Morgunblaðið - 27.03.1987, Qupperneq 15
C 15
SiguröurGuðmundsson hefur
veriö búsettur í Hollandi undanfarin
ár en vakti hér fyrst athygli með
SÚM-hópnum kringum 1970. Hann
hef ur fengist við margs konar list-
form, en á þessari sýningu eru sem
fyrr segir eingöngu skúlptúrar eftir
hann.
Gallerí LangbrókTextíll:
Listmunir sýndir
að staðaldri
Textílgallerfið Langbrók, Bók-
hlöðustíg 2, sýnirvefnað, tauþrykk,
myndverk, fatnað og fleiri listmuni.
Opið þriðjudaga til föstudaga kl.
12-18 og lauaardaga kl. 11-14.
TÖNLIST
Gerðuberg:
Tónleikar á vegum
Menningarmið-
stöðvarinnar
Á sunnudaginn kl. 15 verða tón-
leikar í Gerðubergi á vegum
Menningarmiðstöðvarinnar þar.
Ágústa Ágústdóttir, sópransöng-
kona, Gunnar Björnsson, sellóleik-
ari, og Vilhelmína Ólafsdóttir,
píanóleikari, flytja eftirtalin verk:
Svítu fyrireinleiksselló nr. 4 í
Es-dúreftirJóhann Sebastían Bach.
Fimm söngva við Ijóð Mathilde
Wesendonk eftir Richard Wagner
og tvo söngva fyrir altrödd og lágf-
iðlu (selló) eftir Jóhannes Brahms.
Kristskirkja:
Tónleikar á sunnu-
daginn
Á sunnudaginn kl. 17 verða tón-
leikar í Kristkirkju. Þar verðurflutt
verkiö JOB eftir norska tónskáldiö
Egil Hovland. Verkið er samið árið
1973 fyrir orgel og upplestur úr
JobsbókúrBiblíunni. Flytjendureru
Gunnar Eyjólfsson, leikari, og Þröst-
ur Eiríksson, orgelleikari.
íslenska óperan:
Tvær sýningar á
Aidu um helgina
Tvær sýningar verða á Aidu eftir
Verdi hjá íslensku óperunni um
helgina, föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 20. Sýningum fer nú
fækkandi.
Óperan gerist í Egyptalandi í
kringum 1200 f. Krist. Aida (Ólöf
K. Harðardóttir) er dóttir Amonasros
Eþíópíukonungs (Kristinn Sig-
mundsson) og erambátt egypskrar
prinsessu (Önnu Júlíönu Sveins-
dóttur). Báðarelska þær Radames
(Garðar Cortes). Hann elskar am-
báttina og svíkur föðurlandið fyrir
hana og eru þau grafin saman lif-
andi. Sýnt er með íslenskum texta
og hefur það mælst mjög vel fyrir.
LEIKLIST
Leikfélag Reykjavíkur:
Land míns föður
Nú fer sýningum á stríðsöng-
leiknum sívinsæla, Landi míns
föður, eftir Kjartan Ragnarsson
fækkandi. Leikritið verður sýnt laug-
ardagskvöld kl. 20.30. Þessi sýning
veröursú 198. í röðinni.
Land míns föður er nú þegar
komið í hóp allra vinsælustu verka
LR frá upphafi og hafa rúmlega 38
þúsund manns sótt sýningar á verk-
inu. Það er með því mesta sem
þekkst hefur í íslensku leikhúsi og
enn er aðsókn mikil. En ný verkefni
knýja á og Land míns föður verður
því bráttaðvíkja.
Dagurvonar
Föstudags- og sunnudagskvöld
kl. 20 verður leikrit Birgis Sigurðs-
sonar, Dagur vonar, á dagskrá.
Leikstjóri erStefán Baldursson.
Leikritið, sem gerist í Reykjavík á
sjötta áratugnum, er nokkurs konar
uppgjör milli einstaklinga og eiga
átökin sér stað innan fjölskyldu þar
sem væntingar einstaklinganna eru
ólíkarog hagsmunirskarast.
Leikmynd og búninga hannar
Þórunn S. Þorgrímsdóttir, tónlist er
eftir Gunnar Reynir Sveinsson og
lýsingu annast Daniel Williamsson.
