Morgunblaðið - 02.04.1987, Side 3
V8GÍ JÍHSLA g 5TTJ0
MORGUNBLAÐIÐ,
vmsHPn/joviNNULír
T'TOCSGrV OIGA IUMUWIV
FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
Innlánsstof nanir
Hagnaður Sparisjóðs
vélstjóra 5,5
milljónir króna
HAGNAÐUR Sparisjóðs vél-
stjóra á liðnu ári nam 5,5, milljón-
um króna. Þetta er nokkuð lakari
afkoma en 1985 þegar hagnaður
sjóðsins var 9,8 milljónir króna.
í ársskýrslu Sparisjóðs vélstjóra
1986 kemur fram að innlán jukust
um 54,3% eða 241,4 milljónir króna
á milli ára. Raunaukning innlána
var 36,5%. Um síðustu áramót
námu innlán alls 686 milljónum
króna. Tromp-reikningar eru vin-
sælastir, en um 35,6% innlána eru
á slíkum reikningum. Um 7,6% eru
eru á bundnum sparibókum, 4,4%
á bundnum reikningum, 27,4% á
almennum sparisjóðsbókum, 18,6%
eru veltiinnlán og um 6% eru á
gj aldeyrisreikningum.
Útlán í lok liðins árs námu 539,5
milljónum króna og hækkuðu um
192,2 milljónir á milli ára eða um
55,3%. Miklar breytingar urðu á
milli einstakra tegunda útlána, hlut-
ur verðtryggðra lána minnkaði, en
hlutur víxla, óverðtryggðra skulda-
bréfa og yfirdráttarlána stækkaði.
SPARISJOÐIR — Afkoma Sparisjóðs Vélstjóra á síðasta ári var lakari á síðasta ári en árið 1985,
en þróun innlána var sjóðnum hagstæð og hækkuðu um 54,3%.
Um 59% útlána sjóðsins eru til ein-
staklinga, 23,8% til verslunar, 7,4%
til iðnaðar, 4% til þjónustu, 2,4%
til ríkissjóðs og stofnana og 2,8%
eru millibankalán.
í árslok var eigið fé 111,3 millj-
ónir króna og hækkaði um 28,6%
frá 1985.
Á síðasta ári opnaði Sparisjóður
vélstjóra fyrsta útibúið og_ er það
til húsa að Síðumúla 1. í árslok
voru 30 stöður við sparisjóðinn.
Gengi
Norska
krónan
4,7% hærri
gagnvart
krónunni
Dollarinn hefur lækkað um 3%
frá áramótum, en pundið
hækkað um 5,18% gagnvart
krónunni. Norska krónan hef-
ur hækkað um 4,72% á sama
tíma. Síðustu viku hefur óveru-
leg breyting átt sé stað á gengi
helstu gjaldmiðla gagnvart
krónunni.
Yenið hefur hækkað mest und-
anfarna daga, eða um 1,7% frá
25. mars síðastliðnum. Breyting á
gengi annarra gjaldmiðla er
óveruleg, en pundið hefur lækkað
um 0,7% og dollarinn um 0,1%.
Markið er 0,4% hærra en fyrir
viku. Markið hefur hækkað um
3,35% frá áramótum og norska
krónan um 4,7%. SDR kostar nú
1,7% meira en í ársbyrjun, sænska
krónan 2,9% og danska krónan
3,9%.
Sterlingspundið var í skráð á
gjaldeyrismarkaði í London á
1,6025 dollara. Um hádegi fen-
gust 1,819 mörk fyrir dollarann
og 1,52 svissneskir frankar. Og
dollarinn var skráður á 146,8 yen,
6,345 sænskar krónur og 6,8475
norskar krónur.
Ein únsa af gulli kostaði 418,4
dollara.
