Morgunblaðið - 20.03.1987, Side 2
2 G
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 20. MARZ 1987
DULIN
AFBROT
Hvað hefurðu
á samviskunni?
FLESTUM hættir til þess aö flokka menn í tvo flokka,
þá sem brjóta af sér lögum samkvæmt og svo hina
löghlýðnu. MáliA er þó ekki svo einfalt, því hinir
löghlýönu hafa einnig oft eitthvaö á samviskunni,
eins og fram hefur komiö þegar kannanir hafa veriö
geröar á duldu brotatölunni, þ.e. af brotum sem
hvergi hafa komiö fram.
Það er norski afbrota-
fræðingurinn Nils
Christie sem hefur
velt þessum málum
fyrir sér og gert
kannanir á fyrirbærinu. Hann
segir að refsiverðu athæfi megi
líkja við pýramída, í efsta laginu
eru fangar eða þeir sem dæmd-
ir hafa verið til að dvelja á
stofnunum, í næstefsta laginu
eru þeir sem dæmdir eru til
viðurlaga án frelsiskerðingar,
t.d. dæmdir til að greiða sektir.
í þriðja laginu eru þeir sem
hafa framið refsivert athæfi en
ekki komist upp um þá og brot-
ið því kært en ekki upplýst, og
á botninum eru öll refsiverð
athæfi sem hvorki eru kærð né
upplýst, þ.e. hin duldu brot.
Dulin afbrot
í Noregi
Athuganir hafa verið gerðar
á tíðni duldra brota í Noregi,
og hafa kannanir verið gerðar
hjá þeim sem láta skrá sig til
herþjónustu. Svarshlutfall hef-
ur verið mjög hátt, og hefur
komið í Ijós að menn hafa ýmis-
legt á samviskunni, flestir
fremja einhver afbrot á ungl-
ingsárum, fæst mjög alvarleg.
Það virðist þó fara talsvert eftir
búsetu manna hvort og hve
mikið þeir brjóta af sér, þétt-
býlisbúar hafa fleiri brot á
samviskunni, en þeir sem búa
í dreifbýlinu, enda aðstæður
ólíkar á þessum stöðum. Við
samanburð á skráðum brotum
Það virðistþó
fara talsvert eftir
búsetu manna hvort
og hve mikið þeir
brjóta afsór,
þéttbýiisbúar hafa
fleiribrotá
samviskunni, en þeir
sem búa í
dreifbýlinu, enda
aðstæður ólíkar á
þessum stöðum.
og duldum hefur komið í Ijós
að lítill munur er á nokkrum
flokkum afbrota hvað þetta
snertir, búðarþjófnaður, inn-
brot og þjófnaður úr farartækj-
um eru jafn algeng meðal
skráðra og duldra brota en
fíkniefnabrot, umferðarlaga-
brot, brugg, og ofbeldi innan
fjölskyldunnar svo sem nauðg-
anir eru algengari dulin en
skráð. Ekki er hægt að finna
neina sérstaka þætti sem eru
sameiginlegir með þeim sem
brjóta af sér án þess að upp
um þá komist, en ef litið er á
þá sem eru á lista yfir skráð
afbrot eru ákveðin sameinkenni
oftast til staöar hjá brotamönn-
unum. í fyrsta lagi eru þeir ungir
er brotið er framið, í öðru lagi
eru þeir langoftast karlmenn
sem búa í þéttbýli. Oft tilheyra
þeir lágstétt eða ætt sem nýtur
ekki mikillar virðingar, og eru í
„skólatapliðinu" , þ.e. hafa
hætt í skóla án þess að Ijúka
lokaprófum, og oft hefur náms-
árangurinn verið lélegur. í
flestum tilfellum fremja þeir
svokölluð gamaldagsbrot, þ.e.
innbrot, þjófnað eða ofbeldis-
verk en eicki hvítflibbabrot, en
það eru þau brot nefnd sem
eru oft meira einkennandi fyrir
nútímasamfélag. Hvítflibba-
brotum er það sameiginlegt að
verknaðurinn er oft lítt sýnileg-
ur, beinist frekar að hópum en
einstaklingum, og refsingar við
þeim eru oftast sekt eða skil-
orð.
Hvítflibbabrot-
gamaldagsbrot
Hvítflibbabrotamenn hafa oft
mun betri aðstæður en aðrir
brotamenn, oft er erfitt að
henda reiður á afbrot þeirra þar
sem erfitt er að fá upplýsingar
um brotið, andstætt því sem
við á um hin svokölluðu gamal-
dagsbrot. Löggjöfin er einnig
oft óljós og götótt hvað snertir
viðurlög við hvítflibbabrotun-
um, sem dæmi má nefna t.d.
nútímaglæpi svo sem efna-
hagsbrot, skjalafals, skattsvik
og tölvuglæpi. Afbrotafræðing-
ar hafa bent á að þeir hópar
sem geta lagt slíkt fyrir sig komi
ekki úr lægri stéttum þjóðfé-
lagsins, heldur hafi þeir yfir
ákveðinni menntun að ráða
sem gera brotin möguleg og
eru yfirleitt vel stæðir fjár-
hagslega.
Christie gerði könnun á
Forsíðumyndin
af Brynju sem
er utan á mars
tölublaði ítalska
Vogue. Myndin
ertekin af
Ijósmyndaran-
um Hiro
Iítalska Vogue tímaritinu, mars tölublaði, prýðir íslensk
stúlka forsíðu þess, Brynja Sverrisdóttir. Hún á
reyndar töluvert margar myndir í blaðinu þar sem
hún sýnir fatnað mismunandi tískuhönnuða. Brynja
hefur unnið erlendis síðastliðin þrjú ár við
fyrirsætustörf og eins og sjá má hefur henni vegnað
vel á því að komast á forsíðu eins þekktasta
tískutímarits heims.
Fyrir skömmu kynnti Georgio Armani nýja línu ífatnaði
í Mílanó þar sem Brynja var ein aðal fyrirsætan.
Þess má einnig geta að hún hefur að undanförnu
unnið fyrir þekkta tískukónga svo sem Feraud, Ferre
og Yves Saint Laurent. Brynja er á faraldsfæti, býr
í París en vinnur mikið á Ítalíu, í Þyskalandi og hefur
einnig dvalið töluvert í Japan.
Hér eru nokkrar myndanna úr ítalska Vogue.