Morgunblaðið - 11.01.1987, Blaðsíða 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
og setjið saman við.
4. Skerið síldarflökin í bita á ská,
3 sm breiða. Setjið út í löginn.
5. Setjið lok eða disk yfir skálina
og geymið í kæliskáp í 6—10
klst.
6. Berið síldina fram með rúg-
brauði og smjöri. Nota má alls
konar gróft brauð eða flat-
brauð.
Appelsínusíld
7 útvötnuð saltsíldarflök
1 dl tómatsósa
1 dós sýrður ijómi
'Atsk. engiferduft
safi úr 1 stórri appelsínu
2 heilar appelsínur
1 lítil appelsína í sneiðum
nokkur strá ferskur graslaukur
eða 1 msk. þurrkaður
1. Hrærið saman tómatsósu,
sýrðum ijóma, engiferdufti og
appelsínusafa.
2. Afhýðið heilu appelsínurnar
með hníf, þannig að hvíta
himnan fari með.
3. Skerið síðan upp úr appelsínu-
laufunum, þannig að himnan
verði eftir. Setjið appelsínu-
laufin í bitum út í löginn.
4. Skerið síldarflökin á ská í 3
sm bita. Setjið út í löginn.
5. Setjið salatið í skál, setjið lok
eða disk yfir og geymið í kæli-
skáp í 2 klst.
6. Þvoið litlu appelsínuna, skerið
í sneiðar og raðið ofan á skálin.
7. Stráið graslauk yfír og berið
fram.
Meðlæti: Rúgbrauð og smjör
eða annað gróft brauð.
Síldarsalat með
grænmeti og sósu
8 útvötnuð saltsíldarflök
1 stór græn paprika
nokkrar greinar steinselja
nokkur strá ferskur graslaukur
eða 1 msk. þurrkaður
15 radísur
4 harðsoðin egg
1 dós sýrður ijómi
1 lítil dós jógúrt án bragðefna
1 msk. olíusósa (mayonnaise)
6 dropar tabaskósósa
1 tsk. sinnep
3 tsk. sykur
‘/stsk. salt
örlítill nýmalaður pipar
1. Skerið síldina í 3 sm bita á
ská. Setjið á disk.
2. Kljúfið paprikuna að endi-
löngu, takið úr henni steina,
skerið síðan í þunnar sneiðar.
Setjið á síldardiskinn.
3. Klippið graslaukinn yfir það
sem er á diskinum.
4. Skerið rótina og laufið af
radísunum, skerið síðan í
sneiðar. Geymið stærstu
sneiðarnar en setjið hinar á
síldardiskinn.
5. Sjóðið eggin í 10 mínútur,
kælið og takið af þeim skurn-
ina. Skerið síðan í sneiðar og
setjið saman við það sem er
á diskinum.
6. Hrærið saman sýrðum ijóma,
jógúrt, olíusósu, tabaskósósu,
sinnepi, sykri, salti ogpipar.
7. Setjið þunnt lag af sósunni á
breiðbotna glæra skál, setjið
hleming þess sem er á diskin-
um yfir.
8. Klippið steinseljuna gróft,
setjið hluta hennar yfir það
sem er i skálinni, setjið síðan
aftur sósu, síðan það sem
eftir er á diskinum, svo stein-
selju.
9. Setjið það sem eftir er af
sósunni yfir.
10. Stráið radísusneiðum og
steinselju yfir skálina. Setjið
lok eða disk yfir hana og lát-
ið standa í kæliskáp í 2 klst.
11. Berið fram með rúgbrauði og
smjöri eða öðru grófu brauði.
Heldur tókst illa upp í síðasta
þætti, frá 4. janúar, en þar var
myndin á hvolfi og fyrirsögn vant-
aði, en þar átti að standa „Leifar
af hátíðarmat". Er beðið velvirð-
ingar á þessu.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Síldarlögnr
(marínering)
3 dl borðedik
4 dl vatn
2 dl sykur
1 msk. síldarkrydd (fæst tilbúið)
2 stórir laukar (má sleppa)
1. Setjið edik, vatn, sykur og
krydd í pott. Sjóðið við hægan
hita í 7—10 mínútur.
2. Afhýðið laukinn og skerið í
sneiðar. Setjið út í löginn. Lát-
ið sjóða upp en takið þá strax
af hellunni og látið kólna vel.
3. Skolið síldarflökin vel, látið
renna vel af þeim, setjið síðan
köld síldarflökin í kaldan lög-
inn.
