Morgunblaðið - 22.11.1986, Page 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 1986
Opið í
frákl.9-16
Sendtim um
aUan
Allar sendingar
eru fulltryggðar
yður að
kostnaðarlausu
RAflMAGERÐIN
HAFNARSTRÆTI 19
Augýsingar 22480
Afgreiðsla 83033
Dagbókog minningargreinar .... .. 691270
Erlendaráskriftir . 691271
Erlendar fréttir .. 691272
Fréttastjórar .. 691273
Gjaldkeri .. 691274
Hönnunardeild .. 691275
Innlendarfréttir .. 691276
íþróttafréttir .. 691277-
Ljósmyndadeild .. 691278
Prentsmiðja .. 691279
Símsvarieftirlokunskiptiborðs .. .. 691280
Tæknideild .. 691281
Velvakandi .. 691282
Verkstjóraríblaðaafgreiðslu .. 691283
Viðskiptafréttir .. 691284
Kynningarfundur:
Hvernig starfar Rauði krossinn?
Rauði krossinn starfar í 144 löndum heims. Innan vé-
banda Rauða krossins eru um 250 milljónir manna.
Rauði kross íslands var stofnaður 1924 og eru félags-
menn nú um 20.000 í 48 deildum um allt land.
Á verkefnaskrá félagsins er m.a. þetta:
Sjúkraflutningar
Skyndihjálp
Hjálpartækjabanki
Múlabær
Blóðsöfnun
Öldrunarmál
Starfsþjálfun fatlaðra
Neyðarvarnir
Sjúkrahótel
RKÍ-hús fyrir æskufólk
Hlíðabær
Unglingamál
Sjálfboðastörf
Alþjóðamál
Kynningarfundur verður haldinn í fundarsal félagsins
að Nóatúni 21 miðvikudaginn 26. þ.m. kl. 20.15—22.
30 og er dagskráin þessi:
Ávarp formanns RKÍ Guðjóns Magnússonar.
Almennt um starfið — Jón Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri RKÍ og fleiri. Kvikmynd og kaffi. Umræður.
Nýir félagar fá barmmerki félagsins og RKÍ-fréttir
o.fl. Árgjaldið er 400 krónur. Vinsamlega tillkynnið
um þátttöku í síma 26722 (Anna).
Verið velkomin.
AP/Símamynd
• Kanadamaðurinn Dusco Dan Markovic veltir bíl f keppninni um titilinn „sterkasti maður heims“. Jón
Páll Sigmarsson varð þriðji f þessari grein, en það kom ekki i veg fýrir glæsilegan sigur hans í keppninni.
Sterkasti maður heims:
Jón Páll Sigmarsson
endurheimti titiiinn
JÓN Páll Sigmarsson sigraði í
keppninni „sterkasti maður
heims“, sem lauk í Nice i Frakk-
landi i gær. Jón Páll sigraði í 4
greinum, varð í 2. sæti í þremur
og hafnaði í 3. sæti i einni grein.
Hann hlaut samtals 59 stig, en
Bretinn Geoff Capes, sem sigraði
f keppninni í fyrra, fékk 54 stig.
Keppnin tók þrjá daga. Á mið-
vikudaginn varð Jón Páll í 2. sæti
í trukkadrætti og munaði aðeins
tveimur sekúndubrotum á honum
og Capes. Jón Páll sigraði hins
vegar í sekkjaþraut, sem var erfið-
asta greinin í keppninni. Fyrst var
50 m hlaup með 90 kg sekk og
síðan 200 kg sekkur dreginn sömu
leið til baka. Að fyrsta keppnisdegi
loknum voru Jón Páll og Capes
jafnir og efstir með 15 stig.
Annan daginn sigraði Jón Páll í
steinalyftu, varð annar í kross-
festingalyftu og hafnaði í þriðja
sæti í að velta bíl. Eftir fimm grein-
ar hafði Jón Páll 36 stig en Capes
33 stig.
í gær var keppt í þremur grein-
um og sigraði Jón Páll í réttstöðu-
lyftu og tunnuhleðslu, en varð
annar í reiptogi, og endurheimti
þar með titilinn „sterkasti maður
heims".