Leikendur eru: Margrét H. Jóhanns-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. MARZ 1987
Þjóðleikhúsið:
Ég dansa
við þig
Önnur sýning íslenska
dansflokksins á danssýn-
ingunni Ég dansa við þig
eftir Jochen Ulrich verður
sunnudagskvöld og þriðja
og fjórða sýning á þriðju-
dags- og miövikudags-
kvöld kl. 20.30. Á
myndinni sjáum við Birg-
itte Heide en hún er ein
þeirra dansara sem taka
þátt í sýningunni.
dóttir, Valdimar Örn Flygenring,
Sigurður Karlsson, Guðrún S. Gísla-
dóttir, Sigríður Hagalín og Þröstur
LeóGunnarsson.
Leikskemma Leikfé-
lagsins v/Meistaravelli:
Þar sem djöfla-
eyjan rís
Þar sem djöflaeyjan rís, verður
sýnt i hinni nýju Leikskemmu LR á
Meistaravöllum föstudags- og
sunnudagskvöld kl. 20 en uppselt
er á flestar sýningar fram til páska.
Þetta fjöruga og skemmtilega leikrit
Kjartans Ragnarssonar(sem gert
ereftirskáldsögu Einars Kárasonar)
hefur fengið afbragðs viðtökur,
enda góð skemmtun fyrir alla ald-
urshópa.
Við minnum á veitingahúsið á
staönum, sem opið er sýningardag-
anafrá kl. 18. Borðapantanireru í
síma 14640 eða í veitingahúsinu
Torfunni ísíma 13303.
Þjóðleikhúsið:
Rympa á rusla-
haugnum
Barnaleikritið Rympa á rusla-
haugnum eftir Herdísi Egilsdóttur
verður sýnt á stóra sviðinu laugar-
dag og sunnudag kl. 15.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld,
hönnuðurleikmyndarog búninga
er Messíana Tómasdóttir, dansa-
höfundur Lára Stefánsdóttir, Ijósa-
hönnuður Björn Bergsteinn
Guðmundssson, en Jóhann G. Jó-
hannsson útseturtónlistina og
stjórnar hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip
á leikinn. Leikritið gerist á rusla-
haug, sem er iðandi af lífi og munu
rúmlega 20 ungirballettdansarar
sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikurskemmtilega skassið Rympu,
sem býr á ruslahaugnum meö haus-
lausa tuskukarlinum Volta. Það
verður aldeilis búhnykkur fyrir hana
þegar tvö börn birtast á öskuhaug-
unum á flótta frá heimili og skóla.
Fjölskrúðugur hópur ungra leikara
og dansara tekur þátt í sýningunni
og eru þau flest úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins.
Aurasálin
Gamanleikurinn Aurasálin eftir
franska skopsnillinginn Moliere
verður sýndur laugardagskvöld kl.
20 en nú eru aðeins þrjár sýningar
eftir.
Sveinn Einarsson þýddi og leik-
stýrir þessum 300 ára gamanleik
sem enn er með vinsælustu gaman-
leikjum allra tíma. Finnski listamað-
urinn Paul Suominen hannaði
leikmynd og Helga Björnsson, tísku-
teiknari hjá Louis Féraud í París
teiknaði búningana. Jón Þórarins-
son samdi tónlist við verkið og var
æfingastjóri tónlistar Agnes Löve.
Ljósahönnuður er Ásmundur Karls-
son, sýningarstjóri Jóhanna Norð-
fjörð og aðstoðarmaður leikstjóra
Þórunn Magnea Magnúsdóttir.
Bessi Bjarnason leikur burðar-
hlutverkið, aurasálina Harpagon, en
í öðrum hlutverkum eru Pálmi Gest-
son, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María
Bjarnadóttir, Gísli Alfreðsson,
Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Randver Þorláksson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Jón
Símon Gunnarsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Flosi Ólafsson, Júlí-
us Hjörleifsson og Hákon Waage.
Uppreisn á ísafirði
Leikrit Ragnars Arnalds, Upp-
reisn á ísafirði, verður sýnt á stóra
sviðinu nk. fimmtudagskvöld kl. 20.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir.
Þetta vinsæla leikrit Ragnars Arn-
alds fjallar um Skúlamálin frægu,
er gerðust fyrir rúmum hundrað
árum, en við sögu koma einnig
skáldaðar persónur.
