Morgunblaðið - 07.12.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNÚDAGUR 7. DESEMBER 1986
21
oc
KJARASAMNIN GUR
milli
Alþýðusambands íslands vegna Iðnnemasambands íslands og eftirtalinna landssambanda þess og einstakra aðildarfé-
laga þeirra; Verkamannasambands íslands, Málm- og skipasmiðasambands íslands, Rafiðnaðarsambands Islands,
Landssambands iðnverkafólks, Landssambands íslenskra verslunarmanna, landssambands vörubifreiðastj óra svo
og félaga með beina aðild að sambandinu annars vegar og Vinnuveitendasambands íslands vegna aðildarfélaga þess
og einstakra meðlima og Vinnumálasambands samvinnufélaganna hins vegar.
1. grein
Allir kjarasamningar ofangreindra aðila
framlengjast til 31. desember 1987, með þeim
breytingum, sem í samningi þessum felast.
2. grein
Ákvæði um hækkun lægstu launa
Frá 1. desember 1986 leysa eftirgreind
ákvæði um lágmark launa áður gildandi kaup-
taxta af hólmi og er þeim einungis ætlað að
hafa áhrif á lægstu laun í viðkomandi starfs-
grein, sem dregist hafa aftur úr í launaþróun
síðustu ára.
Laun fullgildra starfsmanna verða að lág-
marki sem hér segir að meðtalinni almennri
launahækkun um 4,59% frá 1. desember 1986:
1. Ófaglærðir starfsmenn: Kr. 26.500 á
mánuði. Þeir starfsmenn, sem lokið hafa
samningsbundnum námskeiðum og starfs-
þjálfun í fiskiðnaði, fataiðnaði, verslun og
veitinga- og gistihúsum skulu fá námskeið-
sálag, kr. 1.300, þannig að lágmarkslaun
þeirra sem þeim hafa lokið verði í desemb-
er kr. 27.800 á mánuði.
2. Iðnaðarmenn að afloknu a.m.k. 4 ára
iðnnámi kr. 35.000 á mánuði.
3. Upphafslaun byijenda skulu vera 92% af
lágmarki launa og greiðast fyrstu 3 mán-
uði í viðkomandi starfsgrein.
4. Laun 15 ára unglinga skulu vera Vs af
lágmarki launa ófaglærðra starfsmanna
og laun 14 ára unglinga 60% en yngri en
14 ára 50% af sama stofni.
5. Um laun iðnnema fer skv. sérstöku sam-
komulagi, sem er fylgiskjal með samningi
þessum.
Framangreind launaákvæði koma í stað
áðurgildandi launasamninga og miðast við
allar tekjur fyrir 40 stunda dagvinnu, þ.e.
samningsbundin laun að viðbættum hvers
kyns aukagreiðslum, yfirborgunum og álög-
um, sem fylgja föstum launum. Ef laun
starfsmanns, þannig metin eru hærri en við-
eigandi lágmark, hækka þau ekki.
Hins vegar teljast samningsbundnar
greiðslur vegna vinnufata, verkfæra, ferða
vegna vinnu, fæðiskostnaðar og vaktavinnu-
álags ekki með, þegar metið er hvort laun séu
ofan eða neðan lágmarks.
Laun þeirra, sem hafa þannig skýrgreint
jafnhá eða hærri heildarlaun fyrir dagvinnu
taka engum breytingum á launum umfram
það, sem rakið er í 3. gr.
Þar sem laun eru samsett af föstum launum
og breytilegum, t.d. bónus, premíu, þá skal
breytilegi hluti launanna lækka tilsvarandi við
hækkun fastra launa.
Ofangreind ákvæði gefa ekki tilefni til
breytinga á launum sem eru hærri en tilgreind
lágmarkslaun og hafa ekki áhrif á einstaka
kjaraliði, sem hingað til hafa tekið mið af
kauptöxtum kjarasamninga. Hækka þeir liðir
því einungis í samræmi við ákvæði 3. gr.
3. grein
Á samningstímabilinu hækka öll laun og
kjaratengdir liðir, sem fylgt hafa kauptöxtum
kjarasamninga, þ.m.t. grunntölur afkasta-
hveljandi launakerfa og kostnaðarliðir, sem
hér segpr:
1. Frá 1. desember 1986 um 4,59% skv. úr-
skurði launanefndar ASÍ og VSÍ/VMS.
2. Frá 1. mars 1987 um 2,0%.
3. Frá 1. júní 1987 um 1,5%.
4. Frá 1. okt. 1987 um 1,5%, enda hafi við-
komandi samningi þá ekki verið sagt upp
skv. 4. grein.
