Morgunblaðið - 28.02.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
ÚTVARP/SJÓNVARP
Leiksviðið
Leikrit: „Brögð í tafli", tveir ein-
þáttungar eftir Roderick Wilkin-
son. Þýðandi: Margrét Jónsdóttir.
Leikstjóri: Jón Viðar Jónsson. Pyrri
einþáttungurinn nefnist „Maðurinn
sem gekk of langt" ... Síðari einþátt-
ungurinn heitir „Shang-skálin". Hér
er að sjálfsögðu vitnað í dagskrár-
kynningu Skúlagötuleikhússins. Ég
hafði bara gaman af þessum saklausu
sakamálaþáttum er hvíldu hugann frá
hinum endalausu byssuleikjum sjón-
varpsins. Ég sé enga ástaeðu til að
rekja efni einþáttunganna en þeir
verða endurfluttir næstkomandi
þriðjudagskvöld klukkan 22.20. Hvað
textann varðar var hann kunnáttu-
samlega samansettur samkvæmt
klassískri formúlu sakamálaleikhúss-
ins um hinn óvænta endi og mikill
munur er nú að hlýða á slíkan texta
miðað við suma verðlaunatexta hins
íslenska leikhúss þótt formúlan hafl
máski sligað nokkuð skáldfák Rod-
erick Wilkinson. Þýðing Margrétar
Jónsdóttur var og áheyrileg.
Jón Viðar leikhússtjóri virðist þjást
af einskonar leikstjórafælni þvi hann
forðast að leita til hinna sérmenntuðu
leikstjóra lands vors en stýrir þess í
stað hveiju leikritinu af öðru í eigin
leikhúsi. Hef ég grun um að fasta-
gestir Skúlagötuleikhússins, þeir
Erlingur Gíslason og Karl Ágúst tJlfs-
son, er léku að sjálfsögðu í fyrr-
greindum einþáttungum, hjáipi
svolítið til við leikstjómina. Hvað um
það þá stóðu leikaramir sig bærilega
að þessu sinni þannig að einþátt-
ungamir liðu notalega um hlustir.
Slíkir spennuþættir eiga fullt erindi
til hlustenda að mínu mati sem mót-
vægi við spennuþætti sjónvarpsstöðv-
anna. Ekki veitir af að stæla
hugarflugið.
Óþekkt kona hringdi i símatíma
Páls Þorsteinssonar á Bylgjunni í gær
og kvartaði yfir málfari fréttamanna
Bylgjunnar allra nema Elinar Hirst
og þá hældi konan Sigurði Tómas-
syni sérstaklega fyrir fagurt mál. Ég
hef nú forðast að víkja hér í dálki
að málfari útvarps- og sjónvarps-
manna þrátt fyrir áskoranir ólíkleg-
ustu aðila enda tæki slikt nöldur
aldrei enda en er ekki við hæfl að
skylda útvarps- og sjónvarpsmenn til
að sækja sérstök íslenskunámskeið
þar sem flölmiðlagoðin hafa nú einu
sinni ekki minni áhrif á málfar upp-
vaxandi kynslóðar en til dæmis
kennarar eða leikarar sem verða að
sæta sérstakri islenskuskólun?
P.S. Þegar orðin streyma nótt sem
nýtan dag úr orðabelgnum (= word
processor) skolast stöku sinnum til
hendingar. í grein frá síðastliðnum
fimmtudegi minntist ég á hól
Kortsnojs um félaga Gorbachev og
sagði þá: Þessi mikli maður viður-
kennir mikilmennið eða andófsmann-
inn (?) Gorbachev er rejmir nú að
breyta hinu stirðnaða og oft
ómennska sovéska valdakerfi. Hér
hefði betur staðið: Þessi mikli maður
viðurkennir hið verðandi mikilmenni
eða andófsmann (?) Gorbachev. Ég
get ómögulega kallað þann mann er
stýrir blóðugri árás stórveldis á smá-
þjóð „mikilmenni". En ég skal fúslega
viðurkenna Gorbachev sem mikil-
menni ef hann dregur morðsveitir
Rauða hersins aftur til sins heima.
Annars er nóg að gera hjá félaga
Gorbachev heimafyrir, til dæmis við
að koma á jafn sjálfsögðum mann-
réttindum og „verkfallsrétti" í öreiga-
paradísinni. En sjálfsagt verður
leiðtoginn að fara að öllu með gát
því annars er viðbúið að KGB og
Rauði herinn hrifsi völdin og geri
síðan samkomulag við Bandaríkjaher
og CIA um að víkja hinum „gleymna"
forseta Bandarfkjanna úr sessi. Her-
foringjar og leyniþjónustuforkólfar
hugsa hvort sem er allir á sömu nót-
um og gætu þess vegna stýrt veröld-
inni í bróðemi, ekki satt?
