Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.04.1987, Qupperneq 1
Stríð íHull Pétur Bjömsson hjá Isberg í Hull stendur í ströngum. Með breyttri tækni og hagræðingu við löndun fisks af Islandsmið- um hefur hann treyst sér til að lækka löndunargjöld, _sem getur sparað útgerðinni á íslandi um 6-7 milljónir á ári. Um leið hef- ur hann troðið ýmsum hags- munaaðilum um tær. Hátækni 2 Saravinnuf erðir 2 Fólk á uppleið 7 Koma Kanar? 12 Lánstraust 12 Auglýsingar 14 Verðbréf 16 Tölvupistill 18 Félag með hlutverk Eimskip er áð tileinka sér ýmsa nýjustu strauma stjórnunarfræð- anna. Samhliða því að breytingar voru gerðar á stjómskipulagi fé- lagsins, hefur stefnumarkandi áætlunargerð hafí innreið sína og félagið skilgreint hlutverk sitt og höfuðmarkmið. Forstjórinn segir félagið því hafa ástundað inn- hverfa íhugun. JlfofgpntMiifrtfe VIÐSHPn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987 BLAÐ Hlutabréf Gengi hlutabréfa íFlugleiðum og Eimskip margfald- ast á rúmu ári Lánskjaravísitalan hækkaði um 18% en hlutabréf í Flugleiðum um 418% GENGI hlutabréfa í Flugleiðum hf. hefur hækkað um 413% frá ársbyrjun 1986 og hlutabréf í Eimskiptafélagi íslands hf. hafa hækkað um 126% hjá Hlutabréfamarkaðinum. A sama tíma hefur lánskjaravísitalan hækkað um liðlega 18%. Gengi bréfa í Iðnaðarbanka íslands hf. er 14% hærra en í janúar 1986 og hlutabréf í Verzlunarbanka íslands eru 15% dýrari. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi Hlutabréfamarkaðar- ins hf., sem haldinn var síðdegis í gær. Hlutabréfamarkaðurinn skráir nú kaup- og sölugengi hlutabréfa í sex íslenskum félög- um. í því felst að fyrirtækið er tilbúið að kaupa hlutabréf á aug- lýstu kaupgengi.en selur aftur á auglýstu sölugengi. Félögin sex eru: Flugleiðir hf., hf. Eimskipafé- lag íslands, Iðnaðarbanki íslands hf., Verzlunarbanki íslands hf., Hampiðjan hf. og Almennar Tryggingar hf. Skráning á hluta- bréfum í Hampiðjunni og Almenn- um Tryggingum hófst síðastliðið haust. I útreikningunum hér að framan er miðað við skráð gengi hlutabréfanna hjá Hlutabréfa- markaðnum á hveijum tíma. Skráning bréfa í þeim fjórum fé- lögum sem hér um ræðir hófst í október 1985. Uppsafnaður hagriaður Ástæður mikillar verðhækkun- ar á bréfum í Eimskip og Flugleið- um geta verið margvíslegar. Hlutabréfamarkaðurinn byrjaði skráningu hlutabréfum í Eimskip um svipað leyti og ríkissjóður seldi hlut sinn í félaginu. Verð á hluta- bréfum sem hlutfall af heildar eigin fé var mun lægra en í hinum félögunum. Þá má einnig benda á að Eimskip hefur ekki gætt þess að gefa út jöfnunarhlutabréf á uppsafnaðan hagnað. Á aðal- fundi félagsins, í síðustu viku var upplýst að sá sem keypti hlut í fyrirtækinu þegar það var stofnað árið 1914, ætti nú miðað við breyt- ingu á framfærsluvísitölu, sömu verðmæti í félaginu og þá. Iðnað- arbankinn og Verzlunarbankinn hafa hins vegar gætt þess að hlut- hafar fái að njóta uppsafnaðs hagnaðar og nýtt sér möguleika á útgáfu jöfnunarhlutabréfa til hins ýt,rasta. Um mitt síðasta ár lækkuðu hlutabréf í bönkunum tveimur í