Morgunblaðið - 28.02.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
33
Michael Checkland Reuter
Nýr
yfirmað-
urBBC
London, Reuter.
NÝR yfirmaður, Michael Check-
land, tók við störfum hjá breska
ríkisútvarpinu, BBC, í gær. Al-
asdair Milne, er verið hafði
útvarpsstjóri undanfarin fjögur
og hálft ár, sagði af sér í janúar
eftir að hafa lent í deilum við
stjómarnefnd BBC. Oft hafði
verið deilt á útvarpið í stjóm-
artíð hans m.a. sögðu íhalds-
menn að fréttimar væm heldur
„rauðlitaðar". Checkland sagði
við blaðamenn í gær að ekki
væri ástæða til að hafa áhyggj-
ur af fjárhagsstöðu útvarpsins,
þótt ríkisstjómin hefði í fyrra
bannað að afnotagjöld yrðu
hækkuð og sagði að áfram yrði
lögð áhersla á vandaða dag-
skrárgerð. Hann kvað athugun
standa yfir á möguleikum þess,
að hefja útsendingar á sjón-
varpsfréttum um allan heim,
svipuðum útvarpsfréttunum
sem sendar hafa verið út um
árabil.
Bandaríkin:
Viðskipta-
halli vex
Washington, Reuter.
VIÐSKIPTAHALLI Banda-
ríkjanna var í janúarmánuði
14,8 milljarðar dollara (tæpl.
592 milljarðar ísl. kr.), en í des-
ember var hann 12,7 milljarðar
dollara, að því er bandaríska
viðskiptamálaráðuneytið til-
kynnti í gær. Verðlag á neyslu-
vörum hækkaði um 0,7% sem
er meira en búist hafði verið
við, en í þetta sinn var mælt
eftir nýrri aðferð sem á að sýna
betur neyslumunstrið.
Reagan forseti:
Minni ætt-
fræðiáhugi
London, Reuter.
RONALD Reagan, Bandaríkja-
forseti, hefur misst áhugann á
því að upplýst verði hvort hann
og Donald Regan, starfsmanna-
stjóri Hvíta hússins, sem nú á
í vök að veijast vegna írans-
málsins, séu skyldir, að sögn
breska ættfræðingsins Hugh
Peskett. Reagan hafði beðið
Peskett, sem fyrir sex árum
rakti ættir forsetans til írska
þorpsins Ballyporeen, að rann-
saka hvort þessi skyldleiki væri
fyrir hendi. En nú hefur ætt-
fræðingurinn fengið orðsend-
ingu um að hætta rannsókn
málsins.
Argentískir herfor-
ingjar fyrir rétti
Buenos Aires, Reuter, AP.
HANDTAKA 13 foringja úr
argentínska sjóhemum sem
sakaðir eru um brot á mann-
réttindum hefur valdið
óánœgju innan hersins. í
þessum mánuði hafa tæplega
200 foringjar verið ákærðir
fyrir slík brot og hafa marg-
ir þeirra lýst því yfir að þeir
muni ekki mæta fyrir rétti
af fúsum og fijálsum vilja.
Sex foringjar voru handteknir
á miðvikudag er þeir mættu ekki
fyrir rétti þar sem þeir áttu að
svara til saka vegna pyntinga
o.fl. er átt höfðu sér stað á her-
skóla (ESMA) sem notaður var
sem fangelsi á tímum herfor-
ingjastjómarinnar 1976-1983.
Hinir sjö, tveir af þeim fyrrver-
andi hershöfðingjar, voru settir í
fangelsi eftir að hafa verið
ákærðir fyrir svipaðar sakir.
Meðal hinna handteknu er Al-
fredo Astiz, sem í desember í
fyrra var fundinn sekur um að
vera valdur að hvarfí 17 ára
sænskrar stúlku, Dagmar Hagel-
in, árið 1977. Málið var látið
niður falla þar sem sökin var
talin fymd.
Karpovvann
aðraskákina
Lineares, AP.
ANATOLY Karpov sigraði í ann-
arri skákinni í einvígi hans og
landa hans, Andreis Sokolov, sem
fram fer í Lineares á Spáni.