Lágmarkslaun verða sem hér segir:.
Ófaglærðir Faglærðir
1. mars 1987 27.000 35.700
1. júní 1987 27.500 36.200
l.okt. 1987 28.000 36.800
4. grein
Á samningstímabilinu skulu samningsaðilar
gera nýja fastlaunasamninga með þeim hætti
og í þeim starfsgreinum sem að neðan greinir:
Fastlaunasamningar þessir skulu taka gildi
eftir því sem um semst á tímabilinu frá 1.
mars 1987 til 1. september 1987. Hafi fast-
launasamningur ekki verið gerður fyrir 1.
sept. 1987 í samræmi við samningsákvæði
þarum, er aðilum heimilt að segja samningi
upp með tveggja vikna fyrirvara, þannig að
hann verði laus 15. sept. að því er tekur til
starfsmanna í þeirri starfsgrein, sem gera
skyldi fastlaunasamning um.
Við gerð umræddra fastlaunasamninga skal
miðað við eftirgreindar forsendur:
1. Að fastlaunakerfi nýs samnings verði í sem
bestu samræmi við launakerfí fyrirtækja í
hlutaðeigandi starfsgrein og að gerð fast-
launasamninga þessara miðist við skrán-
ingu kauptaxta, sem best samræmist
greiddu kaupi í starfsgreininni, en leiði
ekki sjálfkrafa til hækkunar á greiddu
kaupi.
2. Að leitast verði við að auka hagræðingu
og framleiðni þannig að vinnan nýtist sem
best og skili sem mestum verðmætum til
hagsbóta fyrir alla samningsaðila.
3. Að launamunur m.t.t. starfsreynslu,
menntunar og hæfni taki mið af raun-
verulegum aðstæðum í hveiju tilviki.
4. Að samningsbundin launakerfí miðist sem
mest við að laun séu greidd fyrir raun-
verulega unninn tíma án þess að gengið sé
á hefðbundinn hvíldartíma, forðast verði
að greiða laun fyrir skráðan tíma en óunn-
jnn.
Á grundvelli ofangreindra forsendna og
annarra sem um kann að semjast skulu gerð-
ir eftirtaldir fastlaunasamningar við þá
samningsaðila sem tilgreindir eru vegna fé-
lagsmanna aðildarfélaga þeirra í tilgreindum
starfsgreinum:
1. Verkamannasamband íslands
Sérþjálfaðir byggingaverkamenn
Bifreiðastjórar og stjómendur þungavinnu-
véla
Matráðskonur og starfsfólk í mötuneytum
2. Málm- og skipasmiðasamband íslands
VSÍ, SMS og MSÍ munu á samningstímabil-
inu greiða götu þess, að fyrirtækjasamn-
ingar geti tekist í einstökum fyrirtækjum
í skipasmíðagreininni.
MSÍ og SMS munu í sameiningu stuðla
að bættum kjararannsóknum í málmiðnaði
og í því skyni skipa einn mann hvort til
samstarfs við Kjararannsóknamefnd um
bætt skil á launaupplýsingum til nefndar-
innar. Þessir trúnaðarmenn samtakanna
em bundnir þagnarheiti gagnvart upplýs-
ingum um einstaklinga og fyrirtæki, sem
þeir fara höndum um í starfi sínu í þágu
nefndarinnar. Nefndarmennimir skulu enn-
fremur fylgjast með stærð úrtaksins og
vinna að því með Kjararannsóknamefnd,
að úrtakið gefi sem gleggstar upplýsingar
um laun og launadreifingu í mismunandi
störfum og starfsgreinum.
3. Landssamband íslenskra verslunar-
manna
Sérstakt samkomulag um útfærslu á 4.
grein aðalkjarasamninga.
Aðilar eru sammála um að útfæra fast-
launasamninga sem sérsamninga og að
eftirtalin svið hafi forgang:
1. Afgreiðslustörf
2. Störf í lyfjavöruverslunum
3. Almenn skrifstofustörf
4. Störf í ferðaþjónustu
Aðilar eru sammála um að setja á lagg-
imar nefnd skipaða xx fulltrúum hvors
aðila sem vinni sameiginlega úr launaupp-
lýsingum Kjararannsóknamefndar. Nefnd-
in skal hefja störf þegar í ársbyijun 1987.
Aðilar skulu síðan með hliðsjón af niður-
stöðum nefndarinnar semja um lágmarks-
laun fyrir hvem ofangreindra starfshópa,
og þau skulu taka umsömdum launabreyt-
ingum samkvæmt aðalkjarasamningi á
hveiju samningstímabili. Lágmarkslaunin
merkja ekki í þessu sambandi lægstu laun
í hveijum hópi heldur þau sem um er samið.
