Morgunblaðið - 28.11.1986, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
B 3
en þegar farið er út að borða þá
gera þær undantekningu og þær
mæta einungis með síkt sem vilja.
Hvað skyldu þær svo ræða í
teboðunum? „Umræðuefnið er alla
jafna mjög menningarlegt og fræð-
andi," upplýsir ein úr hópnum en
það hljómar þó ekki mjög sannfær-
andi, að minnsta kosti ekki þegar
viðbrögð kynsystra hennar eru
tekin með í reikninginn. Hún bætir
líka fljótlega við að það slæðist svo
sem ýmislégt inní sem ekki sé
vert að vera að minnast neitt sér-
staklega á. Þetta hefur víst hingað
til verið hálfgerðuf leynifélags-
skapur! Þegar samtökin voru
stofnuð fyrir rúmlega tveimur
árum var það meðal annars vegna
þess að kvenkennurunum i Varm-
árskóla fannst kominn tími til að
hittast og kynnast innbyrðis þar
sem lítill tími gefst til slíks í skólan-
um.
Þegar imprað er á því hver sé
formaður í félaginu ætlar hlafrinum
aldrei að linna. Loksins - þegar
hann hjaðnar aðeins fræða þær
blaðamann á því að það sé ekki
um neitt slíkt að ræða en þó sé
ritari starfandi. „Við erum nefni-
lega með gullslegna fundarbók í
gangi, þar sem við skráum í helstu
viðburði teboðanna og límum inn
myndir frá rannsóknarleiðöngrum
okkar á veitingastaði. Það er eitt
meginmarkmið samtakanna að
skoða sem flesta matsölustaði.
Við gefum þeim einkunn fyrir þjón-
ustu og veitingar. Okkur finnst
eiginlega nauðsynlegt að rannsaka
þessa staði áður en við förum að
flækjast þangað með eiginmenn-
ina. Það er ómögulegt að vera að
fara með þá á einhverja sóðastaði
loksins þegar þeir fást út."
GRG
Hildur Harðardóttir, Soffía Guð-
mundsdóttir, Ásgerður Jónsdótt-
ir, Edda Gisladóttir
Frá vinstri: Dagný Guðmunds-
dóttir, Kristfn Sigsteinsdóttir,
Guðrún Markúsdóttir, Helga
Richter, Þyri Huld Sigurðardóttir,
Kristín Andersen og Anna Margr-
ét Björnsdóttir
SERTILBOD
P80 ryksugan
PHILIPS RYKSUGUR
Heimilístæki hf
HAFNARSTRÆTI3 - S. 20455 - SÆTÚNI8 - S. 27500
Etw
útborgufl
KREDITKORTA-
mÓNUSTA
Sigling Dagfara
eftir C. S. Lewis
Þriðja bókin um töfra-
landið Narníu. Játvarð-
ur og Lúsía fara í
ævintýralega sjóferð
með Kaspían konungs-
syni. Með í för er þeirra
leiðinlegi frændi,
Elfráður Skúti.
CMXW15