Skákin fór í bið á fimmtudag,
en var tefld áfram í gær. Svo fór,
að Sokolov, sem tefldi á svart, gaf
skákina í 61.' ieik. Staðan í ein-
víginu eftir tvær skákir er þá
þannig, að Karpov er með 1 1/2
vinning en Sokolov með 1/2, þar
sem fyrstu skákinni lauk með jafn-
tefli.
Reuter
Verkamenn koma með fyrstu eintökin af Tower-skýrslunni í Hvita
húsið, rétt áður en niðurstöður hennar voru kynntar.
Hæfni Reasrans dregin í
efa í Tower-skýrslunni
TOWER-nefndin gagnrýnir Ronald Reagan, Bandaríkjaforseta, í
skýrslu sinni um vopnasölumálið, fyrir kæruleysislega stjórnarhætti
og afskiptaleysi. Leggur nefndin m.a. til að starfsemi Þjóðarörygg-
isráðsins verði breytt og að forsetinn hafi betra samband við
undirmenn sina og krefjist þess að þeir sýni meiri ábyrgð í starfi
en verið hefði í vopnasölumálinu,
„Það má segja að forsetinn hafí
haldið sig nokkuð afsíðis og og
skipt sér of lítið af því hvemig
stjómarstefnunni væri fylgt fram,“
sagði John Tower, öldungadeildar-
maður frá Texas og formaður
nefndarinnar, sem Reagan skipaði
til að rannsaka vopnasölumálið. Orð
hans endurspegla harða gagnrýni
nefndarinnar á forsetann fyrir af-
skiptaleysi af starfsemi Þjóðarör-
yggisráðsins. „Starfsemi ráðsins
hefur ekki tilætluð áhrif nema for-
setinn segi því fyrir verkum. Það
er því undir honum komið og for-
ystuhæfíleikum hans hvemig til
Iþróttamenn fái að
gerast atvinnumenn
- segir Garri Karparov
Moskvu, AP.
HEIMSMEISTARINN í skák,
Garri Kasparov, hélt þvi fram í
gær, að sá tlmi væri löngu kom-
inn, að sovézkir íþróttamenn
fengju að gerast atvinnumenn.
Sagði Kasparov þetta í ávarpi,
sem hann flutti á þingi sovézka
alþýðusambandsins.
Kasparov, sem kjörinn var
íþróttamaður ársins í Sovétríkjun-
um, sagði, að hugtökin „áhuga-
mannaíþróttir" og „heimsafrek"
gætu ekki farið saman.
Flestir helztu íþróttamenn Sov-
étríkjanna era innritaðir í Rauða
herinn og era þannig að nafninu
til ekki atvinnumenn í íþróttagrein
þeirri, sem þeir iðka. Þetta kerfi
hefur þó sætt gagnrýni fyrir að
Gengi gjaldmiðla
London, AP.
GENGI bandaríkjadollars hækk-
aði gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum, nema breska pundinu, á
gjaldeyrismörkuðum Evrópu í
gær. Verð á gulli hækkaði einnig.
Síðdegis í gær kostaði sterlings-
pundið 1,5455 dollara (1,5410), en
annars var gengi dollarans þannig
að fyrir hann fengust: 1,8280 vest-
ur-þýsk mörk (1,8160); 1,5375
svissneskir frankar (1,52975)
6,0875 franskir frankar (6,0475)
2,0635 hollensk gyllini (2,0535)
1.325,00 ítalskar lírar (1.291,75)
1,3325 kanadískir dollarar (1,3316)
og 153,25 japönsk jen. Verð á gulli
var 405,75 dollarar únsan (405,00).
taka of lítið tillit til þeirra íþrótta-
manna, sem vegna hækkandi aldurs
eða annarra ástæðna geta ekki
lengur tekið þátt í keppni.
tekst," segir í skýrslunni.
Nefndin segir í kafla þar sem
fjallað er um umbætur í stjómkerf-
inu að forsetinn sé í lykilstöðu og
allt standi og falli með hvemig
hann standi í stykkinu. Hlutverki
hans ljúki ekki með stefnumörkun
heldur verði hann einnig að fylgjast
með og krefjast skýrslu af nánustu
samstarfsmönnum um hvemig
stefnunni sé fylgt fram. „Það er
hans að leggja aðstoðarmönnum
sínum línuna og segja þeim fyrir
verkum," segir í Tower-skýrslunni,
en það er niðurstaða nefndarinnar
að í vopnasölumálinu hafí talsvert
skort á það.