Ólafur M.
Jóhannesson
Óm Ingi.
Rás 1:
Á réttri hillu
■■■■ í kvöld verður
0"| 20 þátturinn Á
£ ±~~ réttri hillu send-
ur út frá Akureyri. Þáttur-
inn er í umsjá Amar Inga
Gíslasonar og fjallar um
fólk sem er á réttri hillu í
lífinu — hvað atvinnu varð-
ar a.m.k.
Að þessu sinni verður
rætt við Jón Inga Einars-
son, verslunarmann á
Blönduósi. Hann er for-
stöðumaður varahluta-
verslunar þar, en eins og
gefur að skilja er nóg að
gera í blómlegu héraði.
Að sögn Amar Inga hef-
ur ungt fólk, sem enn hefur
ekki gert upp við sig hvaða
starf það ætlar sér í framtí-
ðinni, haft mikið gagn af
þáttumþessum, því þar em
gallar og kostir hvers
starfs vegnir og metnir.
Veitir enda ekki af að
vanda valið þegar framtí-
ðarstarfið er annars vegar,
því ævitíminn eyðist og
unnið skyldi langtum meir.
UTVARP
LAUGARDAGUR
28. febrúar
6.46 Veðurfregnir. Bæn
7.00 Fréttir
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur“. Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagöar kl. 8.00, þá lesin
dagskrá og veöurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum er lesiö úr forustu-
greinum dagblaðanna, en
síöan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 í morgunmund
Þáttur fyrir börn i tali og tón-
um. Flutt dagskrá úr Dalvík-
urskóla i tali og tónum.
Umsjón: Hafdís Norðfjörð.
(Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir
10.10 Veöurfregnir
10.26 Morguntónleikar
Sónata í F-dúr op. 99 eftir
Johannes Brahms. Mstislav
Rostropovitsj og Rudolf
Serkin leika á selló og píanó.
11.00 Vísindaþátturinn
Umsjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá
Stikiað á stóru f dagskrá
útvarps um helgina og
næstuviku. Umsjón:Trausti
Þór Sverrisson.
12.00 Hér og nú
Fréttir og fréttaþáttur í viku-
lokin í umsjá fréttamanna
útvarps.
12.46 Veöurfregnir
12.48 Hér og nú, framhaid
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna
Þáttur um listir og menning-
armál. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
16.00 Tónspegill
Þáttur um tónlist og tón-
menntir á líöandi stund.
Umsjón: Magnús Einarsson
og Ólafur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Dagskrá
16.16 Veðurfregnir
16.20 Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Ævintýri
Múmínpabba“ eftir Tove
Jansson í leikgerð eftir Cam-
illu Thelestam. Þýðandi:
Þórarinn Eldjám. Leikstjóri:
Stefán Baldursson. Loka-
þáttur. Leikendur: Þorsteinn
ö. Stephensen, Þór H. Tuli-
nius, Þröstur Leó Gunnars-
son, Róbert Arnfinnsson,
Aðalsteinn Bergdal, Harald
G. Haralds, Jakob Þór Ein-
arsson, Sigrún Edda Bjöms-
dóttir, Unnur ösp
Stefánsdóttir, Valdemar
Helgason, Guðný Ragnars-
dóttir, Rósa G. Þórsdóttir,
Siguröur Skúlason, Hanna
María Karlsdóttir, Kari Guð-
SJÓNVARP
áJi.
Tf
LAUGARDAGUR
28. febrúar
14.66 Enska knattspyrnan —
Bein útsending
Bikarkeppnin: Manchester
United — Everton.
16.46 íþróttir
Umsjónarmaður: Bjarni Fel-
ixson.
18.00 Spænskukennsla: Habl-
amos Espanol — Sjötti
þáttur
Spænskunámskeið í þrett-
án þáttum ætlað byrjend-
um. íslenskar skýringar:
Guðrún Hall Tuliníus.
18.26 Litli græni karlinn
Sögumaöur Tinna Gunn-
laugsdóttir.
18.36 Þytur í laufi — Fjórði
þáttur
Breskur brúðumyndaflokk-
ur, framhald fyrri þátta um
Móla moldvörpu, Fúsa frosk
og félaga þeirra. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.66 Háskaslóðir
(Danger Bay) — 3. Laxveið-
ar.
Kanadiskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga um
ævintýri við vemdun dýra í
sjó og á landi. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Stóra stundin okkar
Umsjón: Elísabet Brekkan
og Erla Rafnsdóttir.
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Lottó
20.36 Fyrirmyndarfaöir (The
Cosby Show) — 9. þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur með Bill Cosby í
titilhlutverki. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.00 Gettu betur — Spum-
ingakeppni framhaldsskóla
Bein útsending. önnur við-
ureign í annarri umferð.
Stjórnendur: Hermann
Gunnarsson og Elísabet
Sveinsdóttir. Dómari: Stein-
arJ. Lúðvíksson.
21.36 Löggullf — Seinni hluti
Nýjasta gamanmyndin um
ævintýri Þórs og Danna
sem hafa gengið til liös við
verði laganna. Leikstjóri:
Þráinn Bertelsson. Aðal-
hlutverk: Eggert Þorleifsson
og Karl Ágúst Úlfsson.
22.20 Hirðfíflið
(The Court Jester).
Bandarísk biómynd í léttum
dúr frá árinu 1955. Leik-
stjóri Norman Panama.
Aðalhlutverk: Danny Kaye,
Glynis Johns, Basil Rath-
bone, Angela Lansbury,
Cecil Parker og Mildred
Natwick.
Myndin gerist á miööldum
á Englandi þar sem harð-
stjóri einn hefur hrifsaö
völdin. Flokkur skógar-
manna leynir réttbornum
ríkisarfa og bíður færis á
kúgaranum. Þeim tekst að
koma einum manna sinna í
konungsgarö í gervi
hirðfífls. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
00.60 Dagskrárlok
c?
í)
STOÐ-2
LAUGARDAGUR
28. febrúar
§ 9.00 Lukkukrúttin. Teikni-
mynd.
§ 9.20 Högni hrekkvísi og
Snati snarráði. Teiknimynd.
§ 9.40 Penelópa puntu-
drós. Teiknimynd.
§10.06 Herra T. Teikni-
mynd.
§10.30 Teiknimynd.
§11.00 Fréttahorn. Fréttir
fyrir böm og unglinga. Um-
sjónarmaöur er Sverrir
Guðjónsson.
§11.10 Stikilsberja-Finnur.
Mynd í fjórum þáttum, gerð
eftir sögu Mark Twain.
12.00 Hlé.
16.00 Hitchcock. Æði grípur
um sig þegar miltisbrandur
stingur sér niður í Los Ange-
les.
§16.45 Heimsmeistarinn
að tafli. Annar þáttur af sex.
Hinn ungi snillingur, Nigel
Short og heimsmeistarinn
Garry Kasparov heyja sex
skáka einvígi fyrir sjónvarp
á skemmtistaðnum Hippo-
drome í London. Friðrik
Ólafsson skýrir skákirnar.
§17.10 Vinnubrögð Cutt-
ers (Cutters Way).
Alexander Cutter (John
Heard) er illa farinn á sál
og líkama vegna Vietnamst-
ríðsins. Hann fær vin sinn
Richard Bone (Jeff Bridges)
í liö með sér til að koma upp
um siöleysi ráðamanna.
Endursýning.
§18.60 Myndrokk.
19.60 Viðkvæma vofan.
Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Undirheimar Miami.
(Miami Vice.) Glæpamaður
hefur fallist á að bera vitni
í sakamáli og fá Crockett
og Tubbs það verkefni að
gæta hans.
§20.50 „Calamity” Jane.
„Calamity" Jane var ein af
hetjum villta vestursins og
stóð vinum sínum, þeim
Buffalo Bill og Wild Bill
Hicock ekkert á sporöi.
§22.15 Foringi og fyrirmaö-
ur (An Officer and a Gentle-
man). Bandarísk bíómynd
með Richard Gere, Debra
Winger og Louis Gossett jr.
í aðalhlutverkum. Ungur
maður I liðsforingjaskóla
bandaríska flotans fellur
flatur fyrir stúlku sem býr í
grendinni. Það fellur ekki í
kramið hjá yfirmanni hans
sem reynir aö gera honum
lífið leitt. Louis Gossett jr.
hlaut Óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í þessari mynd.
§00.16 Fóstbræðumir
(Brotherhood of Justice).
Glæpamenn ráða ríkjum i
smábæ nokkrum þangað til
nokkur ungmenni þola ekki
við lengur og veita þeim
viðnám.
