Morgunblaðið - 28.02.1987, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
JEftirlýstur í Laugarásbíói
LAUGARASBÍÓ hefur frumsýnt
spennumyndina Eftirlýstur, lifs
eða liðinn.
Myndin fjallar um mannaveiðara,
leikinn af Rutger Hauer, sem eltist
við hryðjuverkamenn nútímans.
Önnur aðalhlutverk eru í höndum
Gene Simmons (Kiss) og Robert
Guillamume. Leikstjóri myndarinn-
ar er Gaiy Sherman.
mmusímu
er hœgt að breyta innheimtuaö-
ferdinni. Eftir það verða áskri
argjoldin sku
viðkomandi greiðslukortareikn-
SÍMINN ER
691140
691141
ÞINGKOSNIIUGAR I
FINNLAND115.—16.3.1987
Utankjörstaðakosning fer fram í finnska sendiráðinu,
Húsi verslunarinnar v/Kringlumýrarbraut, 103 Rvík.
mánudaginn 2/3 til laugardagsins 7/3 1987 milli kl.
10—16 alla daga fyrir utan fimmtudag, þá frá 10—19.
Takið með persónuskilríkin.
KANSANEDUSTAJAIN VAALIT
SUOMESSA 15.—16.3. 1987
Ennakkoáánestys suomen suurláhetystössá, Hús
verslunarinnar, v/Kringlumyrarbraut, 103 Reykjavík,
maanantai 2/3 - lauantai 7/3 1987 klo 10—16 kunakin
pátváná paitsi torstaina 6/3 klo 10-19. Henkilöllisyysto-
distus Mukaan.
RIKSDAGSVALET I
FINLAND 15.—16.3. 1987
Förhandsröstning sker i Finlands ambassad, Hús versl-
unarinnar, v/Kringlumýrarbraut, 103 Reykjavik, mánda-
gen 2/3 — lördagen 7/3 1987 mellan kl. 10—16 alla
dagar utom torsdagen 6/3 frán kl. 10—19.
Tag identitetsbevis med.
ÞINGBREF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Mengun í sjó og heilbrigði fiskstofna:
„Lega landsins í leið
öflugra hafstrauma“
Pjórar þingsályktunartillögnr um umhverfismál og mengunarvarnir
Á síðasta löggjafarþingi vóru
samþykkt lög um varnir gegn
mengun sjávar. Lögin eiga m.a.
að tryggja markvissari fram-
kvæmd alþjóðasamninga, sem
íslenzk stjórnvöld hafa staðfest,
um þetta efni.
Þingmenn Sjálfstæðisflokks
hafa þrisvar sinnum flutt frum-
varp til laga um umhverfismál á
Alþingi, síðast veturinn
1983-1984. Frumvörpin náðu
ekki fram að ganga.
Nú liggja fyrir Alþingi a.m.k.
fjórar tillögur til þingsályktunar
um umhverfismál: 1) tillaga sjö
þingmanna Sjálfstæðisflokks um
stefnumótun i umhverfismálum,
2) tillaga þriggja þingmanna
sama flokks um vamir gegn
mengun hafsins við ísland, 3) til-
laga fimm þingmanna Alþýðu-
bandalags um um úrbætur i
umhverfismálum og náttúra-
verad, 4) tillaga átta þingmanna
Framsóknarflokks um sam-
ræmda heildarstjóra umhverfis-
mála.
Fjórar umhverfis-
verndartillögnr
Fyrri tillaga þingmanna Sjálf-
stæðisflokks fjallar um stefnumót-
un í umhverfismálum. Tillagan
fjallar um að koma á „skipulegri
yfirstjom umhverfismála í Stjómar-
ráði íslands og nánara samstarf
þeirra aðila sem sinna náttúm-
vemd, mengunarvömum og öðmm
þáttum umhverfísmála. Tillagan
felur ríkisstjóminni, verði hún sam-
þykkt, að gera áætlun um stefnu-
mótun í umhverfísmálum, sem efli
alhliða umhverfísvemd, vamir gegn
hverskonar mengun og stuðli jafn-
framt að varðveizlu og skynsam-
legri nýtingu náttúmgæða.