Fregnir hermdu í gær að Reagan
hyggði á ýmsar breytingar í Hvíta
húsinu og að ekki yrði látið duga
að starfsmannastjórinn, Donald
Regan, hætti. Stjómmálaskýrendur
og þingleiðtogar voru á einu máli
um að það yrði undir viðbrögðum
forsetans komið hvort honum
tækist að endurheimta þann
pólitíska þrótt, sem verið hefði ein-
kennandi fyrir hann á fyrstu ámm
hans í Hvíta húsinu. „Það er honum
lífsnauðsyn að setja hnefann í borð-
ið og taka af allan vafa um það
hver eigi að ráða ferðinni," sagði
Bob Dole, leiðtogi repúblikana í
Öldungadeild Bandaríkjaþings.
Reagan ætlar að svara gagnrýni
nefndarinnar í næstu viku.
Ymsir hafa orðið til að draga í
efa að Reagan verði vært í Hvíta
húsinu í þau tvö ár, sem eftir era
af kjörtímabili hans. Þingmenn úr
báðum deildum hvöttu forsetann í
gær til að taka stjómina í Hvíta
húsinu í sínar hendur og reka undir-
menn sína, ef þörf krefði. Hvöttu
margir demókratar Regan starfs-
mannastjóra, sem sagður er þótta-
fullur og þröngsýnn, til að segja
af sér. „Því fyrr sem forsetinn tek-
ur til hendi, því betra," sagði Dante
Fascell, þingmaður demókrata og
formaður utanríkisnefndar Full-
trúadeildarinnar. Hemy Kissinger,
fyrram utanríkisráðherra, sagðist
þess fullviss að Reagan gæti endur-
heimt forystuhlutverkið og sína
fyrri reisn ef hann betrambætti
starfshætti Þjóðaröryggisráðsins
og stöðvaði togstreytu milli ráð-
herra sinna.
Áfengisútsölum fjölgar
og drykkjumenn reika
um götur o g torg Moskvu
Moskvu, Reuter.
BORGARSTJÓRN Moskvu hefur fjölgað áfengisútsölum i borg-
inni og drykkjumenn eru enn á ný orðnir áberandi á götum og
torgum, segir i grein sem birtist í vikuritinu Literatumaya Rossi-
ya í gær.
í maímánuði árið 1985 skára
ráðamenn í Kreml upp herör gegn
óhóflegri áfengisneyslu __ Sovét-
borgara. Fjölmörgum áfengis-
verslunum var lokað og
opnunartími styttur til muna.
Aðgerðir þessar mæltust illa fyrir
einkum meðal íbúa Moskvu sem
þurftu að standa í biðröðum til
að náigast veigamar.
í greininni í Literatumaya
Rossiya, sem Satanislav Gagarin
þekktur bindindisfrömuður eystra
ritar, segir að yfirvöld í Moskvu-
borg hafi látið undan þrýstingi
borgarbúa. „Mér virðist þessi svo-
nefnda „tilraun" yfirvalda, sem
felst í því að flölga á ný þeim
stöðum þar sem bölvaldurinn er
boðinn falur, vægt til orða tekið
einkennileg. Er það ekki af þess-
um sökum sem drykkjurútar eru
enn á ný teknir að reika um götur
borgarinnar og halda til í strætis-
vögnum og neðanjarðarlestum án
þess að lögreglan hafi af þeim
nokkur afskipti?" segir greinar-
höfundur.
Gagarin gat þess ekki hversu
margar verslanir selja áfengi í
Moskvu. Nú er unnt að kaupa
allt áfengi, annað en vodka, í
verslunum milli klukkan tvö og
átta á virkum dögum. Á laugar-
dögum er sala á áfengi heimil frá
morgni og fram til klukkan átta,
Qóram klukkustundum lengur en
áður var.
Sovéskir embættismenn segja
að herferð Mikhails S. Gorbachev,
leiðtoga Sovétríkjanna, gegn
áfengisneyslu hafi þegar skilað
miklum árangri. Dánartíðni af
völdum áfengisdrykkju hefur
lækkað og vinnuslysum fækkað.
í sovéskum dagblöðum hafa hins
vegar birst bréf frá lesendum sem
kveðast vera hófdiykkjumenn og
kvarta yfir því að vera settir und-
ir sama hatt og áfengissjúklingar.