Morgunblaðið - 02.04.1987, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, VIÐSKIPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 2. APRÍL 1987
ísland — Ameríka
Beinar siglingar milli Njarðvíkur og Norfolk
með M.v. RAINBOW HOPE . Flytjum stykkja-,
palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma.
Umboösmenn oklcar eru
Cunnar Cuöjonsson sf
HafnarstræO 5
PO 80x290
121 Revkiavik
simi 29200 Telex 2014
Mendan Ship Agency. inc
201 E City HaB Ave. Smte 501
Norfolk Va 23510
USA
Simi 18041-625-5612
Tetex 710-881-1256
Áætlun: Lestunardagar
Njarðvík— Norfolk
— 10. apríl
21. apríl - 1. maí
11. maí - 21. maí
(jfc Rainbow
™ Navigationjnc.
1™—a
Þijú íslensk fyrir-
tæki íBella Center
ÁRLEGA norræna húsgagnasýn-
ingin (Scandinavian Furniture
Fair), verður haldin dagana 6.
til 10. maí næstkomandi í Bella
Center í Kaupmannahöfn. Að
þessu sinni taka þijú íslensk fyr-
irtæki þátt í henni.
I nýjasta fréttabréfi Landssam-
bands iðnaðarmanna, Iðnaðurinn
kemur fram að á síðasta ári hafi
aðeins eitt íslenskt fyrirtæki, AXIS
hf. verið á sýningunni. Að þessu
sinni verða þrjú fyrirtæki þátttak-
endur, eins og áður segir og þau
eru: AXIS hf., Kristján Siggeirsson
hf., og GP-húsgögn hf.
Útflutningsráð Islands hefur haft
umsjón með skipulagningu og und-
irbúningi sýningarinnar fyrir
íslensku fyrirtækin. Ráðið verður
með sérstakan kynningarbás á sýn-
ingunni, þar sem kynnt verða
útflutningsfyrirtæki og framleiðslu-
vörur þeirra.
Vörusýningar
Sefur þú áhyggjulaus?
Vátryggingamál fyrirtækja eru margbrotin og flókin.
Oft svo flókin að enginn hefur heildarsýn yfir þau.
Þess vegna valda þau líka áhyggjum.
Ef þu vilt losa fyrirtæki þitt við þessar
áhyggjur í eitt skipti fyrir öll, er ein leið öðrum betri:
Atvinnurekstrartrygging Sjóvá.
Atvinnurekstrartrygging Sjóvá kemur í stað margra flókinna
vátrygginga. Henni fylgja einir
skilmálar, eitt vátryggingar-
skírteini og eitt heildar iðgjald.
Hafðu samband við Sjóvá
og láttu áhyggjurnar ekki
lengur halda fyrir þér vöku.
Sjóvá. Tryggingarfélag í einu og öllu.
Sjóvátryggingarfélag íslands hf., Suðurlandsbraut 4, sími (91 )-82500.
Landssamband
iðnaðarmanna
skipuleggur
hópferðir
LANDSSAMBAND iðnaðar-
manna hefur á undanförnum
árum staðið fyrir kynnisferðum
á erlendar vöru- og tæknisýning-
ar. Sambandið mun skipuleggja
hópferðir á nokkrar sýningar á
þessu ári ef þátttakan verður
næg.
Farið verður til Vestur-Þýska-
lands í lok maí á tvær húsgagna-
og tréiðnaðarsýningar. Þetta eru
sýningar INTERZUM i Köln
(22.-26. maí) og LIGNA í Hannover
(27. maí til 2. júní). Á fyrri sýning-
unni eru sýnd efni, „fittings" og
fleira, en á þeirri síðari vélar.
Dagana 8. til 12. september
næstkomandi verður sýningin
Handværk og Industri ’87 haldin í
Heming á Jótlandi. Þetta er blönd-
uð iðnaðarsýning.
Byggingariðnaðarsýningin BAU
í Munchen verður 20.-26. janúar á
næsta ári. Sýningin er þekkt og
haldin á þriggja ára fresti.
Nokkrar sýningar í málm- og
skipaiðnaði verða á þessu ári: Fish-
ing ’87 (9.-11. apríl) í Glasgow,
Nor-Shipping ’87 (2.-5. júní) í Osló,
Intemational Fishing Equipment
Exhibition (10.-13. september) í
Halifax, Kormarine ’87 (22.-26.
september) í Suður-Kóreu.
Hægt er að fá nánari upplýsingar
um þessar vörusýningar á skrif-
stofu Landssambandsins.
Nýtt
Erloftið
þungt?
RYK, fijóduft, sót, tóbaksreykur
og fleira óheilnæmt veldur mörg-
um óþægindum. Biotech loft-
hreinsi- og jónatækin hreinsa
loftið með því að sía það í gegn-
um sérstakar rafhlaðnar plast-
segulsíur.
Það er fyrirtækið Eldfrost sem
er með umboð fyrir Biotech á ís-
landi og samkvæmt upplýsingum
þeirra draga tækin til sín smæstu
agnir og lykt af tóbaksreyk, mat
og öðm hverfur, auk þess sem
asmavaldandi agnir em síaðar úr
loftinu.
Á skrifstofum og heimilum er
lítið af neikvæðum og mikið af já-
kvæðum rafhlöðnum ögnum.
Stefán K. Guðnason, framkvæmda-
stjóri Eldfrosts sagði að þegar
jafnvægið milli þessara rafhlöðnu
agna raskast þá raskist einnig jafn-
vægi manna. Biotech sér um að
halda stöðurafmagni í jafnvægi.
Stefán benti á að þreytueinkenni
(slen) minnki og þar með aukist
afköst og einbeiting.
Biotech-tækin em til í ýmsum
útgáfum. Eldfrost er til húsa að
Borgartúni 27 í Reykjavík.