Morgunblaðið - 07.12.1986, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1986
49
Fínull hf. stofnuð til að
vinna úr angórahárum
Verksmiðjan kemur tii landsins í janúar
- Kristján Valdimarsson ráðinn framkvæmdastjóri
FÍNULL hf., fyrirtæki um kaup
og- rekstur á verksmiðju til áð
vinna úr fiðu (angórahárum), var
formlega stofnuð fyrir nokkru.
Að fyrirtækinu standa Álafoss
hf., kanínubændur, Byggðasjóð-
ur og Kanínumiðstöðin hf.
Kristján Valdimarsson textiltæ-
knifræðingur hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Fínull hf. kaupir verksmiðju f
Þýskalandi sem kennd er við eig-
andann, Taufel. Er þetta spuna-
verksmiðja og prjóna- og
saumastofa. Með í kaupunum fylgir
þekking á vinnslunni, markaður og
ábyrgð á gæðum framleiðslunnar.
í spunavélunum er einnig hægt að
vinna margs konar bómullarband
og blöndur úr bómull og ull sem
henta í sumarfatnað og íslenski
fataiðnaðurinn getur notið góðs af.
Kaupverð verksmiðjunnar er tæpar
37 milljónir kr. og greiðist það á
fimm árum. Verður verksmiðjan
flutt til landsins í janúar og verður
framleiðsla væntanlega hafin í
mars. Fínull hf. fær leigt húsnæði
hjá Álafossi hf. í Mosfellssveit til
að byija með. Starfsmenn verða
10—12 þegar verksmiðjan verður
komin í fullan rekstur.
Forráðamenn fyrirtækisins
leggja til að hráefni verksmiðjunn-
ar, sem er hár af angórakanínum,
verði framvegis nefnt fiða. Fínull
hf. hefur gert samning við Lands-
samtök kanínubænda um að kaupa
alla þá fiðu sem bændur framleiða,
annað hvort til vinnslu eða endur-
sölu og er gert ráð fyrir að móttaka
hefjist eftir áramótin.
Hlutafé í Fínull hf. er 22 milljón-
ir kr. og skiptist þannig; Álafoss
hf. 8 milljónir, kanínubændur (með
aðstoð Framleiðnisjóðs) 8 milljónir,
Byggðastofnun 4 milljónir og
Kanínumiðstöðin í Njarðvík 2 millj-
ónir kr. Bjami Einarsson hjá
Byggðastofnun er formaður stjóm-
ar, varaformaður er Guðjón Hjart-
arson Álafossi, ritari Jón Eiríksson
í Vorsabæ og meðstjórnendur
Gunnlaugur Þráinsson Álafossi og
Ingvar Jóhannsson frá Kanínumið-
stöðinni.
I
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Hlýir hanskar úr geitaskinni
hjálpa í vetur.
Mjúkir - en sterkir, fóðraðir
með akryl og polyuretan
sem heldur hitanum inni og
hleypir rakanum út.
Fyrir alla - stærðir 7-10.
Heildsölubirgðir,
ttTN
StXTlU OGSEX NOPÐUP
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF
Skúkigötu 51 Símill520
Arshátíð ?
Munið að panta tímanlega!
Bjóðum glæsileg húsakynni og góðan mat,
hvort tveggja forsenda velheppnaðrar veislu.
Hægt er að fá sali fyrir 70-200 manns,
heitan mat, kalt borð eða sérréttaseðil.
Utanbæjarfólk!
Sjáum um veislur fyrir hópa utan af landi.
Sérstakt verð ef pantað er saman gisting,
salur og veitingar.
Vegna mikillar eftirspurnar minnum við ykkur á
að panta sem fyrst í síma 22322 - 22321.
HÓTEL
LOFTLEIÐIR
FLUGLEIDA HÓTEL
Metsölubhð á hvetjum degi!
VERÐTRYGGÐ
VEÐSKGLDABRÉF:
Tíma Ávöxt-
lengd Nafn unar-
Ár vextir krafa Gengi
1 4% 14.00 93.4
2 4% 14.25 89.2
3 5% 14.50 86.7
4 5% 14.75 83.2
5 5% 15.00 79.9
6 5% 15.25 76.7
7 5% 15.50 73.7
8 5% 15.75 70.9
9 5% 16.00 68.2
10 5% 16.25 65.6
'íávoxtTjn
V_______LAUGAVEG 97 - 101 REYKJAVÍK - SlMI 621660_
Ávöxtunarþjónusta
Bestu kjör hverju sinni
V/erðbréfamiðlun
Skuldabréf óskast í sölu
Fjármálaráðgjöf
Sölugengi verðbréfa 7/12 1986
OVERÐTRYGGÐ
SKGLDABRÉF:
Ákv. GENGI
Tíma- umfr. Hæstu Árs-
lengd verðb.- lögl. vextir
Ár spá vextir 20%
1 7.00 84.3 87.6
2 8.00 77.6 82.0
3 9.00 71.6 76.9
4 10.00 66.3 72.3
5 11.00 61.7 68.2