Lágmarkslaun ofangreindra hópa skal
síðan endurskoða við lok hvers samnings-
tímabils eða oftar ef um semst og skal sú
endurskoðun taka mið af raunverulegri
launaþróun.
4. Landssamband iðnverkafólks
1. Matvæla- og hreinlætisvöruiðnaður
2. Umbúðaiðnaður
3. Kemískur iðnaður
4. Vefjariðnaður
5. grein
Auk þeirra breytinga á samningsákvæðum,
sem fram koma í öðrum ákvæðum samnings
þessa breytast kjarasamningar eftirgreindra
aðila sem hér segir:
1. Verkamannasamband íslands
1.1 Kaiipaukagreiðslur
í samræmi við markmið 5. greinar
síðast gildandi samninga eykst fastur
hluti launa starfsmanna í fiskiðnaði og
bónusi-, premíu- og aðrar álagsgreiðslur
lækka að sama skapi.
Þetta verði framkvæmt á eftirfarandi
hátt:
1.2 Bónuskerfi
Heimilt er að reikna bónus vikulega í
fiskvinnsluhúsi eða einstökum deildum
þess, enda liggi fyrir samþykki meirihluta
starfsfólks, verkalýðsfélags og fyrirtækis.
Þegar unnið er eftir launakerfum þar sem
bónusgreiðslur hefjast nú við 66,7% af-
köst hefjast bónusgreiðslur eftir gildi-
stöku þessa samnings við 100% afköst.
Launakerfum, þar sem afkastamörk fyrir
bónusgreiðslur eru nú 100%, greiddur er
10% bónus við 100% afköst og launalína
er síðan með hallanum 1.1/1.0, verði
breytt þannig að 10% upphafsbónus fellur
niður, halli helst óbreyttur og bónus-
greiðsla hefjist við 113.64% afköst.
1.3 Premíukerfi
Allar afkastatengdar premíulaunatölur
margfaldast með stuðlinum 0.6.
1.4 Hrein akkorð
Launatölur hreinna ákvæðisvinnukerfa
(akkorða) s.s. við síldarsöltun, togaralönd-
un o.s.frv. breytast ekki vegna þeirra
sérstöku láglaunahækkana sem felast í
samningi þessum.
1.5 Aðrar aukagreiðslur
Heildaupphæð dagvinnulauna, sem
samsett er af föstum launum og álags-
greiðslum (þ.m.t. föstum premíu- og
bónusgreiðslum) breytist ekki vegna
þeirrar sérstöku hækkunar lægstu launa,
sem í samningi þessum felast, nema hún
sé lægri en almenn lágmarkslaun þessa
samnings. Dæmi um greiðslur af þessu
tagi er þegar greidd er ákveðin krónutala
eða prósenta til viðbótar taxtakaupi.
Þegar núverandi dagvinnutaxti að við-
bættri álagsgreiðslu samkvæmt framan-
sögðu er hærri en almenn lágmarkslaun,
sem þessi samningur ákveður, skulu þau
haldast óbreytt. Ef dagvinnutaxtinn að
viðbættri álagsgreiðslu er aftur á móti
lægri en almenn lágmarkslaun, gilda þau.
Alagsgreiðslur á yfírvinnu breytast á
sama hátt.
1.6 Reiknitala tímamældrar ákvæðisvinnu í
ræstingu er kr. 214,00 frá 1. desember
og breytast aðrar reiknitölur ræstingar
tilsvarandi.
6. Landssamband vörubifreiðastjóra
6.1 Kjarasamningur Landssambands vörubif-
reiðastjóra og Vinnuveitendasambands
íslands taki eftirgreindum breytingum:
Við 5. grein bætist:
Þá er verktakafyrirtækjum innan Verk-
takasambands íslands og Félags vinnu-
vélaeigenda fijálst að nota eigin bifreiðar
og flutningstæki, til alls nauðsynlegs
flutnings í tengslum við verkframkvæmd-
ir, sem þau hafa tekið að sér, með
samningum við verkkaupa eða aðalverk-
taka.
í samningum við aðalverktaka má akst-
ursþáttur verksins þó ekki nema meiru
en 75%.
Við 6. grein bætist:
Landssambandið skuldbindur aðildarfé-
lög og félagsmenn sína til þess að stunda
ekki atvinnurekstur, hvorki verktaka-
starfsemi skv. reikningi, né að taka þátt
í útboðum um verkframkvæmdir.
