Morgunblaðið - 20.03.1987, Side 15
unssonar stendur nú yfir í Nýlista-
safninu, Vatnsstíg 3b.
Ásýningunni veröa um tuttugu
málverk unnin á síðstliðnum fjórum
árum. Meginuppistaða sýningarinn-
ar eru verk byggð á (slendingasög-
unum.
Sýningin er opin frá kl. 14-22 um
helgar en 16-20 virka daga.
Gallerí Grjót:
Sverrir Ólafsson
sýnir
Sverrir Ólafsson heldur einkasýn-
ingu í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg
4a. Hann sýnir skúlptúra og andlits-
grímur unnar í málma.
Sýningin er opin alla virka daga
kl 12-18 og kl. 14-18 um helgar.
Sýningin stendur út mánuðinn.
Kjarvalsstaðir:
Tvíæringur FÍM
Samsýning Félags íslenskra
myndlistarmanna er nú haldin í
austursal Kjan/alsstaða og stendur
til 29. mars. Sýningin verður opin
daglega kl. 14-22.
Sú nýbreytni hefur átt sér stað á
sýningarhaldi FÍM að nú verður sýnt
að vorlagi í stað hinna árlegu Haust-
sýninga og erætlunin að sýna
annað hvert ár. Hefursýningin hlo-
tið nafnið Tvíæringur FIM og mun
væntanlega ganga undir þessu heiti
ínáinniframtíð.
Málverka- og skúlpt-
úrasýning
í vestursal Kjarvalsstaða stendur
nú yfir málverkasýning Guðrúnar
Tryggvadótturog ívesturforsaler
verið að sýna skúlptúra eftir
Hansínu Jensdóttur.
Norræna húsið:
Sjávarlandslag
Nú stendur yfir i Norræna húsinu
sýning sem beryfirskriftina Sjávar-
landslag.
Hér eru á feröinni málverk eftir
tvo norska málara, Olav Strpmme
og Björn Tufta og skúlptúrar eftir
Sigurö Guðmundsson.
Olav Strpmme (1909-78) er af
þeirri kynslóð norskra listamanna
sem varð fyrir áhrifum af alþjóðleg-
um straumum í málaralist um 1935,
einkum súrrealisma. Hann er nú
viðurkenndur brautryðjandi nútíma-
málaralistar þar í landi.
Björn T ufta er aftur á móti af
yngstu kynslóð norskra listamanna.
Hann kom fyrst fram á sýningu
1979 með stóra landslagsmynd.
BjörnTufta hefurað mestu haldið
sig við slíkar myndir en túlkað yrkis-
efnið á sinn eigin hátt. Myndir hans
þykja minna á myndir Olav Stromme
frá fimmta áratugnum og er fróðlegt
að bera saman myndir þeirra á sýn-
ingunni.
SigurðurGuðmundsson hefur
verið búsettur í Hollandi undanfarin
ár en vakti hér fyrst athynli með
SÚM-hópnum kringum 1970. Hann
hefur fengist við margs konar list-
form, en á þessari sýningu eru sem
fyrr segir eingöngu skúlptúrar eftir
hann.
GalleríLangbrókTextíll:
Listmunir sýndir
að staðaldri
Textílgalleríið Langbrók, Bók-
hlöðustíg 2, sýnir vefnað, tauþrykk,
myndverk, fatnað og fleiri listmuni.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og laugardaga kl. 11 -14.
TÓNLIST
Kjarvalsstaðir:
Söngtónleikar
Á sunnudag kl. 15 verða endur-
teknir söngtónleikar Robert W.
Becker og David Knowles. Robert
syngur „Astir skáldsins" eftir
Schumann og aríur úr óperum eftir
Wagner.
íslenska óperan:
Tværsýningará
Aidu um helgina
Tværsýningarverðaá Aidu eftir
Verdi hjá íslensku óperunni um
helgina, föstudags- og sunnudags-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1987
X 15
Aida sýnd föstudags
og sunnudagskvöld
Ópera Verdis, Aida, verður sýnd hjá íslensku
óperunni á föstudagskvöld og sunnudagskvöld kl.
20.00. Óperan gerist í Egyptalandi í kringum 1200
f. Krist. Aida (Ólöf K. Harðardóttir) er dóttir Amonas-
ros Eþíópíukonungs (Kristinn Sigmundsson) og er
ambátt egypskrar prinsessu (Önnu Júlíönu Sveins-
dóttur). Báðar elska þær Radames (Garðar Cortes).
