Morgunblaðið - 28.11.1986, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986
B 11
um einfaldan og fljótlegan rétt
sem heimilisfólkinu hefur líkað
mjög vel. Þeir eru auðvitað marg-
ir sem hafa lítinn tíma til að fást
við matseld og ég hugsa að þessi
réttur sé sniðugur fyrir þá,“ seg-
ir Ásgerður. Hún kveðst ekki
vera mikið með forrétti nema hún
sé með fólk í mat, en eftirrétti
hafi hún alltaf. „Ég er jöfnum
höndum með kökur og eitthvað
annað í eftirrétti. Mér hefur alltaf
fundist gaman að baka. Svo voru
eftirréttirnir vinsælir meðan
krakkarnir bjuggu heima og oft-
ast byrjað á því að spyrja um það
hvað væri í eftirmat þegar sest
var að borðinu,“ segir hún.
EJ
V
Kjúklingur með
„mango chutney"
1 kjúklingur
1 msk karrý
1 peli rjómi (u.þ.b.)
3-5 msk „mango chutney"
smjörlíki til steikingar
salt eftir smekk
Kjúklingurinn er hlutaður
sundur (bringubeinið oftast tekið
úr til að spara pláss á pönnunni)
og steiktur í smjörlíki með karrý-
inu út í. Þá er rjóma og „mango
chutney" bætt út á pönnuna og
þetta látið malla við vægan hita
í 30-45 mínútur. Gott er að bera
þetta fram með fersku græn-
metissalati og hrísgrjónum sem
blandað hefur verið saman við
maískorn, út á þau er skorin fersk
paprika.
„Mér hefur aldrei
leiðst í eldhúsinu“
„Ég er alin upp í sveit og vand-
ist á mikinn og góðan íslenskan
mat,“ segir Ásgerður Helgadótt-
ir Ijósmóðir, sem er gestur í
matarþættinum í dag. „Ég vinn
vaktavinnu þannig að á mínu
heimili er ekki eldað á hverju
kvöldi og venjulega er ég með
eitthvað sem er þægilegt og fljót-
legt, þó það sé að sjálfsögðu
ekki einhlítt. Þegar ég er á vökt-
unum hugsa ég oft til þeirra daga
sem ég á frí og ákveð að hafa
þá eitthvað gott. Það vill til að
mér hefur aldrei leiðst í eldhús-
inu, í rauninni á óg mjög
skemmtilegar stundir þar.“
Ásgerður segist alltaf vera ein
við matseldina. „Fjölskyldan hef-
ur aldrei tekið þátt í þessu með
mór öðru vísi en að borða mat-
inn. En mér þykir það ekkert
verra. Ég gef mér yfirleitt góöan
tíma og þá er þetta skemmti-
legt. Svo erum við orðin bara tvö
eftir í heimili og eiginmaðurinn
vinnur mikið, þannig að óg hef
gaman af því að vera með góðan
mat,“ segir Ásgerður, en hún er
gift Jóni Hannessyni lækni.
„Ég les mikið um mat mér til
ánægju, helst allt sem ég kemst
yfir, hvort sem um er að ræða
greinar í tímaritum, bækur eða
blöð. Ég geri hins vegar ekki
mikið af því að nota þessar upp-
skriftir beint, heldur fæ ég
hugmyndir á þennan hátt. Mér
þykir yfirleitt mikið meira spenn-
andi að spreyta mig á réttum
sem eru ekki of flóknir. Ég safna
ýmsum uppskriftum sem ég sé
og prófa mig áfram, en ef mér
líst ekkert á þær þá hendi ég
þeim jafnóðum svo þær séu ekk-
ert að þvælast frekar fyrir mér.
Hins vegar hef ég aldrei einbeitt
mér að einu öðru fremur í matar-
gerðinni, mér þykir þetta allt jafn
spennandi."
Ásgerður segist ekki vera með
fisk eins oft og hún vildi, en ef
svo sé þá sé það fiskur sem þau
hjónin hafi veitt sjálf. „Við erum
með bát og förum á veiðar bæði
vor og haust. Þetta var mikil
búbót meðan við vorum fleiri í
heimili og það besta við þetta
er að á þennan hátt er maður
alltaf með glænýtt hráefni. Ég
er alveg eins með þorsk eins og
ýsu, hann er mjög góður í alla
fiskrétti. Við skjótum einnig
svartfugl og almennt má segja
að við notum mikið fuglakjöt, svo
sem rjúpur og villigæsir."
„Ég hef líka mikið verið með
kjúklinga um dagana, en þeir fást
nú á góðu verði og hægt er að
elda þá á ótal vegu. Kjúklinga-
uppskriftin sem ég gef er dæmi
Konfekt-marsipan-
kaka
4 egg
200 g sykur
200 g marsipan
1 peli rjómi (u.þ.b.)
50-100 g súkkulaði
Eggin og sykurinn eru þeytt
saman og marsipanið mulið út
í. Þetta er svo þeytt vel. Deiginu
er skipt í tvennt og látið í tvö
lausbotna form með smjörpappír
innan í og bakað við 200 gráður
í 30 mínútur. Botnarnir eru síðan
settir saman með þeyttum rjóma
sem súkkulaði hefur verið rifið
út í. Gott er að setja sérríbleyttar
makkarónukökur út í rjómann til
að gefa honum bragð. Að lokum
er súkkulaði (50-100 g) brætt
ofan á.
MAT
Ásgerður
Helgadóttir
Ijósmóðir
MEÐSINU
sfmu
er hœgt að breyta innheimtu-
aðferðinni. Eftir það verða
askriftargjoldin skuldfærð á
viðkomandi greiðslukorta
reikning manaðarlega.
SÍMINN ER
691140
691141
Husqvarna Sýnikennsla í dag milli kl. 15 og 18.
Erla Ásgeirsdóttir kynnir 6 gerðir Husq-
varna saumavéla og þar á meðal nýjasta
undrið í saumavélalínunni frá Husq-
varna, PRISMA 990.
Verð Á Husqvarna saumavélum
frá kr: 14.421,- stgr.
Husqvarna
saumavélar
borga sig.
Einnig kynnir Þórhildur Gunnarsdóttir notkun Husq-
varna örbylgjuofna, stórra sem smárra, eins eða
tveggja hæða og með eða án brúnunarelements.
Verð á Husqvama örbylgjuofnum frá kr: 16.625,- stgr.
Ps: Heitt á könnunni og við erum að
taka upp aðventuljósin. Gott úrval.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200