6. grein
Foreldri skal, eftir fyrsta starfsmánuð,
heimilt að veija samtals 7 vinnudögum á
hveiju 12 mánaða tímabili, til aðhlynningar
sjúkum bömum sínum undir 13 ára aldri,
enda verði annarri umönnun ekki komið við
og halda þá dagvinnulaunum sínum, svo og
vaktaálagi þar sem það á við.
7. grein
Ákvæði kjarasamninga um áunnin réttindi
orðjst sem hér segir:
Áunnin réttindi launþega skulu haldast við
endurráðningu innan eins árs. Á sama hátt
skulu áunnin réttindi taka gildi á ný eftir eins
mánaðar starf ef endurráðning verður eftir
meira en eitt ár, en innan þriggja ára.
8. grein
Samningsaðilar eru sammála um að nefnd
sú er skipuð var skv. 6. gr. samnings frá 26.
febrúar 1986 skuli starfa áfram og vinna að
tillögum í samræmi við meginmarkmið þeirrar
greinar um:
1. Aukna tryggingavemd launþega, í lang-
vinnum forföllum frá vinnu vegna slysa í
og^utan vinnutíma eða vegna veikinda.
í þessu tilliti skal höfð hliðsjjón af
greiðsluréttindum opinberra starfsmanna
og kannað hvort og með hvaða hætti laun-
þegar geti flutt veikindaréttindi milli
vinnuveitenda.
2. Slysatryggingar og skal athuga sérstak-
lega fjárhæðir trygginga með tilliti til tjóns
slasaðra og heildartryggingavemdar.
3. Skyldutryggingu atvinnurekenda, svo að
tryggt verði að launþegi fái jafnan notið
umsamins launaréttar í slysa- og sjúkdóms-
forföllum.
9. grein
Samningur þessi er gerður á gmndvelli
neðangreindra forsendna:
1. Yfírlýsingar ríkisstjómarinnar um skatta-
mál, efnahagslegar forsendur samningsins
og aðild í verðlagsmálum.
2. Fyrirliggjandi áætlana um horfur í efna-
hagsmálum.
3. Að framfærsluvísitalan verði innan eftirtal-
inna marka m.v. 100 1. febrúar 1984:
1. febrúar 1987:187.7
l.maí 1987:193.0
l.september 1987:196.5
Á samningstímabilinu skal sérstök launa-
nefnd, skipuð tveimur fulltrúum frá ASÍ og
tveimur fulltrúum frá VSÍ/VMS fylgjast með
breytingum verðlags og kaupmáttar svo og
þróun efnahagsmála.
Launanefndin skal serstaklega fylgjast með
þróun framfærsluvísitölu og meta ástæður til
launahækkana, fari verðlagshækkanir fram
úr viðmiðunarmörkum skv. forsendum samn-
ingsins.
I störfum sínum skal nefndin líta til þróun-
ar kaupmáttar á því tímabili sem liðið er af
samningi þessum og jafnframt meta áhrif
breytinga á efnahagslegum forsendum s.s.
viðskiptakjörum og þjóðarframleiðslu.
Telji launanefnd tilefni til sérstakrar launa-
hækkunar, skal ákvörðun hennar liggja fyrir
25. dag útreikningsmánaðar og koma til fram-
kvæmda frá og með 1. næsta mánaðar.
Einstaklingsbundnar launahækkanir svo og
launahækkanir sem ákveðnar kunna að verða
í fastlaunasamningum umfram það sem kveð-
ur á í þessum samningi, skal mótreikna þeim
sérstöku hækkunum sem launanefnd úrskurð-
ar, sé ekki öðruvísi samið.
Launanefnd skal leita samkomulags um
ákvarðanir sínar, en verði ágreiningur um
úrskurð skulu fulltrúar annars aðila deila með
sér oddaatkvæði til skiptis. í fyrsta sinn er
til ágreinings kemur um ákvörðun deila full-
trúar ASÍ oddaatkvæði sem gengur til fulltrúa
VSÍ/VMS verði ágreiningur um síðari ákvörð-
un.
10. grein
Samningur þessi öðlast gildi við staðfest-
ingu einstakra aðildarfélaga Alþýðusambands
íslands og Vinnuveitendasambands íslands og
Vinnumálasambands samvinnufélaganna og
gildir þá frá og með 1. desember 1986, enda
hafi Vinnuveitendasambandi íslands eða
Vinnumálasambandi samvinnufélaganna bo-
rist tilkynning um samþykki viðkomandi
verkalýðsfélags fyrir kl. 12.00 á hádegi föstu-
daginn 19. desember 1986. Berist tilkynning
um samþykki ekki innan ofangreinds frests
öðlast samningurinn fyrst gildi frá og með
þeim tíma, er tilkjmning berst.