Róbert Arnfinnson leikur Magnús
Stephensen, landshöfðingja, Rand-
ver Þorláksson fer með hlutverk
LárusarH. Bjarnasonar, mála-
færslumanns á unga aldri, en þeir
tveir voru aðgangsharðastir í að-
förinni gegn Skúla Thoroddsen,
sýslumanni ísfirðinga, sem Kjartan
Bjargmundsson leikur. Meðal ann-
arra leikara eru Lilja Þórisdóttir, Lilja
Guðrún Þorvaldsdóttir, Rúrik Har-
aldsson, Baldvin Halldórsson, Er-
lingurGíslason, Arnar Jónsson,
Björn Karlsson, Árni Tryggvason og
Eyvindur Erlendsson en alls taka
um fimmtíu leikarar þátt í sýning-
unni.
Sigurjón Jóhannsson hannaði
leikmynd og búninga, Páll Ragnars-
son lýsingu og Hjálmar H. Ragnars-
son samdi tónlistina.
í smásjá
Þetta nýja leikrit eftir Þórunni Sig-
urðardótturverðursýnt á Litla
sviðinu, Lindargötu 7, laugardags-
kvöld, kl. 20.30.
Leikritið fjallar um líf og dauða
og margt þar í milli. Sögupersónurn-
ar eru tvenn hjón, þar af þrír starf-
andi læknar. Einn þeirra fær
alþjóðlega viðurkenningu í upphafi
leiks, en þegar óvænt örlög breyta
lífi þeirra þurfa þau að endurmeta
bæði líf sitt og starf.
Leikendur eru Arnar Jónsson,
Anna Kristín Arngrímsdóttir. Sigurð-
ur Skúlason og Ragnheiður Stein-
dórsdóttir.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son.
Hallæristenór
Gamanleikurinn Hallæristenór,
eftir bandaríska leikskáldið og lög-
fræðinginn Ken Ludwig, í þýðingu
Flosa Olafssonar, verður sýndur á
stóra sviði Þjóðleikhússins föstu-
dagskvöldI kl. 20. Leikstjórier
BenediktÁrnason.
Leikurinn gerist á hótelsvítu í
Ohioríki í Bandaríkjunum fyrir um
hálfri öld. ítalskur hetjutenórá að
syngja hlutverk Othello á hátíðar-
sýningu Clevelandóperunnar. En
það gengur á ýmsu og virðist á
stundum að ekkert ætli að verða
úrsýningunni.
í aðalhlutverkum eru Örn Árna-
son, Aðalsteinn Bergdal, Tinna
Gunnlaugsdóttirog ErlingurGísla-
son. Brot úrýmsum þekktum
óperum eru sungin í leiknum. Æf-
ingastjóri tónlistarvar Agnes Löve,
hönnuður leikmyndar og búninga
Karl Aspelund og Ijósahönnuður
Sveinn Benediktsson.
Ég dansa við þig
Önnur sýning á danssýningunni
Ég dansa við þig eftir Jochen Ulrich
verður sunnudagskvöld og þriðja
og fjórða sýning á þriðjudags- og
miðvikudagskvöld kl. 20.30.
Sýningin samanstendur af 22
mismunandi dansatriðum við tónlist
sem byggir á 46 vinsælum dægur-
lögum í nýrri útsetningu. Höfundur
tónlistarer Samuelina Tahija. Egill
Ólafsson leikur undir á píanó, syng-
ur og talar og ásamt honum syngur
Jóhanna Linnet, en annar hljóð-
færaleikur er fluttur af segulbandi
frá upprunalegu sýningunni í Þýska-
landi.
Það er íslenski dansflokkurinn
sem ber hitann og þungann af sýn-
ingunni. Hver dansari fær að njóta
sín í sérstökum atriðum auk hópat-
riða. Gestadansarar eru tveir
aðalkarldansararKölnaróperunnar.
Nýsjálendingurinn Athol Farmer og
Frakkinn PhilipTalard. Listdans-
stjórinn Jochen Ulrich er bæði
höfundur dansa, leikmyndar og
búninga en Ásmundur Karlsson lýs-
irsýninguna.
Dansarar í Ég dansa við þig eru:
Ásgeir Bragason, Athol Farmer,
Birgitte Heide, Björgvin Friðriksson,
Ellert A. Ingimundarson, Friðrik
Thorarensen, Guðrún Pálsdóttir,
GuðmundaJóhannesdóttir, Helena
Jóhannsdóttir, Helga Benhard, Ingi-
björg Pálsdóttir, Katrín Hall, Lára
Listasafn Islands:
Yfirlitssýning
á verkum
Sigurðar Sigurðssonar
Nú stendur yfir yfirlitssýning á verkum Sigurðar Sigurðssonar
í Listasafni Islands. Sýningin spannar alian listferil Sigurðar
allt frá skólaárum og þar til á þessu ári. Á sýningunni eru alls
98 verk, olíumyndir og pastelmyndir. Myndin hér að ofan heit-
ir Stúlka í bláum kjól og er frá árinu 1960.