Hjalti Árnason og Valbjörn Jóns-
son aðstoðuðu Jón Pál í keppninni,
en þetta var í fyrsta skipti, sem
hann hafði með sér aðstoðar-
menn. Jón Páll er 26 ára og 125
kg að þyngd.
íþróttir helgarinnar:
Hafnarfjarðarliðin
mætast íhandknattleiknum
ÞAÐ veröur ekki mikið um aö vera
í 1. deildinni f handknattleiknum
um þessa helgi enda tvö liö að
keppa f Evrópukeppninni. Tveir
leikir verða þó í dag. Hafnarfjarö-
arliðin, FH og Haukar, mætast f
Hafnarfirðinum klukkan 14 f dag
og hálfri klukkustund fyrr leika á
Akureyri lið KA og Ármanns.
í 1. deild kvenna eru tveir leikir
í dag. Stjarnan og FH leika í Digra-
nesi klukkan 14 og klukkan 15.15
GRINDAVÍK vann Þór 77:72 f 1.
deild karla f körfuknattleik í
Grindavfk f gærkvöldi eftir að
staðan hafði verið 37:35 í hálfleik.
Grindvíkingar höfðu frumkvæð-
ið nær allan leikinn og náðu mest
9 stiga forystu um miðjan fyrri
hálfleik, en Þór náði að saxa á for-
skotið fyrir leikhlé.
Baráttan hélt áfram í seinni hálf-
leik og um miðjan hálfleikinn
jöfnuðu gestirnir og komust tvö
stig yfir, en góður endasprettur
leika í Seljaskóla Víkingar og Vest-
mannaeyingar.
Körfuknattleikur
Tveir leikir eru í úrvalsdeildinni á
morgun en engir körfuknattleiks-
leikir eru í dag. Fram mætir ÍBK í
Hagaskólanum klukkan 14 á morg-
un og klukkan 20 leika þar KR og
Haukar. Það gæti orðið fróðleg við-
ureign því Jón Sigurðsson núver-
andi þjálfari Hauka var áður
heimamanna nægði þeim til sig-
urs.
Hjálmar Hallgrímsson var best-
ur hjá UMFG og fór á kostum í
lokin, en hann skoraði 24 stig.
Rúnar Árnason skoraði 16 stig og
Dagbjartur Willardson 11 stig.
Hjá Þór var ívar Webster bestur
að vanda og skoraði 26 stig. Bjarni
Össurarson skoraði 23 stig og
Konráð Óskarsson 15 stig.
Kr.Ben.
leikmaður og þjálfari KR-inganna.
Hjá konunum eru einnig tveir
leikir. Haukar og ÍBK leika klukkan
14 á morgun í Hafnarfirði og klukk-
an 15.30 leika ÍR og ÍS í Seljaskóla.
Á undan þeim leik er stórleikur
í 1. deild karla. Þá eigast við ÍR og
Þór frá Akureyri og hefst leikurinn
klukkan 14. ÍR átti að leika við ÍS
en þeim leik hefur verið frestað þar
til 2. desember.
Blak
Þrír leikir eru í karlablakinu í dag
og einn hjá konunum. Fram og HK
leika í Hagaskólanum klukkan 14
og strax að þeim leik loknum leika
ÍS og Víkingur en síðasti leikurinn
í Hagaskóla er á milli ÍS og HK í
kvennaflokki oa hefst hann um
klukkan 16.30. A Neskaupstað leika
heimamenn við KA frá Akureyri og
hefst sú viðureign kiukkan 16.
Badminton
UM helgina fer fram Jafnréttis-
mót hjá TBR og er leikið í dag og
á morgun.
Pílukast
Fyrsta íslandsmótinu í pílukasti
verður fram haldið í dag og á morg-
un en keppnin hófst í gærkvöldi. í
dag er keppt í undanrásum en úr-
slitin verða á morgun. Keppnin fer
fram í Ballskák við Skúlagötu.
Körfuknattleikur- 1. deild:
Grindavík vann Þór