verði. Iðnaðarbankinn ákvað að auka hlutafé um 150 milljónir króna og selja bréfin á nafnverði. Þegar forkaupsrétti hluthafa lauk hækkuðu bréfín aftur í verði hjá Hlutabréfamarkaðnum. Verzlun- arbankinn jók hlutafé sitt um 100 milljónir á árinu 1985. Á aðal- fundi bankans vorið 1986 kom í Ijós að afkoma hans árið 1984 hafði ekki verið eins góð og áður var talið. Þá var nokkur hluti hlutafjáraukningarinnar frá óseldur. Ætla má að þetta hafi haft áhrif til lækkunar á verði hlutabréfa í bankanum. Eigið fé Flugleiða í árslok 1983 var neikvætt um 134 milljónir króna. Hlutafé félagsins var 34 milljónir króna. Ári síðar hafði tekist að bæta eigin fjárstöðuna, þannig að hún var jákvæð. Á tveimur síðustu árum hefur svo tekist að snúa blaðinu algjörlega við og var eigið fé jákvætt um 800 milljónir króna um síðustu áramót. Auk þessa hefur hlutafé verið mjög lágt þó það hafi verið þrefaldað með útgáfu jöfnunar- hlutabréfa tvö ár í röð. Þá er einnig tiltölulega lítið af bréfum sem eru til sölu, og lítið framboð hefur áhrif á verð bréfanna. HLUTABREFAMARKAÐURINN; FLUGLEIÐIR FLUGLEIÐABRÉFIN HÆKKA OG HÆKKA Meðaltal tímabilsins 31.10 - 31.12 1985 er sett á 100. Lóðrétti kvarðinn á efra línuritinu ertvöfaldurmiðað við það neðra. LMSKJARA VÍSITALAN 101 100 \VERSLUNARBANKINN t IÐNAÐARBANKINN j LÁNSKJARA VÍSITALAN 3 S 3 5 3 3 í 5 3 3 5 3 5 3 io 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 3 ^ ^ iT 3^'£<o<£<?><O<ír(S,‘ír«,<S’!$><írqa0DQ3q3q?Q0<?>CDqD<ír<írqD<t3qj<£qi<t50Dqí -v v v <v <V <V <V V V <o' <o' <o' <o' N' A' <b’ <b' o>' o>' q>' <S' v v <v <V •v "v' <V <V <V V <V <o' «3 \' <o' v> «3* \* <o' <33’ 03' <q' \’ V <b' <o' q>' «3' <o' q>’ V q>' 'v' <o' <33' <\; <0' <v <o' <í q <5 v << § <1; ij' n' o ^ <v <q <v •< <v >C <v 0 <v <5 <V <3 ^ <ð v <v <V <V 100 Morgunblaðið/ GÓII Grandi Hlutabréfasalan verði hafin á þessu ári segir Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Granda hf. BRYNJÓLFUR Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Granda hf. segir að borgarsjóður eigi að byija sölu á hlutabréfum í Granda á þessu ári. Þetta kemur fram í viðtali við Brynjólf um Granda hf, en liðið ár var fýrsta heila starfsár fyrirtækis- ins. Brynjólfur minnir á að það skilyrði hafí verið sett þegar borgar- stjórn samþykkti sameiningu BÚR og ísbjamarins að hlutur borgarinn- ar yrði seldur. Það sé ekki markmiðið að borgin eigi stóran hlut í Granda. I viðtalinu kemur einnig fram að útgerð Granda hafi verið rekin með 35 milljón króna halla, en físk- vinnslan með 36,5 milljón króna hagnaði. Brynjólfur segir að skipin hafí skilað mismikið upp í fjár- magnskostnað: „Grandi er ekki rekinn eins og tvö fyrirtæki, eitt sem er útgerðarfyrirtæki og annað sem er fiskvinnslufyrirtæki. Aðeins einn togari, Snorri Sturlu- son, af sjö sem Grandi gerði út var rekinn með hagnaði. Þetta er í fýrsta skipti sem Snorri skilar hagn- aði frá því að hann kom til landsins árið 1973. Ástæða þessa er fyrst og fremst tíðar siglingar Snorra. Sjá viðtal við Brynjólf Bjarna- son, B9-11

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.