Hann elskar ambáttina og svíkurföðurlandiðfyrir
hana og eru þau grafin saman lifandi.
kvöld kl. 20.
Óperan gerist í Egyptalandi í
kringum 1200 f. Krist. Aida (Ólöf
K. Harðardóttir) er dóttir Amonasros
Eþiópíukonungs (Kristinn Sig-
mundsson) og er ambátt egypskrar
prinsessu (Önnu Júlíönu Sveins-
dóttur). Báðar elska þær Radames
(Garðar Cortes). Hannelskaram-
báttina og svíkur föðurlandið fyrir
hana og eru þau grafin saman lif-
andi.
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur:
Land mi'ns föður
Nú fer sýningum á stríðsöng-
leiknum sívinsæla, Landi míns
föður, eftir Kjartan Ragnarsson
fækkandi. Leikritið verður sýnt bæði
föstudags- og sunnudagskvöld kl.
20.30. Þessarsýningarverða þær
195. og 196. í rööinni.
Land míns föður er nú þegar
komið í hóp allra vinsælustu verka
LR frá upphafi og hafa rúmlega 38
þúsund manns sótt sýningar á verk-
inu. Það er með því tViesta sem
þekkst hefur í islensku leikhúsi og
enn eraðsókn mikil. En ný verkefni
knýja á og Land míns föður verður
þvi brátt að vikja.
Dagur vonar
Laugardagskvöld kl. 20 veröur
leikrit Birgis Sigurðssonar, Dagur
vonar, á dagskrá. Leikstjóri er Stef-
án Baldursson.
Leikritið, sem gerist í Reykjavík á
sjötta áratugnum, er nokkurs konar
uppgjör milli einstaklinga og eiga
átökin sér stað innan fjölskyldu þar
sem væntingar einstaklinganna eru
ólíkarog hagsmunirskarast.
Leikmynd og búninga hannar
Þórunn S. Þorgrímsdóttir, tónlist er
eftir Gunnar Reynir Sveinsson og
lýsingu annast Daniel Williamsson.
Leikendur eru: Margrét H. Jóhanns-
dóttir, ValdimarÖrn Flygenring,
Sigurður Karlsson, Guðrún S. Gísla-
dóttir, Sigríður Hagalín og Þröstur
LeóGunnarsson.
Leikskemma Leikfé-
lagsins v/Meistaravelli:
Þar sem djöfla-
eyjan rís
Þar sem djöflaeyjan rís, verður
sýnt í hinni nýju Leikskemmu LR á
Meistaravöllum laugardagskvöld kl.
20. Þetta fjöruga og skemmtilega
leikrit Kjartans Ragnarssonarfsem
gert er eftir skáldsögu Einars Kára-
sonar) hefur fengið afbragðs við-
tökur, enda góð skemmtun fyrir alla
aldurshópa.
Við minnum á veitingahúsiö á
staðnum, sem opið er sýningardag-
ana frá kl. 18. Borðapantanir eru í
síma 14640 eða í veitingahúsinu
Torfunni í síma 13303.
Þjóðleikhúsið:
Rympa á rusla-
haugnum
Bamaleikritið Rympa á rusla-
haugnum eftir Herdísi Egilsdóttur
verður sýnt á stóra sviðinu laugar-
dag og sunnudag kl. 15.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld,
hönnuður leikmyndar og búninga
er Messíana Tómasdóttir, dansa-
höfundur Lára Stefánsdóttir, Ijósa-
hönnuður Björn Bergsteinn
Guðmundssson, en Jóhann G. Jó-
hannsson útseturtónlistina og
stjórnar hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip
á leikinn. Leikritið gerist á rusla-
haug, sem er iöandi af lífi og munu
rúmlega 20 ungirballettdansarar
sjá til þess. Sigriður Þorvaldsdóttir
leikurskemmtilega skassið Rympu,
sem býr á ruslahaugnum með haus-
lausa tuskukarlinum Volta. Það
verður aldeilis búhnykkur fyrir hana
þegartvö börn birtast á öskuhaug-
unum á flótta frá heimili og skóla.
Fjölskrúðugur hópur ungra leikara
og dansara tekur þátt í sýningunni
og eru þau flest úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins.
Aurasálin
Gamanleikurinn Aurasálin eftir
franska skopsnillinginn Moliere
verður sýndur sunnudagskvöld kl.
