Morgunblaðið - 11.01.1987, Blaðsíða 18
18 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. JANÚAR 1987
Ættfræðinámskeið
Lærið að gera ættarskrár og fræðis um eigin
ætt. Sveigjanlegir kennslutímar. Upplýsingar
og innritun alla daga og kvöld í síma 27101.
Ættfræfllþjónustan
LÆKNASTOFA
Hef opnað læknastofu í Læknastöðinni Álf-
heimum 74, sími 686311.
Sigurflur Thorlacius
Sérgrein: Heila- og taugasjúkdómar.
-Desktop Publishing-
Kynnum þessa viku
PageMaker
útgáfu- og umbrotsforritið sem
getur lækkað útgafukostnað þinn um allt að 50%.
PageMaker hefur, á stuttum tíma, sparað
ýmsum fyrirtækjum fjármagn sem
samsvaraði stofnkostnaði þeirra á
PageMaker forritinu, Macintosh tölvunni
og LaserWriter prentaranum.
PageMaker hentar öllum sem
koma nálægt útgáfustarfsemi
hvort sem það eru fyrirtæki
auglýsingastofur,
útgefendur eða
blaðafulltrúar.
Hagkvæmni PageMaker
liggur í því hve einfalt og
fljótvirkt það er, það styttir
útgáfutímann og lækkar
útgáfukostnaðinn.
Ymsar auglýsingastofur
erlendis byggja starfsemi sína
á Macintosh, LaserWriter
og PageMaker. Má þar
fremsta telja Ted Bates í
Helsingborg í Svíþjóð.
SKIPHOLTI
SÍMI 29800
Sovétríkin:
Andófsmaður í
hungurverkfall
Ottawa, Kanada, Reuter.
SOVÉSKUR vísindamaður hefur
hafið hungurverkfali vegna þess
að stjórnvöld hafa neitað fjöl-
skyldu hans um leyfi til að flytja
til ísrael.
Alexander Ioffe, sem er stærð-
fræðingur að mennt og býr í
Moskvu, hringdi í gær í kanadískan
þingmann og sagði honum frá
ákvörðun sinni. Kvaðst hann gera
þetta til að þrýsta á stjómvöld sem
hafa neitað syni hans, tengdadóttur
og bami þeirra um fararleyfi til
Israel. Ioffe kvaðst hafa gefíð upp
alla von um að honum yrði leyft
að flytjast úr landi en sagðist vona
að ættmennum sínum yrði veitt
fararleyfi.
Árið 1976 sótti Alexander Ioffe
fyrst um leyfi til að flytjast til ísra-
el. Sökum þessa vom laun hans
lækkuð auk þess sem eiginkonu
hans var vikið úr starfi. Ioffe gekkst
á sínum tíma fyrir stærðfræðifyrir-
lestrum sem ætlaðir vom sovéskum
andófsmönnum. Stjórnvöld létu
stöðva þessa starfsemi og Ioffe var
settur í stofufangelsi. Embættis-
menn tjáðu honum þá að honum
yrði aldrei leyft að fara úr landi.
Landssljórnin
skiptir sér af
fréttaflutningi
- segja frétta-
menn Græn-
lenska útvarpsins
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun,
fréttaritara Morgunbladsins.
FRÉTTAMENN á Grænlenska
útvarpinu hafa í sameiningu rit-
að grein í grænlenska blaðið
Grönlandsposten, þar sem þeir
mótmæla því sem þeir nefna
„fieiri og fleiri dæmi um tilraun-
ir landsstjórnarinnar til að hafa
áhrif á fréttafiutning".
Útvarpsfréttamennimir nefna
nokkur dæmi þess, að landsstjórnin
hafi krafist þess, að fréttatilkynn-
ingar frá henni væm lesnar óstyttar
og óunnar í fréttum.
Hvar endar þetta? spytja frétta-
mennirnir í greininni. Verður það
hlutskipti okkar að lesa fréttir
„uppáklæddar í úníform“, eftir að
handritin hafa hlotið blessun lands-
stjórnarinnar?
Okkar fræga útsala hefst á morgun.
Kápur, jakkar, dragtir, buxur, pils, blússur, peysur,
sloppar, náttfatnaður.
,1 sio
L
IvrnpijTi
Laugavegi 26, sími 13300 — Glæsibæ, s. 31300.