§01.46 Myndrokk.
3.00 Dagskrárlok.
mundsson, Guðbjörg Þóris-
dóttir, Iris Lind Sæmunds-
dóttir og Einar Egilsson.
17.00 Að hlusta á tónlist
21. þáttur: Hvað er fúga?
Umsjón: Atli Heimir Sveins-
son.
18.00 Islenskt mál
Jón Aðalsteinn Jónsson flyt-
ur þáttinn.
18.16 Frá alþjóöaskákmóti f
Reykjavik. Jón Þ. Þór flytur
skákskýringar.
18.26 Tónleikar. Tilkynningar
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins
19.00 Fréttir
19.30 Tilkynningar
19.35 Á tvist og bast. Jón
Hjartarson rabbar við hlust-
endur.
20.00 Harmoníkuþáttur
Umsjón: Högni Jónsson.
20.30 Ókunn afrek — Unga
skáldið. Ævar R. Kvaran
segir frá.
21.00 fslensk einsöngslög
Árni Jónsson syngur.
21.20 Á réttri hillu
Umsjón: Örn Ingi. (Frá Akur-
eyri.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins.
22.16 Veðurfregnir
22.20 Lestur Passíusálma.
Andrés Björnsson les 12.
sálm.
24.00 Fréttir
00.06 Miönæturtónleikar
Umsjón: Jón Öm Marinós-
son.
1.00 Dagskrárlok
Næturútvarp á rás 2 til kl.
3.00.
I&
LAUGARDAGUR
28. febrúar
9.00 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Morgunþáttur í umsjá
Ástu R. Jóhannesdóttur.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist í
umsjá Margrétar Blöndal og
Bjarna Dags Jónssonar.
13.00 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
16.00 Við rásmarkiö. Þáttur
um tónlist, iþróttir og sitt-
hvaö fleira. Umsjón: Sigurð-
ur Sverrisson ásamt
íþróttafrétta'mönnunum Ing-
ólfi Hannessyni og Samúel
Erni Erlingssyni.
17.00 Savanna, Ríó og hin
tríóin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka í
tali og tónum.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin. Gunnlaug-
ur Sigfússon.
23.00 Á næturvakt með Sig-
urði Gröndal.
3.00 Dagskrárlok
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Um að gera
Þáttur fyrir unglinga og
skólafólk um hvaöeina sem
ungt fólk hefur gaman af.
Umsjón: Finnur Magnús
Gunnlaugsson.
989
BYL GJAN
LAUGARDAGUR
29. febrúar
08.00—12.00 Valdís Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, lítur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum.
Fréttir kl. 08.00, 09.00 og
10.00.
12.00—12.30 I fréttum var
þetta ekki helst. Randver
Þorláksson, Júlíus Brjáns-
son o.fl. bregða á leik.
12.30-15.00 Jón Axel á Ijúf-
um laugardegi. Jón Axel i
góðu stuði enda með öll
uppáhaldslögin ykkar.
Aldrei dauður punktur.
Fréttir kl. 12.00 og 14.00.
15.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Helgi Rúnar
Óskarsson leikur 40 vinsæl-
ustu lög vikunnar.
Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Ásgeir Tómas-
son á laugardegi. Léttur
laugardagur með Ásgeiri.
öll gömlu uppáhaldslögin á
sínum stað.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir lítur á atburði
slöustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir ( laugardagsskapi
Anna trekkir upp fyrir kvöld-
ið með tónlist sem engan
ætti að svíkja.
23.00—04.00 Jón Gústafsson
nátthrafn Bylgjunnar heldur
uppi stanslausu fjörí.
04.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gísla-
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.
AIFA
Krlatlleg ÉlrwyoitU.
FM 102,9
LAUGARDAGUR
28. febrúar
10.30 Barnagaman. Þátturfyr-
ir böm með ýmsu efni
Stjómendur: Eygló Haralds-
dóttirog Helena Leifsdóttir.
11.30 Hlé.
13.00 Skref i rétta átt. Stjórn-
endur: Magnús Jónsson,
Þorvaldur Daníelsson og
Ragnar Schram.
14.30 Þátturinn þinn. Stjórn-
andi: Alfons Hannesson.
16.00 Lífiö og tilveran. Stjóm-
andi: Marinó Flóvenz.
17.00 Hlé.
22.00 Vegurinn til Iffsins.
Stjórnandi: Ragnar Wi-
encke.
24.00 Dagskrárlok.