4. Setjið lok eða disk þétt ofan á
síldina. Geymið í kæliskáp í
minnst 1 viku.
Athugið: Þetta magn er hæfi-
legt fyrir 6—8 síldarflök.
Tómatsíld
6 útvötnuð síldarflök
*/* dl matarolía
'Adl gott borðedik
2 msk. vatn
■/2lítil dós tómatmauk (35 gr)
2 msk. sykur
•Atsk. nýmalaður pipar
1 vænn dillkvistur eða 2 msk.
þurrkað dill
1. Skerið síldina í 3 sm bita á
ská. Setjið í skál.
2. Hrærið saman matarolíu, ed-
iki, vatni, tómatmauki, sykri
og pipar.
3. Klippið dillið og setjið saman
við sósuna.
4. Setjið síldina út í. Látið í skál,
setjið disk eða lok yfir skálina
og látið standa í kæliskáp í
4—6 klst.
Meðlæti: Rúgbrauð og smjör
eða annað gróft brauð.
Sherrysíld
8—10 útvötnuð saltsíldarflök
(nota má kryddsíld)
1 lítil dós tómatmauk (35 gr)
1 dl matarolía
■Adl gott vínedik
U/2 dl sherry, helst sætt
1 meðalstór laukur, helst rauðlauk-
ur
nýmalaður pipar
1. Setjið tómatmauk, vínedik,
matarolíu og sherry í skál.
Þeytið með þeytara.
2. Setjið pipaf út í.
3. Afhýðið laukinn, skerið smátt
Saltsíld
Síldin telst til feitra fiska. Eins og við flest vitum, skiptast fiskar í tvær tegundir, feita
og magra. Munurinn er sá, að í feitum fiskum er fitan í fiskholdinu og undir roðinu,
en lifrin er lítil og fitusnauð. Aftur á móti er fitumikil lifur í fiskum með magurt fisk-
hold. Dæmi um feita fiska er lax, silungur og lúða, en magra t.d. ýsa og þorskur.
Islendingar eru mikil síldveiðiþjóð. En þrátt fyrir það erum við alls ekki miklar síldarætur.
Helst borðum við saltsíld og kryddsíld, en aðeins örfáir borða ferska síld, sem er mjög ljúf-
feng, soðin í krydd- og edikslegi eða mysu eða steikt í rúg- eða haframjöli. Ég vandist miklu
síldaráti í æsku og borðaði hana á allan hugsanlegan máta. Ég finn lítið fyrir hinum fíngerðu
beinum sem eru í síldinni og fæla marga frá því að borða hana ferska. Það má venja sig á að
tyggja þau með.
Síldin er feitust skömmu fyrir hrygningu, og því feitari sem hún er þeim mun ljúffengari er
hún og mýkri. Margir kaupa hálftunnu eða kvartil með saltsíld, raunar eru það nú orðið oftast
plastfötur, og geyma margir hana úti að vetrinum. Saltsíld þarf að flaka og roðdraga, útvatna
síðan í sólarhring og leggja loks í síldarlög (maríneringu). í þeim legi þarf hún helst að liggja í
eina viku, til þess að mýkjast og draga í sig kryddbragð. Þá er hún borðuð „eins og hún kem-
ur fyrir“ með rúgbrauði eða kartöflum eða sett í annan lög og notuð sem salat. í þessum þætti
eru fjórar tillögur af þeim eða því sem við köllum síldarsalat, auk uppskriftar af síldarlegi
(maríneringu). Síld er hollur og ódýr matur, og ætti að vera oftar á borðum okkar.
Styrkið og fegrið líkamann
Dömur og herrar
Ný 5 vikna námskeið hefjast 12. janúar.
Hressandi — mýkjandi — styrkjandi — ásamt megrandi æfingum. Sértím-
ar fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eóa meira. Sértímar fyrir eldri
dömur og þær sem eru slæmar í baki eöa þjást af vödvabólgum. Vigtun —
mæling — sturtur — gufuböd — kaffi og hinir vinsælu sólaríumlampar.
Innritun og upplýsingar alla virka daga
frá kl. 13—22 í síma 83295.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Fataframleiðsla
Vegna aukinna verkefna óskum við að
ráða fólk til starfa á saumastofu.
Allar upplýsingar á staðnum næstu daga
kl. 9.00-17.00.
TIKNA hf.
AUÐBREKKA 21
200 KÓPAVOGUR