Síðari tillaga sjálfstæðismanna
fjallar um nauðsyn ráðstefnu ríkja
við Norðaustur-Atlantshaf, sem
haldin yrði hér á landi, um vamir
gegn mengun hafsins við ísland
sem og annarra svæða Norðaust-
ur-Atlantshafs, þar sem sérstaklega
verði fjallað um þá hættu sem físki-
stofnum er búin af mengun.
Tillaga Alþýðubandalags fjallar
um úrbætur í umhverfismálum og
náttúmvemd. Hún spannar undir-
búning löggjafar um umhverfísmál
og mengunarvamir og sameiningu
helztu málaflokka á sviði umhverf-
isvemdar í einu ráðuneyti.
Tillaga framsóknarmanna um
samræmda heildarstjóm umhverf-
ismála felur einnig í sér sameiningu
helztu þátta umhverfísmála í einu
ráðuneyti. „Til umhverfísmála telj-
ist mengunarmál, friðunarmál og
skipulagsmál", segir í tillögugrein-
inni.
Þessi tillöguflutningur allur
bergmálar vaxandi almennann
áhuga á umhverfísvemd og meng-
unarvömum. Hann er góðra gjalda
verður. Hitt væri ennnú betra ef
þingheimur kæmi sér saman um
stefnumörkun í málinu, með bein-
skeyttri þingsályktun og markvissri
löggjöf.
Brids
Arnór Ragnarsson
Reykjanesmót í
tvímenningi
Dagana 14.—15. marz verður
spilað Reykjanesmót í tvímenningi.
Em það Suðumesjafélögin ásamt
Hafnfírðingum og Kópavogsbúum
sem etja kappi saman. Spilað verð-
ur í Þinghóli og hefst keppnin kl.
13 á laugardag.
Bridsfélag Akraness
Nú er nýlokið Akranesmeistara-
móti í tvímenningi. Spilaður var
barometer, sex spil milli para. Al-
freð Viktorsson og Jón Alfreðsson
tóku snemma forystuna og juku
forskot sitt jafnt og þétt og stóðu
uppi í lokin sem öruggir sigurvegar-
ar. Röð efstu manna varð þessi:
Alfreð Viktorsson —
Jón Alfreðsson 465
Guðjón Guðmundsson - Ólafur G. Ólafsson 317
Tryggvi Bjamason - Bent Jónsson 202
Hörður Pálsson — Þráinn Sigurðsson 150
Vigfús Sigurðsson - Oliver Kristófersson 142
Jóhann Lárasson — Baldur Ólafsson 135
ltfmele RYKSUGAN
Húnervönduð
oqvinnurvel
• 1000 watta kraftmikill mótor
• Afkastar 54 sekúndulitrum
• Lyftir 2400 mm vatnssúlu
• 7 lítra poki
• 4 fylgihlutir í innbyggðri geymslu
• Stillanleg lengd á röri
• Mjög hljóðlát (66 db. A)
• Fislétt, aðeins 8,8 kg
• Þreföld ryksía
• Hægt að láta blása
• 9,7 m vinnuradíus
• Sjálfvirkur snúruinndráttur
• Teppabankari fáanlegur
• Taupoki fáanlegur
• Rómuð ending
• Hagstætt verð
Reyndu hana á næsta útsölustað:
Mikligarður v/Sund
JL-húsið, rafdeild
Rafha, Hafnarf.
Gellir, Skipholti
Teppabúðin, Suöurlandsbraut
Raforka, Akureyri
KB, Borgarnesi
KHB, Egilsstöðum
Verzl. Sig. Pálma, Hvammstanga
KH, Blönduósi
Straumur, ísafirði
KASK, Höfn
Rafbúð RÓ, Keflavik
Árvirkinn, Selfossi
Kjarni, Vestmannaeyjum
Rafþj. Sigurd., Akranesi
Grímur og Árni, Húsavík
Rafborg, Patreksfirði
HT JÓHANN ÓLAFSSON & CO
Sundaborg 13, sími 688S88
Þess má svo geta til gamans að
ekki er allt fengið með tölvutækn-
inni. Spilin voru að sjálfsögðu
tölvugefín eftir því forriti sem nú
er mest notað, en þegar kom í spil
númer 108 töldu ýmsir að þeir hefðu
séð það áður. í ljós kom að tölvan
hafði gefíð þrettán spil í röð upp
aftur frá fyrstu umferðum.