20 en nú eru aöeins fjórar sýningar
eftir. Sveinn Einarsson þýddi og
leikstýrir þessum 300 ára gaman-
leik sem enn er með vinsælustu
gamanleikjum allra tíma. Finnski
listamaðurinn Paul Suominen hann-
aði leikmynd og Helga Björnsson,
tískuteiknari hjá Louis Féraud í Paris
teiknaði búningana. Jón Þórarins-
son samdi tónlist við verkið og var
æfingastjóri tónlistar Agnes Löve.
Ljósahönnuður er Ásmundur Karls-
son, sýningarstjóri Jóhanna Norð-
fjörð og aðstoðarmaður leikstjóra
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Bessi Bjarnason leikur burðar-
hlutverkið, aurasálina Harpagon, en
í öðrum hlutverkum eru Pálmi Gest-
son, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Gisli Alfreðsson,
Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Randver Þorláksson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Jón
Símon Gunnarsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Flosi Ólafsson, Júlí-
us Hjörleifsson og Hákon Waage.
Uppreisn á ísafirdi
Leikrit Ragnars Arnalds, Upp-
reisn á ísafirði, veröur sýnt á stóra
sviðinu föstudagskvöld kl. 20. Leik-
stjóri er Brynja Benediktsdóttir.
Þetta vinsæla leikrit Ragnars Arn-
alds fjallar um Skúlamálin frægu,
ergerðust fyrirrúmum hundraö
árum, en við sögu koma einnig
skáldaðar persónur.
Róbert Árnfinnson leikur Magnús
Stephensen, landshöfðingja, Rand-
ver Þorláksson fer með hlutverk
LárusarH. Bjarnasonar, mála-
færslumanns á unga aldri, en þeir
tveir voru aögangsharöastir i að-
förinni gegn Skúla Thoroddsen,
sýslumanni ísfirðinga, sem Kjartan
Bjargmundsson leikur. Meðal ann-
arra leikara eru Lilja Þórisdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Rúrik Har-
aldsson, Baldvin Halldórsson, Er-
lingur Gíslason, Arnar Jónsson,
Björn Karlsson, Árni T ryggvason og
Eyvindur Erlendsson en alls taka
um fimmtíu leikarar þátt í sýning-
unni.
Sigurjón Jóhannsson hannaði
leikmynd og búninga, Páll Ragnars-
son lýsingu og Hjálmar H. Ragnars-
son samditónlistina.
í smásjá
Þetta nýja leikrit eftir Þórunni Sig-
urðardótturverðursýntá Litla
sviðinu, Lindargötu 7, laugardags-
kvöld, kl. 20.30.
Leikritið fjallar um líf og dauða
og margt þar í milli. Sögupersónurn-
ar eru tvenn hjón, þar af þrír starf-
andi læknar. Einn þeirra fær
alþjóðlega viöurkenningu í upphafi
leiks, en þegar óvænt örlög breyta
lifi þeirra þurfa þau að endurmeta
bæði lif sitt og starf.
Leikendur eru Arnar Jónsson,
Anna Kristin Arngrimsdóttir, Sigurð-
ur Skúlason og Ragnheiður Stein-
dórsdóttir.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son.
Hallæristenór
Gamanleikurinn Hallæristenór,
eftir bandaríska leikskáldið og lög-
fræöinginn Ken Ludwig, í þýðingu
Flosa Olafssonar, verður sýndur á
stóra sviði Þjóðleikhússins laugar-
dagskvöld kl. 20. Leikstjóri er
Benedikt Árnason.
Leikurinn gerist á hótelsvítu í
Ohioríki í Bandaríkjunum fyrir um
hálfri öld. ítalskur hetjutenór á að
syngja hlutverk Othello á hátiðar-
sýningu Clevelandóperunnar. En
það gengur á ýmsu og virðist á
stundum að ekkert ætli að verða
úrsýningunni.
í aðalhlutverkum eru Örn Árna-
son, Aðalsteinn Bergdal, Tinna
Gunnlaugsdóttirog ErlingurGísla-
son. Brot úrýmsum þekktum
óþerum eru sungin í leiknum. Æf-
ingastjóri tónlistar var Agnes Löve,
hönnuður leikmyndar og búninga
Karl Aspelund og Ijósahönnuður
Sveinn Benediktsson.
Leihúsveisla
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins
hefur notið mikilla vinsælda í vetur.
Miði á leikhúsveislu kostar 1300
krónur og er þá innifaliö þríréttuð
máltíð í Leikhúskjallaranum og leik-
húsmiði á sýningu í Þjóöleikhúsinu
á eftir.
Leikhúsið í kirkjunni:
Kaj Munk
(Hallgrímskirkju sýnir Leikhúsið
i kirkjunni leikritið um Kaj Munk, i
leikgerð GuðrúnarÁsmundsdóttur.