Stefánsdóttir, Ólafía Bjarnleifsdóttir,
Philip Talard, Sigrún Guðmunds-
dóttir, SigurðurGunnarsson, Örn
Guðmundsson og Örn Valdimars-
son.
Leikhúsveisla
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins
hefur notið mikilla vinsælda i vetur.
Miði á leikhúsveislu kostar 1300
krónur og er þá innifaliö þríréttuð
máltíð í Leikhúskjallaranum og leik-
húsmiði á sýningu í Þjóðleikhúsinu
á eftir.
Leikhúsið íkirkjunni:
Kaj Munk
í Hallgrímskirkju sýnir Leikhúsið
í kirkjunni leikritið um Kaj Munk, í
leikgerð GuðrúnarÁsmundsdóttur.
Leikritiö fjallar um ævi og starf
danska prestsins og frelsishetjunn-
ar Kaj Munk, allt frá barnæsku og
þar til nasistar tóku hann af lífi árið
1944.
Þó slegið sé á létta strengi, er
megináhersla lögð á trúarstyrk og
eldmóð predikarans Kaj Munk. Að-
alhlutverk er í höndum Árnars
Jónssonar, sem leikur Kaj Munk á
fullorðinsárum, en með hlutverk Kaj
Munk sem barns fara þeir bræðurn-
ir ívarog Daði Sverrissynir. Tónlist
er eftir Þorkel Sigurbjörnsson og er
hún leikin af Ingu Rós Ingólfsdóttur
og HerðiÁskelssyni.
Sýningar eru á sunnudögum kl.
16 og mánudögum kl. 20.30.
Miðapantanireru í síma 14455.
Einnig er hægt að fá miða í bóka-
verslun Eymundssonará verslun-
artíma og í Hallgrímskirkju.
Leikfélag Akureyrar:
Uppeit á Kabarett
um helgina
Uppselt er á báðar sýningar Leik-
félags Akureyrar um helgina á
Kabarett í leikstjórn Bríetar Héðins-
dóttur. Kabarett verður sýnt um
næstu helgi á föstudag, laugardag
og sunnudag.____
FERÐALÖG
Frístundahópurinn
Hana nú:
Laugardagsgangan
Vikuleg laugardagsganga
Frístundahópsins Hana nú í Kópa-
vogi verðurá morgun, laugardag.
Lagt er af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10.
Við göngum undir hækkandi sól.
Markmiö göngunnarer: Samvera,
súrefni, hreyfing. Nýlagað mola-
kaffi. Allirvelkomnir.
Ferðafélag íslands:
Gönguferð á Fjallið
Á sunnudaginn eru tvær dags-
ferðir á vegum Ferðafélagsins. Sý
fyrri er kl. 10.30 en það er Skíða-
gönguferð frá Bláfjallasvæðinu að
Kleifarvatni. Á þessari leið hallar
undan fæti og er nægur snjór.
Seinni ferðin er kl. 13 en það er
gönguferð á Fjallið eina (223 m) um
Sanfellsklofa að Vatnsskarði. Þetta
er þægileg gönguleið í fjölbreyttu
landslagi.
Útivist, ferðafélag:
Kræklingaferð í
HvaHjörð
Á sunnudaginn eru þrjár dags-
ferðir hjá Útivist og er brottför í þær
allar kl.T 0.30 frá BSÍ, bensínsölu.
1) Kræklingatinsla og stór-
straumsfjöruferð í Hvalfjörð. Farið
verður á góð kræklingamið í firðin-
um norðanverðum. Þetta er létt
ganga og fjöruskoðun við bestu
aðstæður því hásjávað er í hádeg-
inu. Gott er að hafa ílát með.
2) Melasveit-Melabakkar. Gengið
er um sérstæða strandlengju, en
þarna hefur orðið geysimikið sjávar-
rof. Margir minnast þess eflaust að
sýnt varfrá þessari strönd í sjón-
varpsþættinum Stiklur nú í vetur.
3) Skiðaganga yfir Kjöl. Fyrir þá
sem eiga gönguskíði er þetta góð
ferð um heiðarland á milli Kjósar-
skarðs og Hvalfjarðar. Gengið
verður frá Stíflisdal að Fossá. Árs-
hátíð Útivistar verður í Fóstbræðra-
heimilinu laugardaginn 4. apríl.
Sjáumst.