilfinningahlið
þess. Hún er fyrir honum.
Konan eflir aftur á móti til-
finningalegan næmleika sinn r
og innsæi. Hún finnur sér
hag f þvf að vera tilfinninga-
rík og góður sálfræðingur,
einfaldlega vegna þess að
uppeldi bama hennar getur
krafist þess. Því er lfklegt
að hún þroski tilfinningahlið
merkisins en láti annað liggja
á milli hluta.
Kartdreki
Á þessu sjáum við að f raun
er æskilegt þegar við tölum '
um Sporðdreka og vel að
merkja önnur merki, að gera
greinarmun á því hvort er
rætt um karl eða konu. Und-
irritaður er sannfærður um
að báðir þættimir, tilfinn-
ingasemi og kapp plánetunn-
ar Mars búi f báðum kypjum.
Uppeldi og rfkjandi þjóðfé-
lagsviðhorf gera einungis að
ólíkur flötur fær að snúa út
á við. Þangað til kvennabar-
átta skilar betri árangri
ættum við þvf kannski að
tala um kvensporðdreka og
karldreka þegar við ræðum
um sporðdrekamerkið. En
gera okkur jafnframt grein
fyrir að hin hliðin býr innra.
X-9
■He Y&pt/, *».. t/—
&jm/# woTkeysr
/KKafí, Mt'!
GRETTIR
TIL HAMINGJU, GRETTIR'
5Uð&, HVENÆR
ÉG NÝTU KAF-
HUÖPURNAR
/Íeinna)
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
1 77 ... 1 / . . . V / W.. - ...
/ / L 7= CCDHIM AMH
; W~\ 7P7" IV J L/\j w u —— «-1 -— rcKUIIMMIMU
. ; ; ; ; ;; ;;■;;; ;■
SMAFOLK
THE5E ARE
CAM0UFLA6E 50ITS...
IF VOU UJEAR A
CAM0UFLA6E SUIT, NO
ONE CAN SEE VOU.. i
1
l‘VE SPENT ALL MY LIFE
TRYIN6 TD 5E 5EEN,
ANP NOW TUEV bJANT
ME NOT TO BE 5EEN ?!
Hvers konar föt eru þetta?
Mér finnst ég hlægilegur!
Þetta eru feluföt
Ef maður fer i feluföt get-
ur enginn séð mann ...
Ég er búinn að eyða allri
ævinni i að reyna að láta
taka eftir mér og nú vijja
þeir gera mig ósýnilegan.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Patrick Jourdain heitir kunn-
ur bridsskriffinnur. Hann býr í
Wales og ritstýrir þaðan alþjóð-
legu riti bridsblaðamanna.
Jourdain er ágætur skríbent, en
hann er líka nokkuð glúrinn spil-
ari, að minnsta kosti ef marka
má handbragð hans i þessu spili:
Norður
♦ K1094
¥62
♦ 73
♦ ÁK985
Vestur Austur
♦ G7 ♦ 852
¥ KG973 ¥ D8
♦ GIO ♦ 9842
♦ D1073 +G642
Suður
♦ ÁD63
¥ Á1054
♦ ÁKD65
♦
Ef Jourdain og félagi hans
hefðu lent í sex spöðum hefði
þetta spil aldrei varðveist. Jour-
dain þurfti sem sagt að glfma
við sex tígla í suður með tígul-
gosanum út.
Hann byijaði á því að takat
þrisvar tígul og uppgötva þar
með að þar var óhjákvæmilegur
tapslagur. Og annar ámóta óhjá-
kvæmilegur virtist vera á hjarta.
En þá rifjaði kappinn upp
tvær „bókabrellur" — innkomu-
svíningu og undanbragð! Hann
spilaði næst litlum spaða og
svínaði níu blinds! Tók svo ÁK
í laufi, henti hjörtum og tromp-
aði lauf:
Norður
♦ K104
¥6
♦ -
♦ 98
Vestur Austur
♦G ... ♦ 85
¥KG97 ¥ D8
♦ - ♦Ð
♦ d +g
Suður
♦ ÁD6
¥Á10
♦ 6
♦ -
Næst var spaðadrottning yfir-
drepin með kóng blinds og lauf
aftur trompað. Laufnían var nú
orðin frí og lokahnykkurinn var
að fara inn á blindan á spaða-
kóng og spila henni.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á opnu móti f Wuppertal f
V-Þýskalandi í haust kom þessi
staða upp f skák V-I>jóðveijanna
Behle, sem hafði hvítt og átti '
leik, og Schwamberger:
22. Hxd4! (En alls ekki strax .
22. Dh8+? - Bxh8, 23. Hxh8+
- Kg7, 24. Hxd8 - Hc2+, 25.
Kbl - Bf5!) - cxd4, 23. Dh8+!
- Bxh8, 24. Hxh8+ - Kg7,
25. Bxd4+ - f6, 26. Hxd8 og
hvítur vann auðveldlega. (26. —
Kf7, 27. Bxf6 - Bb7, 28. Hd7+
- Kc6, 29. Rb6! - Kf5, 30.
Hxb7 O.s.frv.)