Leikritið fjallar um ævi og starf
danska prestsins og frelsishetjunn-
ar Kaj Munk, allt frá barnæsku og
þar til nasistar tóku hann af lífi árið
1944.
Þó slegið sé á létta strengi, er
megináhersla lögð á trúarstyrk og
eldmóð predikarans Kaj Munk. Að-
alhlutverk er í höndum Árnars
Jónssonar, sem leikur Kaj Munk á
fullorðinsárum, en með hlutverk Kaj
Munk sem barns fara þeir bræðurn-
ir ívar og Daði Sverrissynir. Tónlist
er eftir Þorkel Sigurbjörnsson og er
hún leikin af Ingu Rós Ingólfsdóttur
og HerðiÁskelssyni.
Sýningar eru á sunnudögum kl.
16 og mánudögum kl. 20.30.
Miðapantanir eru í síma 14455.
Einnig er hægt að fá miða í bóka-
verslun Eymundssonará verslun-
artíma og í Hallgrímskirkju.
FERÐALOG
Frístundahópurinn
Hana nú:
Laugardagsgangan
Vikuleg laugardagsganga
Frístundahópsins Hana nú i Kópa-
vogi verðurá morgun, laugardag.
Lagt er af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10.
Við göngum undir hækkandi sól.
Markmið göngunnarer: Samvera,
súrefni, hreyfing. Nýlagaðmola-
kaffi. Allirvelkomnir.
Ferðaféiag íslands:
Vetrarfagnaður og
skíðagönguferð
i kvöld kl. 19.30 efnir Ferðafélag-
ið til vetrarfagnaðar í annað sinn.
Sameiginlegt boröhald hefst kl. 20
og verðurÁrni Björnsson, þjóð-
háttafræðingur, veislustjóri. Hljóm-
sveit leikur fyrir dansi og félags-
menn sjá um skemmtiatriði.
Á sunnudaginn er skíðagöngu-
ferð um Leggjabrjót. Ekið verður til
Þingvalla og gengið frá Brúsastöð-
um vesturðxnadal, um Leggjabrjót
og niöur í Brynjudal. Þessi ferð hefst
kl. 10.30. Önnurferðverðurkl. 13,
gönguferð um Hvalfjarðareyri, sem
gengurfram í Hvalfjörð að sunnan-
verðu.
Útivist, ferðafélag:
Þjóðleið mánaðarins
og skíðagönguferð
Á sunnudaginn 22. mars verða
tværferðir. Kl. 10.30 erskiðagöngu-
ferð frá Bláfjöllum yfir í Brennisteins-
fjöll og Grindaskörð. Þarna er
fjölbreytt landslag m.a. með sér-
stæðum eldstöðvum t.d. Kistufelli.
Kl. 13verðurgenginþjóðleið
mánaðarins sem að þessu sinni er
hluti gömlu Selvogsleiðarinnar. Byrj-
að verður í Kaldárseli og gengið hjá
Músarhelli um svokallaðar Hellur
og endað í Grindaskörðum en þau
eru norðuraf Lönguhlíð. Gangan
er að mestu á láglendi og við allra
hæfi. Rétt er að benda fólki á að
koma vel búið. Brottförerfrá BSÍ,
bensínsölu.
Árshátíð Útivistar verður í Fóst-
bræðraheimilinu taugardaginn 4.
april. Sjáumst.
Áhugahópurum bygg-
ingu náttúrufræðihúss:
Kynnisferð um
Árnessýslu
Á laugardaginn ferÁhugahópur
um byggingu náttúrufræðihúss
kynnisferð um Árnessýslu til að
gefa fólki kost á að skoða þar
nokkra áhugaverða staði sem
stuðla að náttúrufræðslu. Þessi ferð
er farin til að minna á þann þátt
fyrirhugaðs náttúrufræðihúss sem
snýr að kynningu og stuðning við
ýmsa fræðslustarfsemi utan þess.
Farið verður frá Norræna húsinu
kl. 9, frá Náttúrugripasafninu Hverf-
isgötu 116 (gegnt lögreglustööinni)
kl. 9.15 og Árbæjarsafni kl. 9.30.
Komiðverðurtil baka kl. 18. Allir
eru velkomnir í þessa ferð. Frítt
veröur fyrir börn 12 ára og yngri í
fylgd meðfullorðnum.
Leiðsögumenn verða þeir Frey-
steinn Sigurösson, jarðfræðingur,
og Jóhann Guðjónsson, líffræðing-
ur.