GENGIS- SKRÁNING
Nr. 62-1. apríl 1987
Ein.K1.09.15 Kr. Kaup Kr. Sala Toll- gengi
Dollari 38,940 39,060 38,960
St.pund 62,413 62,605 29,891 62,743
Kan.dollari 29,799 29,883
Dönsk kr. 5,6853 5,7028 5,7137
Norsk kr. 5,6892 5,7068 5,7214
Sænskkr. 6,1337 6,1526 6,1631
Fi. mark 8,7398 8,7667 8,7847
Fr.franki 6,4390 6,4589 6,4777
Belg. franki 1,0348 1,0380 1,0416
Sv.franki 25,6302 25,7092 25,8647
Holl. gyllini 18,9840 19,0425 19,1074
V-þ. mark 21,4227 21,4887 21,5725
Ít.líra 0,03007 0,03016 0,03026
Austurr. sch. 3,0481 3,0575 3,0669
Port. escudo 0,2768 0,2776 0,2791
Sp. peseti 0,3049 0,3058 0,3064
Jap.yen 0,26535 0,26617 57,477 0,26580
írsktpund 57,300 57,571
SDR (Sérst.) 49,9595 50,1138 49,9815
ECU.Evrópum. 44,4500 44,5870 44,7339
Zodiac Radiophone 900
- sá þráðlausi!
Nú er hann loksins kominn!
þráðlausi síminn!
Hafa ekki of stuttar eða flæktar símasnúrur og
framlengingarsnúrur eða þessi sífelldu hlaup í
símann stundum farið í taugarnar á þér?
Radiophone 900. Endingartími rafhleðslunnar
er því ótakmarkaður því hægt er að hlaða auka-
rafhlöðu eina sér í hleðslutækinu. Aðeins
Zodiac Radiophone 900 hefur þessa mögu-
leika.
Nú getur þú gleymt þessu með aukasímtækin
og framlengingarsnúrurnar. Hættu þessum
hlaupum og svaraðu í símann eða hringdu þar
sem þú ert.
Láttu ekki kunningjana þína eða viðskiptavin-
ina bíða.
Zodiac Radiophone 900
fylgir þér
Með Radiophone 900 getur þú farið óhindrað
um alla íbúðina, út í bílskúr, niður í kjallara
eða út á lóð - og tekið símann með.
Zodiac Radiophone 900
er léttur í meðförum
Það er auðvelt að forrita 10 símanúmer í
skammvalsminnið og láta Radiophone 900
hringja fyrir sig. Hann man líka síðasta núm-
erið sem hringt var í, svo auðvelt er að hringja
aftur ef það var á tali. í talfærinu er líka upp-
lýstur stafagluggi sem sýnir 10 síðustu tölur
símanúmers og hvaða aðgerðir eru í gangi
hverju sinni.
Engir „símþjófar“ ef þú
notar Zodiac Radiophone 900
Eitt af vandamálunum við ódýru, smygluðu
þráðláusu símana er að aðrir svipaðir símar
, geta komist inn á símalínuna og þar með hringt
á þinn kostnað. Auk þess geta nágrannarnir
hlerað símtölin með einföldu útvarpstæki.
Þetta vandamál er ekki til í Radiophone 900.
Hann hefur 999.999 lykilnúmer. Eitt þeirra átt
þú.
Vertu ekki ráðlaus
heldur þráðlaus!
með Zodiac Radiophone 900
Radiophone 900 hefur stílhreint útlit, sem
fellur vel inn í nútíma umhverfi, hvort sem er á
heimili eða vinnustað.
Og ef þú vilt stundum hafa frið fyrir símanum -
slökktu þá bara á honum.
_____ZJsteLí
Dugguvogi 2,104 Reykjavík, Sími (91) 687570
Zodiac Radiophone 900
er með innanhúskalli
Ef þú þarft að ráðskast við einhvern meðan á
samtali stendur, ýtir þú bara á einn hnapp í tal-
færinu og lokar fyrir taldósina. Sá sem bíður í
símanum heyrir þá ekki það sem ykkur fer á
milli. Þú getur líka kallað með innanhúskalli frá
talfærinu til móðurtækisins, sem hefur inn-
byggðan hljóðnema. Þú getur líka flutt símtalið
til annars símtækis.
Og hljóðgæðin eru framsúrskarandi. Þú heyrir
jafnvel í Zodiac Radiophone 900 og í venjulegu
góðu símtæki.
Zodiac Radiophone 900
hleðst upp sjálfvirkt
f Zodiac Radiophone 900 hleðst rafhlaðan
stöðugt meðan talfærið liggur í móðurtækinu.
Þú getur líka fengið aukahleðslutæki með
Kynningarverð
49.810.-