Morgunblaðið - 28.02.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR 1987
51
Afmæliskveðja:
Arnþór Jakobsson
Mig langar að minnast á hann
Amþór, þó segja megi að þetta séu
síðbúnar línur, því Amþór varð 95
ára þann 24. febrúar. Hann er elsti
núlifandi hermaður í Hjálpræðis-
hemum á íslandi. Að lýsa æviferli
Amþórs er mér um megn, því á
löngum æviferli hefur hann lagt
gjörva hönd á margt. f Noregi var
hann um hríð jámbrautarstjóri, og
í þá daga voru fáir Norðmenn með
stærra próf og réttindi í þeirri
grein, að hans sögn. Um skeið rak
hann þar búskap og efa ég ekki
að það hefur verið af myndarskap
unnið. Amþór hefur aldrei sett
merkið hátt, hvað sem hann hefur
tekið sér fyrir hendur, enda aldrei
einn, þvf frá unga aldri og til þessa
dags hefur hann byggt allt sitt líf
í trúnni á Jesú Krist. Amþór hefur
verið dyggur verkamaður í víngarði
Drottins. Hann hefur verið góð-
gjam, hjálpsamur, vandvirkur og
KÓR:
Ég vil taka á mig krossberans kvöl.
Ég vil kijúpa og biðja um grið,
svo ég hljóti hinn eilífa auð,
svo ég öðlist hinn himneska frið.
Hann er litaður blóði
hins lifandi Guðs, og hann
ljómar af fegurð og skín,
því hann minnir á Krist,
sem var krossfestur þar,
sem að kvaldist og dó vegna mín.
Ég hef heitið að taka á mig kross-
berans kvöl, og sú köllun er
fógur og glæst.
Er ég smáður af öðrum til Golgata geng,
er ég Guði og himninum næst.
(Davíð Stefánsson þýddi.)
Með þessum fátæklegu orðum
bið ég Guð að blessa þér ævikvöld-
ið og þakka þér fyrir allt.
Ásgeir H.P. Hraundal
Sýning á blýantsteikning-
um í Bókasafni Kópavogs
SÝNING á blýantsteikningum
Ingibergs Magnússonar í Bóka-
safni Kópavogs var opnuð
laugardaginn 21. febrúar. Mynd-
irnar sem eru 20 talsins voru
gerðar fyrir bókina Rætur, sýnis-
bók íslenskra bókmennta frá
siðaskiptum til nýrómantíkur,
sem Mál og menning gaf út 1986
og lýsa atvikum og sögusviði
tuttugu sígildra listaverka —
ljóðum, sögum, ævisögum eða
ferðabókum.
Sýningin mun standa til 20.
mars og er opið á opnunartírna
safnsins, þ.e. mánudaga til föstu-
daga kl. 11.00-21.00 og laugardaga
kl. 11.00-14.00.
Bókasafn Kópavogs er til húsa
að Fannborg 3-5 í miðbæ Kópavogs.
Félag* harmo-
nikkuunnenda
SKEMMTINEFND Félags harm-
onikkuunnenda stendur fyrir
skemmtidagskrá sunnudaginn 1.
mars í Templarahöllinni við
Skólavörðuholt.
Skemmtidagskráin verður frá kl.
15.00 til 18.00. Veitingar verða í
boði og í lok dagskrár verður dans-
að.
Dagskráin er öllum opin.
trúr í smáu sem stóru. A öllum
árstíðum mátti sjá þennan mann,
þar sem hann var að hreinsa planið
fyrir framan Hjálpræðisherinn og
hefur aldrei verið betur þrifíð um-
hverfí hússins, en meðan hans
kraftar entust. Þessi störf, sem
önnur, vann hann Drottni til dýrð-
ar. Amþór er maður hagorður og
ófá gullkom hafa komið fram á
hans varir í bundnu og óbundnu
máli, þegar hann hefur gefíð sinn
vitnisburð á samkomum Hersins,
og mörgum hefur hann ríkulega
miðlað af reynslu sinni með Guði,
öll þau ár, sem hann hefur gengið
með Honum. Ég þakka Guði fyrir
að hafa fengið að kynnast þessum
sérstæða persónuleika.
Uppi á hæðinni miklu
stóð heilagur kross,
sem er hæddur af þúsundum
enn.
Sjá ég elska þann kross,
þar sem fórnin var færð,
sem að frelsaði synduga menn.
Lionsklúbb-
ur Hnapp-
dæla 10 ára
Borg, Miklaholtshreppi
SÍÐASTLIÐINN laugardag hélt
Lionsklúbbur Hnappdæla sína
árlegu árshátíð í Lindartungu í
Kolbeinsstaðahreppi. Á árshátíð-
inni var einnig minnst 10 ára
afmælis klúbbsins.
Margir klúbbfélagar víðs vegar
að af landinu, meðal annars frá
Stykkishólmi, Búðardal, Borgamesi
og Akranesi, mættu á þessari árs-
hátíð og færðu klúbbnum góðar
gjafir í tilefni af tíu ára afmælinu.
Þeir sem starfað hafa í klúbbnum
frá stofndegi fengu einnig viður-
kenningu fyrir áhuga og fómfúst
starf.
Á þessum tíu ára starfstíma hafa
klúbbfélagar stutt mörg góð mál
og látið ýmislegt gott af störfum
sínum leiða. Þess skal og getið að
flest árin hafa þeir haldið samkomu
helgaðri fullomu fólki, sem er 60
ára og eldra. Jafnan verið þá með
fjölbreytta dagskrá og góðar veit-
ingar. Nú em starfandi um 20
félagar og skal þeim óskað farsæld-
ar í náinni framtíð.
Páll
■Hróöleikur og
X. skemmtun
fyrirháa semlága!
FRAMDRIFSBILL
Á UNDRAVERDI
Lada Samara hefur alla kosti til aö bera sem
íslenskar aöstœöur krefjast af fólksbíl í
utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Þaö er ekki
aö ástœöulausu sem Lada Samara er
metsölubíll, því veröiö er hreint undur og ekki
spilla góö greiöslukjör.
Lada Samara 5 gíra kr. 265.000.-
Lada Samara 4 gíra kr. 249.000.-
Opiö alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá
10-16.
VERIÐ VELKOMIN
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur
RAGNAR ÓSKARÍSON