Islandsmót kvenna
og yngri spilara
í sveitakeppni
Um þessa helgi verður spiluð
undankeppni íslandsmóts í sveita-
keppni kvenna og yngri spilara í
Sigtúni 9. Frekar dræm þátttaka
virðist vera í bæði mótin (er þetta
er skrifað), aðeins eru 8 sveitir
skráðar til leiks í kvennaflokki og
12 sveitir í yngri flokki. Er það
mun lakari þátttaka en verið hefur
hin síðari ár.
Sveitimar munu keppa innbyrðis
í sínum flokkum og fjórar efstu
sveitimar úr hvorum spila síðan til
úrslita um næstu helgi.
Bridsfélag Akureyrar
Sl. þriðjudag hófst hjá félaginu
Sjóvá-sveitahraðkeppni, með þátt-
töku 18 sveita. Eftir fyrsta kvöldið
af fjórum er staða efstu sveita þessi:
Sveit Áma Bjamasonar 265
Sveit Stefáns Sveinbjömss. 246
Sveit Sjóvá-umboðsins 246
Sveit S.S. Byggir 244
Sveit Stefáns Vilhjálmssonar 236
Sveit Gunnars Berg 226
Svéit Rögnvalds Ólafssonar 225
Sveit Hauks Harðarsonar 224
Meðalskor er 216.
Keppni verður framhaldið næsta
þriðjudag. Minnt er á skráningu í
opna Stórmótið sem haldið verður
á Akureyri helgina 21.-22. mars.
Skráð er hjá stjórn félagsins á
Akureyri, svo og hjá Ólafí Lárus-
syni, sem jafnframt verður keppnis-
stjóri á Stórmótinu. Búast má við
mikilli þátttöku og þegar era stjöm-
ur eins og Jón Baldursson og
Þórarinn Sigþórsson skráðar til
leiks.
Bridsfélag Breiðholts
SI. þriðjudag hófst Barometer-
tvímenningur með þátttöku 24
para. Að loknum 4 umferðum er
röð efstu para þessi:
Stefán Oddsson —
Ragnar Ragnarsson 81
Baldur Bjartmarsson — Gunnlaugur Guðjónsson Sigurður Kristjánsson — 49
Eiríkur Sigurðsson Magnús Oddsson — 34
Lilja Guðnadóttir Kjartan Kristófersson — 32
Helgi Skúlason Anton R. Gunnarsson — 31
Friðjón Þórhallsson Óskar Sigurðsson — 27
Róbert Geirsson Leifur Karlsson — 26
Ólafur Tryggvason 22
Næsta þriðjudag heldur keppnin áfram. Spilað er í Gerðubergi kl.
19.30 stundvíslega.
Tafl- og brids- klúbburinn
Fimmtudaginn 26. febrúar var
spiluð næstsíðasta umferðin af 7 í aðalsveitakeppninni. Úrslit leikja:
Karl — Sigurður 5-25
Þórður S. — Reynir 15-15
Leifur — Þórður J. 17-13
Geirarður — Jón Steinar 16-14
Staðan er nú þessi: Sigurður Ámundason 126
Geirarður Geirarðsson 117
Jón Steinar Ingóifsson 92
Þórður Sigfússon 88
Þórður Jónsson 84
Leifur Kristjánsson 78
Karl Nikulásson 73
Reynir A. Eiríksson 61
Síðasta kvöldið verður á fímmtu- daginn kemur og byijað að skrá í
aðalbarometerinn. Einnig munu
Gísli í síma 34611 og Anton í’síma
651714.